You are here: Home / Kristinn Hilmar Gíslason
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Nú er búið að opna aftur kynningarrýmið í Hellisheiðavirkjun, það er að vísu einkarekið, og hefur verið stofnað félag um þennan rekstur. Nafn félagsins er Orkusýn ehf.
Í húsnæðinu verður boðið upp á kynningar um nýtingu jarðvarma og í framtíðinni um almenna nýtingu á orkuauðlindum landsins, einnig er þar rekið kaffihús undir nafninu Kaffi Kolviðarhóll og mun þar verða heitt á könnuni alla daga frá kl 09.00 – 17.00, einnig verður þar hægt að fá bjór, rauðvín, hvítvín ásamt heitu súkkulaði og bakkelsi úr bakaríinu í Hveragerði.
Upplagt er að leggja upp í gönguferðir frá virkjuninni en í Henglinum eru einhverjar skemmtilegustu gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur.
Ég veit að menn eru að brenna steinolíu á sumum gerðum dieselvéla, veit einhver hvort það sé í lagi að brenna henni á 6 lítra Ford Powerstroke og í hvaða mæli má blanda henni samanvið gasolíu.
Ér er að athuga hvort einhverjir Ford eigendur mað 6 l diesel vélina hafa orðið fyrir því á lítið keyrðum bíl að farið hafi hjá þeim Fuel Injection Modul Control. Ég er með Econoline sem ég flutti inn sjálfur nýjan frá USA í okt 2007 og var honum breytt hjá Quigley.
Þegar bíllinn var kominn í 16 þús mílur bilaði þessi modull og var þetta viðgerð upp á kr 230 þús.
Ég var mjög ósáttur við þau viðbrögð er ég fékk hjá umboðinu, en þeir hjá IB á Selfossi brugðust bæði hratt og vel við.
Nú er spurning mín ef einhverjir hafa lent í þessu hvernig viðbrögð umboðsins hafa verið. Kv Kristinn Gíslason
E-mail kristinn.gislason@or.is