Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.02.2007 at 00:51 #581166
Ég dett annað slagið inn á þessa síðu og í framhaldi af umræðu um dóna sem lækka ekki ljósin á þjóðveginum þá datt mér í hug að skella inn þessum link.
Þarna er verið að benda á optískan mun á glóþræði og plasmaljósi (xenon).http://www.danielsternlighting.com/tech … d/HID.html
Samkvæmt þessu er ekki verið að bjóða upp á ódýra eða ókeypis máltíð.
Möo -Meira ljós en á vitlausum stöðum.Gamaldags húsráð til að bæta lýsingu:
http://www.danielsternlighting.com/tech … elays.html
05.02.2007 at 19:12 #579200Er þetta ekki bara Chrysler kópía af 1933 árgerð af G Bens?
http://mercedesgwagen.galeon.com/vacaciones751461.html [url=http://http://mercedesgwagen.galeon.com/vacaciones751461.html:1pejc1wn][b:1pejc1wn]G Bens árgerð 1933 – 1939[/b:1pejc1wn][/url:1pejc1wn]
04.02.2007 at 23:06 #578888Þetta eru í grunninn 2 ólíkir bílar með nær sama útliti.
W460 frá ’79-90 og W463 frá ’90. Að auki er til W461(2) sem er hrá herútgáfa sem líkist 463 eftir því sem þeir yngjast. Bílarnir verða í framleiðslu í nokkur ár í viðbót enda eru þeir mikið framleiddir fyrir heri og Rússneska mafíósa í misjafnlega skotheldum útgáfum og vigta þá gjarnan á fimmta tonn.
Allir millikassar eru syncroniseraðir og skipta má H-L á hvaða hraða sem er. Lágadrifið er hátt (2,05.)
Afturhjólin eru mjög aftarlega, hjólskálar stórar og koma má 38" dekkum undir þá án hækkunar með góðri brettasnyrtingu.
Lítið framboð er á eftirframleiðslu á borð við felgur oþh. Varahlutir eru auðfengnir og líklega ódýrari en Nissan.Bílarnir eru léttari en Patrol ´89-´96.
Felgur eru með gatamáli 5/130 sem þekkist aðeins á Porche, Benz og VW sendiferðabílum. Miðjugat felgu gengur upp á brún á nafi, líkt og á flestum fólksbílum og er það til miðjustillingar og til að taka álag af felguboltum. (þetta er sama brjóstið og menn láta umvörpum renna af Patrolnöfum og skilja síðan ekkert í því af hverju 14+" felgurnar brjóta felguboltana…..
Bílarnir eru framleiddir í samvinnu MB og Steyer í Austurríki sem einnig framleiddu Pinzgauer og komu að mörgu evrópskum aldrifsbílum.
Eini straumlínulagaði flötur bílanna er neðri brúnin á grindinni en sagt er að efri hlutinn hafi sama vindstuðul og keisarahöllin í Vín….W460 er hrár, dísilvélar voru án turbo og stærsta bensínvélin var 2.8L 150hö. (minnsta dísilvélin 72hö)
Þeir bílar eru með sjálfstæðum part-tíme millikassa og snýst framskaftið á móti afturskaftinu. Þetta er gömul aðferð sem notuð er í stærri trukkum og þannig er hefðbundið aftturdrif "á réttu róli" í framhásingunni.
Rétt sem fram hefur komið að framnöf eru full stutt og innri legan lítil.(nafið snýr "öfugt" og herðist á öxulinn)
Algeng drif eru 1/4,88 en Bens framleiðir drif allt frá ca 1/3 til 1/6,17. (eru dýr)
Það smellpassar að setja í þessa bíla gírkassa úr MB sendiferðabílum með fyrsta gír 1/6,17 og fimmta gír beint í gegn og þarf þá ekki að lækka drif v/38
Drif eru sterk.W463 er með sídrifi, framskaft snýst á hefðbundinn hátt. Framnöf og fram hásing er mun sverara en 460. Með 6cyl vélum eru þeir aðeins léttari en hefðb Patrol.
Vélar hafa verið 4 – 12 cyl, 128 – 600 Hö.
(Sérpanta þarf vélar yfir 475Hö.!)
Algengar eru 5L 300hö V8.
Dísilvélar eru I6 3L, V6 3.2L og V8 4L
Kosta amk 2X meira en LC100
Þar kemur skýringin á takmörkuðum vinsældum…
08.03.2006 at 18:27 #545914Það er ljómandi skemmtilegt að lesa þessa umræðu.
Annarsvegar eru þeir sem telja að ég hafi hitt naglann á höfuðið og svo eru hinir sem finnst mest til koma "hrokinn" í skrifunum. Gott ef það er ekki eitthvað til í hvoru tveggja og það seinna til þess fallið að vekja athygli á því fyrra, -minni þó á að hér eru það skilaboðin en ekki sendiboðinn sem skipta máli.
Jökulsprungur eru jafn sjálfsagt fyrirbæri og annað á jöklum. Og það að falla í jökulsprungu er ekkert tiltökumál ef rétt er að verki staðið þe menn bundnir á réttan hátt og þekki til hífinga og trygginga í snjó.
Þesi grundvallarþekking sem ég er að vitna til er ekki síður til þess að koma í veg fyrir slys með því að geta kannað leiðir yfir staðbundin sprungusvæði með öruggum hætti.
Ég minntist aldrei á stórkostlegar björgunaraðgerðir. Sá búnaður og verklag sem ég er að vitna til er einnig kjörinn til að tryggja öryggi þeirra sem vinna við að losa bíl sem er fastur í sprungu án þess þó að hafa fallið niður.
Greinin fjallar eingöngu um það sem meðal fjallamanna þykir sjálfsagt á ferðum um jökla; -að menn geti borið sig örugglega um sprungur og sprungusvæði.Hann var helvíti góður þessi sem minntist á Iridium símann: -Nú er bara að finna út hvort hann virkar í sprungum og sé með MOB takka!
góða ferð
Karl Ingólfsson
25.10.2005 at 22:43 #527676Hver er uppgefinn hámarkshraði (speed rating) fyrir þessi dekk?
02.12.2003 at 22:32 #478692Umfjöllun um sjálfstæða fjöðrun minnti mig á græju sem ég hafði lesið umm í Polar record fyrir margt löngu og að sjálfsögðu er þetta nú komið á netið….
Fyrir margt löngu, -áður en fyrsti Willysinn var smíðaður voru menn "vestur í hreppum" búnir að smíða bíl til jöklaferða og var meiningin að burra honum þvers og kruss um Suðurskautslandið 1939 -1940.
Þessi græja átti að hafa 8000 Km drægni, geta borið menn og vistir í ár, vaða yfir 4,5 m breiðar sprungur og að auki verið með netta flugvél á toppgrindinni!
Þessi græja var ekki einungis með sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli heldur var hægt að stýra hverju hjóli fyrir sig og sér mótor var fyrir hvert hjól!
Þetta var hannað og smíðað af besta fánlega mannskap þess tíma en það er samt helvíti hart að kallarnir sem voru í næstu skemmu að grodda saman fyrsta wilmundinum á afdönkuðum hásingum, voru í raun að setja saman e-h sem hentaði mun betur til snjóaksturs… -þó það kæmi ekki í ljós fyrr en 40 árum seinna og mun norðar á jarðkúlunni…..Trukkasmiðirnir gerðu að mig minnir ráð fyrir því að snjórinn hefði 30 PSI burðargetu og krúsa mætti hvert sem er á 15 PSI.
http://www.joeld.net/snowcruiser/snowcruiser.html
http://www.google.com/search?hl=is&ie=U … e+Leit&lr=
29.04.2003 at 14:20 #192544Til umhugsunar…
Fékk þessar ágætu Rússnesku síðu í hendurnar hvar Rússarnir smíðuðu sér ofurlétta bíla sem burruðu um á nk slöngum í stað dekkja, -ókuá þessu á Suðurpólin til að trússa þangað loftbelgjum og svo til baka.
-Minnir á hugmynd sem lá í loftinu fyri nokkrum árum, sett fram af Stjána Meik.
Gott að vita að e-h hugsi enn um léttleikann.Sýnist að tilhneygingin í Ísl. jeppajuðinu sé að byggja sífellt þyngri og „meiri“ bíla til að burra á snjónum. liggur við að það sé tilhneyging til nk „Snow Limmo“.
Þungir bílar á 44″ minnir á olíumaurana sem voru í snjóakstri fyrir 20 árum síðan!Hefur engum dottið í hug að skrúfa 38″ undir Willysjeppa, hækka ekki neitt nema frambrettin og klippa það sem uppá vantar?
http://www.chesco.com/~forum/SouthPole/sb_comp.html
http://www.chesco.com/~forum/SouthPole/snowbug1.html
http://www.newzeal.com/theme/antarctic/mil2000.htmLíklgt að nota verði sprey skíðaklístur á slöngurnar til að fá grip!
06.02.2003 at 22:20 #467630Félagi minn á að ég held kúpplingshús til að brúa á milli 350 chevy og original Toyota gírkassa. Ef hann finnur þetta í skúrnum geri ég ráð fyrir að það sé falt fyrir lítið fé.
kv,
Karl
01.04.2002 at 22:31 #460074Hafið þið spurt borgarstjórnarframbjóðendur um það hagsmunamál Reykvíkinga að Orkuveitan fái að notast eingöngu við eigin rafmagn í stað þess að vera skikkuð til að kaupa sambærilegt forgangsrafmagn af Landsvirkjun á 2-3 földu Nesjavallaverði
Þessi þversögn er sérstaklega áhugaverð vegna 45% eignaraðildar Rvk. á LV.Karl
-
AuthorReplies