Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.10.2003 at 22:11 #479396
Getið þið sagt mér hver er með umboð fyrir Websto . Eru til margar týpur af henni( stærðir). Er með Patrol sem mig langar til að setja olíumiðstöð í.
Kv. Júnni R 268
23.08.2003 at 22:26 #475778Ég myndi kynna mér Polyhúðun ,kostar ca 4000 á felguna og verður hún með fallega font metal áferð. Þú þarft að koma með felgurnar sandblásnar. Hef ekki reynslu af þessu , en mér er sagt að þetta sé níð sterkt. Þeir eru staðsettir efst á Smiðjuveginnum Grá gata , fyrir innan Íslandsbanka.
Kv. Júnni R-268
09.08.2003 at 10:30 #192780Mig langar til að fovitnast um hvort einhver hafi reynslu af Hiclone stálhólkinum sem breytir línulegu loftflæði í hvirla. Í auglýsingum lofa þeir minni mengun , minni eyðslu og meira afli. Gæti þetta verið góður kostur í diesel turbo jeppa af latari gerðinni.
Kv. Júnni R- 268
16.07.2003 at 03:58 #474880Fyrigefðu ofsi minn, ég gleymdi einnig að minnast á að ef Óbyggðabókin myndi detta inn hjá mér ásamt gíróseðli eða einhverju greiðsluformi , þá er viss um að ég borgi það einnig með glöðu.
Kv. Júnni R-268
16.07.2003 at 02:42 #474878Svona er maður nú trúr félaginu ofsi minn. Þú fattar þetta kannski ekki , en ég fatta ekki hvernig þér datt í hug að kaupa af mér Toyotuna í vetur án þess að fá með henni neina lykla.
Kv. Júnni R -268
15.07.2003 at 19:48 #192724Getur einhver sagt mér hvar maður getur nálgast hana , er löngu búinn að borga.
Kv. Júnni
21.05.2003 at 04:54 #192599Þannig er mál með vexti að ég er að taka í gegn 99′ árg. af Patrol og hefur mér vantað ýmislegt smálegt í hann. Ef ég því þurft að kom stundum við í Ingvari Helgasyni. Þaðan hef ég hins vegar alltaf komið út frekar dapur og miklu fátækari. Sem dæmi vantaði mig hægra aftur hornið á hann í febrúar, það átti að kosta 22.000 og fannst mér það annskoti dýrt. Ákvað ég því að fara á stúfana hérlendis ef vera skildi að einhver ætti notað. Sú leit bar engan árángur. Ætlaði ég því heldur dapur að panta nýtt horn hjá IH nú í maí. En viti menn nú var hornið komið upp í 32.000 hækkað um 10.000 á þrem mánuðum á meðan krónan gerði ekkert annað en styrkjast.Litli plast ramminn utan um ljósið átti síðan að kosta 5000 síðan á eftir að sprauta draslið,verður þetta sennilega komið í 50.000 komið á bílinn. Hvað finnst mönnum um þetta ? Hafa fleiri einhverjar reynslusögur af verðlagningu hjá IH.
24.04.2003 at 01:02 #472770Þú einfaldlega hættir að borga myndi ég halda.
09.04.2003 at 11:49 #472136Þó svo nýji vegurinn komi til með að liggja þó nokkuð sunnar en gamli vegurinn, þá verður alltaf hægt að nota veginn sem liggur niður Kringlumýri (gangnamannaskálinn) sem er nokkrum km sunnar og aðeins austar en afleggjarinn upp að Bragabót ,sem tengingu.
KV. Júnni R 268
26.02.2003 at 00:12 #469426Í gamla daga var alltaf talað um að taka þátt í Bláskógarskokkinu, en það var skokk sem haldið var á hverju sumri og byrjaði við bæinn Gjábakka yfir " Lyngdalsheiði" niður að Laugarvatni.Þannig að kannski heitir þetta bara "Bláskógarvegur".Enda var það þarna við vegamótin inn á heiði við Gjábakka sem sveitarfélagið Bláskógarbyggð var stofnað ekki alls fyrir löngu. Ég sjálfur er búinn að ferðast þarna um hundruð skipta bæði akandi og ríðandi og ég mun alltaf kalla þetta Lyngdalsheiði svo framalega sem ég haldi mig við veginn eins og Muffin benti réttilega á.
Kv. Júnni.
05.11.2002 at 10:37 #464006Þar komst þú með það Siggi F einföld og snjöll hugmynd.Hnappur sem flytur mann neðst á síðu.
04.11.2002 at 18:00 #191768Ágæti vefstjóri. Ég var að spá í hvort ekki mætti hafa þá sem svara síðast einhverjum þræði sem stofnað hefur verið til fremsta í spjallinu. Eins og þetta er nú dettur sá hinn sami alltaf neðst og getur maður þurft að skrolla langt niður til að lesa það sem hann skrifaði um.
PS. Þróunin á myndaalbúminu finnst mér alveg frábær,en ég myndi vilja sjá meira en útlit bíla og landslags. Hvernig væri að menn færu að opinbera hvað þeir eru að bauka inni í bílskúr.
-
AuthorReplies