Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.05.2014 at 21:29 #768287
Sæl Öll
Jæja þá er komið að því að fara í Óvissuferð Eyjafjarðardeildar 4×4.
Við stefnum á að fara frá Skeljungi Hörgárbraut föstudaginn 16.maí kl.18.30
Félagar eru beðnir að vera stundvísir ,taka góða skapið með og nokkra bauka að auki.Þátttökugjald verður ca. 2500kr á mann.Allt innifalið og meira til.Félagar eru beðnir að skrá sig hér á síðuni eða hjá undirrituðum:
Raggi Jóns 8960668
Erlingur 8525721
Jói Hauks 8945307Nú verða allir að vera duglegir að skrá.Við verðum að vera um 20-25 félagar.
Kv
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
01.05.2014 at 10:07 #767971Sæl öll
Já nú koma allir á Víkurskarð kl.11.00 enda frábært veður.
Kv.
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
16.04.2014 at 22:47 #457017Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn þriðjudaginn 6.maí 2014 kl. 20.00.
(Fundarstaður auglýstur síðar)Dagskrá:
Setning fundar og dagskrá kynnt.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
Umræða um skýrslu stjórnar.
Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
Kjör Skoðunarmanna.
Önnur mál.
Fundarslit.Frestur til að skila inn lagabreytingatillögum til stjórnar er 25. apríl.
Stjórn Eyjafjarðardeildar hvetur alla sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi deildarinnar að hafa samband við stjórnar- og/eða nefndarmenn og bjóða sig fram.
Kjósa þarf formann, tvo stjórnarmenn og einn varamann í stjórn, einnig þarf að manna nefndir.Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
11.04.2014 at 09:13 #456370Sælir félagar
Fjölskyldudagurinn sem sagt var frá á síðasta félagsfundi
og átti að vera á morgun 12.apríl er frestað þar sem
veðurspáin er ekki góð.Kv.
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
01.04.2014 at 19:02 #454724Sælir
Sindri þetta er alls ekki aprílgabb.Við höldum
ætíð félagsfund fyrsta þriðjudag í mánuði.
Hvet alla til að mæta í kvöld.Kv
Jói Hauks
30.03.2014 at 14:51 #454686Sælir félagar
Næsti félagsfundur verður haldinn á þriðjudaginn 1.apríl
kl.20.00 í húsnæði Björgunarsveitarinar Súlna við Hjalteyrargötu.Á dagskrá verður meðal annars kynning á stórferð Eyjafjarðardeildar á Drangajökull og vörukynnig frá Straumrás á Akureyri.
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
21.03.2014 at 10:30 #454350Sæl öll
Jæja það hefur nú ræst úr skráningu og eru
núna um 17 skráðir á kvöldið.
Þetta byrjar um kl.20.00 í salnum í Strýtu húsinu
(þeir sem vita ekki hvar það er hringja bara í vin)
félagar hafa með sér drykki t.d.Valas,Spur eða bjór.
og 2000kr í startgjald.Kv.
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
19.03.2014 at 16:28 #454309Sælir
Við erum búnir að fá sal fyrir grillkvöldið og
er það í gamla Strýtu húsinu (vesturendinn) þar sem matsalurinn var.
Þetta byrjar kl.20.00 laugardaginn 22.mars.
En það verður eitthvað að fara lifna við skráning til að
það verði eitthvað af þessu,það eru aðeins 4 skráðir.
Drífa nú í því að skrá sig.Kv
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
18.03.2014 at 09:26 #454257Sælir félagar
Næsta laugardagskvöld,22 mars kl.20.00, verður haldið grillkvöld Eyjafjarðardeildar 4×4
Sjónvarpskokkurinn frægi Hallgrímur Sigurðsson á N4
ætlar að koma og kenna okkur hvernig á að grilla kjöt
og annað sem við kemur góðri máltíð.Það er 2000kr gjald pr.mann
Félagar eru beðnir að skrá sig hér eða að hringja í
Jóa Hauks í síma 8945307
Raggi Jóns í síma 8660524
Staðsetnig verður ákveðin á morgun.
Endilega að skrá sig sem fyrst.Skránigu lýkur á
fimmtudaginn 20.marsKv
Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
14.03.2014 at 11:01 #454142Sælir
Leitt þykkir mér að komast ekki með og afsökunin er
frekar léleg,þarf að fara til Reykjavíkur.
En ég vona að einhver hjálpi Dúdda og hinum Toyotu
eigendum yfir erfiðu hjallana þar sem ég og Trooperinn
erum ekki til staðar að gera það eins og venjulega.
En hvað um það,góða helgi.
Kv
Jói Hauks
01.03.2014 at 00:52 #453395Sælir Félagar
Félagsfundur verður haldinn hjá Eyjafjarðardeild 4×4
þriðjudaginn 4. mars næstkomandi kl.20.00 í húsnæði
Björgunarsveitarinnar Súlna við Hjalteyrargötu.Á dagskrá eru erindi frá nefndum.
Smári Sigurðson segir okkur frá Gæsavatnafélaginu.
Myndasýning frá þorrablótinu og önnur mál.
Síðan verður boðið uppá kaffi.
Hvetjum alla félagsmenn til að mæta.Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
06.02.2014 at 17:01 #451447Sæl öll
Já Halla þetta er hið versta mál.Ég sem var búinn
að skrifa 4bls.af gríni í pistilinn um þig.
En hvað um það við GERUM SAMT GRÍN AF ÞÉR þó
þú mættir ekki.Við hringjum svo í þig á kristilegum tíma
á laugardagskvöldið og skálumKv
Jói Hauks
05.02.2014 at 16:10 #451381Sælir
Á síðasta félagsfundi (04.02.14) var hann Birgir Steinarsson með kynningu á Led ennisljósum og vasaljósum.
Ljósin sem hann var með eru mjög athyglis verð og þeir sem ekki voru á fundinum geta haft samband við Birgir í síma 8683562.Kv
Jói Hauks
05.02.2014 at 00:54 #449632Sælir
Nú hafa eftirtaldir skráð sig á þorrablótið:
Ragnar Jónsson +1
Eiður Jónsson +1
Jói Hauks +1
Bubbi
Gunni Rúnars +1
Örlygur +1
Davíð +1
Einar Ingi
Björn Páls sr. +1
Steini Vignis +1
Sindri +1
Halldór H
Þórhallur
Kristinn Uni
Kristinn í Höfða +1
Eysteinn +1Skráning er hér á síðuni eða
hjá Jóa Hauks í síma 8945307
eða Ragga Jóns í síma 8660524
Drífa nú í því að skrá sig því
þetta verður frábært þorrablót.Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
07.01.2014 at 23:42 #443850Sælir félagar
Þá er komið að hinni árlegu þrettándagleði okkar
en hún verður haldin laugardaginn 11.janúar næst komandi.
Það er æskilegt að fá að vita af ferðum félaga upp í Réttartorfu þar sem menn eru að fara bæði á föstudaginn og laugardaginn og á öllum tímum.
Best væri ef að félagar skrifuðu hér á þráðinn.
Brottför hjá öllu er frá Skeljungi við HörgárbrautGistigjaldið er kr.1000 fyrir fullorðna pr.nótt en frítt fyrir börn (18ára og yngra)
Það verður glæsileg brenna og stórkostleg flugeldasýning og mikill söngur og gleði.
Kv
Skemmtinefnd og Skálanefnd
05.01.2014 at 19:53 #443708Sælir félagar
Þá er komið að fyrsta félagsfundi ársins en
hann verður haldinn þriðjudaginn 7.janúar kl.20.00
að Hjalteyrargötu 12 (Súlur björgunarsveit)Á dagskrá er kynning á smurolíu sem Jói Björgvins er með,sagt frá því sem næst er á dagskrá, þrettándagleði og þorrablóti svo verða erindi frá nefndum og ýmis önnur mál.
Hvetjum alla til að mæta
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
31.12.2013 at 18:50 #443003Kæru félagar
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4 óskar ykkur og fjölskyldum ykkar
Gleðilegs nýs árs og þakkar kærlega fyrir árið sem
nú er á enda.
Sjáumst hress á nýju ári.Kær kveðja frá stjórn
Eyjafjarðardeildar 4×4Ragnar Jónsson
Jóhann G. Hauksson
Halldór G. Hauksson
Halla Jensdóttir
Kristján H. Tryggvason
Gunnar Rúnarsson
Örlygur Arnljótsson
28.12.2013 at 13:26 #442564Sælir
Það er hægt að taka bretti vestan við Nettó
og síðan er eitthvað að brettum við Rönning og
kannski við Stillingu en það er sennilega erfitt að finna annað timbur í þessum snjóalögum.Kv
Jói Hauks
27.12.2013 at 20:51 #442517Bjössi eru þið hjónin búin að ættleiða Bubba ?
Kv.
Jói Hauks
27.12.2013 at 18:04 #442490Sælir félagar
Brennuefnisferð sem var á dagskrá á morgun laugardag
hefur verið færð yfir á sunnudaginn 29.12.13 bæði vegna þess að það verður betra veður á sunnudaginn og vegna fjölda óska um það.Eyjafjarðardeild 4×4
-
AuthorReplies