FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristinn Magnússon

Kristinn Magnússon

Profile picture of Kristinn Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 897 total)
← 1 … 11 12 13 … 45 →
  • Author
    Replies
  • 16.03.2008 at 16:41 #202109
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sælir
    Rofinn á bremsupedalanum hjá mér sinnaðist eitthvað við restina af bílnum og hætti að virka, fyrst með þeim afleiðingum að bremsuljósin loguðu alltaf nema þegar ég bremsaði en núna eftir að ég hef fiktað aðeins í þessu þá loga þau bara ekki neitt.
    Þetta er bara svona nokkuð einfaldur rofi sem leiðir í gegnum sig þegar ég stíg á pedalann.
    Mér skilst það séu til rofar sem virka þannig að þegar það er togað í gorm á þeim þá leiði þeir í gegnum sig. Veit einhver hvar líklegast væri að maður finndi slíkan rofa?

    kv. Kiddi





    16.03.2008 at 16:37 #617708
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    úps vitlaus staður!!!





    16.03.2008 at 16:33 #617706
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Fyrst þú ert ekki búinn að prófa þau, hvernig geturðu staðhæft að þau séu að koma vel út?





    13.03.2008 at 23:38 #617626
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Jónas, hvernig 44 hásingu varstu með? Ég er með Wagoneer hásingu með opnum liðhúsum…
    fyrst þetta hefur virkað hjá einhverjum er þetta alveg tilraunarinnar virði, þessi koppafeiti er svo mikið ógeð að það hálfa væri nóg!
    Svo var ég aðeins að spá með þessar pakkdósir. Ef þær geta ekki haldið olíu inni, geta þær þá nokkuð haldið vatni úti? En eins og ég segi þá ætla ég að prófa þetta næst þegar ég opna þetta dót, legustúturinn er alveg nýr og ef ég er með nýja pakkdós líka þá hlýtur þetta að ganga…

    kv. Kiddi





    13.03.2008 at 21:36 #202100
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Jæja ég er alltaf við sama heygarðshornið og er enn og aftur að bræða úr kollinum á mér á einhverri stórmerkilegri pælingunni. En í þetta skiptið var það með þessar blessuðu framhjólalegur. Hefur einhver prófað að bora gat á leguhúsið, snitta fyrir tappa og gluðra svo bara gírolíu í draslið í staðinn fyrir að vera alltaf að subba með þessa helv… koppafeiti?
    Mér finnst eins og ég hafi heyrt af einhverri vörubílategund sem sé með þetta svona svo hef ég líka heyrt að gírolían sé mikið mikið betri fyrir legurnar, er eitthvað til í því?

    kv. Kiddi





    13.03.2008 at 16:42 #617380
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvaða svarta efni er þetta sem þú settir á gólfin?





    10.03.2008 at 00:03 #617140
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þessir "benz" púðar hafa verið að ganga saman um a.m.k. 6 cm hjá mér þegar ég er að nota þetta eins og það á að vera notað.
    kv. Kiddi





    07.03.2008 at 18:46 #616904
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég átti Subaru Impreza 2.0 og var mjög hrifinn af því hvað hægt var að pína hann lengst niður í snúning en alltaf hélt hann áfram að vinna! Auðvitað bara 115 hestöfl samt, en mjög léttur og stuttur mótor! Spurning hvernig það er að mixa svona á súkkugírkassa, menn hafa nú alveg gert annað eins…
    2.5 boxer held ég að væri algjör snilld, svo maður tali nú ekki um 2.0 turbo!
    Þessir mótorar eru allavega nógu léttir til að 2 menn fara létt með að bera þó það hangi sjálfskipting aftaná!
    kv. Kiddi





    06.03.2008 at 00:21 #616006
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Mér datt þetta nú alveg í hug á sínum tíma þegar ég var með Cherokee hásingu fyrir framan Wranglerinn minn… en málbandið sagði nei, grindin í Wranglernum er of breið. En ég er auðvitað með minn alveg frekar lágan, ef menn sætta sig við hærri bíl þá má alveg setja þetta undir grind…
    Í gorma Wranglernum er síðan bogi í grindinni þar sem gormarnir koma. Varðandi stífur þá væri þetta alls engin einföldun að reyna að koma þessu fyrir frekar en einhverri nýsmíði, ef eitthvað er meiri vinna!





    05.03.2008 at 19:55 #616584
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sko… það er ekkert flóknara en það að vinnsla í Grand Cherokee annarsvegar og Toyota 4Runner V6 hinsvegar, er bara engan veginn samanburðarhæf!!! Kaninn nýtur þess að lulla niður í rauðan dauðan en þessi japanska rella gerir ekki nokkurn skapaðan hlut nema í hvínandi botni! (já ég hef keyrt svona bíl.. og langt frá því hrifinn af vinnslunni!)
    Það væri kannski bara "lausn" að sleppa því að keyra í overdrive??





    04.03.2008 at 22:36 #616162
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég er með!
    kv. Kiddi





    03.03.2008 at 11:46 #615918
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Svona fyrst þið eruð komnir í svona hrikalega djúpar pælingar með þetta, hvar væri besti staðurinn að draga loftið inn í loftinntakið? Er það bara við hvalbakinn eða… og væri eitthvað vit í því kannski að setja rist á húddið þar fyrir ofan eða er maður að gera verra með því uppá að sulla vatni inn?
    kv Kiddi





    28.02.2008 at 22:22 #615516
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Jú þetta er bara útaf of mjúkum fóðringum og eins og ég segi þá væri hægt að laga þetta með stífari fóðringum, en ég ætla bara að fara í venjulegt 4 link með þverstífu að aftan aðallega útaf plássi og líka til að reyna að hafa hann álíka mikið þvingaðan að framan og aftan. Mér finnst hann vera að misfjaðra of mikið að aftan miðað við að framan…

    kv. Kiddi

    ps. ef einhver veit um stífar fóðringar sem eru ca jafn breiðar og benz fóðringarnar (70mm) þá þætti mér vænt um að vita hvar ég get fengið slíkar… nenni ekki að fara útí mikla smíði en ef ég get lagað þetta á tiltölulega einfaldan hátt þá er það ekki nokkur spurning!





    28.02.2008 at 16:32 #615512
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég prófaði hjá mér að setja efri stífurnar í / og sleppa hliðarstífunni og er með benz fóðringar í öllum stífum. Það er ekki flóknara en svo að þetta virkar ekki baun, hann er alltof laus að aftan þannig að ég ætla þegar ég hef tíma að smíða venjulegt 4 link með þverstífu. Það væri líka alveg prófandi að nota t.d. land cruiser þverstífufóðringar ofan á drifið til að minnka sláttinn það gæti alveg virkað… en ég sé alveg greinilega að þessi uppsetning er nánast ekkert þvinguð!





    27.02.2008 at 12:13 #615334
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ekki gleyma að bæta við svona allavega 2 cm í samanslaginu til að vera pottþéttur á að dempararnir slái ALDREi saman sama hvur andskotinn gengur á!





    24.02.2008 at 18:56 #615224
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sæll
    ég leitaði aðeins að þessu á google og fann þennan þráð:
    http://forums.off-road.com/jeep-short-w … stion.html

    Þarna tala þeir um eitthvað full-float kit frá Warn sem virðist ekki vera lengur í framleiðslu… fyrir utan það virðist ekkert vera hægt að gera fyrir þessa hásingu þar sem þeir segja að öxlar úr yngri bíl passi ekki. Síðan er auðvitað hægt að láta smíða öxla í þetta ef menn tíma því… eða skipta bara um hásinguna!





    21.02.2008 at 20:05 #201924
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Á einhver mynd af MT dekkjunum 38″ á breiðari felgu en 14″?
    kv. Kiddi





    21.02.2008 at 16:51 #614122
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Gunnar Ingvi er að vinna í köntum á Wrangler ’97 og nýrri… og er það vegna þess að nógu margir eru búnir að falast eftir slíkum köntum… er einhver búinn að reyna af einhverju viti að fá einhverja af þessum kantasmiðum til að græja kanta á þetta boddý? Svo er það ekkert óyfirstíganlegt að breikka og lengja svona kanta ef menn hafa tíma í það…

    ps. Hér á heimilinu er svona Grand Cherokee ’99 sem er falur þið getið haft samband ef þið hafið áhuga email og símanúmer finnið þið ef þið smellið á nafnið mitt…





    17.02.2008 at 23:19 #614402
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Pabbi er með V10 Econoline ýmist á 41" Irok fyrir sumarferðir og slíkt eða 46" MT. Eyðslan er að koma út í 25+. Þetta er 2006 módelið og var hann fluttur inn með framdrifi frá USA sem var sett í af fyrirtæki sem heitir Quigley og er í samstarfi við Ford. Síðan tók Gunni Egils hann og breytti honum en kostnaðarlega séð kom það bara mjög vel út að fá hann með hásingu og millikassa að utan. V10 vélin þykir mér vera að svínvirka og sömuleiðis 5 þrepa skiptingin, ég held líka að V8 bíll væri ekkert eyðslugrennri. Ef ég man rétt þá vigtar hann einhver tæp 3300 kg á 41".
    Varðandi 6 lítra vélina þá voru sögur af veseni á heddum og túrbínum aðalástæðan fyrir því að við tókum frekar bensínbíl auk þess sem að díselbíllinn er 5000 dollurum dýrari úti og þetta er ekki það mikið notað hjá okkur… það hefur átt það til að safnast fyrir vatn í túrbínurnar þegar bílarnir standa lengi og þá byrja þær að ryðga innanfrá. Auk þess er bensínbíllinn léttari.





    15.02.2008 at 13:26 #614072
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það væri fróðlegt að sjá þessa flóknu formúlu Siggi, ef hún er þá til…?





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 897 total)
← 1 … 11 12 13 … 45 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.