Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.07.2013 at 14:16 #226336
Sælir,
Sonur minn er með Nissan Micra 1998 sem er búinn að vera með síendurtekið vandamál sl. 2-3 ár. Vandamálið fellst í því að loftnetið / skynjarinn fyrir örflöguna í lyklinum dettur alltaf úr sambandi / hættir að virka, NATS vandamál. Lýsingin á virkni er sú að bíllinn fer í gang en drepur á sér eftir örfáar sekundur og vélarljósið lýsir (man ekki hvort það blikkar eða ekki…).
Lausnin hefur verið að draga bílinn til umboðsaðila og lata hann ‘kóða’ lyklana inn aftur… þetta kostar ca. 5-6þús í hvert skiptið (höfum þó stundum sloppið með skrekkinn) og virkar frá 3 vikum upp í 3-4mánuði í einu… þá dettur þetta út aftur.Þeir hjá umboðinu hafa sagt mér að það þurfi að skipta um loftnet (stykkið með hringnum við/á svissinum) en ég er búinn að lesa á netinu að hægt sé að taka þessa vörn úr sambandi. Eðlilega hefur umboðið ekki vilja staðfesta það (sem er mjög skiljanlegt).
Núna í vikunni talaði ég við einhvern nýjann hjá umboðinu og hann sagði mér að það væri EKKI nóg að skipta bara um stykkið hjá svissinum ! það þyrfti að skipta líka um tölvuna sem er einhversstaðar á bak við mælaborðið og ég þyrfti þar að auki að fá nýja lykla ! ! ! (takk fyrir ! það er ekki að fara að gerast ! Einhverntímann heyrði ég að þetta loftnet kostaði milli 50 og 60þús. og það er ekki að fara í svona gamlann bíl hjá mér ! ).
Hins vegar sagði þessi sem ég talað við hjá umboðinu í vikunni að það væri ‘einhver kall úti í bæ’ sem hefði verið að taka þessa læsingu úr sambandi !Nú er mér spurn og leita því hér til mér fróðari manna : Veit einhver um þennann ‘kall’ eða kann einhver að taka þetta NATS úr sambandi ?
Fyrirfram takk fyrir hjálpina.
Kingops. Þetta vandamal er orðið það þreytandi að uppi eru pælingar um að losa okkur við bílinn…
05.02.2007 at 21:29 #578956Sælir. Mig langar að koma með smá innlegg í umræðuna um gjaldtöku, kostnað og vegalengdir.
Það sem liggur fyrir í málinu, (eftir því sem maður heyrir) er að þetta eigi að stytta vegalengina milli höfuðborga sunnan og norðan heiða um ca. 50Km og gjaldið eigi að vera Kr.2.000.- (sem ég vænti að sé lámarksgjald).Miðað við eldsneytisverð í dag (gefum okkur ca. Kr.110.- sem gera rúmlega 18lítra fyrir Kr.2.000.-) kæmist ég u.þ.b. 100 Km á mínum ameríska station bíl (innanbæjar) fyrir veggjaldið, að ég tali nú ekki um langkeyrslu… þá kemst ég tvöfalt lengra fyrir sama pening !
Ég segi NEI TAKK við þessu BULLI og keyri þá frekar hálftíma lengur fyrir helming af kostnaði veggjalds !
Annað, vilji menn sjá styttinguna milli Selfoss og Akureyrar, spyr ég nú bara: Hvað er eiginlega svona mikið verið að flytja á milli þeirra tveggja staða sem ætti að réttlæta þetta bull ?
Reynum frekar að tryggja og betrumbæta núverandi hringveg/vegi, útrýma einbreiðum brúm, tvöfalda vegi og setja peninginn frekar í umferðaröryggi !
Kær baráttu kveðja,
Kingo.
-
AuthorReplies