Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.07.2007 at 01:20 #200509
Sælir
Hversu lítið backspace má vera á felgum undir 2005 Hilux? Þetta er bíll með einhverja örmjóa brettakanta og pælingin var, hvort hægt væri að troða 32″ jafnvel 33″ dekkjum undir á 10″ breiðum felgum með 10 cm backspace, eða er það alveg útúr myndinni?
05.07.2007 at 21:43 #593154Veit virkilega enginn neitt um þessi drif???
04.07.2007 at 20:12 #593140þú getur svosum gert það ef þú ert svona hrikalega spenntur fyrir því… en maður hefði nú haldið að það væri minna mál að losa bara tankinn og slaka honum niður, ég er allavega ekki nógu klikkaður til að fara að gata gólfið að óþörfu…
04.07.2007 at 00:15 #200493Veit einhver hver munurinn er á þessum drifum og standard Dana 44? Eina sem ég hef tekið eftir eru aðrar rillur á pinjóninum, en er eitthvað sem gæti hindrað mig í að nota standard D44 hlutfall/keisingu í Musso hásingu… og öfugt?
kv. Kiddi
25.06.2007 at 23:47 #592894…er ekki fljótandi. blessaður plokkaðu bara lokið af drifinu (það er ekki eins og það eigi eitthvað eftir að leka af hehe) og teldu tennurnar…
14.06.2007 at 23:06 #592456Já einmitt eitthvað svona kit… eða þá ef þú ert laginn í höndunum gætirðu reynt að mixa þetta sjálfur… það var gert við minn gamla millikassa, þá var bara öxullinn afturúr kassanum styttur og smíðaður flangs úr dragliðnum.
En varðandi kittin… þá er eitt sem þarf að hafa í huga, og það er að hraðamælirinn í Wrangler ’87-’91 notast við barka. ’91 módelið er samt eilítið spes að því leitinu að það er líka tekið rafmagnssignal við millikassan fyrir vélartölvuna ásamt því að vera með mekanískan barka. Öll þessi "super short" kit eru fyrir rafmagnshraðamæla… "standard length" kit styttir að mínu mati kassann alveg nógu mikið, JB conversions eru líka með slíkt kit. Ég er einmitt að panta smá drasl frá þeim í minn millikassa (Dana 300) og þetta er ágætis aðili að eiga við, ef frá er talið að hann vill að maður borgi með einhverju Western Union fyrirbæri sem ég á enn eftir að finna út almennilega hvernig virkar… kemur samt allt í ljós á morgun…
Endilega komdu síðan með myndir af tækinu við tækifæri!
14.06.2007 at 13:00 #592452231 millikassinn er traustur kassi sem klikkar lítið sem ekkert jafnvel þó það sé hress V8 fyrir framan hann, þannig að það er engin ástæða til að fleygja honum úr. Drifskaptið í Wranglernum er svo stutt að ef þetta á að vera þokkalega til friðs þá er fátt annað í stöðunni en stytta millikassann og setja drifskapt með tvöföldum hjörulið og draglið. Það sem skiptir síðan mestu er að það sé ekkert brot á neðri hjöruliðnum. Á fjaðrabílum skilst mér að gott sé að miða pinjóninum aðeins niðurfyrir millikassann vegna þess að fjaðrirnar halda hásingunni ekki betur en svo að pinjónninn snýst aðeins upp við eðlilegt álag.
05.06.2007 at 19:25 #592006Fari það í heitasta helvíti, hver leyfði sér að slökkva á heilabúinu í mér!!! þetta átti auðvitað að fara í auglýsingarnar abbbsakiiiið
05.06.2007 at 19:23 #200396Hún má vera hvort sem er nakin eða sneisafull af gumsi, mér er sama svo lengi sem ég get fengið hana fyrir mjög lítið eða helst ekkert fé!
.
Kiddi S: 869 7544
01.06.2007 at 15:56 #591824Ég held að ástæðan fyrir því að hann skælist svona mikið meir að framan heldur en að aftan, sé einfaldlega sú að 4-linkið sé mikið minna þvingað en heilu stífurnar að framan (heilu stífurnar reyna að snúa upp á hásinguna). Þannig að það gerist alltaf meira að aftan en að framan vegna þess að afturhásingin er "lausari"… svo get ég ekki betur séð en það sé ballansstöng þarna að framan. Það er spurning hvort þetta lagist eitthvað við að fleygja henni? Þetta er samt miklu meiri teygja en ég hef séð á nokkrum klafabíl, það er alveg klárt mál!
Það er heldur ekki nokkurn spurning að þessi Pajero er orðinn alveg þrælmagnað tæki!kv. Kiddi
29.05.2007 at 23:30 #591664Ásgeir, ég prófaði allan fjandann þegar ég var með svona felgur eins og þú. Mothers felgu polish e-ð úr Bílanaust virkaði ágætlega, svo á ég til dollu af einhverju glundri sem ég man ekkert hvað heitir í skúrnum sem virkaði mjög vel. Svo prófaði ég að lokum Teflon bón sem ég keypti hjá Kemi á Smiðjuveginum, eina sem ég veit fyrir víst með það er að yfirborðið á felgunum varð aldrei sleipara… og það var ekki að sjá að þær væru neitt skýjaðar. Þetta entist mjög vel í þessar nokkru vikur sem ég átti þær áður en ég seldi þær aftur… en það sem ég held varðandi þessi ský þín sé að þú hamist ekki nóg
…svo ertu með póleraðar álfelgur en ekki krómhúðaðar… og það er sko ekki séns að ég leyfi þér að rústa þessum geeeeðveiku felgum með einhverju litasulli… ó nei kallinn minn þú þarft bara að fara að vinna aðeins fyrir gljáanum með smá olnbogafeiti!!!! eða elbow grease eins og þeir segja fyrir vestan. Já eða sprauta glæru yfir það gæti kannski gengið. Heyrðu… síðan þurfum við að fara að drífa í þessum stuuuuuðara!kveðja Kiddi
23.05.2007 at 00:23 #5914269" Ford úr gamla Bronco (’66-’77) hefur mikið verið notuð undir Willys og er mjög passlega breið eða tæpir 150 cm. Gallinn við þær er að fyrir utan einstaka undantekningar helst undir það síðasta á framleiðsluferlinum þá voru þær með grönnum og heldur veikum 28 rillu öxlum og hjólalegurnar voru heldur ekki mjög góðar. Stóri Bronco hins vegar er með 31 rillu öxla og stærri og öflugri hjólalegur sem og pickup og van hásingarnar en ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að hásingar undan stóra Bronco séu aðeins mjórri en pickup og van. Hásing undan Econoline er rúmir 170 cm milli felgubotna.
22.05.2007 at 18:21 #591346Er ekki bara hægt að nota rör með meiri veggþykkt í skaftið?
08.05.2007 at 13:59 #590728AMC Pacer?
06.05.2007 at 23:16 #200276Hjálpi mér allir heilagir jesús pétur og hvað þeir allir heita þessir strumpar. Þessi Bronco sem var að detta inn í myndaalbúmið (linkur) er nú bara hreint út sagt eitt það snartrylltasta apparat sem ég hef nokkurn tímann augum litið! Nú er ég bara orðinn virkilega forvitinn… ég verð ekki til friðs fyrr en ég fæ að vita meira um þetta tryllitæki!
kv. Kiddi spennti
03.05.2007 at 01:43 #590234Átta gata og svo túrbínu! þá erum við fyrst að tala saman!
02.05.2007 at 23:07 #590218Þýðir það þá að hann yrði svagari eftir allt?
02.05.2007 at 19:59 #200249Jæja nú er svoleiðis komið fyrir mér skólapiltinum að ég er í svokölluðum próflestri. Og eins og sumir þekkja þá vill blessað heilabúið fara á flug um hinar ýmsustu víðlendur sem einhverra hluta vegna tengjast námsefninu hreint ekki neitt. Og einhvern veginn fór ég í hættulega djúpar pælingar varðandi hvernig ég ætti nú að fara að því, að koma dempurunum fyrir undir jeppakrílinu. Og mér datt í hug, að ef ég léti þá halla inn að miðju frá hásingunni þá gæti hann orðið minna svagur í beygjum, án þess að takmarka skælingu, sem meir að segja yrði meiri þar sem demparinn þarf ekki að hreyfast eins mikið þegar hann er á ská. Og bíllinn yrði sennilega mýkri í venjulegum akstri, sem ekki veitir af þar sem ég verð með Rancho 5000 pyntingartól sem dempara (voru ódýrir…fæ mér einhverja mýkri kannski seinna)
Fyrir þá sem ekki skilja hvað ég er að fara er þetta pælingin
svo fann ég þetta
Og nú þætti ég vænt um, að mér fróðari menn kæmu með sín álit á þessu og segðu mér annaðhvort að þetta sé algjört bull og ég eigi að snúa mér aftur að lærdómnum… eða þá eitthvað annað
kv. Kiddi
01.05.2007 at 13:30 #590110Ertu búinn að mæla millibilið á dekkjunum og skoða hvort það sé ekki örugglega eins og það á að vera?
30.04.2007 at 00:12 #589708Magnús, getur þú frætt mig meira um þetta með hjólastillinguna? Er það fyrir alla jeppa sem fara í sérskoðun eða bara jeppa sem eru nýskráðir eftir einhvern ákveðinn tíma? Mér er þessi krafa a.m.k. óskiljanleg á hásingarbíl þar sem eina stillingin er millibilið og þar er þetta bara aukakostnaður.
kv. Kiddi
-
AuthorReplies