Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.08.2008 at 03:07 #627540
niðurgírunin er boltuð framan á NP 203 þannig að það er einfalt að taka hana af, og þar sem það er vinsælt að nota hana í milligíra þá ætti ekki að vera stórmál að fá kassa án lága drifs
kv Kiddi
15.08.2008 at 23:10 #627524ert þú soddan þverhaus??? ekki illa meint samt… en stífur sem eru þvert á bílinn eru yfirleitt kallaðar þverstífur.. hinar eru bara… stífur
01.08.2008 at 00:33 #6265724.0 er haugamáttlaus, annaðhvort heldurðu fjarkanum eða ferð alla leið í áttu!!!
kv Kiddi semverðurkominnmeðV8innanárs
17.07.2008 at 18:51 #626128Ef þú ert ekki búinn að breyta pústinu mikið útaf fjöðrunarbreytingum þá myndi ég hiklaust mæla með því að kaupa pústkerfi að utan, þeir framleiða þetta undir þessa bíla í 2.5" þvermáli og bæði hægt að fá stútinn út undan síls sem og að aftan eins og orginal. Ég í það minnsta treysti þessum skrattakollum engan veginn til að gera þetta rétt, ég lét BJB smíða pústið undir minn og það liggur utan í skiptinguna. Beygjurnar mjókka heldur ekki á þessum fjöldaframleiddu pústkerfum eins og á þeim sem eru beygð hérna heima.
Þú getur skoðað þetta bara á summitracing.com…
kv Kiddi
09.07.2008 at 00:28 #625548Econoline eru 9/16" eftir því sem ég best veit, sem eru einhverjir rúmir 14 mm
Gengjurnar eru hins vegar grófari á þeim en á Toyota boltunum sem eru í millimetrum
29.06.2008 at 02:08 #202606Mér tókst að brjóta festinguna fyrir alternatorinn á mótornum hjá mér (ekki spyrja hvernig!!!). Þetta er stykki sem er steypt úr áli og ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti bjargað mér og soðið þetta saman gegn vægri greiðslu?
kv Kiddi S:822-8643
29.06.2008 at 00:58 #625124Prófaðu að skipta um hægagangsmótorinn (ventilinn)
27.06.2008 at 16:14 #624770Benz púðarnir eru 12 cm, og krúser púðinn er eitthvað lengri. og töluvert mýkri þegar maður tekur á honum með höndunum í það minnsta.
Ég er mikið að spá í að setja svona JounceShock í jeppann hjá mér a.m.k. að aftan þar sem ég er strax búinn að beygja afturhásinguna á hoppi og skoppi… það sem er að trufla mig er bara hvað get ég skemmt þegar ég finn nánast ekkert fyrir samslættinum???
26.06.2008 at 09:38 #624956Ástæðan fyrir að dísillinn er dýrari er engin önnur en aukin eftirspurn, er það ekki orðið sjaldgæft í Evrópu að menn keyri á bensíni???
23.06.2008 at 17:47 #624740Ertu ekki að flækja þetta aðeins fyrir þér, af hverju notarðu ekki bara venjuleg 35" dekk og passar bara að þau passi inní sporið eftir 38 tommuna??
18.06.2008 at 18:15 #624412Ég er til!!!
kveðja Kiddi
12.06.2008 at 23:49 #202555Sælir
Gæti einhver mælt fyrir mig hvað baninn á MTZ er breiður, s.s. það sem brettakanturinn þarf nauðsynlega að dekka? Það mætti sjálfsagt mæla þetta á öðrum dekkjum frá MT, semsagt Baja Claw, ATZ og nýja Cepecknum!Takk… Kiddi
05.06.2008 at 00:08 #618152Já það stendur margt merkilegt þar en ég fann ekkert um nákvæmlega þetta þar…
04.06.2008 at 21:53 #618148Jæja ég fann svona ljós fyrir slysni, en hvað þurfa þau að uppfylla til að vera lögleg sem aðalljós? Það stóð á þessum E4 og DOT, er eitthvað fleira sem þarf?
kv Kiddi
03.06.2008 at 20:03 #623904Álögur á bifreiða EIGENDUR lækka ekki, heldur hækka. Álögur á nýja bíla lækka, það er allt annað mál!!!
25.05.2008 at 21:25 #623422Ef þetta er TBI innspýting þá á ég til notaða dælu sem virkaði fínt þegar hún var tekin úr, færð hana á 5000 kall. Utanáliggjandi og framleidd af Walbro ef mig misminnir ekki!
Kiddi S: 869-7544
17.05.2008 at 03:25 #623012Blessaður kauptu þér bara rafsuðu frekar en að borga einhverjum fyrir að hnoða þessu undir fyrir þig
þú getur fengið fínustu rafsuðu fyrir ekkert svo mikinn pening
svo þegar þú ert kominn með rafsuðuna þá er ekki aftur snúið, það sem áður virtist ógerningur er leikur einn og lífið virðist eintóm hamingja þar til þú ferð út á bensínstöð, en svoleiðis er það nú bara.
kv kiddi
08.05.2008 at 23:56 #622608Mér sýnist sem það sé maður að nafni Sigurgeir á bænum Skáldabúðum í uppsveitum Árnessýslu sem eigi inni hjá þér kippu af Thule… hann er nefnilega með 6 sílindra línuvél ásamt túrbínu úr Toyota Supra í húddinu á Hilux
[url=http://www.f4x4.is/new/profile/default.aspx?file=4999:3cbtt29s][b:3cbtt29s]https://old.f4x4.is/new/profile/default.aspx?file=4999[/b:3cbtt29s][/url:3cbtt29s]
kv. Kiddi
04.05.2008 at 14:00 #622146passar ekki beint aftan á 700 en hér eru einhverjar upplýsingar um þetta:
http://www.pirate4x4.com/forum/showthre … d300+4l60e
Svo er það annað mál hvort drifskaptið komist fyrir, 700 skiptingin er mikið breiðari til hægri heldur en vinstri og það hefur átt það til að valda vandræðum. Ef það myndi hjálpa eitthvað þá á ég ónotaðan clocking ring sem er s.s. til þess að snúa millakassanum um allt frá 9-18-27 gráður ef ég man rétt, hann gæti fengist fyrir eitthvað sanngjarnt.
kv. Kiddi
02.05.2008 at 15:53 #621990Hvað er munstrið breitt á Mudder í dag? Ég er með hundgamlan Mudder (Radial) sem mér hefur sýnst vera breiðari en sá sem er seldur í dag og sá flötur sem snertir götuna er 29 cm þar sem hann er breiðastur (mæli ekki alla breiddina á kubbunum, bara það sem snertir götuna)
-
AuthorReplies