Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.01.2004 at 19:43 #485558
Nú sett ég bílinn inn í skúr og slekk á tölvuni.
Eyþór
19.01.2004 at 19:33 #193500Sælir félagar ég fór á Hveravelli ásamt frábærum hóp manna og kvenna. þrátt fyrir hrikalega veðurspá var veðrið alveg frábært laugardagurinn var sól og bongó blíða sunnudagurinn var logn og 12 stiga frost en veður spá fyrir laugardaginn átti aðvera 15 m/s snjókoma og skafrenningur var sagt í fréttum að það væri ekkert ferðaveður. Reyndin var allt önnur og misstu margir af frábæri helgi á fjöllum.
Spurningin er sú vita þessir veðurmenn ekkert eða eru þeir að bæta allt of mikið við veðrið til að vera ekki teknir í gegn eins siggi stormur fékk um jólin.
Svo finnst mér soldið fyndið að segja að veðrið sé svo breytilegt að það sé ekkert hægt að spá í það hér á Íslandi. Nú er ég að tala um það sem ég veit ekkert um og getur þetta allt verið satt og rétt hjá veðurfræðingum.Kveðja Eyþór
31.12.2003 at 23:36 #483152Óska ég öllum heimskum jeppa mönnum árs og friðar og öllum hinum líka sem vilja vera heimskir og restini af 4×4 félögunum líka
Kveðja
Eyþór
Heimskir no 314 Reykjavíkurdeild
04.12.2003 at 19:42 #482046Hikklaust 5.29 því 5.71 er drasl og brotnar við að taka af stað það er mín reinsla. Sambandi við endingu þá endast 5.29 hjá mér bara c.a.70000 þúsund kílómetra og brotna þá við minsta átak. Þetta er mín reinsla enda er bara ein stilling til í toyota on eða off.
Eyþór
15.11.2003 at 22:09 #474578Ég var að muna eftir einni sögu í viðbót úr þesssai sömu þórsmerkurferð. Hún gerðist á leiðinni inneftir og til baka þetta var þannig að við Bjarni stoppuðum á Hvolsvelli til að taka bensín og mæla olíu nema þegar við ætluðum að loka húddinu þá slitnaði önnur húddkrækjan ( willysin var með heillri framstæðu það er að segja þegar maður opnaði huddið opnaðist bretti og grill með) við fengum smá sjokk en hvað gat maður gert þórsmörk beið (til dæmis bundið huddið fast) en hugsunin náði ekki svo langt svo lagt var í hann við fórum að ræða hvað myndi gerast ef samstæðan fyki upp við myndum fá þetta allt í andlitið og framrúðan brotna og svona gekk umræðan fram og til baka alla leið inneftir svo eru þið búnir lesa það sem gerðist innfrá svo kom að heimleið og eins og alltaf keyrði Bjarni(ég var samt með próf)og umræðan byrjaði aftur en samt veikari þvi húddið hélt inneftir sem betur fer var mjög heitt þennan dag svo bjarni hafði rennt niður rúðunni svo fauk húddið upp með hrikalegum látum og viti menn framrúðan smallaðist en vitimenn þetta gerðist á 90 km hraða og umferð á móti(dæmigert)Bjarni var fljótur að hugsa stakk hausnum út en sá ekkert nema brettakantinn þá VAR EKKERT ANNAÐ AÐ GERA EN AÐ ÞRUMA Á BREMSUNAR EN VITIMENN bíllin bremsaði náttúrulega vitlaust eftir allt vatnið en allt slapp samt EN ÞÁ ÁTTI EFTIR AÐ KOMAST ÚT þetta tryllitæki var með svona blægju hurðum sem var hægt að skella eins og á venjulegum bíl og þar sem gluggastykkið gekk aftur skekktust hurðarnar og við komumst ekki út þá voru góð ráð dýr eins hallærislegt og það getur verið að vera læstur inní blægju willys nema hvað við byrjum að sparka glugga stykkinu fram og eftir soldin tíma komumst við út og BUNDUM HÚDDIÐ FAST. Þetta er trúlaga ein besta ferð sem ég hef farið í þÓRSMÖR.
Eyþór.
08.11.2003 at 17:10 #479976Félagi minn lenti í þessu þá var bensínsían stífluð sem er boltuð á vélina.
Eyþór
30.10.2003 at 17:25 #479374Ég þakka svörin. Hvar setur maður neman á pústið strax eftir túrbínu?
BTH. Er þessi mælir ekki að virka vel mér líst vel á hann og verðið.Eyþór.
29.10.2003 at 20:15 #193089Sælir félagar ég er að auka bústið á túrbínunni og bæta við bensínflæði sem er ekki frásagnavert nema það sagði við mig maður að maður verður að setja afgas hitamælir til að vita hvort maður sé að bræða vélina eða ekki allt í lagi með það ég sá þetta ekki sem vandamál nema þessi mælir kostar tæplega 28000 þúsund(og er ekki úr gulli). Spurningin er sú þarf maður þennan mælir ? Er hægt að kaupa hann annarstaðar en í VDO hef hvergi fundið hann nema í VDO?
Kveðja Eyþór.
09.10.2003 at 18:36 #477668Pólar eru í lagi kaupti þar geymir fyrir 3 árum og í fínulagi.
Eyþór
03.10.2003 at 20:27 #477356400 ford brúmm stór dekk jhheeeee……
Kveðja No Hero.
28.09.2003 at 23:21 #192919Sælir félagar ég er að spá hvort er betra sjálfskipt eða beinskipt í snjóakstur miða við 90 cruser. Og kannski heyra skoðanir sem menn hafa um þetta. Hvort sjálskiptingin sé að hitna eða bila eða einhver vandræði með þær. Hvort hægt sé að hjakka með sjálfskiptingu? Ég er bara búinn að vera á beinskiptum og hjakka helling og gengið vel en langar að prófa sjálfskipt. Reyndar á DC en þar sem ég er að sökkva ofaní heim díselsins þá langar mig í sjálskipt en er soldið hræddur við skiptinguna.
Kveðja Eyþór
P.S. Vonast eftir góðum ráðum við þessum pælingum.
15.08.2003 at 12:30 #475616Sambandi við dempara í hilux með fjaðrir ég er með einn slíkan sem var grjóthastur þegar ég keypti hann. En mér til mikillar mildi sprungu dempararnir mér til mikillar sælu því þá fór bíllinn loks að fjaðra og eru engar líkur á því að ég kaupi nýja dempara. Þar sem ég ferðast með gorma og loftpúða bílum og þeir stinga mig ekki af sé ég ekki ástæðu til að kaupa nýja dempara.
Kveðja Eyþór
P.S. Ef þeir fara að stinga mig af þá kaupi ég mér nýja.
13.08.2003 at 19:14 #475486Skiptir þetta nokkru máli þarna norðan jökuls þessu veður öllu drekkt í vatni hvort sem er ?
Kveðja Eyþór.
13.08.2003 at 19:09 #475536Hiklaust 1.9 til 2.8 millur
Kveðja Eyþór.
30.06.2003 at 15:02 #474570Takk Bjarni ég var búinn að gleima þessu þetta var mikkil ferð.
Eyþór.
28.06.2003 at 15:29 #474560Þessi saga á víst að vera sönn. Heyrði ég af tveimur félugum sem voru á blæju willys í þórsmörk. Voru þeir staddir innst í þórsmörkinni Básamegin við göngubrúnna þar sem vegurinn endar þar voru staddir útlendingar á tveimur jeppum Unimoc og man ekki hvað hinn var og voru útlendingarnir að spá hvort það væri hægt að fara yfir ánna. Willys félagarnir héldu það nú þetta væri nú ekki mikil spræna svo þeir fóru yfir og var ekkert mál það þótti eiganda willysins ekki mikið til koma svo hann sagði félaganum að keyra hring í ánni sem gekk bara vel en þótti eigandanum ekki nóg komið enn svo eigandinn sagði félaganum að bakka undir brúnna sem gekk bara vel í byrjun svo lítur eigandinn aftur í og sér að vatnið er byrjað að brjóta á miðri blæjunni og þeir félagar eru komnir undir brúnna þá gefa smellurnar sig í blæjunni og félagarnir sátu uppí mitti í vatni sem stoppaði þá ekki en hurðirnar voru bara opnaðar til að hleypa krossá í gegn en ferðin endaði á stórum stein sem willysinn komst ekki yfir svo ekið var bara uppúr ánni og spjallað við útlendingana sem sögðu þeim eð þeir væru brjálaðir og brunuðu í burtu. Og sátu félagarnir mjög hissa eftir.
Kveðja Eyþór.
P.S. Eigandinn var farþegi (ég) ökumaðurinn Ýktur í öllu sem tók tilsögn mjög vel.
27.06.2003 at 21:45 #464230Teddi þorir þú ekki. Ég skora á þig.
Eyþór
27.06.2003 at 21:32 #192691Sælir félagar nú er ég að fara út á hálabraut í sambandi við vöð í straumvötnum. Er það þekking hjá sumum mönnum í blóð borið sambandi við vöð í ám? Eða eru sumir alltaf fastir og aðrir ekki hver er galdurinn? Ég persónulega hef verið svo heppinn að sleppa við festur í ám trúlega heppni! Væri gaman að heyra einhverjar reynslusögur svaðilsögur eða vel heppnar sögur sambandi við straumvötn.Og hvað er að varast og hvað ekki?
Kveðja Eyþór
P.S. Virkar þetta með að henda grjóti út í á og hlusta á hvað er djúpt?
25.06.2003 at 12:13 #474440Eini staðurinn sem á að versla á er dekkjalagerinn ef dekkjalagerinn hafði ekki komið þá væri verð á dekkjum mun hærra haldið þið að bílabúð benna hefði riðið á vaðið og lækkað verðið í það sem það er í dag ó NEI. Ég keypti 38" dekk hjá dekkjalagernum í vetur svo kom upp galli í einu dekki þá var ég búinn að keyra í 7 vikur á dekkinu ég fékk nýtt dekk strax án vandræða ég var áður á 38" mudder sem ég keypti í bílabúð benna svo fór ég að keyra þá var kast á einu dekki ég fór og kvartaði en fékk ekki nýtt dekk heldur keyrði allan tíman á þessu rusli.Sem sagt það er þjónusta fyrir jón og séra jón í dekkjalagernum en bara fyrir séra jón í Bílabúð benna. þetta á bara við mína reynslu.En ef deekkjalagerinn fer hvað haldið þið að verðið verði lengi að fara í gamla horfið 38" 63000-35"36000 ?
Kveðja Eyþór
P.S. Ekki fá þér 35"micky Thomson þau spænast upp.
06.05.2003 at 18:49 #473152Þessu er ég samála Lúter.
Eyþór
-
AuthorReplies