Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.11.2012 at 18:33 #760441
Hún var ekki með lás.
Kv. Júnni
10.11.2012 at 15:58 #224853Sælir félagar.
Var staddur á Laugarvatni og datt í hug að skella mér upp Miðdalsfjall inn að Hlöðufelli. Þegar ég var að koma inn á slóðann við Miðdal mætti mé skilti með öllum akstri bönnuðum og í þokkabót rammgirt með keðju. Ég vildi hvorki fjarlæga keðjuna né keyra út fyrir til að komast leiðar minnar. Keyrði því austur í Haukadal og ætlaði upp á línuveg upp úr Haukadalskógi. Viti menn, mæti mér samskonar hlið þarna einnig.
Þegar ég fer inn á heimasíðuna hjá Vegagerðinni, þá er þetta bara skilgreint sem ófært en ekki aksturbann. Vita menn nokkuð hvað er í gangi þarna.
Kv. Júnni R-268
05.11.2012 at 14:21 #760091Takk fyrir þessar upplýsingar Hjalti.
Ég er einn af þessum kjánum sem hef bundið mig við Íslandskortið frá Garmin (Hugvit). Gott að vita að það sé að koma full útgáfa af Windows 8 í spjaldtölvurnar á næstu mánuðum.
Kv. Júníus
31.10.2012 at 18:28 #760035Kæmi manni ekki á óvart ef þetta væru sömu aðilar og eru að leggja ólöglegan rafstreng í Húsadal (að sögn RARIK).
Þeit búa kannski við einhver önnur lög en við hin.
Kv. Júnni
31.10.2012 at 15:15 #224791Sælir félagar
Nú er Windows 8 loksins komið út og fáanlegt í spjaldtölvum.
Er einhver farin að prófa að keyra inn Íslandskortið frá Garmin í spjaltölvu með Windows 8?
Ætti það ekki að ganga upp? Myndi einfalda mikið hjá manni fartölvubröltið í mælaborðinu.
Kv. Júnni R-268
27.07.2012 at 12:20 #756165Ég bara skil ekki hvað er vandamálið. Stefán er marg búinn að pósta að menn geti hringt í hann og hann kemur um hæl og opnar ef menn vilja hittast. Mér finnst það bar flott þjónusta við félagsmenn svona um miðsumarið.
Kv. Júnni R-268
27.07.2012 at 09:02 #756123Þetta er einmitt málið Óli. 6.4 bíllinn er að öllu leiti skemmtilegri í akstri og að sama skapi talsvert meiri fjárfesting. Ég er hræddur um að ef ég fer í þann pakka þá verði ég tregari að breyta honum alla leið (46"+). 2005/2006 bílinn er hins vegar hægt að fá á mjög góðu verði óbreyttann. Hins vegar finnst mér verðið á breyttum 2005 bíl vera það mikið að það borgi sig að breyta sjálfur ( þetta er jú víst einnig hoppy).
Nú er bara að huga að því með haustinu að koma þeim gamla (46" Patrol) í verð taka í framhaldi ákvörðun hvaða leið skuli valin.
Kv. Júnni R-268
25.07.2012 at 13:20 #756103Þið eruð klárlega farnir að kveikja í mér með 2008 bílinn. Miðað við þínar eyðslutölur Snorri þá er hann að fara með síst meira en eldri bílinn. En eins og Ívar segir þá er svolítið stökk verðlega frá 2006/2007 yfir í 2008 bílinn.
Eitt sem veldur mér áhyggjum að nokkrir af þeim 2008 sem eru til sölu eru með uppteknar vélar. Hvað veldur?
Kv. Júnni
24.07.2012 at 13:49 #756091Takk fyrir þetta Ívar.
Er reyndar sjálfur með 46" breyttan Patrol með öllum þeim búnaði hugsast getur. Hann er með 4.2L Patrol vél sem ég er þokkalega sáttur við. Hins vega er hann ekkert að eyða mikið minna en F350 þegar hann þarf að taka á eða keyra á móti vindi. Ég hef við bestu aðstæður komið honum niður í 14-15 lítar en um leið og hann fær mótvind eða brekku er hann kominn í 20+(jafnvel 25+ með hjólhýsið). Var að hugsa hvort ekki væri skemmtilegra að eyða þessum lítrum með 330Hö í húddinu.
Kv. Júnni
24.07.2012 at 11:56 #223946Jæja Ford snillingar, nú er maður farinn að spá í stóru deildina. Maður fær mjög svo misjafnar sögur hvaða árgerðir væru heppilegastar í breytingar (enda sennilega í 46″). 6L vélin kemur fyrst 2003 og 6.4L 2008.
Það er sára lítið til af yngra en 2008 á markaðnum og því aðeins þessi eina árgerð í 6.4L. Sumir segja að ekki eigi að kaupa eldra en 2006 í 6L bílnum þar sem meiri líkur eru á að hún sé laus við bernskubrek. Má þá ekki segja það sama um 6.4L 2008 bílinn? Hef keyrt bíla með báðum vélartýpunum og má segja að hún sé talsvert skemmtilegri 6.4L vélin. Nú veit ég ekki hvað var búið að eiga við þessar vélar og því kannski ekki réttlátt að bera þær saman. Nú er maður einnig að hugsa um rekstrarþáttinn á þessum árgerðum. Hins vegar er hægt að fá 2005 bíla á ágætu verði. Ætti ég þá að hafa áhyggjur af vélinni í þeirri árg?
Endilega ausið úr viskubrunninnum.
Kv. Júnni R-268
25.05.2012 at 15:55 #754337Við eru duglegir að láta hanna fyrir okkur alls kyns logo þegar við erum að fara í stórferðir og límum þetta stoltir í hliðarrrúðurnar. Hvernig væri að hanna áróðurslogo gegn utanvega akstri sem við félagsmenn getum haft á bílum okkar í sumar.
Kv. Júnni
20.12.2011 at 17:33 #221731Sælir félagar
Er að berjast við afturlæsinguna hjá mér í Patrol. Það virðist vera fínt sog á hvorri lögn fyrir sig þegar maður tekur slöngurnar af segullokunum uppi í hvalbak og skiptir læsingu af eða á. Ekkert virðist leka á milli. Læsingin kemur samt ekki inn fyrr en ég tek slönguna af lokanum sem heldur læsingunni úti, þá dettur hún mjúklega inn. Allar lagnir eru nýar alla leið aftur. Mér finnst langsótt að þetta sé membran aftur á hásingu. Einhver spekingur með hugmynd um hvað gæti verið vandamálið?
Kv. Júnni R-268
30.11.2011 at 21:37 #742883Hvet menn sérstaklega til að lesa kafla 3.5 í heild. það er athyglisvert hvað höfundar hvítbókar hafa mikla óbeit á hagvexti.
Kv. Júnni R-268
29.11.2011 at 11:38 #742783Sælir
Fyrir framan kamarinn er snjódýptarstika með að mig minnir 30cm á milli punkta.
Kv. Júnni
29.11.2011 at 09:52 #221447Sælir félagar.
Væri mikið mál fyrir klúbbinn að koma upp vefmyndavél við Setrið sem væri hægt að skoða frá heimasíðunni? Eftir að við misstum myndarvélarnar á Hveravöllum þá veit maður lítið um snjóalög. Reyndar er ein vefmyndavél í veiðivötnum á helgi.dk sem gaman er að skoða en endurspeiglar lítið færðina á miðhálendinu.
Kv. Júnni R-268
29.08.2011 at 13:38 #735425Talaðu við Kjartan Gutta ó Mosó. Hann er snillingur í þessum bílum.
Símin hjá honum er 8935730
Kv.Júnni
27.04.2011 at 22:23 #729083Atli
Kíktu á myndaalbúmið mitt. Setti loftpúða undir mitt Cheyenne hús 2008 og hafa þeir reynst frábærlega.
Kv. Júníus
15.03.2011 at 09:45 #722932Sælir
Vill bara benda á að þeir hjá Radíóraf forrita allar rásir fyrir okkur að kostnaðarlausu ef um er að ræða stöðvar keyptar hjá þeim.
Júnni R-268
17.02.2011 at 11:55 #700614Sælir félagar.
Veit einhver hver staðan er á sprungukorta verkefninu? Er einhvers staðar hægt að nálgast þetta kort?
Kv. Júnni
R-268
22.12.2010 at 09:22 #714282Sælir
Ég er með stærri legur að framan og stúta sem Ægir smíðaði fyrir mig ásamt úrhleypingabúnaði. Það kom aldrei til greina hjá mér annað en halda Patrol hásingunum. Þetta hefur verið alveg til friðs hjá mér og legurnar hitna varla. Er á 46" og 17"breiðum bedlock felgum.
Kv. Júnni
-
AuthorReplies