FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristinn Magnússon

Kristinn Magnússon

Profile picture of Kristinn Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 461 through 480 (of 897 total)
← 1 … 23 24 25 … 45 →
  • Author
    Replies
  • 30.01.2007 at 21:02 #578088
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hérna sést munurinn á legubúnaðnum ágætlega… ég held að Jeep Dana 30 sé svipað og í Scout allavega eiga liðhúsin að vera mjög lík og sömu ytri öxlarnir
    [img:1l8b15zq]http://www.partsmike.com/images/spindles.jpg[/img:1l8b15zq]

    kv. Kiddi





    29.01.2007 at 20:44 #577786
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég get svosum alveg skilið að menn vilji sparneytnar og togmiklar díselvélar í ferðajeppa. En Willys/Wrangler eru bara alls engir ferðajeppar… svo einfalt er það. Það væri miklu nærri lagi að finna einhvern þægilegan, vel þéttan jeppa eins og t.d. Ford Explorer og hola einhverri díselrellu ofan í hann og þá væri kominn ágætis ferðajeppi… en eins og ég segi þá er þetta bara mín skoðun, sem ég ætla ekki að þröngva upp á einn né neinn. En mér er nú samt sem áður nokk sama ef út í það er farið hvort einhver virkilega nenni að standa í svona díselbissniss… verði þeim að góðu segi ég nú bara hehehe





    29.01.2007 at 15:41 #577772
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Já ég get ekki verið annað en sammála seinasta ræðumanni. Mér finnst það gjörsamlega fyrir neðan allar hellur að menn skuli láta sér detta slíkan verknað í hug; að menga léttan og skemmtilegan jeppa með níðþungri rellu úr einhverri guðsvolaðri skurðgröfu eða einhverri álíka vinnuvél.
    Ég játa það samt sem áður að ég er nú svosum ekki með öflugasta mótor veraldar, en hann skilar þessum bíl svona nokkuð skítsæmilega áfram. En alls ekki meira en það. Þessi mótor er einhver 120 hestöfl svona hérumbil, og 300 NM, og það á skuggalega lágum snúning, hann vinnur því ekki ósvipað og díselmótor með turbo og intercooler sem er búið að skrúfa vel uppí. Er það ekki annars þessi lágsnúningsvinnsla sem grútarkallarnir dásama svona í tíma og ótíma? Ég verð nú bara að segja það, að mér hundleiðist þetta bölvaða tog, þar sem það eru svo gott sem engin hestöfl líka. Jújú það má svosum finna einhverja kosti á öllu. En eini kosturinn sem ég sé við þetta blessaða tog er sá að ég get sleppt því að skipta um gír stöku sinnum. En er það ekki annars það sem sjálfskiptingar eru hugsaðar fyrir?
    Ég get svo svarið það, að þessi bill minn hann gjörsamlega hatar brekkur. Hann einhvern veginn fæst ekki til að drullast upp minnstu brekku. Hvers vegna? Jú það sem vantar eru HESTÖFLIN. Það er bara enginn sannur Willys eða Wrangler án hestafla, og ef hestöflin eru ekki til staðar, þá er það bara vandamál og vandamál eru jú til þess að leysa. Og ég er með eitt svona vandamál út í skúr hjá mér, hestaflalausan Wrangler. Og þar sem ég treysti ekki orginal drifbúnaðinum fyrir alvöru afli þá ákvað ég að byrja á þeim endanum að skipta því öllu út fyrst áður en ég fer að hola öllum hrossunum úr Skagafirðinum þarna niður í húddið.
    Öðru vísi verð ég bara aldrei sáttur með þennan bíl. Ég er búinn að fá mig alveg fullsaddan á því að leggjast í þunglyndiskast í hvert skipti sem ég sé brekku framundan. Ég vil hafa minn jeppa í kringum 1600 kíló, með fjárann allan af hestöflum, og að sjálfsögðu sjálfskiptan. Og það mun koma að því, fyrr mun ég ekki sætta mig við það að fá fljúgandi gítara í hnakkann í öllum djöfuls hossingnum í þessu stutta kvikindi, og allt þetta skrambans vindgnauð og rigninguna sem því fylgir.
    Þess vegna bara get ég ekki skilið hvers vegna menn langar að smíða 2 tonna bíl, sem heldur ekki veðri, fer ekki vel með mann, og er ekki einu sinni sprækur! Sér í lagi þegar dísellítrinn kostar meira en bensínlíterinn, og það er alls ekki víst að maður muni nota minna eldsneyti þar sem díselrellan er nú þyngri svo maður tali nú ekki um hvað fyrirtækið að útvega hana og hola henni niður kostar. En það er svosum bara mín skoðun, mönnum er auðvitað frjálst að vera ósammála mér eins og mér er frjálst að vera ósammála öðrum. Þannig er það nú bara og ég vona að enginn hafi fengið fyrir hjartað sökum þessara skrifa.

    kv. Kiddi





    29.01.2007 at 14:48 #577814
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvar fást svona plasttankar Gummi?

    kv. Kiddi





    27.01.2007 at 00:38 #577572
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Mig þyrstir nú bara í að vita hvernig hásing fór undir þessa Tacomu sem verið er að rífa undan…
    kv. Kiddi





    22.01.2007 at 00:19 #576304
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Pabbi er með svona undir ca 3500 kg Econoline. Bíllinn flýtur alveg ágætlega á þeim, þau grípa vel í snjó. Við erum mjög sáttir við þessi dekk þó svo að það séu bölvuð læti í þeim á þjóveginum og svo eru þau heldur sleip í hálku (míkróskorin í miðju og ónegld). En þau eru nokkuð kringlótt og alls ekki hægt að kvarta undan hoppi í þeim.
    Ástæðan fyrir því að við tókum þessi dekk frekar en 44" TrXus er að 46" er mun léttari í akstri enda er TrXusinn heldur breiður og virðist ræna töluverðu afli.
    Ég mæli alveg a.m.k. alveg hiklaust með svona dekkjum.
    kv. Kiddi





    18.01.2007 at 23:46 #576068
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Er það semsagt "nýjasta" æðið að vera á sem þyngstum bíl til að ná niður í gegnum snjóinn?
    Hvernig bíll var þessi 38"?





    18.01.2007 at 20:00 #576200
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þó að bíllinn sé kominn á 35" núna þá er það alveg jafn mikil vinna að breyta honum á 38" og orginal bíl, það þarf bara að vinna allt upp á nýtt sem er búið að gera…

    ps. varst það ekki annars þú sem sagðist um daginn fara allt sem þú vildir fara á 35"… hvað ertu þá að spá í 38" hehehhe 😀





    17.01.2007 at 13:00 #575890
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    NP 249 (QuadraTrac) var ekki læstur í lága fyrr en ’96…
    kv. Kiddi Jeep





    15.01.2007 at 22:41 #575738
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þarna erum við sko loksins að tala um Toyotu sem eitthvað vit er í, V8 bensín og amerískar hásingar það bara gerist ekki betra.
    kv. Kiddi kanamella





    13.01.2007 at 23:02 #575326
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvað eru svona Fordar síðan þungir original?
    kv. Kiddi





    12.01.2007 at 16:55 #575204
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sæll
    Raggi í Jeppahlutum á þetta alveg pottþétt til. Síminn hjá honum er 662 4444.
    kv. Kiddi





    08.01.2007 at 22:57 #574262
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það þarf ekki 5 tonn til að fá V8 sándið :-)

    kv. Kiddi Jeep





    07.01.2007 at 16:37 #574120
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Umboðið og AB Varahlutir eru með orginal Toyotu hluti og eftir því sem ég best veit eru þeir ekki dýrir hjá þeim





    07.01.2007 at 04:06 #574100
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sæll
    Bæði 4.88:1 og 4.89:1 er til í Dana 44, og ef mér skjátlast ekki á 4.88:1 að vera í Pajero 2.8 orginal?
    A.m.k. sagði félagi minn sem er Pajero veikur í meira lagi það.
    Það er síðan spurning hvar Dana 44 undan Wagoneer með drifið vinstra megin finnst, það er eitthvað lítið orðið eftir af þeim en sjálfsagt hlýtur hún að finnast einhvers staðar! Ég vissi af bíl með svona hásingu sem stóð upp á höfða, númerslaus og kolryðgaður en hann hvarf… ég vona bara að hann hafi ekki farið í pressuna.
    Það er alltaf gaman að því þegar menn eru til í að fara í alvöru breytingar!
    kv. Kiddi





    06.01.2007 at 20:02 #574084
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Eins og Andri segir þá er Wagoneer hásing góður kostur, eftir 1980 er drifið vinstra megin á þeim, þær eru 154 cm breiðar (Hiluxinn 140 cm!) fyrir 6 gata felgur og með góðum legubúnaði og bremsum.
    Nú vilja sumir ekki sjá opin liðhús, og þá hefur maður séð menn skeyta Toyotu liðhúsum og öxlum á Dana 44 hásingar. Ef Hilux öxlar væru notaðir þá yrði hásingin sennilega of stutt. Það er þá spurning hvort einhverjir Cruiser öxlar hentuðu betur, Dana 44 og Toyotu framhásingarnar eru allar með 30 rillu öxla sem ganga alveg á milli. Ég á meir að segja nokkrar 44 afturhásingar (minnir að þær séu 3 er samt ekki viss) sem eru með afturdrifið hægra megin, ef maður notaði þær sem framhásingar þá væri framdrifið því vinstra megin og hægra rörið alveg passlega langt og vinstra rörið passlega stutt. Þær myndu því henta mjög svo ágætlega í eitthvað svona mix, sama hvort menn vilji nota Toyotu liðhús eða amerísk liðhús sem ég játa nú að ég er töluvert hrifnari af. Ég er sjálfur búinn að stytta eina Dana 44 hásingu fyrir sjálfan mig og það var ósköp lítið mál, það sem ég þurfti var einfaldlega slípirokkur, góð sleggja, góður gráðumælir til að mæla spindilhallann og síðan fékk ég vanan suðumann til að sjóða fyrir mig.
    En ef einhver vill spreyta sig á að mixa hásingar úr þessum hásingum sem ég er með er þeim guðvelkomið að fá svoleiðis hjá mér… ég vil ekki fá neitt meira fyrir þetta en ég fékk þær á… sem sagt ekki krónu með gati viðkomandi þyrfti bara að koma og sækja þetta ef hann vill! En bara ef hann ætlar að nota þetta því eins og flestir vita þá er stranglega bannað að henda svona.
    Að nota Pajero hásingu held ég að verði seint talinn ódýr kostur… a.m.k. veit ég ekki um neina framöxla sem gætu passað með henni!
    En sama hvaða hásingu þú notar undir þetta þá held ég að þessi Pajero myndi skara fram úr langflestum öðrum Pajeroum og yrði sjálfsagt enn betri ef þú tækir afturstífurnar og notaðir að framan, þar sem þær eiga heima (svona stífur eru oftast kallaðar framstífur og það er góð ástæða fyrir því) og smíðaðir gott 4 link að aftan!
    En jæja látum þetta gott heita að sinni um hásingar…
    kv. Kiddi semerbúinnaðspöguleraalltofmikiðíhásingum
    ps. Svo var mér að detta eitt í hug… sem ég hef bæði heyrt af og séð gert, og það er að taka hásinguna sem þú átt, rífa rörin úr drifinu og pressa þau í með réttum spindilhalla hinu megin!





    06.01.2007 at 16:42 #574074
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Patrol hásingar eru eitthvað hérumbil svipað breiðar og Pajero, hversu nálægt er erfitt að segja en langbest er bara að ráðast á þetta með málbandinu og mæla á milli felguplananna og vera þá alveg handviss um að málin séu rétt.
    En hvað hefurðu hugsað þér að gera varðandi framdrifið. Nú er Pajero með drifið vinstra megin en Patrol hægramegin, það þyrfti þá annaðhvort að breyta framhásingunni eða skipta um millikassa.
    Hvort eru þessar Patrol hásingar undan fjaðrabíl eða gormabíl?
    kv. Kiddi





    06.01.2007 at 00:59 #573504
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvernig er ástandið á Scoutinum eða er það ekki annars hann sem er á kafi fyrir framan?





    05.01.2007 at 00:29 #570672
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Fær maður líka yfirlit yfir bensínnotkun eða er þeim svona annt um geðheilsu viðskiptavinanna?





    05.01.2007 at 00:27 #573728
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég rakst á Tonkuna um daginn og spjallaði aðeins við eigandann (honum virtist ekki alveg standa á sama að einhverjir strákskrattar væru skríðandi undir jeppahræinu sínu). Hann var nú ekki mjög mælskur en ég náði þó að veiða uppúr honum eitthvað aðeins. Framhásingin er smíðuð uppúr Cruiser 60 hásingu og afturhásingin er 9" Ford. Hann nefndi að bíllinn væri um 1700 kg, sem ég verð að viðurkenna að mér finnst frekar þungt miðað við að það sé álpallur og álvél í honum… og þetta er heldur ekkert mjög stór bíll!
    En flottur er hann og svíííínvirkar ábyggilega! Það væri gaman að sjá hvað fjöðrunin getur…
    kv. Kiddi Jeep





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 461 through 480 (of 897 total)
← 1 … 23 24 25 … 45 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.