FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristinn Magnússon

Kristinn Magnússon

Profile picture of Kristinn Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 521 through 540 (of 897 total)
← 1 … 26 27 28 … 45 →
  • Author
    Replies
  • 27.10.2006 at 22:17 #565312
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þetta þýðir bara eitt, fyrst sexan er dauð þá er komin ágætis afsökun fyrir átta sílendrum.
    Alltaf að líta á björtu hliðina!

    kv. Kristinn





    26.10.2006 at 17:13 #565342
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hér er ágætis reiknivél fyrir svona hluti: [url=http://www.grimmjeeper.com/metric_gears.html:3dxbtzys]http://www.grimmjeeper.com/metric_gears.html[/url:3dxbtzys]

    Hún er frekar sniðug, maður getur valið þarna algengustu skiptingar og millikassa (í USA) og ef það er ekki inni þá stimplar maður bara inn hlutfallið. svo sér maður hvað hann á að snúast á t.d. 100 km hraða

    kv. Kristinn





    25.10.2006 at 22:37 #565130
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hversu mikið kingpin horn er mikið? Það er 11° á hásingunni eins og hún er núna með orginal 4° spindilhallann (sem er reyndar 12° þar sem hásingin hallaði um 8° í Wagoneernum orginal)
    .
    Já ég segi það með ykkur að ég vona að hann komist á götuna sem fyrst. En ég ætla samt sem áður ekkert að flýta mér og gera þetta eins vel og ég get!
    .
    Magnús, hvað er þinn langur á milli hjóla? Eins og ég er búinn að stilla þessu upp með framdekkið í flútti við framstuðarann á orginal stað þá er ég með 261 cm…
    .
    kv. Kristinn





    25.10.2006 at 20:31 #565260
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvers vegna var þá alltaf verið að tala um heddpakkningabasl í kringum þessar Toyotu sexur.
    Ég hef ekið einum bíl með þessari 3.0 vél, hann var beinskiptur og ég var hreint út sagt ekki hrifinn, mér fannst hann gersamlega steindauður á lægri snúningi en svo ef maður lét hann öskra aðeins þá komst hann ágætlega úr sporunum. Hann var alveg óbreyttur… og einhverra hluta vegna var nýbúið að taka upp blessaða vélina og skipta um hedd? Vortec 4.3 svínvirkar og gott ef ég sá ekki tjónaðan Blazer með svoleiðis vél auglýstann hérna um daginn á lítið.

    kv. Kristinn





    25.10.2006 at 15:12 #565118
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég er með Dana 44 undan Wagoneer ’79.
    Gætirðu ef til vill útskýrt fyrir mér hvers vegna það skiptir máli?
    Þú talar um að það sé mikilvægt að átta sig á samhengi caster, kingpinhorns og steering offset en svo er ekkert talað nánar um það á síðunni. Hvernig þá?

    kv. Kristinn

    ps. myndir eru á [url=http://obbobobb.vefalbum.is/breytingar:27q7akov]http://obbobobb.vefalbum.is/breytingar[/url:27q7akov]!





    25.10.2006 at 00:34 #565110
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þú segir nokkuð, pabbi er nefnilega á Econoline og er með að mig minnir 12° spindilhalla og á 41" sumardekkjunum þá er hann leiðinlega mikill. Er samt skárri á 46 tommunni.

    Þannig að ég vil helst ekki setja of mikinn spindilhalla, hvað finnst mönnum vera passlegt?
    kv. Kristinn





    24.10.2006 at 23:50 #198800
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Jæja…

    1. Er eitthvað í þessum blessuðu reglugerðum okkar hér í þessu skrifræðisríki sem BANNAR það að framdekkin nái lengra en stuðarinn?

    2. Hvaða spindilhalli hefur reynst mönnum vel á 38″. Gunni Egils mælti með 9° en mér þykir það svona svolítið í hærri kanntinum, þess vegna væri gott að heyra reynslu manna á þessu. Þetta er Dana 44 hásing sem á að fara undir Wrangler.

    kv. Kristinn





    22.10.2006 at 00:40 #564874
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    V6 Grand Vitara er tæp 1700 kg, litli Cherokee með 4.0 vél á 38" er 1700-1800 kg. Vitaran yrði því sennilega þyngri en Cherokee á 38"?
    Ég er bara því miður ekki sammála þér í því að það sé enginn á léttum bíl… hvað eru margir Cherokee á 36-38" dekkjum? Þeir skipta ábyggilega tugum og eru einkar sprækir og duglegir. Svo eru það Willys & Wrangler, það er heill hellingur af léttum bílum á stórum dekkjum. Hiluxinn er heldur ekki mikið þyngri en það þarf eitthvað alvarlegt að koma fyrir í húddinu á þeim annars ágætu fisksalabílum til að þeir fari að spræna fram úr 49" Ford. Minn 38" Wrangler er t.d. 1600 kg. Svo komum við að öðru að við sumar aðstæður þá eru stærri bílar einfaldlega að virka betur en ég segi nú ekki við allar aðstæður. Það getur líka verið ofurlítið hentugt að koma fleiru fyrir en hitabrúsa og brauðsneið með hnetusmjöri í bílnum hjá sér (segi ég sem kem því rétt svo fyrir hehe en er það ekki bara þessvegna sem ég segi að það geti verið hentugt… hehehe)

    Stórusmájeppakveðjur, Kristinn





    18.10.2006 at 23:41 #563688
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Framdrifið á Dakotunni er Dana 35, 7.5"!

    kv. Kristinn





    18.10.2006 at 23:31 #563862
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Er virkilega enginn sem hefur prófað að vera með svona pikköpp með V10 bensín?
    Pabbi tók Econolineinn sinn með þeirri vél og það er sko engin eftirsjá í því. Hann er bæði léttari og töluvert ódýrari en díselbíllinn. Svo maður minnist nú ekki á að það heyrist ekki múkk í honum!
    Eyðslan hefur verið að koma út á mjög svipuðu róli og á díselbílunum, enginn töluverður munur þar á. Hann er að eyða um 25 á hundraðið á langkeyrslu, drekkhlaðinn á 46 tommunni og reyndar þá var líka sleðakerra með 2 sleðum aftaní þegar þessi mæling var gerð. Svo er nóg afl í þessu… og sama skipting og í díselbílnum

    kv. Kiddi kani

    ps. það er munur á alvöru trukkum með HÁSINGAR og einhverju klafadrasli sem var skrúfað upp og hamast á… það var auðvitað bara spurning um hvenær þetta hryndi í sundur í gemmsanum, ekki hvort! kannski ég bæti því við að þessi orð eru ekki illa meint





    18.10.2006 at 13:38 #563694
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ef þú ætlar að halda þig við línu sexuna þá gætu orginal hásingarnar alveg dugað, cherokeeinn er nú samt sennilega með skemmtilegri framhásingu en Wranglerinn þar sem Wranglerinn er með kjánalega vakúmloku á hægri öxlinum sem á það til að vera til vandræða!
    35 afturhásingin er alveg á mörkunum fyrir 38" bíl og ef þú átt þessar 44/9" hásingar til eða getur fengið þær fyrir lítið þá væri það alls ekki vitlaust að nota þær!
    Það er eitt sem þú verður að athuga og það er að millikassinn í Cherokee hallar öðruvísi en í Wrangler, framdrifsúrtakið nær eitthvað lengra niður en það er hægt að bora önnur göt aftan á skiptinguna til að leiðrétta það.

    kv. Kristinn





    16.10.2006 at 22:44 #563640
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sko ég var nú ekki alveg viss með Rangerinn, þannig að ég googlaði eftir þessu og fann það út að fyrir 1990 þá var Dana 28 hásing undir þeim að framan, sem er með 6.63" drifi (sem er aðeins stærra en afturdrifið í Imprezunni minni!) og öxlarnir eru 23 rillu í Rangernum. Síðan eftir 1990 þá fá þeir Dana 35. Bæði Dana 28 og 35 hásingarnar eru með reverse drifi og 35 er með stærri krossa í öxlunum.
    –
    Þetta allt saman fann ég á [url=http://www.therangerstation.com:1ixgnpxo]therangerstation.com[/url:1ixgnpxo]
    Þessi síða [url=http://www.therangerstation.com/tech_library/4wd_Front_Axles.html:1ixgnpxo]hér[/url:1ixgnpxo] sýnir þetta vel
    –
    Gaman að því!





    16.10.2006 at 14:28 #563636
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þetta hlýtur að fara létt með 38", ætli framdrifið yrði ekki til vandræða með stærri dekk en það?

    kv. Kristinn





    16.10.2006 at 14:17 #563632
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Afturhásingin er ford 8.8" með 31 rillu öxlum. Þessi hásing er aðeins sterkari en Dana 44 en hefur hins vegar þann galla að öxlunum er haldið á sínum stað með c-splitti inn í drifinu. Sem gerir það að verkum að öxullinn ásamt dekkinu flýgur beinustu leið út þegar öxull brotnar!
    Framhásingin er Dana 35 klofhásing. Drifið er 7.5" og öxlarnir 27 rillu. Ekki beint sá sterkasti búnaður sem til er en ætti sennilega að duga!

    kv. Kristinn





    13.10.2006 at 18:21 #563368
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Eftir því sem ég best veit eru Ford hættir við að setja International vél í F-150 og í staðinn mun koma 4.4 lítra V8 Ford díselvél (ekki International!). Það er giskað á að hún muni skila um 330 bhp og 700 NM!

    kv. Kristinn





    13.10.2006 at 18:16 #563384
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Talaðu líka við Magga felgubreikkara, hann þykir mjög góður. Ægir gæti verið svolítið dýr… a.m.k. fékk ég mun hærra tilboð í felgubreikkun hjá honum en Magga.

    kv. Kristinn





    07.10.2006 at 23:42 #562826
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hásingin er ekki alveg sú sama, eldri bíllinn er með Dana 30 með háum pinjón en sá nýrri er með Dana 30 með lágum pinjón. Þær nota samt sömu keisinguna sem í þessu tilfelli er ARB driflás…

    með Jeeeeep kveðju,
    Kiddi





    04.10.2006 at 23:33 #562222
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þetta hljómar fyrir mér eins og startpungurinn sé dauður!
    Ef hann er stakur í brettinu eins og í mínum jeppa þá er hægt að redda sér með því að tengja startkapal frá + pólnum á geyminum og á pólinn á startaranum. En ef startpungurinn er á startaranum þá hef ég ekki hundsvit á hvað hægt er að gera! Það ætti að sjást á því að ef það liggur kapall beint frá geyminum og á startarann þá ætti pungurinn að vera þar… eftir minni bestu vitund allavega.

    kv. Kristinn





    03.10.2006 at 23:15 #562198
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það er eitt sem ég er alveg dauðhræddur um. Og það er að íslendingar álpist í þetta helvítis Evrópusamband (sem við erum nú með aðra löppina inní einhverra hluta vegna!) ,og eftirlátum möppudýrunum í Brussel eða hvar sem þessi kvikindi eru stjórn á lífi okkar. Þeir væru alveg vísir til að senda á okkur tilskipun um að akstur utan upphækkaðra ESB-EES-OECD-NATO samþykktra vega með 350.6 mm þykku slitlagi sem hefur verið samþykkt af evrópskuvegalagningaröryggiskannananefndinni. Nú jæja nú er ég kannski farinn að bulla aðeins og ýkja en ég er nú samt hræddur við þetta.
    Það sem er ekki bannað er leyft og svoleiðis skal það vera! Ekkert kjaftæði eins og í Evrópu þar sem það sem ekki er leyft er bannað!

    kv. Kiddi kanamella





    27.09.2006 at 23:56 #561692
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Mýktin á hásingarbíl fer nú alveg eftir því hvernig fjöðrunin er uppsett, hvernig samslátturinn er, mýkt á gormum eða loftpúðum og svo framvegis… mín skoðun er allavega sú að hásingabílar geta alveg verið jafn mjúkir og klafabílar og öfugt. Þar sem þetta er nú bara mismunandi uppsetning á einhverju drasli sem beygist sundur og saman!

    kv. Kiddi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 521 through 540 (of 897 total)
← 1 … 26 27 28 … 45 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.