Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.01.2002 at 13:29 #457854
Loksins ´komið í farveg að ég vona, kíkti á Birgi í Breyti í dag og hann tjáði mér að ég ætti að geta notað stálfelgur frá HjólHöll og sennilega líka frá VDO, en það þyrfti að renna örlítið utan af bremsudælum að framann svo þetta gengi upp.
Eitt af því sem þarf að passa þegar felgur á LC 90 eru keyptar er að "back space" sé ekki meira en 87mm.Salutations
Jon
10.01.2002 at 16:52 #191255Vegna mikils snjóleysis,,, hvernig væri að klúbburinn eða áhugasamir kæmu upp „Simulator“ eða Samlíki eða Hermir fyrir þá allra hörðustu í okkar hópi. Þar gætu menn trillt í orðsins merkingu um hin ýmsu hálönd.
Bara smá innlegg í frekar rólegan vetur, „so far“
Salutations
Jon
07.01.2002 at 08:26 #458220Ég fór á Olis í Ánanaustum milli jóla og nýárs og það kom á óvart að það var frosið í einni af dælunum þar, allavega dældi hún ekki og gáfu starfsmenn þar þá skíringu að það væri frost í dælubúnaði !
Salutations
Jon
04.01.2002 at 13:07 #191249Rétt að lýsa ánægju minni með nýjasta frétta-heftið okkar, margar góðar tæknilegar upplýsingar og ábendingar sem þar er að finna.
Salutations
Jón
04.01.2002 at 13:04 #191248Hlýtur að fara að koma vetur og þá kemur væntanlega talsvert frost á föllum, er til „formula“ yfir hvaða oliu er best að blanda út í diesel oliu í miklum frostum (áður) og í hvaða hlutföllum ?
Salutations
Jón
14.12.2001 at 16:23 #457964Sæll snake,
þarf nokkur dekk á svona breiðar felgur, bara sjóða ´"skóflur" á felgurnar, ekkert gúmmý ekkert vessen,,:)
hafðu það sem allra bezt
kv
Jon
08.12.2001 at 22:04 #457850Þessar mússoflegur koma nú frekar skemtilega á óvart allavega ef þú miðar við standard "white-spoke", þessar eru sem nýjar, flott sprautaðar og alles.
Alveg sammála þér, er ekki viss hvort spacerar duga, en ok sjáum til, den tid den sorg,,,lifi það af svosem vonandi.
Kastarakeppni,,hihi,,jú svona "ljóskastarakeppni" tja bara smá innlegg eða "spacer" í umræðuna ha,,,jammmm,,en hver veit,,,sjá hver drífur (lýsir) lengst ha .:)
Blessaður vertu getur svosem séð bílinn bara venjulegur grænn LC 90,,,, anytime…
kv
JSps: fæ kanski að bjalla á morgun, og takk fyrir traustið, þú getur eins og hefði getað og stóð reyndar til fundið þig í félagatali,,
MVH
08.12.2001 at 19:39 #457846Heill og sæll Snake,
Er búinn að kaupa Ground Hawk á Musso felgum,,,"des være" þá virðist þetta ekki ganga, felgur rekast í bremsudótið, en ok held það dugi að setja svona "spacer" á milli eða innlegg/útlegg….eða hvað ?
En ok verð að vinna úr þessu, en bíllinn er flottur þegar hann er kominn á þessa 36u á 12tommu felgur, allavega á búkkum ennþá.
Hey Snake!,,,heyrði aðeins í honum BÞV í dag, veistu doldið? (þú ein eyru) þetta er sennilega hinn bezti náungi eins og þú vissulega veist.
En hvað um það, nú verður Nonni að redda þessum felgum,,, og þar sem þú Snake ert með ýmsar góðar ábendingar þá væri gott að geta notið allavega einnar hér…..
Sincéres Salutations
Jónps: hvernig væri ef 4×4 héldi svona "kastarakeppni" ???
06.12.2001 at 23:55 #457894Sæll Björn Þorri Viktorsson
Er það staðfastur skilningur þinn Björn að ég sé að njóta ávaxta af vinnu annarra, ég held þú hafir ekki lesið skrif mín hér að ofan þ.e. fyrstu skrif í þessari umræðu, eða kanski misskilið sem ég reikna með. Hvað íslensku mína varðar þá varð misritun og þarf svosem ekkert að tíunda frekar er það.
Hér reikna ég með að þú meinir að ég hafi ekki lagt félaginu lið, sé kanski birði á félaginu eins og þú segir svona "jaggari". Þó ég hafi ekki gert mikið þá ættir þú kanski að rifja upp nokkra mánuði aftur í tímann, það var kanski "jagg" eins og þú snildarlega orðar.
Snake þekki ég því miður ekki, virðist hinn besti náungi, en hann verður að svara fyrir sig ef honum sýnist svo.
Við "spjallararnir", Björn ég gef mér að þetta sé gagnkvæmt og að þinn skrápur sé ekki síður harður, hef ávallt gefið mér að mönnum (félögum) sé frjálst að hafa skoðanir án tillits til stöðu.
Ég held ég ljúki þessu hér.
Kveðja
JS
06.12.2001 at 16:07 #457844Svona felgu-breyting eins og þú ert með gengur víst ekki á LC 90, verða að vera útbreikkaðar samkvæmt samtali við Fjallasportsmenn, eins og þú nefnir réttilega þá rekast kantar í t.d. bremsur ef breikkað er um 1" í báðar áttir.
Þarf að hugsa þetta betur, en takk fyrir samt.
Salutations
Jónps. held ég þurfi ekki að fá að máta.
06.12.2001 at 13:47 #457890Sæll og blessaður Björn Þorri,
Svona svona, leggja hönd á vogaskálarnar ? er þetta ekki líka svona frílans spjallrás, skiptast á skoðunum o.þ.h.
Ekki kann ég að downloda svona myndum, en vilda það nú samt, læri það kanski seinna…En hvað um það ekkert mál Björn eins og þú veist, just name it…or about….var sosum ekki meining að særa einn eða neinn eða gera lítið úr..
Salutations
Jon
06.12.2001 at 13:36 #457808Jamm, tek undir með Snake. Og þetta að láta flengja sig upp að hnakka er nýyrði….en góður…-:0)
kv
Jón
06.12.2001 at 13:16 #457840Jú sennilega rétt hjá þér, kíki á þessi 36" Ground Hawk m.m.
Mange tak Snake
kv
Jón
06.12.2001 at 10:30 #457884Sæll Hlynur, ég held nú að þessi síða sé nú líka fyrir þá sem búa ekki í henni Reykjavík og einnig fyrir þá sem kanski bara hafa gaman af að skoða fallega bíla og fallegar myndir, nú eða vilja fylgjast með úr fjarlægð.
Auðvitað er mikil vinna að skrá og setja inn myndir á síðuna en allt í lagi að ýta smá er þaggi ?kveðja
Jon
06.12.2001 at 10:27 #457834Heyrðu og þakka þér fyrir ráðleggingarnar, held ég reyni að losna undan að kaupa felgurnar og prufa 12" breiðar sem ég á nú reyndar til.
Eina vesenið er að ég er með mjórri kantana en það ætti kanski að sleppa þar sem þessi dekk þ.e. 36" færi bara undir rétt fyrir utanvegasnjóakstur.Kveðja
Jón
05.12.2001 at 11:56 #457782Daginn Siggi, ekki vera "rejur"
Hurru Siggi, þú veist allt ? eigum við ekki von á myndum úr síðustu ferðum 4×4, þ.e. Hveravellir og Setur 30 – 01/12
kv
Jon
04.12.2001 at 23:06 #457826Sæll Björn, og mange tak
Heyrðu, þar sem ég hlotnaðist þessir "SOKKAR FYRIR SKULDLAUSA" (gjöf frá 4×4) þá hljóta mér að vera allir vegir færir, skelli mér bara á þetta allt, trjátíuogsexuna,þjátíuogáttuna og hef svo fjörtíuogfjögurratommuna til vara…..nú svo á maður alltaf til þrjátíuogfimmuna svona til að monta sig á -:0)
"No svet" "No debt" í þessum sokkum segja þeir……og no "alífát"
Salutations
Jónps: LC 90 á 44 væri sennilega mega vagn
04.12.2001 at 22:13 #457822Sæll Björn
Já veistu þetta fer alveg að lenda en þarf samt smá sannfæringu í viðbót "hérna" á spjallinu, smá svona "negotiation" í viðbót og þá kemur þetta. Jú þetta er svaka breyting frá 36 > 38" ekki alveg til í þann pakka strax (skil ekkert í þessum fyrverandi eiganda fyrst 33" svo 36" í stað þess að þrykkja strax upp í 38")
Ha já Jón þrjátíuogsextommu, hef svosem aldrey verið hávaxinn en sáttur meðan það er ekki mittismálið -:0)
Kveðja
Jón
04.12.2001 at 21:05 #457818Blessaður, jú ca 55 með negglingu, ha innvíðar 12 eða 14" held það gangi varla, núast bara samann undir bílnum ?
36" á 10" felgum ætti að gefa ca sömu hæð og 38" á 13 eða 14" felgum, en minna flot, eða hvað ? Nú svo er það "dræverinn" þennann þekki ég og hann er þolanlega lúnkinn.kveðja
Jonps: á bæði spotta og spil, ? með hjálpina, ert þú ekki stundum á ferðinni á þínum þrjátíuogsex ?
04.12.2001 at 18:35 #457814Sæll Siggi, 36" er sennilega vandræða-stærð ef það vantar vara-dekk, ekki nema að hafa sem staðalbúnað í lengri ferðum, svo-sem ekki mikið mál ?. Jú afturhásing er færð aftur og breiðari kantar "idet mindste", þetta er mikil breyting eins og þú mynnist á og það á bíl sem þegar hefur farið í gegnum 35/36" pakkann, kostar of mikið úr því sem komið er.
En hvað fynnst þér með þetta verð á 36" á felgum ??kv
Jonps. er skrambi heitur fyrir þessum dekkjum
-
AuthorReplies