FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristinn Magnússon

Kristinn Magnússon

Profile picture of Kristinn Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 361 through 380 (of 897 total)
← 1 … 18 19 20 … 45 →
  • Author
    Replies
  • 20.08.2007 at 22:00 #595022
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Já þessi venjulegi á að vera í lagi ef þú blandar hann í réttu hlutfalli, flestir fólksbílar hafa nú verið með álmótora í töluverðan tíma þannig að ef þetta gengur á þá þá hlýtur þetta að ganga með áli. Það sem þarf hinsvegar að passa er að skipta frostleginum út reglulega svo hann missi ekki tæringarvörnina!

    kv. Kiddi





    16.08.2007 at 23:25 #594724
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    já ég held það sé nokkuð óhætt að segja að þessi mótor sé búinn að syngja sitt síðasta! sveifarásinn hangir í tveimur hlutum, undirlyfturnar liggja eins og hráviði hér og þar og komið þetta líka fína, hnefastóra gat í pönnuna :)





    07.08.2007 at 18:55 #594454
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    231 er bara venjulegur millikassi með 2×4 – 4×4 læst – neutral – lágt drif en 242 er með sídrif til viðbótar (ólæst 4×4)





    06.08.2007 at 14:33 #594426
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    og þessar rákir eru kannski sérstaklega mikilvægar í bílum með sjálfberandi boddý eins og t.d. Cherokee…





    05.08.2007 at 13:04 #594356
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    …hvar fást þessir bátaáfyllingarstútar sem henta svona vel í brettakanta?





    04.08.2007 at 00:56 #594352
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    ég fer nú ekki að láta smíða fyrir mig.. þá get ég allt eins lagt þessu hobbýi og farið að spila golf eða eitthvað álíka viðurstyggilegt!
    Annars þá er þetta orðið nokkuð fullmótað í kollinum á mér, eina sem ég á eftir að ákveða í raun er hvort ég nota 1.5mm eða 2mm ryðfrítt… en ég hallast nú svolítið að 2mm

    kv. Kiddi





    03.08.2007 at 13:36 #594346
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Maggi dastu á hausinn eða??? kannski bara búinn að fá ógeð af FORD? hehehe
    en já pælingin er að nota einhvers konar loka á þetta, ætla að skoða hvað þeir eiga í Landvélum
    límdirðu bara álplötuna beint á tankinn til þess að verja hann gegn höggum? svona fyrir forvitnis sakir, hvað notaðirðu þykka plötu… og var ekkert vesen með að 1.5mm ryðfrítt stál væri að bogna þegar þú sauðst það?

    kv. Kiddi og Wranglerinn sem verður aldrei til sölu





    03.08.2007 at 01:12 #594366
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvers vegna myndi maður gera það… ég get allavega ekki séð að það sé betra fyrirkomulag eins og það er orginal í Wranglernum. Liðhúsin eru nákvæmlega þau sömu. Nú þekki ég ekki alveg hvaða vesen er með stýrisganginn í Cherokee þegar hann er hækkaður upp, en eins og þetta var í Wranglernum hjá mér þá var alveg þónokkuð dautt slag þegar togstöngin var orðin svona þokkalega hallandi. Það er hinsvegar hægt að fá liðhús frá USA (Teraflex heitir framleiðandinn) með upphækkuðum armi fyrir togstöngina, ég veit til þess að þetta var sett í allavega 2 Grand Cherokee og í a.m.k. annan voru notaðar Wrangler stýrisstangir.
    En síðan á orginal Cherokee stýrisgangurinn að vera mikið betri varðandi jeppaveiki þar sem það er engin stöng sem liggur beint milli hjólanna… það er spurning hvort það nægi kannski að snúa kónunum í liðhúsunum og setja síðari arm á maskínuna (úr Grand Cherokee t.d.)? Ég myndi allavega halda að orginal Wrangler stýrisgangurinn væri ekki að hjálpa NEITT til… en til að svara spurningunni þá er já, hægt að nota það :)





    02.08.2007 at 18:18 #594342
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Nei venjulegt blikk kemur ekki til greina…það er alveg á hreinu! Eins og Bjarni segir þá eru þeir ekki oft fullir þó ég sé nú bara með 6 sílindra… :)
    En hefur enginn neina skoðun á áli? Eða er maður kannski ekkert að græða neitt á því að nota það frekar en ryðfrítt 2mm?





    02.08.2007 at 00:54 #200608
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvaða efni hafa menn notað í aukatanka undir bensín, ál eða ryðfrítt og hversu þykkt?
    Svo var ég að spögulera, hvar best væri að finna hentuga krana til að skipta milli tanka. Eru það ekki bara Landvélar og Barki?
    kv. Kiddi





    30.07.2007 at 19:33 #594250
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það eru sömu hásingar undir þeim, AAM 9.25" framan og AAM 11.5" að aftan. Þessi framhásing er svipuð að styrk og Dana 60 hef ég eftir manni sem þekkir til. Það eru sömu bremsur í 2500 og 3500 og grindin á að vera sú sama…Líklega er eini munurinn bara burðarmeiri og stífari fjöðrun í 3500 og kannski tvöföld afturdekk?

    annars er meira að finna hér

    http://allpar.com/model/ram/ram-heavy-duty.html
    http://allpar.com/model/ram/specs.html





    30.07.2007 at 00:53 #594156
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Er ekki kominn tími á að einhver góður penni, t.d. Jón Ofsi eða Skúli taki sig til og skrifi góða grein í Morgunblaðið, til að svara þessari steypu í sýslumanninum og fleirum sem vita ekkert í sinn haus? Mér finnst allavega heldur slæmt að það skuli ekkert andsvar koma fram í fjölmiðlum en ég treysti mér ekki í að gera það þar sem ég er einfaldlega ekki með öll rök og þessháttar á hreinu… Skúli skrifaði nú líka ágætis pistil hér á annan þráð sem ætti vel heima í Mogganum!
    Það er líka sláandi hvað vanþekking varðandi ferðalög á hálendinu, og hvað menn eru að gera á jeppum þar virðist vera algeng… þetta er eitthvað sem verður að vinna bót á… að koma fólki í skilning um það að við erum ekki á jeppum til að spóla og spæna! Og þeir fáu vitleysingar sem gera það, þeir leggja heldur ekki leið sína upp á hálendið til þess… þeir einfaldlega nenna ekki að fara svona langt!!! (nema þá útlendingarnir sem vita ekki að það má ekki fara út fyrir vegi… og er það nú skrýtið eftir allar þessar iceland off-road og ég veit ekki hvað auglýsingar???) Já maður spyr sig.





    26.07.2007 at 18:11 #594010
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    og hvað er þessi jálkur síðan orðinn ekinn mikið?

    kiddi forvitni





    25.07.2007 at 14:27 #593866
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Já það er það eina sem kom orginal í þessari árgerð, Dana 44 kom bara í bílum frá ’87-’90 og yfirleitt þá með sérstakan tow-pakka.

    Sigfús ég er ekki viss um að ég átti mig alveg á við hvað þú átt… í lága drifinu er 242 kassinn harðlæstur eins og í öllum alvöru jeppum þannig að kannski er svarið bara já?

    kv Kiddi





    19.07.2007 at 01:35 #593616
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það er rétt, 6.1 Hemi er með járnblokk. Þyngdin ætti að vera svipuð og á 5.7 Hemi, sem eru 220 kg en ég veit ekki hvort það sé strípuð vél eða vél með öllu utaná, á sömu síðu stendur að 4.0 I-6 sé 194 kg, 5.2 V8 133 kg, 5.9 V8 248 kg, 4.7 V8 213 kg og 2.4 I-4 157 kg (http://www.aev-conversions.com/knowledgebase/entry/6/)
    svo er ég með eitthvað skjal í tölvunni sem ég veit ekkert hvaðan kemur, þar segir að AMC I-6 sé 238 kg þannig að maður veit nú ekki hverju skal trúa…
    það er spurning hvort maður leggi það ef til vill á sig að vigta eina af þessum vélum sem eru að þvælast út í skúr… hefur einhver hugmynd um hvernig væri hægt að standa að því svona tiltölulega auðveldlega??? pundarinn minn nær bara upp í 25 kíló en það má alltaf reyna svosum





    17.07.2007 at 18:32 #593630
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Heddin eru ekki eins!
    "The early ’87-’90 non-HO heads have low intake ports that flow rather poorly. The later HO heads have higher intake ports that flow more air by allowing a straighter shot into the cylinders. The ’91-’95 HO heads with casting no.7120 have the highest intake and exhaust port airflows, especially at lower valve lifts where it is most important, and are the best for performance. The ’96-’99 0630 heads are almost identical except that they don’t have a port for the coolant temp. gauge sending unit. The ’00 and later HO heads with casting no.0331 have smaller exhaust ports to produce a faster warm-up of the catalytic converter and improve emissions, but performance also suffers because the ports don’t flow as well as those of the 7120 and 0630 castings."

    Þetta stendur hér: http://www.jeep4.0performance.4mg.com/tech_specs.html
    Á þessari síðu má líka sjá samanburð á flæðitölum úr heddunum





    17.07.2007 at 00:42 #593626
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Davíð ertu viss? Ég er nefnilega með vél útí skúr, sem er með eldri gerðina af heddinu og að minnsta kosti HO throttle body, ég þarf að skoða hvor soggreinin er…

    kv. Kiddi





    14.07.2007 at 22:56 #593620
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Já, rafkerfið er ALLT annað. En munurinn á aflinu á High Output og ’87-’90 vélunum held ég að felist þó helst í heddinu, heddin á vélum frá ’91-’95 þykja flæða best af öllum Jeep 4.0 heddum. Knastásinn er sá sami frá ’87-’95, og hann þykir líka býsna góður.
    Langeinfaldast (og er heldur alls ekki slæmur kostur) væri að færa bara vélina sjálfa á milli, og nota orginal soggreinina með orginal throttle boddíinu, spíssunum rafkerfinu og öllu því. Það getur vel verið þó að þú tapir einhverjum hestöflum á því að nota ekki HO rafkerfið, en hversu mikla vinnu ertu tilbúinn að leggja á þig fyrir 5 hestöfl? Ég er nýbúinn að mixa HO rafkerfi í Wrangler sem var með blöndungsvél, og þetta er aaaaðeins meira en dagsverk en vel framkvæmanlegt svosum
    Svo væri auðvitað líka hægt að færa bara HO heddið á milli blokkanna ef eldri blokkin er betri, það munar engu í kjöllurunum á þessum vélum
    Ef það eru einhverjar fleiri spurningar þá endilega láttu þær góssa, ég er búinn að spögulera aaallllttoooof mikið í þessum mótorum (er bara með 3 stykki í skúrnum, einn 4.0 HO, einn ekki HO og einn 4.7 stroker!)

    Jeeep kveðja
    Kiddi





    12.07.2007 at 00:49 #587662
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég rakst á þennan bíl fyrir tilviljun um daginn og skreið að sjálfsögðu undir að skoða :)
    Mér leist ágætlega á þetta en það var eitt sem stakk í augun… þverstífan er töluvert styttri en togstöngin! Þetta hlýtur að orsaka högg í stýri þegar bíllinn fjaðrar eða hvað?





    09.07.2007 at 19:55 #593420
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þessi loftslanga liggur í svokallaðan PCV ventil á ventlalokinu, ef hann er stíflaður þá getur smurolía borist í loftinntakið (yfirþrýstingur myndast inní vélinni)
    Þú getur tékkað hvort hann sé farinn með því að hrista hann, það á að skrölta í honum ef hann er í lagi. Það er samt varla um nokkuð annað að ræða en að hann sé farinn, og þá er ekki annað í stöðunni en að prófa allavega að hreinsa hann eða setja nýjan.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 361 through 380 (of 897 total)
← 1 … 18 19 20 … 45 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.