Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.05.2008 at 19:41 #621894
Eyðileggja Þingvelli til þess að það taki styttri tíma að aka með túristastóðin til að sýna þeim Geysi…. sem er löngu búið að eyðileggja. Þetta lið þarna, það bara hugsar ekki???
30.04.2008 at 20:34 #621876Bara svo það sé á hreinu þá er þetta í rauninni bara könnun, ekki kosning þannig séð, þetta hefur semsagt engin áhrif á sjálfa ákvörðunina fyrir utan að þarna kemur álit almennings í ljós!
30.04.2008 at 20:20 #621908Bubbi, ég hélt þú vissir hvar það myndi enda… nei já úps það myndi nefnilega aldrei enda…
30.04.2008 at 17:33 #202376Þekkir einhver til hversu mikið þarf að gera til að koma svona bílum á 33-35″? Er hægt að komast hjá því að hækka þá? Þá á ég við boddýið sem er frá ’99-’04, 4.7 V8.
kv. Kiddi
24.04.2008 at 02:43 #621228Maður á varla til orð yfir vitleysunni sem gjörsamlega vellur uppúr sumum hérna svo maður tali nú ekki um þetta rugl sem maður sá í fréttum. Það mætti halda að sumir héldu að þeir væru að gera enn eina byltinguna í suður-ameríku…
Menn ættu nú bara aðeins að staldra við og hugsa sinn gang, það er enginn sem neyðir mig til þess að reka þetta leiktæki mitt… ég get bara einhvern veginn ekk ifengið mig til þess að fara að væla yfir því að það sé orðið dýrt að leika mér!!! og eins og komið hefur fram áður í þessum þræði þá mættu margir vörubílstjórar aðeins taka til í sínum málum, ég er eiginlega farinn að hallast að því að það séu mestmegnis vitleysingar og kjánar sem eru í þessum mótmælum???
22.04.2008 at 17:53 #619334Eruð þið með töfralausn á því að dekk hitni ekki þegar þau bælast?
21.04.2008 at 23:15 #619324"Af gefnu tilefni vill Arctic Trucks benda á eftirfarandi:
>Að keyra með of lítinn loftþrýsting í dekkjum getur valdið því að dekk
eyðileggjast og geta valdið slysi
>Öll notkun á dekkjum undir uppgefnum loftþrýstingi framleiðanda er á
ábyrgð kaupanda/notanda dekkjanna
>Kaupandi/notandi ber því ábyrgð á slysum og eða skemmdum sem
kunna að hljótast af vanrækslu við eftirlit með loftþrýstingi dekkjanna"
.
Þetta er frá því löngu áður en dekkin komu á markað… http://jeppar.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=3297
19.04.2008 at 20:22 #620924Er ekki rétt að fara eftir reglunum í torfærunni?
"5.Allar keppnisbifreiðar skulu meðan á keppni stendur hafa:
Opnar bifreiðar skulu hafa veltibúr úr lágmarksefni 42mm x 2.5mm, með skástífu (nánar í
veltibúrareglum LIA).Skástífa má vera boltuð í en samkvæmt reglum LIA.
Lokaðar bifreiðar skulu hafa veltiboga úr lágmarksefni 42mm x 2.5mm. Boginn á að vera yfir
ökumanni og þá annar aftast og stífur milli þeirra, eða bogi yfir ökumanni og stífur úr boga ská niður
í gólf í ca 45° halla. (Nánar í veltibúrareglum LIA)
Plattar undir veltibúr skulu vera 120 fersentimetrar.( Nánar í reglubók LIA)"
Tekið af http://www.1337.is/torfaera/viewtopic.php?t=36
18.04.2008 at 23:45 #620912Ásgeir þér er velkomið að kíkja einhvern tímann til mín og hirða af mér allt gumsið sem ég var búinn að safna að mér til að bóna felgurnar sem ég átti! Það var eitt og annað sem virkaði alveg ágætlega.
kveðja Kiddi
07.04.2008 at 23:14 #619618obbosííí það er blessuð blíðan.. ég ætlaði að skrifa eitthvað voða sniðugt hér en fattaði síðan að ég var að misskilja allt í kleinu. Og megi svo guð blessa Bandaríkin.
05.04.2008 at 19:39 #619262Stífurnar hjá félaga þínum hafa bara verið hrikalega illa smíðaðar ef þær hafa ekki þolað þetta…
02.04.2008 at 16:43 #619010Í guðanna bænum hafðu spaðann á vélinni og slepptu rafmagnsviftunum. Þegar þú ert kominn með hvað 500-600 hestöfl hvað munar þig um nokkur til eða frá???
Ég er hérna með jeppa út í skúr með nánast nýja vél með ónýta stimpilhringi… hvers vegna? Jú, rafmagnsviftan fór í frí á besta tíma!!! (hvers vegna hún fór í frí er svo önnur saga…)
kv Kiddi
26.03.2008 at 19:44 #618134Sæll, vantar þig enn svona kanta? Ég gæti verið til í að skilja við mitt sett, það hefur aldrei farið á bíl…
Kiddi S: 869-7544
20.03.2008 at 00:30 #618146Það væri ágætt ef einhver gæti bent á hvar svona linsu-aðalljós fást!
Reglurnar eru þannig að ljósin mega vera 40 cm frá ystu brún, ekkert talað um miðju. Það ætti að gefa nokkra cm…
kv. Kiddi
18.03.2008 at 15:42 #617942Sæll
Ef þú hefur áhuga á að skipta yfir í Wagoneer nöf með diskabremsum þá á ég allt til sem í það þarf, s.s. ytri öxul, liðhús og allt því fylgir þ.m.t. bremsudótið og loku. Þetta er enn á hásingu bara eins og þetta kom undan bílnum og á því að vera í þokkalegu lagi. Liðhúsið farþegamegin er með tiltölulega háum arm fyrir togstöng en það er lítið mál að breyta því. Svo er önnur leið fær þ.e. að nota stýrisenda farþegamegin úr Wagoneer sem er með gati fyrir togstöngina.
Ég lét t.d. Stál og Stansa breyta armi fyrir mig. Endilega hafðu samband ef þú hefur áhuga á þessu, ég er yfirleitt ekki mjög dýr á svona dóti
kv. Kiddi
17.03.2008 at 18:36 #617740Fann líka þennan fína rofa í Bílanaust, nokkuð verklegur og virkar þannig að það er togað í gorm og þá gefur hann straum! Bara frekar blóðugt að borga 2000 kall, svona er þetta…
16.03.2008 at 23:56 #616740Og svona aðeins út fyrir efnið.. er kollurinn á mér útí móa eða hallar þverstífan á pattanum öðruvísi en togstöngin?
16.03.2008 at 23:17 #616738Hvaða dekk eru md? Mudder?
16.03.2008 at 22:57 #617736Já það er ekki nokkur spurning að það er rofinn sem er að klikka. Þar sem það er nú ekkert auðvelt að nálgast svona smáhluti í þessa bíla þá er ég að leita að einhverri einfaldri og helst sem ódýrastri reddingu fyrir páskatúrinn
Ég ætla að prófa Fálkann, Íhluti, Radíóverslun Reykjavíkur eða hvað það nú heitir, Vöku og N1 á morgun en ef menn hafa einhverjar fleiri hugmyndir þá um að gera að skjóta þeim á mig…
kv. Kiddi
16.03.2008 at 16:50 #617714Ég ólíkt sumum ætla ekki að fara að tjá mig of mikið um hluti sem ég hef ekki sjálfur reynslu af. Wn ég var með 35" BFG á 12" breiðum felgum og það var fínt sem sumardekk. Ég myndi ekki fara í mjórri felgur en 11" bara uppá lúkkið að gera.
-
AuthorReplies