You are here: Home / Atli Þór Kristbergsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Sælir / sælar,
Mig langar að þakka öllum sem komu að og tóku þátt í frábærum degi í dag. Ferð Litlunefndar í Hungurfit var hreint út sagt algjör snilld.
Með þökk fyrir góða skemmtun og frábæran félagsskap.
Atli Þór Kristbergsson
Isuzu D-MAX
Sælir og takk kærlega fyrir innleggin .
KarlHk – veistu hvaða dekk hafa reynst vel þ.e. eru ekki of hörð og hafa gott munstur? Mér hefur verið rálagt að kaupa Toyo frá Benna svo og Bfgoddrich…?
Með kveðju,
Atli
Sælir,
Hvernig er það ef svona "stór" bill fer af stað í hálku (renna) þá er betra að vera á nelgdum er það ekki…?
Væri gaman að heyra reynslusögur af ferðum manna sem eru að nota nagladekk og þeirra sem kjósa að gera það ekki.
Með kveðju og takk fyrir svörin,
Atli
Sælir,
Nýlega fékk ég mér Isuzu D-max sem er 35″ breyttur. Þar sem ég er nýliði í þessu og hef ekki ekið um á jeppa í nokkuð langan tíma langar mig að forvitnast um hvaða skoðun menn hafa á nagladekk fyrir svona bíla?
Tek það fram að ég hef ekki mikla reynslu af akstri svona bíla að vetri til en einhvern veginn þá virkar það öruggara að hafa hann á nagladekkjum. Langar að fá ykkar álit á þessu máli. Á ég að fá mér 35″ nagladekk undir hann eða nota micro skorin dekk?
Alla vega langar mig að heyra i hvað ykkur finnst.
Kv. Atli Þór Kristbergsson