Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.01.2006 at 10:52 #539964
…frá R Sigmundsson og Íhlutum virka. Rikki fær reyndar sína breyta í Íhlutum.
Kjartan
22.01.2006 at 00:32 #539856Fórum af stað úr bænum upp úr 8 í morgun og brunuðum á 4 jeppum norður í land. Komumst upp að fjallinu og upp í 680 m hæð (húsið í 920 m). Snjór mjög erfiður og færi þungt. Ákváðum að snúa við eftir að Þröstur braut framöxul og drifloku. Fórum niður í Svartárdal í skemmtilega erfiðu færi. Sneiðingarnir í Svartárdalnum voru fullir af snjó og urðum við að demba okkur út af veginum og niður snarbratta hlíð sem gaf smá adrenalín kikk. Við komum heim um 22:30
Kv. – Kjartan
19.01.2006 at 12:50 #539544Gunnar nefndi gagnaflutning í lið 6 hér að ofan. Þær Tetra sellur sem eru í notkun í dag eru lang flestar tengdar með einni línu við miðlæga kerfið í Skógarhlíð. Þessar línur geta flutt 64kb. Hver sella getur verið með 3 samtöl í gangi í einu og geta þessi 64kb því þurft að deilast á 3 samtöl.
Ég set því spurningamerki við gagnaflutning.
Kv – Kjartan
19.01.2006 at 10:26 #539528Það er ekkert mál að tala á Tetra frá Reykjanesi til Vestmannaeyja. Þú nærð sambandi við sellu á Þorbirni. Hún er línutengd inn í miðlægt kerfi í Skógarhlíð. Tetra sella á Klifinu í Vestmannaeyjum er síðan línutengd við Skógarhlíðina.
Tæknilega séð er langdrægni Tetra bílstöðvar 58 km, en í praxis er langdrægnin ca. 10 – 40 km og fer það eftir staðsetningu Tetra sellunnar og landslagi. Það er því ekki fræðilegur möguleiki á að hægt sé að tala beint frá Reykjanesi til Vestmannaeyja því það er ca. 120 km.
Langdrægni á normal GSM stöð er theoritisk 35 km en Extented Range stöðvar sem eru td. á Gagnheiði og Klifinu í Vestmannaeyjum draga theoritisk 121 km (með sjónlínu og bestu skilyrði)
27.12.2005 at 23:59 #537292Benni, ætlaðir þú ekki að fara í þessa ferð og hrista slyðruorðið af pajero?
Unnur tók eitthvað svo illa í það þegar ég bað um að fá að fara á bílnum okkar, talaði um að það færi að styttast í kvennaferð.
Kjartan
16.11.2005 at 09:17 #532244Ég sá að menn voru að spá í hve mikið eldsneyti ætti að taka með.
Ég fór í löngu nýliðaferðina 2001 þar sem við vorum 44 klst á keyrslu. Ég var fremstur að ryðja langleiðina í Setrið og á heimleiðinni var ég með bíl í spotta meira og minna frá Setri niður í Sultartanga. Ég lagði af stað á föstudegi með 160 lítra frá Reykholti og tók bensín á Selfossi á mánudagsmorgni eftir 44 klst akstur.
V6 toyota á 38 með 16 ltr eyðslu í blönduðum akstri.Kv. – Kjartan
16.11.2005 at 09:04 #532536Ég átti svona toy árg. 93, beinskiptan á 38" með 5,71 drif. hann var að eyða 16 – 17 í blönduðum akstri.
Kv. – Kjartan
03.11.2005 at 14:28 #529320heitir þetta kerfi og er stafrænt, á sama tíðnisviði og NMT.
Kv. – Kjartan
29.09.2005 at 20:04 #528204Rás 45 er almenn veiðirás og opin öllum. Rás 16 er neyðarrás fyrir skip.
Rásir 55 og 56 eru rásir Vesturlands- og Austurlandsdeildar.
Kjartan
16.09.2005 at 15:46 #527016Þú ert að borga farstöðvagjald fyrir talstöðina, sambærilegt við VHF stöðvar.
Þetta gjald þarf að borga meðan stöðin er virk, þ.e. þar til hún hefur verið innsigluð af Póst og fjar eða einhverjum viðurkenndum aðila. Þetta hefur ekkert með hlustun í Gufunesi að gera.
Kv. – Kjartan
16.09.2005 at 15:34 #526942Að sjálfsögðu mætir Rottugengið, enda laaaaaang flottasta og vinsælasta gengið innan 4×4 samkvæmt áreiðanlegum heimildum.
14.09.2005 at 17:18 #526764Á hulstrinu utan um diskinn stendur: "Til notkunar í Garmin GPS, PC heimilistölvu eða Windows Mobile handtölvu".
Ég veit ekki með GPS tækið sem þú nefndir.
Talaðu við Rikka í R. Sigmundsson og hann segir þér allt um þetta.
Kv. – Kjartan
14.09.2005 at 13:44 #526758Ég gleymdi…
Þegar kortadiskurinn er keyptur, fylgir með leyfi til að setja kortin í 2 Garmin GPS tæki. Þegar kortin eru sett inn verður að fá kóða á vefnum til að hægt sé að aflæsa þeim. Kortin virka ekki til að keyra eftir í tölvunni nema hún sé tengd við Garmin GPS tæki með kortum í.
Þó er hægt að skoða kortin í tölvunni þó hún sé ekki tengd GPS.Kv. – Kjartan
14.09.2005 at 13:31 #526756Þú notar MapSource forritið. Einnig fylgir á diskinum forrit sem heitir nRoute og er navigation forrit.
Nýjasta útgáfa af MapSource, ver. 6,7 hefur ekki navigations möguleika.
Kortin eru á vektor formi.
Ekki er hægt að nota þau í MaxSea eða Navtrack forritunum.Kv. – Kjartan
14.09.2005 at 12:36 #526752Þessi nýi kortagrunnur er að mínu mati alveg frábær. Hann byggir á gögnum úr 1:50.000 kortum og eru 20 m. á milli hæðarlína (allt landið). Í honum eru um 40.000 örnefni og nöfn á áhugaverðum stöðum. Ítarlegt götukort af höfuðborgarsvæðinu með nýjustu hverfunum ss. Kórahverfi í Kópavogi. Allir vegir á landinu og flestir slóðar á hálendinu eru inni, plottaðir með GPS. Hægt er að nota kortið í GPSinum eða í tölvunni eins og Navtrack eða Maxsea. Ég hef notað þetta talsvert undanfarið en notaði Maxsea og Navtrack áður. Mér finnst þetta bara flott og mun nota þetta í framtíðinni.
Kv. – Kjartan
19.06.2005 at 14:30 #524172Kom setrið ekki út í júní eða er ég ekki lengur á póstlista? Svar óskast.
Kv – Kjartan
17.06.2005 at 19:16 #196041Hvernig er með Setrið?
Kom það ekki út í júní eða er þetta bara samsæri gegn mér.Kv. – Kjartan
23.05.2005 at 13:58 #523304Ég, undirritaður félagi nr. R – 1563 í Ferðaklúbbnum 4×4, mótmæli 50 cm ákvæðinu í grein nr. 4
Kjartan Gunnsteinsson
Kt.: 0409594169
17.03.2005 at 10:00 #519212Lög Ferðaklúbbsins 4×4 eru inni á heimasíðunni undir flipanum "bókasafn".
Kjartan
07.03.2005 at 13:11 #512824Mig langar að leiðrétta staðreyndarvillur hjá félaga Birni Þorra.
Rotturnar voru með fyrstu bílum yfir Hofsjökul og laaangt á undan Pæjunum. Eftir viðgerðarhlé upp á hálfan þriðja tíma við Ingólfsskála sáum við að hópar voru enn að koma yfir jökulinn.Kalli Rotta beygði framhásingu en ekki afturhásingu.
Hásingin sem Þröstur braut, eftir 12,5 m stökk, er undan gömlum patrol og alveg liðónýt að sögn kunnugra.Eftir viðgerðina keyrði Terranoinn á Blönduós þar sem vörubíll tók hann á pall.
Takk fyrir frábæra helgi á fjöllum og flotta veislu á Akureyri.
Kv. – Kjartan
-
AuthorReplies