Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.11.2010 at 20:46 #215670
Jæja félagar nú væri gott að fá reynslusögur frá einhverjum sem hafa átt eða eiga 120 vx Toyotu bensín, eyðsla og svona almennt like eða dislike, VX, GX eða LX.
Bíð spentur
Kv Kjartan Magg.
09.03.2010 at 14:18 #211320Til sölu flottur og mikið breyttur Willys „82 árgerð. Helstu breytingar, vél 360 AMC með 400 sjálfskiptingu og Quatra Track millikassa. Dana 44 hásingar og loftlæsingar framan aftan, bíllinn er á 38“ ekki hálfslittnum Mudderum. Yfirbygging öll úr plasti nema hurðir, bræddur dúkur í gólfi og tveir ál bensíntankar samtals 280 lítrar. Verð 800þús. Bílinn er orðinn staðsettur í Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 864-0998 864-0998 eða Gulli998@gmail.com
http://img96.imageshack.us/img96/8312/willys82003.jpg [/img]
22.12.2009 at 15:18 #672674Sæll Unnar.
Jú var að meina tímann á reiminni
netfangið er gullikj@simnet.is.
Bestu þakkir
jólakveðja Kjartan Magg
21.12.2009 at 22:46 #209294Sælir félagar.
Er ekki einhver þarna úti sem getur sett in á spjallið leiðbeiningar um hvernig á að stilla inn tíma á 2.8 vél í Patrol ?, eða bent á hvar slíkar leiðbeiningar er að finna á netinu.
Bestu kveðjur Kjartan Magg
15.12.2009 at 20:50 #671626Sæll Agnar get selt þér "98 árgerð af Patrol með svona 4.2l vél og tiheyrandi gírkassa og stórum intercooler, toppfrágangur á öllu frá Kidda Bergs :).
7 manna bíll rafmagn í öllu og leðursæti, breyttur fyrir 38" er á 35" nagladekkjum: Verð 1.6.
gullikj@simnet.is
03.12.2009 at 20:33 #669718Einmitt, notum við ekki allt í hófi strákar?
02.12.2009 at 20:31 #669708Prufaðu bara að gefa honum eter
hann fer í gang á því þótt kertin virki ekki,og gengur ef olíuflæðið er í lagi.
13.07.2009 at 20:52 #205188Jæja félagar nú er bóndinn hjálparþurfi, frúin var á leið heim úr vinnunni á Patrol þegar ljósið fyrir öryggisbeltin fór að loga, næst drapst á útvarpini og að lokum slökknaði á miðstöðinni, daginn eftir fór patrol ekki í gang,rafmagnslaus.
Það skal tekið fram að hleðsluljósið logaði ekki. “hvað er að ?,,
18.02.2009 at 09:24 #641188Bestu þakkir félagar,ég er búinn að tala við bæði Auðunn og Brimborg málið komið í feril.
17.02.2009 at 20:07 #203838Veit einhver netverji hvar er hægt að fá gert við eða skipt um leðuráklæði á bílsætum. Um er að ræða Volvo 960 með rauðbrúnum sætum
-
AuthorReplies