Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.04.2005 at 10:47 #195804
Er einhvers staðar hægt að nálgast allan þann fróðleik um VHF kerfið sem var inni á gamla vefnum hér á þeim nýja.
Þar sem nú eru eingöngu félagsmenn sem geta skráð sig inn, er þá ekki kjörið að koma upp félagatali allra deilda inn á vefinn.
kv. Júnni
05.04.2005 at 16:47 #520246Hringdi í vegagerðina áðan og sögðust þeir vera í startholunum með að tína út bannsvæðinn um leið og veðri slotar.
05.04.2005 at 15:00 #520242Þeir hjá vegagerðinni hafa ekkert uppfært hjá sér lokanir á hálendisvegum, ætti ekki að vera komin sæmileg snjóalög aftur.
05.04.2005 at 13:34 #520446Ég er sammála Aganari. Ég sakna þess að sjá ekki notendanöfn í stafrófsröð í albúminu.Hefur oft hjálpað manni við að finna ákveðnar myndir.
20.01.2005 at 09:23 #195293Félagi minn er að fara að setja framdrif í 96′ Econoline og okkur er sagt að ekkert vit sé að nota eldri hásingu en 95′, er það rétt? Hvaða millikassa er best að nota? Hvaða hlutföll setja menn fyrir 38/44″? Veit einhver hvar er best að nálgast þessa hluti á vitrænu verði?Hver er munurinn á Dana 60 fyrir og eftir 95′?
25.07.2004 at 16:38 #194572Er einhver sem getur gefið mér upp heimasíður sem fjalla um þyngdir á ýmsum vélum , bæði USA og Japanskar.
Kv. Júnni R-268
23.07.2004 at 22:04 #505012Mér er sagt að 5.9 cummings vélin sé klettþung eins og gamla 7.3 í fordinum , er það rétt? Ef ekki þá hlítur hún að vera vænn kostur.
23.07.2004 at 15:57 #194564Jæja nú er hún farin blessuð vélin í Pattanum hjá mér og hef ég lítin áhuga að endurbyggja hana þar sem er með 44″ breyttan bíl. Nú vantar mig frjóar hugmyndir um hvers konar vél ég ætti að fá mér í bílinn.Draumurinn er 6.5 með 4L80 skiptingu. Þeir hjá IB á Selfossi treysta sér ekki lengur til þess þess að flytja þær inn sökum þess hvað þær eru orðnar gamlar á markaðnum .Eins hef ég skoðað það að endurbyggja 6.2 , en það er ekki mynni kostnaður með túrbínu og almenilegri skptingu. Einnig hefur mér dottið í hug 4.2 Landcruser vél en hún er aldeilis ekki gefins þó hún sé komin á þriðja hundrað þúsundið. Þá er það 4.2 Patrol vél sem mér líst einna best á vegna þess hvað hún sparar mikla vinnu við niðursetningu. En þær er aldeilis ekki auðvelt að komast yfir. Þá er það hreinlega gamla 4.0 L túrbínu vélin úr 60 Landcrusernum . Spurningin með þessar LC vélar hvort bílinn verði orðin of lágt drifaður þar sem ég er með 5.42 hlutföllin í Patrolnum.Er einnig með Ægirs skriðgír sem ég vill halda í.
Endilega komið með góðar hugmyndir og eins ef þið vitið um góða tengiliði til að útvega eitthvað af þessum hugmyndum . Einnig hægt að senda mail eða hringja.
PS. Hef engan áhuga á bensínvéla umræðu á þessum þræði.
KV. Júnni R-268 Sími 6969541
24.05.2004 at 15:18 #194392Er einhver með reynslu af Maxon VHF. Eru þær nokkuð verri en aðrar.
Kv. Júnni R- 268
16.03.2004 at 02:56 #491372Sæll Sveinn.
Getur þú gefið mér upp slóðina inn á þennan vef með útsöluvélunum.
Kv. Júnni R- 268
16.03.2004 at 02:56 #498133Sæll Sveinn.
Getur þú gefið mér upp slóðina inn á þennan vef með útsöluvélunum.
Kv. Júnni R- 268
24.02.2004 at 14:36 #489810Ég er með Patrol árg.’89 með ’99 boddý Setti hann á götuna í júní 2003. Hann verður að vera skráður ’89. En þar sem þeir fundu ekki með góðu móti # á grindinni , þá var mér gert að taka # spjaldið úr hvalbaknum af gamla bílnum og setja yfir í nýja boddýið. Sem sagt það þarf að vera til staðar eitthvað orginal # sem tengir skráningarnúmerið.
KV.Júnni R-268
24.02.2004 at 14:36 #496392Ég er með Patrol árg.’89 með ’99 boddý Setti hann á götuna í júní 2003. Hann verður að vera skráður ’89. En þar sem þeir fundu ekki með góðu móti # á grindinni , þá var mér gert að taka # spjaldið úr hvalbaknum af gamla bílnum og setja yfir í nýja boddýið. Sem sagt það þarf að vera til staðar eitthvað orginal # sem tengir skráningarnúmerið.
KV.Júnni R-268
04.02.2004 at 17:26 #487160Fór í fyrra vetur með afturkökkul úr Patrol og bað þá að stilla inn drifið.(Var sjálfur búinn að koma fyrir kamb og pinjon),22Þú kall takk fyrir. Fór síðan með framkökkulinn til Bigga og Ómars í Breyti ,10 þús kall og gengu meira að segja frá loftlögninni frá læsingunni út úr drifhús.Eftir það ákvað ég að láta Fjallasport alveg vera.
30.12.2003 at 21:21 #482942Hvað segja menn um að nota kósa í lykkjurnar þar sem maður splæsir, nær maður ekki þá til baka styrkinum sem tapast við splæsið?
Kv. Júnni R-268
11.12.2003 at 11:07 #482540Sæll Palli.
Ég borgaði bókina í sumar, þarf ég að grafa upp kvittunina eða er þetta skráð hjá þeim sem afhenda.
Kv. Júnni R-268
05.12.2003 at 22:52 #193284Sælir félagar.
Hefur einhver hugmynd um hvar sé hægt að nálgast knastás og undirlyftur í Nissan Patrol 2,8 á morgunn Laugardag er í vandræðum.
Kv. Júnni R-268
25.11.2003 at 01:50 #462644Sæll Kristján.
Mér leikur forvitni á að vita hvernig hitavandamálið endaði hjá þér? Ég á við sama vandamál að stríða og er í raun búinn að skoða allt. Nýr þriggja laga vatnskassi, ný vatnsdæla ,nýr vatnslás , nýr skynjari fyrir hitamælir , viftukúpling hefur verið prófuð í öðrum bíl og reyndist þar í lagi , nú síðast tók ég heddið af (er reyndar bara búinn að keyra 40.000 á þessu heddi )og er það nú í testi hjá Kistufelli , en reyndar sást hvergi að það hafi blásið með.
Bíllinn er ’89 mótel með 2,8 . Reyndar stóð hann hjá mér inni í skúr í rúm tvö ár meðan á breytingum stóð og man ég ekki eftir þessu vandamáli áður.
11.11.2003 at 18:07 #480112Eftir því sem Felgu Maggi tjáði mér þá eru tveir þættir sem skipta sköpum með Patrol felgurnar. Fyrst er að nefna styrkinn í miðjunni og síðan að þær eru einstaklega réttar og þar af leiðandi góðar til að breyta. Þetta á nú víst lika við um gömlu Land Cruser felgurnar.
Einu sinni tók ég nýja American raising felgu 12" breiða og setti í rennibekk og viti menn , hún var eins og kengbogin reiðhjólagjörð ,þótt hún kæmi beint upp úr kassanum.Eftir þetta hef ég alltaf tekið Orginal (Patrol )felgur og látið breyta þeim af fagmönnum , og ekki hef ég verði svikin af vinnubrögðunum hjá Magga og Smára.
Kv. Júnni R-268
10.11.2003 at 16:59 #480102Sæll Snorri.
Ég flutti inn ’99 Patrol boddý fyrir þremur árum frá Hollandi , með í kaupunum átti að fylgja orginal Patrol felgur. Þegar boddýið kom heim kom í ljós að mér var sent venjulegar Spoke felgur.Sá sem sá um málin fyrir mig þarna úti beitti smá fortölum við partasalan úti og senti hann þá orginal felgurnar um hæl. Ef þú vilt einhverjar frekari uppl. geturðu hringt í mig í síma 6969541.
Kv. Júnni R-268
-
AuthorReplies