Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.10.2007 at 17:59 #600440
Hvernig er það nú, þegar þessi blessuðu Shell skírteini renna út, þarf maður að sækja um nýtt eða kemur bara nýtt af sjálfu sér…
11.10.2007 at 20:12 #200949Ég tók eftir því í í gær að gamla góða 44″ Fun Country dekkið var ekki lengur sýnilegt á dickcepek.com. Þannig að ég sendi þeim tölvupóst í þeim tilgangi að spyrja hvort þeir væru hættir að framleiða það. Svarið var… JÁ
Þá vitum við það…
10.10.2007 at 19:09 #599458Er ekki bara of mikil koppafeiti í lokunum? Eða þá allt orðið kjaftfullt af drullu og óbjóð. Það tekur enga stund að kippa lokunni af og kíkja á málið.
10.10.2007 at 16:56 #598854Hvar fékkstu þessa álskúffu, og er hugsanlega hægt að fá hana svarta eða málaðiru hana kannski sjálfur? Þetta virðist vera bara nokkuð góð redding
21.09.2007 at 00:11 #597500Þú þarft að vita orginal dekkjastærðina, og deilir þá nýju dekkjastærðinni með þeirri gömlu og margfaldar með orginal hlutfallinu. T.d. ef bíllinn var orginal á 31" með 4.10 hlutfalli, og er núna á 44 þá reiknast þetta svona: 44/31 * 4.10 og þá færðu það hlutfall sem ætti að passa miðað við orginal. Svo er spurningin hvort hann hafi nokkuð verið 4.10 orginal, ég á framhásingu undan Blazer útí garði og sú er með 3.73 hlutfall?
Það kæmi líka ef til vill betur út að miða líka við hversu hratt þú vilt að mótorinn sé að snúast á þjóðvegahraða, ég rakst eitt sinn á nokkuð magnaða reiknivél á netinu sem getur reiknað það og margt fleira þessu tengt fyrir mann:
http://www.grimmjeeper.com/metric_gears.htmlkv Kiddi
19.09.2007 at 00:25 #597348er þá ekki bara hægt að sandblása það?
10.09.2007 at 23:56 #596488Gætuð þið útskýrt þetta aðeins betur með að "nýir jeppar" þurfi hjólastillingarvottorð? Þarf ég semsagt ekkert svoleiðis fyrir minn 20 ára öldung… eða hvað
kv. Kiddi
09.09.2007 at 13:33 #596320Select við Vesturlandsveg
08.09.2007 at 17:43 #596216Mér skilst líka að það vanti "highway" skjáinn í nýju Garmin tækin
03.09.2007 at 21:43 #595912Það var Mjallhvít sem var þarna í draslinu bakvið gömlu Bílanaust, alls ekki löngu áður en ég sá boddýið þar þá var bíllinn á tjónauppboði með einhvers konar undirvagnstjón. Hvort boddýið hafi endað í ruslinu veit ég ekki en finnst það svona heldur ólíklegt, það var nefnilega mjög heillegt að sjá! En síðan eru nokkur ár, ætli þau séu ekki farin að nálgast 5 svei mér þá…
kv. Kiddi
30.08.2007 at 21:31 #595684það er aldrei of lítil mótstaða með turbo!
30.08.2007 at 16:52 #595672Sæll
Ég var með ostaskera á gömlu afturhásingunni (Dana 35 ræfill)
Ég skellti inn þeim myndum sem ég á til af þessu… hásingin er löngu farin á haugana en hún var þráðbein fram í rauðan dauðann!
Á annari myndinni sést hvernig teinninn var festur sitthvoru megin, s.s. eyru soðin á hásingarrörið, teinninn snittaður og svo hertur þannig að hann var þokkalega spenntur. Það sem sést ekki er stýringin sem var á drifkúlunni, en það var bara lítið rör sem var búið að rista upp og sjóða helminginn undir drifið til að halda við teininn. Það sem skiptir máli er að teinninn sé þokkalega spenntur og að festingarnar séu soðnar á hásinguna en ekki boltaðar!Myndirnar eru hér:
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … ingar/5614kv. Kiddi
29.08.2007 at 23:02 #595746Sæll
Ég er með svona 4.7 stroker í mínum Wrangler. Hef að vísu aldrei sett hana í gang, en það mun gerast innan tíðar ef allt gengur eftir.
Ég held að það sé margt hægt að gera vitlausara en þetta. Það er auðvelt að nálgast alla varahluti í þessar vélar og innspýtingin og það allt í kringum þær hefur verið að virka mjög vel. Á hinn bóginn þá finnst mér það viss galli að þegar maður er kominn uppí þessi 250-260 hestöfl, þá er maður eiginlega orðinn lens nema maður vilji eyða þeim mun meiri pening í þessar rellur og vera þá á ystu nöf með áreiðanleika (þá erum við að tala um hellings borun og sérsmíðaðan sveifarás)
Þess vegna er ég nokkuð viss um að ég muni enda í V8 einn daginn. En ég held að strokerinn sé fínn svona til að byrja með, 250 hestöfl eru gott stökk frá þessum 110 sem ég hafði áður og ég hefði aldrei haft efni á að koma V8 með innspýtingu og overdrive skiptingu ofaní fyrir þann pening sem ég hef lagt í þetta
Skot út í loftið er svona 150-200 þúsund kall miðað við að panta allt í vélina sjálfur, láta gera þetta flóknasta á verkstæði og dunda síðan í þessu sjálfur. Það var allavega sú tala sem ég var búinn að finna út en síðan datt ég bara niður á vél sem búið var að stróka… ókeyrða og skellti mér á hanakv. Kiddi
ps. á sveifarás og stimpilstangir úr 258 á lausu 😉
29.08.2007 at 14:27 #595592Sigfús
Var Grandinn orginal með diskabremsum að aftan?
26.08.2007 at 21:19 #200695Obbobobb. Ég varð fyrir því óláni í dag að gægjast inní aftasta hlutann á grindinni í jeppanum. Þar blasti við mér hinn myndarlegasti moldarhaugur… og að sjálfsögðu hellingur af ryði! Því spyr ég, hvernig hafa menn tekist á við þennan óþverra inní grindum? Hvað getur maður gert til að ryðverja svona lokaða grind innan frá?
Ég hafði hugsað mér að útvega mér litla sandblásturskönnu (hvar er best að fá svoleiðis?) og sandblása þennan aftasta bút af grindinni, sulla síðan rust-converter yfir, grunna og mála. En þá er restin af grindinni eftir, er eitthvað hægt að gera til þess að þetta verði til friðs? Kannski bara galva alla grindina við tækifæri eða eru til lausnir sem fela ekki í sér að rífa allan bílinn í spaðkv. Kiddi
PS. Allir Wrangler eigendur ættu að gera sjálfum sér greiða og bora gat aftast í grindina, og skola svo vel út viðbjóðnum sem hefur sest þar að í gegnum árin…
24.08.2007 at 00:43 #595108tommur hvaaaað segirðu… lítur þetta ekki svolítið öðruvísi út ef ég segi þér að það var árið 1957 sem 283 cid vélin kom á markað?
kv. Kiddi kani
22.08.2007 at 00:35 #594886Mér tókst að ráða eitthvað framúr þessum tölum þarna:
fyrst kemur 532
og svo fyrir neðan 13397-1M
Ég vona að þetta hjálpi þér eitthvað.. en annars þá rifjaðist það upp þegar ég fór að velta þessu fyrir mér, að innspýtingarkitið sem var í jeppanum hjá mér kemur frá fyrirtæki sem heitir Howell og þeir selja bensíndælur á síðunni sinni (howellefi.com) og mér sýnist á myndinni að þetta sé sama dæla.. í það minnsta mjög svipuðEn ertu ekkert hræddur um að verða "bensínlaus" ef þú ert með lítið í tankinum og bíllinn hallar ískyggilega mikið? Hvernig hafðirðu hugsað þér að leysa það? (bara svona fyrir forvitnis sakir)
Svo var ég líka að spögulera í þessu með staðsetninguna á dælunni, nú var mín dæla á grindinni við hliðina á gírkassanum og var þannig í svipaðri hæð og botninn á bensíntanknum. Svo eru blöndungsbílar flestir með mekaníska dælu frekar ofarlega á vélinni, er eitthvað vesen í þeim?
kv. Kiddi
22.08.2007 at 00:27 #595098Ég held svei mér þá að það sé bara tími til kominn að þú farir og kaupir svona eins og eitt topplyklasett, sett af föstum lyklum og farir að gera eitthvað í þessum jeppa þínum!
kv. Kiddi
20.08.2007 at 22:18 #594882Ég var með svona TBI system á gömlu 258 rellunni og þar var bensíndæla í grindinni og aldrei neitt vesen á henni. Á henni stendur Walbro og svo kemur eitthvað flóð af tölum. Bensínlögnin kemur uppúr tanknum.
Ég var að spögulera í að nota svona fuel pickup í mína tanka: http://www.autoperformanceengineering.c … ckups.html
Þetta er eitthvað rosa sniðugt dæmi sem á að sjá til þess að dælan sjúgi aldrei loft og alltaf bensín svo lengi sem það er eitthvað af því í tanknum… þetta er nú ekkert ógurlega dýrt og hlýtur að virka fyrst þetta er nú gert fyrir snjóbíla!
kv. Kiddi
ps. hvurslags bíl ertu annars á í þetta skiptið?
20.08.2007 at 22:00 #595002Cherokee hásingin er með nokkuð gott rör, það er 2.75" að utanmáli en ég veit ekki hversu þykkt það er…
Mig minnir að álhásingin sé með 2.5" rör, Gunnar leiðréttir mig kannski ef ég er að fara með rangt mál?
Einhversstaðar rak ég augun í að Scout hásingarnar væru tiltölulegar þunnar en ég sel það alls ekki dýrar en ég stal því…kv. Kiddi
-
AuthorReplies