FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón G. Guðmundsson

Jón G. Guðmundsson

Profile picture of Jón G. Guðmundsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 2
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 572 total)
← 1 … 6 7 8 … 29 →
  • Author
    Replies
  • 01.05.2015 at 10:03 #779589
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Ég dreif mig í að setja nýtt loftnet á jeppann enda var bara gamalt NMT net aftast á toppnum á honum.

    Keypti 1/4-bylgju loftnet og setti á sama fót og NMT netið var á. Svo mældi ég standbylgjuna til gamans.

    Byrjaði á að klippa aðeins of langt (50,5cm) og þá var standbylgjan 1,1 efst á amatörbandinu (146MHz) og frá 1,6 og upp i 2 á 4X4 rásunum.

    Klippti eins og mælt var með (49cm) og þá var standbylgjan 2,2 neðst á amatörbandinu, og 1,6 efst á því.

    Á 4X4 rásunum hreyfðist mælirinn varla, standbylgjan er s.s. 1 á almennu rásunum og 1,4 á efstu endurvarparásinni (58)

    Þetta þýðir að maður er að tapa eingöngu 2,7% af aflinu á rás 58 og mest 14% neðst á amatörbandinu. Einnig sést að það er mun auðveldara að aðlaga bílaloftnet heldur en handstöðvaloftnet.





    30.04.2015 at 14:14 #779403
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Nú er aldeilis búið að laga myndaalbúmin!
    Nú er maður farinn að geta flett almennilega, það var einhver tregða í því.

    Góðir hlutir gerast hægt…





    24.04.2015 at 15:40 #779214
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Elvar, þú rennir bara við niður í Síðumúla á mánudags- eða miðvikudagskvöld, ég verð örugglega þar að smíða eða þrífa.

    annars er síminn 894-7242





    23.04.2015 at 20:48 #779201
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Ég var með Nagoya eftirlíkingu, enda varla hægt að fá 4 stk. merkjavöru á 1600 kall.

    Svona til að sýna vel munin á takkastærðinni þá tók ég mynd af Baofeng og HX370e hlið við hlið.

    Viðhengi:
    1. DSC_2121a




    23.04.2015 at 17:50 #779187
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Jæja, þá er maður búinn að prófa töluvert.

    Loftnet af 8 rása Maxon handstöð (eins og þær elstu sem klúbburinn á)
    rás 55 standbylgja = 4
    rás 50 standbylgja = 2
    rás 58 standbylgja = 1.5

    Þetta loftnet er greinilega hannað fyrir hærri tíðni en mörg önnur og hentar vel fyrir 4X4 rásirnar.

    Síðan var fengin Vertex Standard HX370e eins og voru í hópkaupunum í fyrra.
    rás 55 standbylgja = 3
    rás 50 standbylgja = 4
    rás 58 standbylgja = 4.2

    Þessi tvö loftnet eru bæði með breiðara vinnusvið (hærra Q-gildi) heldur en upprunalega loftnetið á Baofeng stöðvunum og betri en Nagoya loftnet sem er búið að klippa til.

    Svo kemur enn flóknari súpa
    Ég fór að bera saman útgeislað afl á Baofeng og Vertex stöðinni.
    Ég notaði frekar frumstæða aðferð, keyrði upp GQRX-forritið í tölvunni sem er tengt við USB-SDR móttakara. Síðan las ég móttökustyrkinn á rófsjánni í GQRX-forritinu.
    Báðar stöðvarnar voru með -13dB á rás 45 sem er á 153.100 MHz (almenn rás og tíðnin almennt þekkt)

    Báðar „sulla aðeins í kringum sig“ í útsendingunni, en Baofeng er sýnu verri.

    Vertex var með -55dB á 152.700 (400KHz neðanvið)
    og -65 á 153.500 (400KHz ofanvið)

    Baofeng var með -60dB á 152.800 (300Khz neðanvið)
    og -65dB á 153.400 (300KHz ofanvið)
    líka -40dB á 152500 (600Khz neðanvið)
    og -65dB á 153.700 (600Khz neðanvið)

    Svo athugaði ég svokallaðar yfirsveiflur, en það er svolítið sem allir sveiflugjafar senda frá sér en eru síaðir frá í útganginum á talstöðvum. Þetta lýsir sér þannig að maður fær sveiflur á tvöfaldri tíðni, þrefaldri, fjórfaldri o.s.frv.
    Í þessu tilfelli athugaði ég 2x, 3x, og 4x á 306.200MHz, 459.300MHz, og 612.400MHz

    Vertex stöðin var með -26dB á 2x, -40 á 3x og mældist ekki á 4x
    Baofeng var með -24dB á 2x, -39dB á 3x og -46dB

    En svona til upplýsingar þá eru -26dB um 1/20 af -13dB
    og -40dB eru um 1/512 af -13dB
    (Leiðréttið mig endilega ef ég hef reiknað þetta vitlaust).

    En þessar athuganir hjá mér gefa nokkuð skýra mynd.
    Ódýrar VHF stöðvar henta örugglega illa fyrir 4X4 rásirnar, enda yfirleitt alltaf hannaðar fyrir amatörbandið. Einnig er síunin í þeim verri.
    Það þarf ekki nema reka sig í einn takka (eða ýta á vitlausan) og þá er maður farinn að senda út einhverja vitleysu á rangri tíðni.
    Upprunalega loftnetið er svo illa hannað fyrir 4X4 rásirnar að megnið af aflinu fer í að hita manni á höndunum.





    22.04.2015 at 08:48 #779170
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Ekkert mál að mæla fleiri loftnet, ég verð líklega niðri í Síðumúla á fimmtudag í að innrétta nýja húsnæðið, en get örugglega tekið pásu fyrir mælingar. Reyni að muna að hafa græjurnar úti í bíl.





    21.04.2015 at 08:14 #779162
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

     

     

    Mælirinn er eins og þessi nema hvað minn er með annað tíðnisvið, nær vel yfir VHF sviðið enda keyptur til þess.

    Annað varðandi handstöðvar, það var verið að ræða á fundinum í gærkvöld munin á VHF og UHF handstöðvum og hvernig VHF dugði ekki á milli bíla meðan litlar UHF stöðvar gera það.

    Skýringin liggur í því að bylgjulengdin á VHF er um 2 metrar og kemst ekki hindrunarlaust útu um bílrúðu sem er ca 50cm þar sem opið er minnst. UHF bylgjurnar eru styttri og komast greiðlega gegnum bílglugga og þá heyrist á milli. VHF þarf nefnilega helst að vera með loftnetið alveg uppi við gluggann eða þá með útiloftnet.





    20.04.2015 at 08:05 #779042
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Þetta eru blikkleiðarar og -stoðir og eru yfirleitt alltaf notuð þegar gifsveggir eru settir upp.

    Kostirnir eru m.a. lægra verð og léttara efni.





    19.04.2015 at 16:16 #779040
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Og að athuguðu máli;

    Þá er ástæða fyrir því að amatörstöðvar virka illa á okkar tíðnisviði með upprunalegum loftnetum. VHF-bandið hjá Amatörum er frá 144 til 146MHz eða eingöngu 2MHz „á breidd“

    4X4 rásirnar eru með senditíðni yfir rúmlega 11 MHz þannig að það er varla séns á að finna góð loftnet sem dekka það allt. En endurvarparásirnar skera sig svolítið úr með meira en 9MHz mun á sendi- og móttökutíðni.

    Getur einhver í fjarskiptanefndinni sagt mér af hverju þetta bil er svona fáránlega mikið? Svona þegar tekið er tillit til þess að aðrir endurvarpar eru bara með 0,6 MHz mun?





    19.04.2015 at 15:12 #779039
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Jæja, Nagoya loftnetin skiluðu sér, það er ekki amalegt að fá 4 loftnet fyrir 1600-kall

    Og svo var farið að mæla og klippa til.

    Maður náði standbylgjunni niður í 2.5 og 3.5 þar sem upprunalega loftnetið var í 4 og 4.5 , sem sagt, AÐEINS skárra. Endurvarparásirnar voru áfram í tómu rugli, og greinilegt að stöðin skrúfar niður í aflinu þegar hún fær svo stóran hluta af aflinu til baka. Það sýndi sig ef maður mældi aflið sem fór út og inn aftur. Það er þá alveg eins gott að skrúfa aflið niður í 1-watt, Bláfjallaendurvarpinn opnast jafn vel þannig úr eldhúsglugganum, annars er maður bara að ylja sér á höndunum með megninu af aflinu.

    Það er meira en að segja það að klippa þessi net, stöngin er gerð úr tveimur lögum af sex vírum sem eru snúnir í sitthvora áttina og kjarninn er svo 3 eða 4 vírar í viðbót. Svo er 3-pF þéttir við tenginguna og spóla hliðtengd við hann.





    13.04.2015 at 12:16 #778989
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    [quote=778985]Þetta er mjög áhugavert. Ég er með svipaða talstöð uv82 en á henni er annað loftnet. Ég keypti svo Nagoya na-701 loftnet útfrá ánægju manna á netinu en það virðist tjúnað inn á 144MHZ sömuleiðis (kvartbylgju). Það væri áhugavert að prófa fleiri loftnet og sjá hvað er að virka best með svona stöðvum því loftnetin skipta jú gríðarlegu máli. Er mjög flókið að mæla þetta? [/quote]

    Eins og ég mæli þetta er það ekki svo flókið. Ég tengi talstöðina við loftnetsmælinn (eins og sést á myndinni efst í þræðinum) og skrúfa svo loftnetið beint á mælinn með millistykki. Svo er bara að mæla á mismunandi tíðnum.





    12.04.2015 at 10:43 #778981
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Fyrir þá sem skilja ekki alveg latínuna hjá Samma;

    The Q of an antenna is a measure of the bandwidth of an antenna relative to the center frequency of the bandwidth.

    Q-gildi á loftneti er s.s. mælikvarði á hversu vítt svið það virkar vel á. Hátt Q = þröngt svið.

    Ég býst við að loftnetin á HX370 stöðvunum séu skömminni skárri en á Baofeng stöðinni minni af því að þær eru yfirleitt ætlaðar fyrir bátarásirnar (marine band), sem er reyndar inn á milli 4X4 rásanna.





    12.04.2015 at 10:24 #778980
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    12% sparnaður er minna en ég myndi leggja í. Aðal kosturinn við að versla hér á landi er að auðveldara er að skipta/skila ef eitthvað kemur upp á.





    11.04.2015 at 19:18 #778976
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Ég þyrfti að athuga það við tækifæri, ég held að ég eigi rétt millistykki fyrir Vertex loftnetin og get e.t.v. mælt það niðri í Síðumúla í næstu viku. Ég held að stöðvarnar sem klúbburinn á sé með nákvæmlega eins loftnetum.





    11.04.2015 at 16:17 #778973
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Datt í hug að setja hér inn niðurstöður úr mælingum sem ég var að gera.

    Ég keypti í bríaríi ódýra VHF amatörstöð (er að ná mér í réttindin) og ákvað að prófa að mæla standbylgjuna á loftnetinu.

    Niðurstöðurnar eru ansi sláandi.

    Á amatörbandinu (144-146 MHz) er loftnetið frábærlega stillt af, neðst er standbylgjan 1 en 1,4 efst sem gerir 2.7% tap.

    Á 4X4 rásunum eru niðurstöðurnar beinlínis hrikalegar.

    Neðst á tíðnisviðinu er standbylgjan 4 sem þýðir að maður er að tapa 38% af aflinu.

    Á miðju sviðinu er standbylgjan orðin 4,5 og tapið þar með 43%!

    Endurvarparás 58 er svo sér kafli fyrir sig, standbylgjan er 10 og tapið er 70% !

    Ég nota samskonar aðferðafræði og margir erlendir radíóamatörar þegar þeir mæla handstöðvaloftnet. Jafnvel þó ég hafi mælt þetta innanhúss þá á það ekki að hafa mikil áhrif á niðurstöðurnar, né heldur sú staðreynd að það er nokkur munur á umhverfi loftnetsins þegar það er skrúfað beint á stöðina eða aftan á mælinn með millistykki.

    Helsta niðurstaðan er sú að ef einhver ætlar að „spara“ með því að kaupa sér ódýra amatörstöð og nota á 4X4 rásunum, þá þarf allavega að kaupa sér annað loftnet með sem passar fyrir rásirnar.

    Meira síðar, ég ætla mér að prófa fleiri loftnet (eru á leiðinni frá Kína) og jafnvel klippa einhver þeirra til.

    Viðhengi:
    1. DSC_2117a




    11.04.2015 at 09:45 #778965
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Klúbburinn getur aldrei verið ábyrgur, en ég vona að vefstjórarnir geldi þennan notanda sem fyrst.





    09.04.2015 at 17:23 #778951
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Það voru um 10 manns að vinna í gærkvöld, og það er búið að klæða veggina niðri í geymsluhluta kjallarans.

    búið að klæða og byrjað að sparsla

    Og svo var borað fyrir neysluvatnslögnum,

    borað með látum...

    Fatahengið að taka á sig mynd…

    fatahengið...

     





    26.03.2015 at 17:00 #778417
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Það tosast áfram í Síðumúlanum, Klósettin að verða dritfær og svo var undirbúið fyrir múrverk.

    Svo var vöffluveisla líka.

    Viðhengi:
    1. DSC_0013
    2. DSC_0015
    3. DSC_0012
    4. DSC_0016




    21.03.2015 at 16:56 #778024
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Hér koma myndir eftir heilmikla ÓÞARFA handavinnu.

     

    Viðhengi:
    1. DSC_2107
    2. DSC_2108
    3. DSC_2109
    4. DSC_2110
    5. DSC_2111a
    6. DSC_2113
    7. DSC_21141
    8. DSC_2116a




    19.03.2015 at 16:36 #777657
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    skrapp niður í hús í gærkvöld og tók myndir, en…

    NEI NÚ ER NÓG KOMIÐ!

    Þessi nýji síðuræfill tekur ekki inn myndir sem eru teknar á SEX ÁRA GAMLA VÉL!

    Þessi stærðarmörk eru hreint út sagt fáránleg!

    Og ef það þurfa að vera stærðarmörk þá er lágmark að síðukvikindið geti minnkað myndir sjálfkrafa.

    Viðhengi:
    1. DSC_2114




  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 572 total)
← 1 … 6 7 8 … 29 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.