Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.12.2007 at 18:09 #605726
Þessir jólasveinar vilja ekkert kannast við kantana hans Magga… þannig að það lítur út fyrir að maður þurfi að mauka þetta helvíti sjálfur!!! Það er spurning hvar það endar?
06.12.2007 at 11:25 #605722Þú ættir nú að vita betur en að vera að gefa manni svona hugmyndir þegar maður er við það að koma þessu á götuna!!!
05.12.2007 at 23:15 #605718þetta er engin toyota sko… þessi jeppi er fallegur og slíkt á ekki að skemma með einhverjum trukkaóskapnaði!
05.12.2007 at 23:07 #605714Já einmitt ég hef verið í bandi við Magga útaf þessum köntum… það getur auðvitað vel verið að sá sem ég talaði við hjá þeim viti bara ekkert um þetta!
Afturkantarnir sem Gunnar er með eru bara 21 cm sem er ekki neittneitt
05.12.2007 at 21:34 #605710Já ég spjallaði við hann í gær, mótin hans eru ekki nærri því nógu breið (mig vantar ca 30 cm) þannig að það er bara verið að spögulera í öllum fjáranum. Samtak á samt að eiga 29 cm breiða kanta en kallinn sem ég lenti á þar í gær kannaðist ekkert við það… eitthvað held ég að trebbagufurnar fari illa með menn vegna þess að ég hef alveg pottþéttar heimildir fyrir því að þeir eigi þá til… maður þarf bara að pumpa þá aðeins betur á þessu
kv. Kiddi
04.12.2007 at 21:42 #605264…Tacoman er undir 2 tonnunum… það ásamt því að það er tiltölulega lítið mál að breyta þeim svarar kannski spurningunni hvers vegna hún sé svona vinsæl?
04.12.2007 at 17:53 #201317Er nokkur til í að mæla fyrir mig hversu breiðir afturkantarnir á 38 – 44″ breyttum Defender eru?
01.12.2007 at 01:59 #604502Þetta er allveg sami skíturinn svo lengi sem hann kemur úr Willys…
29.11.2007 at 01:52 #604664TH700R4 kom ekki fyrr en 1982!
28.11.2007 at 14:54 #604894Ég var með svona síu og þetta drasl fær aldrei aftur að koma nálægt mínum bílum! Throttle boddyið var líkara sandkassa síðan var þessi skemmtilega olíuslikja yfir öllu heila klabbinu í þokkabót.
kv. Kiddi
27.11.2007 at 21:55 #604762Um að gera að skella bensínmótor í þetta, því stærri því betra! Einhvers staðar las ég að svona 502 mótor með álheddum og álmilliheddi væri ekki mikið þyngri en standard 350 vél, ekki slæmt! Það væri kannski ágætis hugmynd að spyrja þá á kvartmila.is nánar út í þessa mótora?
kv. Kiddi sem er greinilega alls ekkert klikkaður miðað við suma heheh
27.11.2007 at 21:50 #604864Já hann ætti að passa en ég er alveg viss um að það er GÓÐ ástæða fyrir því að það er ekki sami kassi aftan á 4 cyl og 6 cyl…
26.11.2007 at 19:58 #604526Jahá… er þetta virkilega satt með 4.2 mótorinn… það hlýtur að hafa skolast eitthvað til!
kv. Kiddi
24.11.2007 at 23:32 #604494Sæll
Ég er nokkuð viss um að það þarf ekki millistykki til að skeyta Dana 300 aftan á 727 úr Wagoneer. Eftir því sem ég best veit eru New Process millikassar í Wagonerum af þessari árgerð með 6 bolta deilingunni og 23 rillu inntaksöxli, bara nákvæmlega eins og á Dana 300!
Hins vegar hef ég heyrt að geti verið vandkvæðum bundið að koma drifskaftinu þokkalega fyrir þarna stjórnborðsmegin við hraðastillinn. Menn hljóta þó að eiga einhver ráð við því, þeir eru nú einhverjir Willysarnir með þessa uppsetningu.kv. Kiddi
22.11.2007 at 15:15 #603762Stífurnar enda ekki í sama punkt, mig minnir að það séu einhverjir 5-6 cm lóðrétt milli þeirra. Ef bilið á hásingu væri það sama og í grind þá myndi fjöðrunin pressast saman og bíllinn fara á rassgatið en svona ætti hann að fara svona nokkurn veginn milliveginn milli þess og að pressa fjöðrunini í sundur sem Rover stífurnar myndu gera.
.
Veistu.. ég var að bíða eftir þessari spurningu með að sjóða í kúlunaNei ég er ekkert smeykur við þetta. Ég prófaði þó fyrst að sjóða 6mm plötu upp á rönd á aðra Musso hásingu sem ég á. Sauð bara ca 1 cm í einu til þess að þetta hitnaði ekki mikið, bæði vegna þess að þá myndu suðurnar fara að springa vegna þess að platan og kúlan kólna mishratt og líka vegna þess að ég vil ekki vinda upp á kúluna með hita (hef heyrt af einni hásingu sem fór svoleiðis og var aldrei til friðs á legum). Ég sauð þetta bara með 170 ampera MIG vélinni í botni með drottni. Svo réðst ég á þetta með sleggjunni þangað til ég var búinn að misþyrma plötubútnum í döðlur en það sá ekki á suðunni… þá ákvað ég að þetta hlyti nú bara að vera fjandi nógu gott til að festa stífur í. Eftir að ég smíðaði stífufestingarnar (líka úr 6 mm) þá réðst ég á þetta með sleggjunni, að vísu ekki með alveg sama djöfulgangnum og fyrr og ég varð ekki var við að þetta væri eitthvað á leiðinni að losna.
Mér finnst satt að segja þetta með að það megi aldrei sjóða á kúlurnar vera óttalegar kellingabækur þó það eigi sjálfsagt við í sumum tilfellum.
Þegar ég spurðist fyrir um þetta hérna heima þá könnuðust menn ekkert við þetta. Sjóða bara stutt í einu svo það hitni ekki…
Þannig að ég held þetta sé bara orðið að einhverri þjóðsögu þarna fyrir vestan… það er nú bara þannig að þegar margir misgáfaðir geta tjáð sig á netinu þá verður alls kyns vitleysa til!
.
kv. Kiddi
.
PS… Freyr, ég þakka hrósið… ég vona að þessar pælingar og allt vesinið skili sér í einhverju sem virkar
22.11.2007 at 00:36 #603756Jæja þetta er svona nokkurn veginn smollið saman og mér sýnist þetta bara vera að svínvirka, allavega gat ég ekki séð hliðarhreyfingu á hásingunni sama hvað ég djöflaðist á henni!
Hornið á milli stífanna eru einhverjar 45 gráður.
[img:1467fv9s]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5230/46084.jpg[/img:1467fv9s]kv. Kiddi
20.11.2007 at 15:14 #604086Sendi þér teikningar á email
18.11.2007 at 13:31 #603752Ég er nú ekki sammála þér að efri stífurnar eigi að vera lágréttar líka… Gunni Egils sagði mér um árið að með því að hafa þær neðri lágréttar og láta frekar efri stífuna halla þá myndi hásingin ekki beygja neitt. Þetta er þveröfugt við það sem flestir gera með því að láta efri stífuna vera lágrétta og svo neðri halla en það er líklega útaf því að ef neðri stífan á að vera lágrétt þá gæti þurft að hafa svolítið síðan stífuvasa sem væri þá til leiðinda.
.
Ég er búinn að fikta mikið með 4-link reiknivél sem einhver kaninn bjó til í Excel og ein breytan í henni er einmitt hversu mikið hásingin beygir við fjöðrun (hann kallar það Roll Axis Angle) og það skiptir engu máli hvað ég geri með efri stífuna, það koma alltaf 0° svo lengi sem neðri stífan er lágrétt.
Það er svolítið fróðlegt að fikta með þetta apparat, þarna getur maður séð hvernig fjöðrunin á að virka við inngjöf (0% antisquat = fjöðrunin fer saman við inngjöf, 100% = fjöðrunin fer hvorki sundur né saman, 200% = fjöðrunin fer sundur eins og með einfaldar stífur)
Það er hægt að ná í þessa reiknivél hérna:
http://www.pirate4x4.com/forum/showthread.php?t=204893
.
Það er gaman að þessu!
kv. Kiddi
18.11.2007 at 00:51 #603748Svoleiðis fjöðrun er bara svo mikið meira þvinguð heldur en þegar efri stífurnar eru hafðar innar. Ég held að ég geti fullyrt að ísleningar séu þeir einu í heiminum sem smíða 4-link með stífurnar í lóðréttri línu… ef litið er undir bíla sem koma orginal með 4-link þá eru þeir alltaf með efri stífurnar innar þá er ég að tala um Land Cruiser, Patrol, Cherokee og svo framvegis. Eða í það minnsta hef ég ekki séð svoleiðis uppsetningu á óbreyttum bíl… endilega leiðréttið mig ef ég er að fara rangt með.
.
En varðandi mína fjöðrun þá er ég búinn að ákveða að nota bara Benz fóðringarnar og hafa 2 aðskildar efri stífur sem koma að hásingunni með ca. 45° horni. Mér skilst að þetta hafi verið gert svipað á 2 Cruiser 60 og komið bara nokkuð vel út. Ég er hálfnaður með festingasmíðina þannig að þetta lítur bara vel út
.
kv. Kiddi
.
PS. Svo fyrst ég er farinn að blaðra svona um stífur þá finnst mér alltaf svolítið sjokkerandi að líta undir bíla sem koma út af verkstæðinu hjá ákveðnu verkstæði uppá höfða… það liggur við að stífurnar halli meira en hjá blessuðum kanakjánunum! og þetta eiga að kallast fagmenn? ég þori að veðja að þessir jeppar eru ekki skemmtilegir í kömbunum… en jæja ég er hættur að tuða.
17.11.2007 at 17:06 #603744Með því að hafa neðri stífurnar algjörlega lágréttar þá næ ég að sleppa við það að hásingin "beygi" við misfjöðrun sem hann gerði svolítið áður. Varðandi boddýhækkun þá er þetta vesen aðallega tilkomið vegna þess að ég er að losa mig við það helvíti
Ég held að stýrisendi gæti verið alveg ágætis lausn á þessu, vitið þið eitthvað hvaða stýrisendar hafa hentað vel í svona föndur? Ég var að skoða eina svona uppsetningu með Sprinter spindilkúlu en var ekki alveg nógu hrifinn af því…
kv. Kiddi
-
AuthorReplies