Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.12.2010 at 12:24 #712706
Ef hann er á gormum hringinn þá er það sama allavega upp í 2001(sennilega yngra líka en þekki það ekki). Þetta breytist á miðju ári ´89.
ATH þó kögglar eða læsingar gangi á milli nýja og gamla boddys (97 yfir í 98) þá eru öxlar og nöf annað þar sem hásingin í nýja boddyinu er breiðari
ásamt því að vera komin með ABS.
Kv. Júnni
11.10.2010 at 11:05 #705590Taktu afturskaftið undan og farðu prufutúr á framdrifinu. Ef þetta er í afturskaftinu þá ætti þetta hjóð að breytast eða hverfa.
Júnni
30.12.2009 at 14:36 #673502Allavega er gamla hásingin úr ´89 til ´97 ekki úr pottjárni og hef ég alloft soðið í þær með góðum árangri.
Kv. Júnni
29.12.2009 at 21:54 #673490Þett á allt að vera suðuhæft stál og því ekkert því til fyrirstöðu að nota "miggið".
Það er allavega mín reynsla af patrol hásingum.
Kv Júnni
10.10.2009 at 16:32 #659458Við sem vorum í 4 stigi Vélskóla Íslands 1983-1984 sem var síðasta ár bekkjakerfis skólans gáfum þessa bók út. Hugmyndin af þessari bók var komin frá einum nemanda skólans. Mér er það mynnistætt að allir voru sendir heim með eitthver verkefni í bókina eða safna auglýsingum í jólafríinu ’83 og síðan fór vinnsla við hana á fullt eftir áramót. Síðan var hún endurútgefin af 4 stigs nemum 1987. Það vill svo til að ég á báðar útgáfurnar og væri til í að láta seinni útgáfuna. Hringdu ef ef þú hefur áhuga.
Ef ég man rétt þá var það véladagbók sem Guðmundur á ísafirði samdi hér um árið.
Kv.Júníus S. 6969541
09.10.2009 at 21:43 #660396Þarf að skera hressilega hjá mér 46" MTdekkin. Veit einhver hvort hægt sé að leiga hnífa til verksins? Það kostar orðið allan handlegginn að gera þetta á dekkjaverkstæði.
Kv. Júnni
30.07.2009 at 13:56 #652730Ég hafði samband við Landvörð í Nýjadal í fyrradag vegna þess að ég hef hug á að fara Vonarskarðið norður í næstu viku. Sagði hann að Björgunnarsveitir á vegum Landsbjargar hafi farið þessa leið einu sinni í viku í sumar síðan fjallvegir opnuðust. Hann tók fram að í þessari viku væri frekar blautt frá Svarthöfða að Valafelli og ef mér væri annt um slóðann þá skyldi ég ekki fara fyrr en þornaði eitthvað á slóðanum. Hann gaf á engan hátt til kynna að þetta væri slóði sem ekki væri ætlast til að aka á. Enda á ég ekki von á Björgunnarsveitir tækju þátt í slíku.
Þar sem ég hef ekki ekið þess leið áður væri gaman ef einhver kunnugur kæmi með comment um þessa leið. Meiningin er að fara Norður með Hágöngulóni að Svarthöfða síðan auðvitað yfir skarðið. Erum á 33" til 44" jeppum allir vanir.
Kv. Júníus.
25.07.2009 at 13:33 #652326Erum nokkrir að spá í að fara Vonarskarð í byrjun ágúst. Er fært að fara norður með Hágöngulóni í Vonarskarðið.
Heitir held ég "Svarthöfði" sú leið. Erum á 33" til 44" bílum. Eru einhverjar ár sem eru varasamar á þessari leið?Okkur langar einnig að halda áfram Gæsavötn og fara Flæðurnar. Er með track yfir flæðurnar. Á einhver gott track yfir Vonarskarð þ.e fyrrgreinda leið.
Kv Júnni.
22.07.2009 at 23:04 #649272Hjálp!
Ég er einn af þeim sem glataði lykilorðinu með nýja vefnum. Lét senda nýtt en get ekki með nokkru móti séð hvernig ég get breytt því aftur í gamla lykilorðið.
19.04.2009 at 10:34 #645964Guttunum í Mos. Síminn hjá Kjartani er 8935730
Kv Júnni
10.04.2009 at 15:29 #204218Sælir
Ég á Garmin 525S og það var verið að setja nýja íslandskortið í hann hjá Garmin.
Virðist ekki vera hægt að velja kennileyti og route-a á það svo tækið velji fyrir þig leið eftir götunum.
Heldur vill það bara fara í beina línu.
Síðan þegar ég skoða þetta í Mapsource þá virðist ekki vera hægt að haka við „Include route calculation data“ líkt og í 3.5 útgáfunni þegar maður sendir kortið yfir í GPS.Hafa menn lent í einhverju svipuðu?
Kveðja Júnni
04.03.2009 at 19:32 #642478Takk fyrir þetta Lella var ekki búinn að sjá þetta.
Kv. Júnni
04.03.2009 at 19:29 #642474Ég er sammála því að þetta var rætt hér á vefnum fyrir talsvert löngu síðan. Spurning hvort ekki hefði átt að henda út miðum þar sem nýtt skírteini hefur tafist sem raun ber vitni. Það er dálítið pínlegt að standa í verslun og samfæra yfir borðið að ég sé búinn að borga mín gjöld og eigi því rétt á afslátt þrátt fyrir 08 á skírteininu.. En vonandi að úr rætist sem fyrst.
Kv. Júnni
04.03.2009 at 19:08 #642468Það er innan mánuður síðan ég borgaði félagsgjaldið mitt hjá Útivist og kom miðinn í pósti í gær. Hins vegar er u.þ.b þrír mánuðir síðan ég borgaði 4×4 árgjaldið og ekkert bólar á þeim miða. Sama ruglið og í fyrra, þá liðu tæpir fjórir mán. áður en ég fékk miðann.
Kv. Júnni
27.02.2009 at 23:30 #642090Veit svo sem ekki hvað hefur bætt í nú í vikunni. Var þarna um síðustu helgi og var ekki farandi út úr bíl fyrir drullu.
Kv. Júnni
27.02.2009 at 23:27 #642074Takk fyrir þetta Kristinn, þetta er greinin sem ég var að leita af.
Agnar, það stendur einnig skýrt í reglugerð að þú átt að koma í skoðun á stærstu dekkjum sem þú notar. Hitt væri auðvitað ódýr lausn. Eins væri hægt að lækka hann á gormum og hleypa aðeins úr. En þetta eru ekki lausnir í mínum huga ef maður vill hafa hlutina eftir reglunum.
Kv. Júnni
27.02.2009 at 21:53 #642066a. Háljós: Ljósker mega ekki vera nær ystu brún ökutækis en ljósker fyrir lágljós. Þeim skal þannig fyrir komið að ekki sé hætta á að birta frá þeim eða speglun ljóss í baksýnisspegli og/eða af öðrum flötum ökutækis valdi ökumanni óþægindum.
b. Lágljós: Hæð ljóskera skal vera á milli 500 mm og 1200 mm og fjarlægð frá ystu brún má mest vera 400 mm. Bil milli tveggja ljóskera skal vera a.m.k. 600 mm en a.m.k. 400 mm ef breidd ökutækis er innan við 1,3 m.
Ég er einmitt marg búinn að lesa þessa grein. Þarna kemur ekkert fram hvað háu ljósin meiga vera hátt frá götu. Þess vegna gæti verið nóg að vera með lágu ljósin í öðru ljóskeri og neðar. Skoðunarmenn vitna alltaf í 135cm að efri brún og það gera breytingarverkstæðin einnig. Það stendur ekkert um það.
Gefa þeir sér að framljós séu mest 150mm há þar sem sagt er að að ljós eigi að vera milli 500 og 1200mm. Þar er ekki gefið upp hvort um sé að ræða efri eða neðri brún.
Þetta virðist vera hægt að túlka eins og stjórnarskránna!!!!! þ.e hver hefur sína túlkun.
Kv. Júnni
27.02.2009 at 20:31 #642062Vitið þið hver á þann gráa í Keflavík. Forvitnilegt að spjalla við hann um hvernig hann leysti þetta?
Kv. Júnni
27.02.2009 at 15:03 #642056Þeir settu ekki út á breyddina þ.e að stöðuljós eru nógu utarlega. Hins vegar eru framljósin of hátt frá jörðu.
Kv. Júnni
27.02.2009 at 12:44 #203922Jæja nú fór ég með Patrolinn í fyrstu skoðun eftir breytingu úr 44″ í 46″ og kom bara þokkalega út.
Hins vegar settu þeir réttilega út á að framljós væru of há 145 cm upp í efri brún. Ég stóð alltaf í þeirri meiningu að það væri í 135cm í neðri brún (126cm hjá mér) og var því poll rólegur fyrir skoðunn. Einnig þurfa ljósin að koma utar á bílinn eða ekki innar en 40 cm frá ysta brún dekkja. Þarna hjélt ég að kanturinn væri nóg. Hjá mér er ca 36cm úr í kant en 42 út fyrir bana.
Spurningin er:
Hvaða tegund af ljósum hafa menn verið að setja hjá sér framan á bílinn sem aðalljós. Verða þau ljós að fara inn á aðaljósarofann í stýrinu eða má koma fyrir öðrum rofa fyrir nýju ljósin og halda stöðuljósum í þeim gamla?
Kv. Júnni
-
AuthorReplies