Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.02.2009 at 10:22 #637656
Sæll til að talning sé rétt má bæta mér við sem +1 hjá
"30 Þrándur Arnþórsson 38t Ford Explorer"
kk
Kjartan
18.02.2009 at 16:45 #641358Spurning hvort kúplingar fyrir Frontier (Navara í USA) passi fyrir Td vélina. En hér er linkur á vöruhús með Frontier kúplings pressur og diska.
https://www.4x4parts.com/catalog/index. … th=165_145
Ég keypti bilstein dempara og hlífðarplötur fyrir Navara fyrir nokkrum árum, af held ég þessum aðila (er búinn að henda pappír og pósti). Gekk hratt og örugglega fyrir sig.
kkKjartan
12.08.2008 at 09:31 #627170Það er búið að fjarlægja jafnvægisstangir úr flestum 38+ breyttu Land Rover Defender bílunum.
kk
Kjartan
08.08.2008 at 14:57 #626666Það er ekki lausn, held ég, að loka á fólk.
Það virðist krauma töluverð óánægja í félaginu og því betra að leyfa fólki að tjá sig, allavega meða orðbragð er innan velsæmdarmarka og sendingarnar ekki of meiðandi
kk
Kjartan
08.08.2008 at 14:46 #625476Fór til Arctic trucks, þeir balanceruðu hringinn. Þurfti aðeins að fínisera, ekki mikið þó.
Settu annað afturdekkið að framan því það var smá hopp í öðru framdekkinu. Var mikið betri eftir.
Þá er balance í lagi – í bili allavega. Millibilið er þá næst á dagskrá, ef bíllin er enn jafn næmur í stýri og fyrir þessa æfingu, kemur í ljós um helgina.
kk
Kjartan
08.08.2008 at 09:55 #625474Sælir, hverjir eru með bestu græjurnar og jafnvægisstilla vel á höfuðborgarsvæðinu.
Ég er ekki að ná skjálftanum úr bílnum hann er einnig alltof lifandi í akstri hjá mér skiftir um akrein ef malbikið er kúpt og maður fer aðeins yfir miðju. Þetta batnar eitthvað ef ég minnka þrýsting í dekkjunum (hef verið að keyra á 30psi og niður í 20psi (en þá bætir hann við sig í eyðslu allt að 1,5l/100 á langtúr – með vagn aftaní).
Þessi taugeveiklun glæti svosem verið hjólabilið þ.e. bíllinn of útskeifur ( toe-out ) fyrst hann er svona viljugur að skipta um stefnu. Svona Land Rover Defender á að vera frá 0mm allt að 2mm útskeifur, gilda aðrar reglur við stærri dekkinn ætti maðir að reyna að hafa hann aðeins innskeifan (toe-in)?
kk
Kjartan
09.07.2008 at 09:21 #625472Takk Bergur, ég á eftir að láta fara yfir balance að aftan aftur. Ég lét yfirfara stýrisarma og -enda, ekkert þar. Mér finnst þetta samt aðeins að lagast (eða ég að venjast ;). Mögulega eru dekkin að mýkjast eitthvað.
Kjartan
07.07.2008 at 11:36 #625468Sæll átti einusinni 87 módel 110 TD STW með sterkum galvaniseruðum stuðara sem nýttist vel við að rétta stýrisstangir 😉 Þá notaði ég einungis 33".
Það er búið að styrkja stangirnar, SSGílsa sögðu mér að það þýddi ekki að vera með standard stangir og 38 dekk..
07.07.2008 at 10:00 #625464Sæll er með galvaniseraðar stálfelgur.
Ég lér balancera aftur að framan á eftir að láta balancera í 2. skiptið að aftan.
Kjartan
04.07.2008 at 16:31 #625076Ég á gamlan rauðan plast sjúkrakassa keyptan í apóteki. Tekur meira af dóti en púðinn.
Minn er búinn að skrölta innan um drullutjakk, loftkút og verkfæri í mörg ár og er enn heill.
04.07.2008 at 16:13 #625460Land Rover Defender 2007.
04.07.2008 at 16:08 #625456Sigurður hvar léstu balancera, á vörubíla-dekkjaverkestæðinu, ég keypti hjá Heklu og þeir balanceruðu, aftur, að framan sem bætti þetta eitthvað. Mögulega þarf að balancera betur að aftan einnig.
Varðandi stýrisdempara, hann er jú nýr, en rétt mögulega ekki nógu öflugur eða demparagúmmí of mjúk. Ég vidi helst vera laus við stýristjakk ef hægt er.
04.07.2008 at 11:14 #202633Sælir hef ekki keyrt um á 38um áður, af neinu viti, en keyrt mikið á 35um. Nú veit ég að þessi dekk eru mis hringlaga og töluverður gúmmimassi að sveiflast um.
Ég er með dekkjagang, sem á að vera nokkuð hringlaga að eðlisfari, MTZ, og er að haga sér nokkuð vel nema hvað það er sveifla í stýrinu milli 70-90km. Þetta er ekki hefðbundin skjálfti frekar eins og kjag (þ.e. frekar lág tíðni)þ Gæti þetta kannski verið afturdekk?.
Er hægt að balancera svona fullkomlega í góðum tækjum og er þá betra að slíta þetta einhverja 1000 km fyrst? ATh bíllin er einungis keyrður um 7000km þannig að það er lítið slit í stýrisgangi.
Kjartan
04.07.2008 at 11:04 #625068Takk Agnar, set þetta við afturhurðina enda ekki um marga aðra taði að ræða í Defendernum.
27.06.2008 at 14:05 #625056Sælir, gera skoðunaraðilar einhverjar kröfur til staðsetningar slökkvitækja í breyttum bílum.
Ég er að breyta Defender og plássið frammí er ekki mikið, var að hugsa um að setja 2kg tæki til hliðar við aftur (5.) hurðina.Kjartan
27.06.2008 at 14:02 #202600Sælir félagar, hvaða aðilar geta vottað hraðamælisbreytingu og hvaða krafa er gerð til þessara aðila – einhver almenn mælitækjavottunarréttindi?
16.06.2008 at 00:10 #624524Hver er munurinn á sér- og breytingaskoðun?
Ég er með Defender hækkaðan um 2 tommur, fært aftur um 6cm að aftan og settan á 38ur. Þá þarf ég væntanlega einungis breytingaskoðun?
kk
Kjartan
06.04.2008 at 20:55 #619672Ætli Toyota hafi ekki bara selt þeim framleiðslulínuna
07.03.2008 at 15:19 #616702Takk Skúli, eik talar heldur ekki vel um þau í hinum þræðinum sem óþolinmæði mín bjó til:)
kk
Kjartan
06.03.2008 at 22:09 #616716Takk Einar, eru þau of stíf og affelgast of auðveldlega.
Kjartanb
-
AuthorReplies