Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.03.2007 at 16:56 #583610
Það sem ég þurfti var semsagt fóðringarnar, átta stykki af þeim og hólkarnir það var um 20 kall eins og áður sagði.
Stífuefnið fékk ég í Sindra-Stáli, það er sama efni og var notað að aftan og þar sem ég hafði ekki lent í neinum vandræðum með afturfjöðrunina þá ákvað ég að nota það. Það eru sumsé prófílar, 40x40mm 4mm þykkir. 3 metrar af því kostuðu ca 2000 kall.
Þá er það þverstífan, ég á að vísu eftir að koma mér í það að kaupa fóðringarnar í hana, það verða Land Cruiser 80 fóðringar sem ég held að kosti um 1500 kr stykkið. Síðan fæ ég hólkana utan um þær hjá Barka í Kópavogi, það er bara eitthvað háþrýstingsrör sem vill svo heppilega til að passar einmitt utan um fóðringarnar, 40mm að innanmáli.
.
En hver er ástæðan fyrir því að þú ert að pæla í 4-link frekar en þessum týpísku framstífum (Rover, Cruiser)? Hjá mér var það nú helst það að það var auðveldara að koma 4-linkinu fyrir, heilu stífurnar hefði ég þurft að festa á drifkúluna sem er úr steyptu stáli og svo sver að Cruiser stífurnar sem ég var með pössuðu ekki með góðu móti utan um.
Þá hefði ég þurft að færa þær utar og festa á svipaðan stað og ég festi stífurnar í 4-linkinu, og annað hvort hafa stífurnar á ská sem gekk heldur ekki upp hvað varðar pláss og þá var hinn möguleikinn að taka festinguna til hliðar við grind en það takmarkar beygjuradíusinn of mikið að mínu mati. Það eru svona helstu ástæðurnar fyrir því að ég fór á 4-link. En nú er frekar auðvelt að festa stífur nánast hvar sem er á Toyota hásingar, það er ekkert steypustál að þvælast fyrir manni þar… ég er alls ekki að segja að það sé neitt slæmt að fara á 4 link, heldur bara aðeins að velta hlutunum fyrir mér. Þetta hefur allt saman sína kosti og galla…
.
kv. Kiddi
08.03.2007 at 01:25 #583604Ég er að smíða 4 link að framan hjá mér í rólegheitunum… það eru myndir í albúminu hjá mér
og já ég er líka með 4 link að aftan, og það virkar alveg nokk sæmilega eins og sést á [url=http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/3639/25714.jpg:2b5rmtg3]þessari[/url:2b5rmtg3] mynd en þarna er hann enn á flatjárnunum að framan, blessuð sé minning þeirra!
kv. Kiddi
08.03.2007 at 00:06 #583598Já… veistu… ég veit ekki með þig, en ég að minnsta kosti vil hafa gúmmí í mínum fóðringum en ekki bara stál eins og kanarnir eru svo hrifnir af. Það þykir nefnilega gott að einangra titringinn og hristinginn frá dekkjunum svolítið frá grindinni. Það útskýrir kannski af hverju þeir nenna fæstir kanarnir að aka þessum tryllitækjum sínum út í óbyggðirnar, oftar en ekki draga þeir þá á kerru 😛
Enda er það sem þeir pæla mest í einfaldlega það að geta snúið hásingunni þvísem næst nokkra hringi í kringum bílinn, þeim er alveg skítsama hvort það nötri allt og skjálfi þar sem þeir fara nú oftast ekki yfir 3 km hraða í þessu kletttaklöngri sínu… en ég ætla ekki að rausa um það í alla nótt svosum…
.
Benz kálfa fóðringar þykja mér alveg helvíti góðar, ég er með þær bæði að framan og aftan hjá mér.
Þessar fóðringar og hólkarnir utan um þær fást hjá ET Klettagörðum og kostuðu ca. 20 þúsund 8 stykki minnir mig. Og þeim 20 þúsund kalli finnst mér alls ekki illa varið!kv. Kiddi
07.03.2007 at 20:55 #583592Ekki væri einhver ykkar sem er með þessar teikningar undir höndum til í að senda mér þær á kristinnm(hjá)gmail.com?
Fyrirfram þakkir, Kristinn
25.02.2007 at 22:33 #582124Ef þú vilt létta stýrið þá geturðu skipt stýrismaskínunni fyrir aðra úr Cherokee eða Wrangler, af svona ca árgerð ’90 og eldri. Þeir eru með miklu léttari stýri og maskínunarnar passa alveg á milli fyrir utan það að sektorsarmurinn í Grandinum er síðari en hann færir maður bara á milli, ekkert stórmál þar á ferð.
Svo varðandi aukarafkerfið… keyptirðu ekki bílinn af honum Gunna? Ég man ekki betur en hann hafi eitthvað verið að dunda sér við að setja aukarafkerfi í hann, þú ættir kannski bara að spyrja hann nánar út í það?kv. Kiddi
17.02.2007 at 00:41 #578776Það er nokkuð mögnuð þyngd… sambærilegar krúser stífur vigtaði ég sem 25 kg parið… og blaðfjaðrirnar sem komu úr Wranglernum mínum eru 34 kg parið!
En svona fyrir forvitnis sakir, hvaða efni var notað í afturstífurnar?kv. Kiddi, sem er alltaf að pæla
16.02.2007 at 21:12 #578772Ekki veistu hvað þessar álstífur sem voru smíðaðar undir Wranglerinn að framan eru þungar?
Wrangler kveðja, Kiddi
13.02.2007 at 22:44 #578424Jæja þá eru einhverjar myndir komnar inn fyrir þá sem hafa áhuga…
kv. Kiddi
12.02.2007 at 21:19 #580164Gunnar, þú nefnir vandræði með skoðun í sambandi við Beadlock? Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei heyrt áður… hefurðu heyrt af því að menn komist ekki í gegn með kantklemmur á felgunum?
kv. Kiddi
11.02.2007 at 23:57 #580104Sæll
Hvaða hlutföll ertu með í Bronco hásingunni? Það eru sitthvorar keisingarnar fyrir 3.92:1 og lægri drif og síðan 3.73 og hærri drif (lægri tala…), ég á einhverjar fyrir hærri drifin og þú gætir alveg fengið eina gefins hjá mér ef þú hefur áhuga á því…
kv. Kiddi
09.02.2007 at 21:38 #5799704.0 mótorinn smellpassar í festingarnar hjá þér…
Það er bara eitt sem passar ekki, það er að viftan er hliðruð þannig að þú þarft að finna vatnsdælu og viftu úr Wrangler 4.0… spurning hvort það passi líka af gömlu 258?
kv. Kiddi
09.02.2007 at 21:06 #579964Sæll
Millikassinn sem þú ert með passar ekki aftan á Cherokee skiptinguna. ’88 Cherokee er með 6 bolta í hring sem festa millikassann við skiptinguna og 21 rillu úttaksskaft. Dana 300 úr Willys frá 1980 til 1986 passar í boltagötin en er með 23 rillu öxul. NP 208 úr Dodge hafa menn líka notað og hann er sömuleiðis með 23 rillu öxul. Hann væri líklega of langur samt til að nota í CJ fimmu en Dana 300 er mjög stuttur og myndi ábyggilega henta mjög vel, eini gallinn er að þeir eru orðnir heldur sjaldséðir en þeir leynast nú samt hér og þar.
Það er þá spurning hvort það sé hægt að skipta um öxulinn í skiptingunni eða einfaldlega fá skiptingu úr bíl nýrri en 1990 þeir eru með 23 rillu öxul en það gæti svosum verið eitthvað fiff með rafkerfið… sjálfsagt hægt að leysa það eins og flest annað… en þá ætti Dana 300 að smella uppá svona nokkurn veginn, ég veit að þeir í vesturhreppum hafa þurft að setja speisera á milli en það ætti ekki að vera neitt rosalegt mál að leysa.Pústgreinar af 258 passa ekki á 4.0…
07.02.2007 at 16:59 #579344Ég get engan veginn áttað mig á því hvað fær þig til þess að halda að þetta sé hagræðing sem eigi eftir að skila sér til neytenda. Það eina sem skilar lægra verði til neytenda er SAMKEPPNI og þetta er í þveröfuga átt og ég held að við megum alveg búast við því að skoðunin hækki um svona 2-3 þúsund kall og 4×4 afsláttinum verði hent beint í ruslið.
06.02.2007 at 00:44 #579162Hvað braustu að framan? Ég er með framfjaðrir úr Wrangler sem þú getur fengið, reyndar er annað augablaðið brotið, ekki spyrja hvernig það gerðist hehehe
kv. Kiddi Wranglermella
05.02.2007 at 23:11 #578960Hvernig væri það nú, að nýta þessa peninga frekar í að stytta hringveginn eins og áður hefur verið nefnt hér, og byggja hann upp almennilega þannig að það sé einn góður vegur á milli suðurlands og norðurlands en ekki einn ónýtur og annar skítsæmilegur sem verður síðan ekki fær hálft árið… ég botna bara alveg hreint engan veginn í hvað menn eru að pæla með þessu
04.02.2007 at 20:19 #578882Já ég held að þetta sé rétt. Heyrði einu sinni af Benz húsbíl sem sett var undir Benz framhásing, og notaður amerískur millikassi. Þegar sett var í framdrifið og kúplað frá þá drap bíllinn alltaf á sér… ekki skrýtið kannski þar sem framdrifið og afturdrifið unnu á móti hvort öðru og stoppuðu þannig sveifarásinn
Ég hef líka tekið eftir því að pinjónninn á Benz drifunum er á hliðinni á drifunum, á amerískum og japönskum hásingum er hann fyrir ofan eða neðan…kv. Kiddi
01.02.2007 at 18:28 #578526Þú ert ágætur og rúmlega það
kv. Kiddi
01.02.2007 at 16:34 #578408Klofinn stýrisgangur úr Cherokee er alveg út úr myndinni hjá mér, ég er að setja 44 hásingu að framan. Togstöngin verður alveg lárétt og kemur ofan á liðhúsið hægra megin þannig að þetta er heldur ekki eins og orginal Wrangler stýrisgangur. Dauðaslagið í honum fór alltaf í taugarnar á mér og ég ætla að vera laus við það núna.
.
En hvernig eru þessir stangaendar, eru það einhvers konar kúluliðir? Hvar fást svoleiðis?
.
kv. Kiddi
31.01.2007 at 23:58 #578388Eru það ekki plastfóðringar… virkar það eitthvað, verður ekki að vera gúmmí í þessu svo þetta sé til friðs? Er þetta ekki bara farið að vera ooooof stíft með svona plasti
kv. Kiddi
31.01.2007 at 23:47 #199560Jæja
Hvaða fóðringar hafa reynst mönnum best í þverstífum að framan. Mig langar að gera þetta almennilega strax og sleppa helst við allt jeppaveikibull! Er það annars ekki rétt pæling hjá mér að fóðringarnar ættu að vera nokkuð stífar til að það sé sem minnst hliðarhreyfing á stífunni sjálfri?
kv. Kiddi og Wranglerinn sem fer að fara úr skúrnum… einhverntímann
-
AuthorReplies