Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.12.2007 at 12:13 #607592
Sæll
Ég er búinn að eiga 4 Patrola sem allir hafa gengið vel hjá mér. Núna er ég með 3.0 sjálfskiptan árg. 2000 og þar á undan var ég með 1998 2.8 beinskiptan. Báðir með "nýja boddýinu" og eins breyttir á 38" dekkjum, lækkuð hlutföll o.s.frv. Varðandi eyðslu þá er 3.0 sjálfskipti að eyða aðeins meira í innanbæjarsnatti, en minna í þjóðvegarakstri heldur en 2.8. Svipuð eyðsla á fjöllum. 3.0 lítra vélin er mun skemmtilegri og sjálfskiptingin er bara snilld á fjöllum, allavega gengur mér betur að drífa á bílnum sem ég er á núna heldur en þeim gamla.
P.s.Pattinn er reyndar til sölu, þarf að búa til pláss fyrir Nissan Titan.
jsk
06.09.2007 at 20:47 #596082Ég ætla að mæta, kem þó sennilega ekki fyrr en á laugardagsmorgun. Tek guttann með enda reikna ég með því að þetta verði barnvæn ferð.
jsk
09.06.2007 at 00:24 #592242Góðir vegir eru góðir, ég vil malbik á kjalveg strax. Hann er hundleiðinlegur eins og hann er í dag.
jsk
16.05.2007 at 08:37 #591184Ég mæti til að sjá hvort skemmtiferðanefndin getur gert eitthvað án mín. Svo verður gaman að sjá fyrstu opinberu myndinar frá laugardagskvöldinu á Grímsstöðum, en eins og þeir sem þar voru muna kannski þá var það gríðarlega öflugt kvöld.
kv. jsk
08.05.2007 at 13:01 #590612Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 50%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 6.25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 34%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%Gaman af þessu, veit nú ekki alveg hvort ég læt þetta stjórna atkvæðinu, en er allaveg ánægður með að VG fær bara 6.25%
jsk
08.05.2007 at 08:20 #590712Dagurinn tókst bara ágætlega og þeir sem tóku þátt skemmtu sér vel og ekki síst krakkarnir enda alltaf gaman í fjörunni. Mætingin hefði hinsvegar mátt vera betri en e.t.v. voru menn í losti útaf kuldanum eftir góðu dagana vikuna á undan. Veðrið var hinsvegar bara fínt, logn og 5 stiga hiti. Ég tók engar myndir.
kv. jsk
16.03.2007 at 14:48 #584694Ég held að það hafi enginn verið að reyna að afneita afkvæmi sínu. Í mínum augum er það höfundur skýrslunnar sem ber ábyrgð á henni og verður að svara fyrir hana. Það var hinsvegar mjög ómálefnaleg að draga Háskólann á Ak. eins og hann lagði sig í þá umræðu.
jsk
16.03.2007 at 09:32 #584662Mér finnst nú að þú ættir aðeins að huga að orðum þínum áður en þau gusast út með svona ofsa. Gagnrýni þín á skýrsluna missir nú alveg marks þegar þú beinir orðum þínum að heilli stofnun þar sem c.a. 1600 manns eru við nám og störf og kallar hana "lágkúruskólann á Akureyri". Þessi umræða er nú ekki á hærra plani hjá þér heldur en umræðan um björgunarsveitirnar eftir síðustu helgi.
Góða helgi,
jsk
12.03.2007 at 19:46 #583666Þetta var fínasta ferð hjá okkur um helgina, frábær hópur og bara gaman. Setti nokkrar myndir á myndasíðuna mína. http://www.pbase.com/skjoldur/20070310
09.03.2007 at 10:07 #583660Þá er þetta að bresta á. Endanlegur listi er svona:
1. Skjöldur og Haukur – Patrol
2. Eiður og Elmar – 4Runner
3. Ingvar og Raggi – Hilux
4. Eysteinn + 1 – Hilux
5. Halli Gulli + 1 – Tacoma
6. Baldur +1 – LC60
7. Kristinn +1 – Patrol
8. Björn + 1 – Econline
9. Elli Þorsteins og Grétar – Patrol
10. Þórður +1 – Cherokee
11. Pétur +2 – 4Runner
12. Landis + 1 – Hilux
13. Árni Hólm +1 – Ranger
14. Þórhallur +1 – LC 80Helmingur hópsins leggur af stað frá Leirunni kl. 15 og seinni hópurinn kl. 17. Ath. að búið er að flýta brottför seinni hóps frá því sem áður var fyrirhugað.
08.03.2007 at 21:31 #583658Vonandi eru allir að verða klárir í ferðina. Veðurspáin gæti auðvitað verið betri, en við ættum að geta fengið ágætis veður á laugardag. Allavega er ekki ástæði til annars en að láta reyna á þetta. Varðandi leiðarval í Snæfell annað kvöld þá er ekki fært uppúr Hrafnkelsdal samkvæmt nýjustu fréttum og því líklegast að við förum í gegnum Egilsstaði. Varðandi eldsneyti þá eru þetta c.a. 350 km á milli stöðva, þ.e. Egilsstaðir, Snæfell, Kverkfjöll, Mývatnssveit.
Þátttökulistinn er svona:
1. Skjöldur og Haukur – Patrol
2. Eiður +1 – 4Runner
3. Ingvar og Raggi – Hilux
4. Eysteinn + 1 – Hilux
5. Halli Gulli + 1 – Tacoma
6. Baldur +1 – LC60
7. Kristinn +1 – Patrol
8. Björn + 1 – Econline
9. Elli Þorsteins og Grétar – Patrol
10. Þórður +1 – Cherokee
11. Pétur +2 – 4Runner
12. Landis + 1 – Hilux
13. Árni Hólm +1 – RangerÉg geri ráð fyrir að leggja af stað kl. 15. Ef menn hafa einhverjar spurningar þá eru símarnir hjá mér þessir: gsm: 893-3616 og nmt: 855-2614
08.03.2007 at 14:16 #583654Þetta stefnir allt í hörku ferð. Þessir eru búnir að staðfesta þátttöku:
1. Skjöldur og Haukur – Patrol
2. Eiður +1 – 4Runner
3. Jóhann +1 – Trooper
4. Ingvar og Raggi – Hilux
5. Eysteinn + 1 – Hilux
6. Halli Gulli + 1 – Tacoma
7. Baldur +1 – LC60
8. Kristinn +1 – Patrol
9. Björn + 1 – Econline
10. Elli Þorsteins og Grétar – Patrol
11. Þórður +1 – Cherokee
12. Pétur +2 – 4Runner
13. Landis + 1 – Hilux
07.03.2007 at 22:27 #583642Búið að bætast aðeins við, muna svo að staðfesta með greiðslu.
1. Skjöldur – Patrol
2. Eiður – 4Runner
3. Jóhann – Trooper
4. Haukur – LC80
5. Ingvar – Hilux
6. Eysteinn – Hilux
7. Halli Gulli – Tacoma
8. Baldur – LC60
9. Tryggvi – LC60
10. Kristinn – Patrol
11. Björn – Econline
12. Bubbi – 4Runner
13. Elli Þorsteins og Grétar – Patrol
07.03.2007 at 20:56 #583640Ég vil minna þá á sem ætla í ferðina að staðfesta með því að borga þátttökugjaldið, kr. 4200 sem fyrst. Innifalið eru skálagjöld báðar næturnar og grillmáltíð á laugardagskvöldið. Síðasti frestur til að borga er kl. 16 á morgun, fimmtudag, því þá þarf að ganga frá matarpöntun. Hægt er að leggja inná reikning deildarinnar, 1145-26-44044, kt. 620796-2399. Gefið upp nafn og kennitölu sem skýringu á greiðslu. Hluti ferðanefndar ætlar að leggja af stað um kl. 15 á föstudaginn frá Leirunni. Seinni hópurinn leggur af stað kl. 19.
07.03.2007 at 11:51 #199865Eyjafjarðardeildin verður með ferð um helgina, 9. – 11. mars n.k. Ferðaskipulagið hefur tekið smá breytingum frá upphaflegu plani en nú er ráðgert að aka í Snæfellsskála á föstudagskvöldið og fara síðan á laugardag í Kverkfjöll og gista þar í Sigurðarskála. Nánari upplýsingar um skráningu og kostnað er að finna á heimasíðu Eyjafjarðardeildar.
Skráning í ferðina er svona:1. Skjöldur – Patrol
2. Eiður – 4Runner
3. Jóhann – Trooper
4. Haukur – LC80
5. Ingvar – Hilux
6. Eysteinn – Hilux
7. Halli Gulli – Tacoma
8. Baldur – LC60
9. Tryggvi – LC60
10. Kristinn – Patrol
11. Björn – Econline
12. Bubbi – 4RunnerFerða – og skemmtinefnd
08.02.2007 at 19:12 #576564Það fara flestir á föstudagskv. en einhverjir ætlar að koma á laugardag. Kl. 11 leggjum við af stað frá Sel Hóteli í bíltúr. Ég held að stefnan sé á Heilagsdal og svo eitthvað áfram eftir færð og veðri. Láttu endilega sjá þig.
kv. jsk
07.02.2007 at 17:11 #579024Haldið þið að það verði leyft að breyta jeppum í Framtíðarlandinu?, eða aka á snjó? Hvað verða margir jeppaslóðar í Framtíðarlandinu?
jsk
07.02.2007 at 14:41 #579018Af ýmsum ástæðum er ég mjög fylgjandi því að það verði gerður góður vegur yfir Kjöl. Þó stytting á milli Akureyrar og Reykjavíkur sé vissulega jákvæð, þá finnst mér hún kannski ekki vega þungt. Hinsvegar held ég að almennt betra aðgengi á milli norðurlands og suðurlands sé veruleg framför. Í uppsveitum suðurlands eru stærstu sumarhúsabyggðir okkar sem verður annsi mikið auðveldara að heimsækja fyrir Norðlendinga svo dæmi sé tekið. Einnig opnar þetta mikið fleiri möguleika fyrir innlenda og erlenda ferðamenn sem eru á þessum hefðbundnu sumarferðalögum, auðveldara að skipta á milli veðursvæða o.fl.
Hitt er svo annað mál hvort þessi framkvæmd sem er í umræðunni núna sé æskileg. Ég hefði nú frekar viljað að ríkið gerði bara þennan veg og notaði til þess þá fjármuni sem bíleigendur borga í skatta. En þegar engin teikn eru á lofti um að ríkið geri eitthvað þá gerast menn kannski óþolinmóðir og fara í einkaframkvæmdina.
jsk
29.01.2007 at 08:38 #576556Enn eru pláss á þorrablótið. Skráningu lýkur 31. jan.
1. Erlingur Harðar +1
2. Siddi rakari +1
3. Jói Hauks +1
4. Haukur Stef +1
5. Eiður Jónsson +1
6. Skjöldur +1
7. Björn Björnsson +1
8. Grétar Ingva +1
9. Eysteinn Pálmason +1
10. Elli Þorsteins +1
11. Jörundur +1
12. Sölvi +1
26.01.2007 at 09:10 #5765541. Erlingur Harðar +1
2. Siddi rakari +1
3. Jói Hauks +1
4. Haukur Stef +1
5. Eiður Jónsson +1
6. Skjöldur +1
7. Björn Björnsson +1
8. Grétar Ingva +1
9. Eysteinn Pálmason +1
10. Elli Þorsteins +1
11. Jörundur +1
-
AuthorReplies