FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jóhann G. Hauksson

Jóhann G. Hauksson

Profile picture of Jóhann G. Hauksson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 1
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 412 total)
← 1 … 4 5 6 … 21 →
  • Author
    Replies
  • 23.02.2015 at 22:24 #776963
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Ferðatilhögun 4X4 Eyjafjarðadeild , Stórferð, 19 -22.03.20115, Austurland

    19.03 Fimmtudagur
    Lagt af stað á ýmsum tímum frá Akureyri og nærsveitum , haldið í Möðrudal þar sem verður kvöldmatur frá kl.20:00 – 22:00 fyrir þá sem það vilja.

    20.03 Föstudagur
    Kl.09:00 verður lagt af stað frá Möðrudal, þar er hægt að hitta hópinn og verða samferða áfram.
    Frá Möðrudal verður haldið í Grágæsadal þaðan í Hveragil þar sem fólk getur farið í bað, eftir baðið verður stefnt á Brúarjökul að Töfrafossi og síðan verða Íshellar skoðaðir. Frá Íshellunum verður farið í Fjallaskarð þar sem gist verður þá nótt. Dagur 1 ca. 200 km.

    21.03 Laugardagur
    Kl.08:30 verður farið frá Fjallaskarði í Snæfell, að Geldingarfelli um Tröllakróka, Þrándarjökull, Eyjabakka og aftur í Fjallaskarð. Dagur 2 ca.140 km
    (Plan B fyrir Laugardag ef veður verður slæmt þá stefnum við í Dyrfjöll og fengin önnur gisting.)

    22.03. Sunnudagur
    Kl.08:30 Ef við verðum í Fjallaskarði áfram þá nótt sem stefnt er að þá verður farið í Jökuldalinn , þaðan á Smjörvatnsheiði og í Möðrudal í Kaffi dagur 3 ca. 130 km og síðan heim. Menn greiða kaffið sjálfir í Möðrudal. Akstur heiman og heim miða við Akureyrir er um 800 km.

    Skráningu líkur 13.03.2015 kl.22:00 á vef 4X4, Greiðsla staðfestir skráningu greiða skal inn á reikning 4X4 Eyjafjarðardeildar fyrir kl.22:00 þann 13.03.2015, reikningsnúmer deildarinnar er 0566-26-44044, kt.620796-2399 athugasemd Austurland. Tilgreina skal fjölda við skráningu á vef 4X4. Einnig má tilkynna sig í tölvupósti á gunnirun@internet.is og láta vita hvort menn muni nýta sé aðstöðina í Möðrudal.

    Möðrudalur fimmtudagskvöld og föstudagsmorgum fyrir þá sem það vilja.
    Gisting í uppábúnu rúmi 5000 kr.pr.mann miða við 2 í herbergi
    Svefnpokapláss 3500 kr pr.mann
    Kvöldmatur 4000 kr. Pr.mann ( Grillað lamb og desert )
    Morgunverður 1200 kr.pr. mann
    Gisting í Fjallaskarði 2 nætur er kr.2000 pr. mann pr. Nótt

    Fyrir hönd ferðanefndar 4X4 Eyjafjarðardeildar,
    Gunnar Rúnarsson A-979





    09.02.2015 at 17:24 #776711
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæl öll

    Jæja þá er skráningu á þorrablótið nánast lokið og þátttakan mjög góð eða um 30 manns.

    Dagskráin hjá okkur er á þá leið að þeir sem koma á föstudagskvöldið hafa það bara gott  um kvöldið og spjalla saman yfir bjór eða einhverjum öðrum góðum drykk og fara síðan tímanlega að sofa.

    Á laugardaginn verður farin einhver jeppatúr eftir morgunmat eða ca. kl.10.00 þannig að þeir sem koma á laugardeginum og ætla að koma með í ferðina verða að fara tímanlega frá Akureyri (Ekki seina kl.09.00) en þeir sem ætla að gera eitthvað annað á laugardeginum hafa frjálst val um brottför frá Akureyri.

    Nú fyrir þá sem ekki ætla í jeppaferðina þá er margt annað hægt að gera t.d. fara í Jarðböðin,skoða fuglasafnið eða fara í Dimmuborgir nú síðan er bara hægt að hafa það náðugt á Hótelinu og slappa af.

    Síðan eftir kl.15.00 þá er boðið upp á skoðunarferð í Kröfluvirkjun og það væri gott að menn létu vita tímanlega hvort þeir ætluðu í þá ferð.

    Þorrablótið byrjar síðan kl.20.00 á laugardagskvöldið og stendur eitthvað fram á nóttina.

    kveðja

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    03.02.2015 at 16:51 #776502
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

     

    Minni á félagsfundinn í kvöld kl.20.00 í Norðursal húsnæðis hjá Björgunarsveitini Súlum við Hjalteyrargötu .

    Það er fjölbreytt dagskrá í boði.

    Stjórn Eyjafjarðardeildar





    01.02.2015 at 19:21 #776448
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæll Sindri

    Þetta er haft svona svo að sá sem sér um kynninguna þurfi ekki að sitja allan fundinn og bíða eftir að röðin komi að honum.Síðan hafa kynningar verið það lengi að félagsmenn eru farnir að fara áður en þær eru búnar vegna tímaskorts og það er leiðinlegt fyrir þann sem er að kynna.

    kv.Jói Hauks





    31.01.2015 at 23:53 #776417
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Næsti félagsfundur Eyjafjarðardeildar verður haldinn þriðjudaginn 3.febrúar næstkomandi í Norður-sal hjá Bsv.Súlur við Hjalteyrargötu kl.20.00

    DAGSKRÁ FUNDARINS ER EFTIRFARANDI:

    Sagt verður frá Þorrablóti Eyjafjarðardeildar sem haldið verður helgina 13-15 febrúar og dagskrá þess kynnt.

    Það verður kynning frá Bílasmiðnum í Reykjavík

    Sagt verður frá Stórferð Ferðaklúbbsins 4×4 sem farin verður 5-8 mars og okkar hlutverk í henni kynnt.

    Nefndir kynna það sem er framundan hjá þeim.

    Kaffihlé og eftir það verður nýbreyttur 54″Ram Gunna Rúnars skoðaður niðri í sal.

    Kv.

    Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





    30.01.2015 at 13:23 #776399
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Þetta er allt að koma hjá okkur og í dag er skráningin svona:

    Erlingur og Afí föstudag

    Hafdís (Sigurbjörn kemst ekki) föstudag

    Jón Gunnar og Ásdís föstudag

    Brynjólfur fostudag

    Gunni Rúnars og Mæja föstudag

    Raggi og Eiður föstudag

    Grétar Ingvars og Magga föstudag

    Elli Þorsteins og Sigurbjörg föstudag

    Örlygur og Anna laugardag

    Jói Hauks og Björk laugardag

    Davíð Eyfjörð og Ingibjörg laugardag

    Egill Steingríms og Unnur laugardag

    Kristinn Uni og Lena föstudag

    Kv.

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeild





    28.01.2015 at 20:58 #776360
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Hvernig er það Davíð keyptir þú þér Patrol. ??





    22.01.2015 at 19:04 #776264
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Það er komið nokkuð skrið á skráningu og nú eru eftirtaldir skráðir:

    Erlingur og Afí  ,föstudag

    Hafdís ,föstudag

    Jón Gunnar og Ásdís ,föstudag

    Brynjólfur ,föstudag

    Gunni Rúnars og Mæja ,föstudag

    Raggi formaður ,föstudag

    Eiður Jóns ,föstudag

    Örlygur og Anna ,laugardag

    Nú er um að gera að fara að skrá sig

    kv.Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar

     





    21.01.2015 at 15:15 #776251
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Nú er komið að þorrablóti Eyjafjarðardeildar og verður það haldið laugardaginn 14.febrúar kl.20.00 á Hótel Seli í Mývatnssveit.

    Við höfum fengið mjög gott tilboð frá þeim í gistingu og þorramat.Þeir sem vilja geta komið á föstudeginum og verið alla helgina en það er líka hægt að koma á laugardag og gista eina nótt.

    Verðin eru eftirfarandi : Gisting föstudag og laugardag með þorramat og morgunmat er kr.17.450 á mann. Þeir sem koma laugardaginn og gista eina nótt þá kostar það kr.12.450 á mann en þessi verð miðast við tveggja manna herbergi. Verðin fyrir eins manns herbergi eru kr.21.400 og kr.16.400

    Nú er um að gera að skrá sig hér á spjallinu eða hringja í Jóa Hauks í síma 8945307 ,Ragga í síma 8420005 eða Erling í síma 8648442

    Kveðja Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    08.01.2015 at 14:49 #776040
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæl öll

    Skráðir eru:

    1. Jói Hauks + 2 föstudag
    2. Eiður Jóns föstudag
    3. Raggi Jóns föstudag
    4. Eysteinn og Helga föstudag
    5. Kristinn Höfða föstudag
    6. Halldór + 3 föstudag
    7. Davíð Eyfjörð laugardag
    8. Halli Gulli + 3 laugardag
    9. Bubbi + 3-4 laugardag
    10. Haukur Stef. laugardag

    Kv.Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    07.01.2015 at 08:48 #776020
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Nú er komið að því að halda þrettándagleði Eyjafjarðardeildar 4×4.Hún verður haldin laugardaginn 10.janúar kl.18.00 og eins og undanfarin ár er laugardagurinn fjölskylduskemmtun.Kvöldið endar síðan með brennu og flugeldasýningu af bestu gerð.Það verða tveir brottfara tímar,sá fyrir á föstudaginn 9.janúar kl.18.00 frá Skeljungi við Hörgárbraut og sá seinni laugardaginn 10.janúar kl.10.00 eining frá Skeljungi.Gistigjald er kr.1.500 á mann fyrir helgina (sama gjald hvort sem gist er ein eða tvær nætur)

    Félagar er beðnir á skrá sig hér á spjallinu ef þeir geta.Setjið inn hvað margir eru í bíl og brottfaratíma.Það er líka hægt að skrá sig í síma 8945307 (Jói Hauks)

    Skráðir eru:

    1. Jói Hauks + 2 föstudag
    2. Eiður Jóns föstudag
    3. Raggi Jóns föstudag
    4. Halli Gulli + 3 laugadag
    5. Bubbi + 4 laugardag
    6. Haukur Stef + 1 laugardag
    7. Eysteinn og Helga föstudag

    Kveðja

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar





    03.01.2015 at 14:34 #775897
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Umleið og stjórn Eyjafjarðardeildar óskar ykkur gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir það gamla

    þá boðum við til fyrsta félagsfundar ársins.

    Hann verður þriðjudaginn 6.janúar kl.20.00 í norðursal hjá Bsv.Súlum við Hjalteyrargötu.

    Helstu mál á dagskrá eru starfið í vetur og næstu viðburðir ,kaffi og myndasýning.

    Kveðja

    Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





    26.12.2014 at 17:25 #775390
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Það er að vísu ekki þörf á að skrá sig í brennuefnisferð en alltaf gott að vita hverjir ætla að fara.

    Vitað er um að eftirtaldir ætla að fara.
    <p style=“text-align: left;“>Raggi formaður                                         Eiður                                                                        Davíð Eyfjörð                                             Hilmar                                                         Gunni Rúnars                                          Jói Hauks                                                     Björn Páls sr                                       Björn Páls Jr                                               Egill                                                     Bubbi og Unnar                                         og vonandi koma einhverjir fleiri</p>
    Kv.

    Jói Hauks





    25.12.2014 at 20:45 #774964
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Farin verður ferð í Réttartorfu laugardaginn 27.12 með brennuefni .

    Það verður farið um kl.09.00 frá Skeljungi við Hörgárbraut.Hvetjum alla til að safna

    brennuefni og koma með í frábæra dagsferð í Réttatorfu enda verður veðrið gott og

    það er komið nóg af snjó í Bárðardal. Nú er um að gera að hrista sig og koma með í síðustu ferðina

    á þessu ári.

    Kv.

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    22.12.2014 at 11:47 #774932
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Eyjafjarðardeild Ferðaklúbbsins 4×4
    Óskum öllum félagsmönnum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
    Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða
    Kveðja  Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





    09.12.2014 at 17:50 #774572
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Já það alveg með ólíkindum hvað formaður vor er
    klár þegar tölvur og önnur flókin viðfangs efni eru
    annars vegar.

    Kv.
    Jói Hauks





    02.12.2014 at 08:11 #773583
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Desemberfundur Eyjafjarðardeildar verður haldin 2.des kl.20.00
    í Norðursal Bsv.Súlna við Hjalteyrargötu.
    Fundurinn er í umsjá Skemmtinefndar og það verður smá sprel (ekki ratleikur) og
    síðan verður glæsilegt jólakaffi og myndasýningar.
    Hvetjum alla til að mæta.

    Kveðja
    Skemmtinefnd

    ps.gott að vera í úlpu og hafa ennisljós





    18.11.2014 at 20:43 #773055
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Jæja nú er komið að heimsmeistaramóti Eyjafjarðardeildar í keilu.Mótið verður haldið föstudaginn 21.nóvember kl.21.00
    Mæting kl.20.40 inní Keilu (gott að fá sér ein kaldan fyrir mót).Búast má við gríðalega harðri keppni.
    Félagar eru beðnir að skrá sig sem fyrst hér á síðuni eða
    að hringja í :Jóa Hauks í 8945307, Ragga í 8660524 eða Erling í 8648442

    Kv
    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    18.11.2014 at 20:33 #773054
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Skálanefnd Eyjafjarðardeildar stefnir á að
    fara í stutta vinnuferð laugardaginn 22.nóvember í Réttartorfu.
    Það verður farið frá Skeljungi Hörárbraut kl.11.00
    og komið verður til baka um kvöldið.
    Allir félagar velkomnir að koma með.Engin skráning bara að mæta.

    Skálanefnd Eyjafjarðardeildar





    09.11.2014 at 15:56 #772965
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Næstkomandi þriðjudag 11.nóvember kl.20.00 verður haldinn
    félagsfundur í húsnæði Bsv.Súlna, norðursal, við Hjalteyrargötu.
    Það verður eitt mál á dagskrá: DRÖG AÐ TILLÖGU AÐ MATSÁÆTLUN VEGNA NÝS VEGAR UM SPRENGISAND.
    Það er áríðandi að allir félagsmenn mæti á fundinn.

    Kv.
    Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 412 total)
← 1 … 4 5 6 … 21 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.