FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jóhann G. Hauksson

Jóhann G. Hauksson

Profile picture of Jóhann G. Hauksson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 1
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 412 total)
← 1 … 3 4 5 … 21 →
  • Author
    Replies
  • 31.05.2015 at 17:37 #780030
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Síðasti félagsfundur þessa starfsárs verður haldinn þriðjudaginn 2 júní í Hjalteyrargötu norður sal hjá Bsv.Súlum kl.20.00

    Á dagskrá er kynning nefnda á starfinu næsta vetur og einnig því sem gera á í sumar.Ferðanefnd kynnir sumarferð,skálanefnd segir frá því sem gera á í vinnuferð í júní og umhverfisnefnd segir frá því sem er á dagskrá hjá þeim í vinnuferðinni. Þá verða skipunarbréf nefnda afhent.

    Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





    29.05.2015 at 05:31 #780003
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Þar sem skráning í óvissuferð er lítil sem engin (6 skráðir) þá er henni hér með aflýst.

    Það verður skoðað á næsta félagsfundi (2 júni ) hvort hún verður sett á aftur.

    Kv.

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    25.05.2015 at 10:26 #779927
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir fèlagar

    Jæja nú er komið að því kæru félagar.Óvissuferð Eyjafjarðardeildar 4×4 verður farin föstudaginn 29.maí næstkomandi.Það verður farið frá Skeljungi við Hörgárbraut kl.18.00 og eins og venjulega verður farið eitthvað út í óvissuna og heimferðin er um kl.???.Kostnaður er í algjöru lámarki eða kr.2500 á mann og greiðist við innganginn. Allir verða að skrá sig hér á síðunni eða að hafa samband við undirritaða og eins og áður er lámarks þátttaka ca.20-25 manns.

    Kv.
    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4

    Jói Hauks. S.8945307
    Raggi Jóns. S.8420005
    Haukur Stefáns. S.8929550





    02.05.2015 at 17:34 #779597
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Við viljum minna menn á að næsta þriðjudag er aðalfundurinn hjá Eyjafjarðardeild 4×4 en hann verður hann haldinn í Golfskálanum að Jaðri kl.20.00

    Hvetjum alla félaga til að mæta og hafa þannig áhrif á starfið næsta árið.

    Kveðja
    Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





    01.05.2015 at 19:13 #779592
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Vill bara minna alla á að mæta á fjölskyldudaginn á morgun.
    Við hittumst um kl.10.00 á Víkurskarði og grillum pylsur og rennum
    okkur á skíðum og sleðum og það eru líka brekkur fyrir jeppana.

    Kv.
    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    30.04.2015 at 17:14 #779407
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Við eru nokkrir félagar sem ættlum að fá okkur bíltúr í Réttatorfu á morgun og
    það eru allir velkomnir með.
    Við förum frá Skeljungi við Hörgárbraut kl.10.00.

    Endilega látið vita hér á síðuni ef þið ætlið að koma með annars er bara að mæta á Skeljung kl.10.00 í fyrramálið.





    29.04.2015 at 22:00 #779367
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Eyjafjarðardeild 4×4 heldur sinn árlega fjölskyldudag laugardaginn 2.maí.
    Við ætlum að hittast á Víkurskarði um kl.10.00 og skemmta okkur eitthvað fram eftir degi.
    Það verður boðið upp á pylsur og meðlæti.

    Hvetjum félaga til að mæta með alla fjölskylduna og skemmta sér.

    Kv.
    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    21.04.2015 at 22:50 #779167
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn
    þriðjudaginn 5.maí 2015 kl. 20.00.
    Í Golfskálanum að Jaðri

    Dagskrá:
    Setning fundar og dagskrá kynnt.
    Kosning fundarstjóra og fundarritara.
    Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
    Umræða um skýrslu stjórnar.
    Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
    Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
    Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
    Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
    Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
    Kjör Skoðunarmanna.
    Önnur mál.
    Fundarslit.

    Frestur til að skila inn lagabreytingatillögum til stjórnar er 24. apríl.

    Stjórn Eyjafjarðardeildar hvetur alla sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi deildarinnar að hafa samband við stjórnar- og/eða nefndarmenn og bjóða sig fram.
    Kjósa þarf formann, tvo stjórnarmenn og einn varamann í stjórn, einnig þarf að manna nefndir.

    Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4





    17.04.2015 at 21:27 #779020
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæll Halli

     

    Það vekur hjá manni öryggistilfinningu að vita af því að það sé klafabíll með í för.Það líka gott að vita að þið feðgar ætlið að koma með og ég skal koma með næturljós til að yfirvinna myrkfælnina
    og það er nóg af kjöti til handa öllum.

    Kv.

    Skemmtinefndin





    17.04.2015 at 08:30 #779013
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Já Davíð það mætti halda að menn séu búnir að leggja bílum sínum fyrir sumarið eða að menn séu ekki

    að skoða síðuna,þetta verður örugglega mögnuð ferð og mikill missir fyrir þá sem ekki koma með.

    Þeir sem eru núna skráðir eru:

    Davíð,Eiður og Sindri

    Jói Hauks og Gunni Rúnars

    Kristinn í Höfða +  ein

    Siðan eru nokkrir kannski menn:

    Ragnar formaður

    Elli Þorsteinss og Jói Björgvins

    Halli Gulli gjaldkeri.

    Nú fer hver að vera síðastur til að skrá sig

    Kv.

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4

     

     

     





    16.04.2015 at 19:38 #779007
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Eiður þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að Davíð grilli ,það verða meðlimir skemmtinefndar sem sjá um það enda útskrifaðir frá sérfræðingi í því, við förum ekki að láta einhvern ferðanefndar með-lim vinna aðra eins sérfræðinga vinnu.

    En nú verða menn að fara að skrá sig til að fá að borða á laugardagskvöldið.

    kv.

    Skemmtinefnd





    15.04.2015 at 22:54 #778998
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Þá er komið plan fyrir grillferðina um næstu helgi (18-19 apríl).Við leggjum af stað frá Skeljungi við Hörgárbraut kl.10.00 á laugardagsmorgun og ökum sem leið liggur í Varmahlíð og þaðan inn Skagafjörð og í Skiptabakka,skála Skagafjarðardeildar 4×4.
    Þar verður síðan haldin grillveisla um kvöldið í boði Skemmtinefndar Eyjafjarðardeildar og síðan verður spjallað og sungið fram eitthvað fram á kvöldið.
    Á sunnudaginn verður síðan farið heim á leið en það verður ekið um Laugafell og einhver skemmtileg leið valin þaðan og niður í Bárðardal.

    Félagar eru beðnir að láta vita hvort þeir ætli að koma með,annað hvort hér á spjallinu eða að hringja í einhvern af undirrituðum sem fyrst, kostnaður er í algjöru lámarki eða kr.2.500 á mann en innifalið í því er gisting og grillveisla á laugardagskvöldið.

    Með Kveðju

    Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar 4×4

    Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4

    Gunni Rúnars s.8407909

    Davíð Eyfjörð s.6591541

    Jói Hauks s.8945307





    09.04.2015 at 13:59 #778945
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Fyrirhuguð grillferð í Laugarfell sem átti að vera nú um helgina 11.04 til 12.04 er hér með frestað vegna mjög slæms veðurútlits.

    Það er fyrirhugað að fara í þessa ferð um næstu helgi  18. ti 19. apríl og eru félagar beðnir um að fylgjast með hér á spjallinu varðandi það.

    Kveðja

    Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar 4×4





    06.04.2015 at 20:44 #778942
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Minni á félagsfundinn þriðjudaginn 7.apríl kl.20.00 í Norðursal húsnæðis hjá Björgunarsveitini Súlum við Hjalteyrargötu .
    Það er fjölbreytt dagskrá í boði t.d. myndasýning frá stórferð Eyjafjarðardeildar og margt fleirra.

    Stjórn Eyjafjarðardeildar





    22.03.2015 at 13:54 #778204
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæl öll

    Vegna misvísandi frétta af drifgetu amerískra eða japanskra í stórðferð þá ákvað ritari að fara á staðin á laugardagsmorgun við annan mann ,en hann Erlingur Harðar kom með,og kynna sér þessi mál sjálfur.Við fórum á stað um kl.06.00 og náðu okkar mönnum við afleggjarann upp í Eyjabakka.Nú við ókum síðan sem leið lá  undir tryggri leiðsögn Austfirðinga að Geldingafelli og síðan þaðan í Egilssel við Kollumúlavatn en þar var á tekið gott matarhlé á meðan austfirðingar gerðu skálann kláran fyrir sumarið.Nú það brastá með brakandi blíðu eftir hádegi og var farið að skoða Tröllakróka og uppá Kollumúla og það verður að segjast eins og er að það er ekki hægt að lýsa stórfengleika svæðisins í smápistli sem þessum þetta verða menn að skoða með eigin augum.Nú eftir frábæran dag var haldið í Fjallaskarð ,grillað og spjallað um daginn sem var frábær í alla staði .Ritari og aðstoðar maður yfirgáfu staðin um kl.21.00 og komu til Akureyrar um kl.01.00. Ferðalangar ætluðu síðan  að halda heim á leið í dag og fara um Smjövatnsheið heim og einhverja aðra útidúra eftir veðri og drifgetu.

    Þessi ferð hefur verið frábær í alla staði og ferðanefnd til sóma og einnig bera að þakka þeim austfirðingum þ.e.Þórhallur ,Örn,Einar og Þórir +kona hans,kærlega fyrir leiðsögn um þeirra svæði án þeirra hefði þetta ekki verið hægt.

    kv.

    ritari Eyjafjarðardeildar

    Jóhann Hauksson

    PS.japanskir höfðu yfirburði

     





    20.03.2015 at 21:12 #778023
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæl öll

    Það er helst að frétta af félögum okkar að þeim gekk bara mjög vel í dag.Samkv.SMS-i sem ritara barst voru það amerískir vagnar sem báru af í dag og líka japanskir sem höfðu verið uppfærðir.

    Nú sms-ið sagði að Toyotur væru eitthvað að vandræðast.Það var helst á sms-inu að skilja að það væri líka smá vesen með einstaka „coara“ en eins og áður er getið þá verður sanleikanum gerð skil hér.Býst við að nú séu okkar menn komnir í Fjallaskarð,skála Austurlandsdeildar 4×4, og byrjaðir að grilla stórsteikur og annað góðgæti.

    kv.

    Ritari





    20.03.2015 at 11:45 #777822
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sæl öll

    Það er helst af okkar mönnum að frétta að eftir beikon og egg í morgunmat var farið út að horfa á sólmyrkvann enda voru aðstæður í Möðrudal með besta móti ,sól og heiðskýr himinn,og var það mat manna að þetta væri besti sólmyrkvi sem þeir höfðu nokkur tímann séð.

    Það var síðan blásið til brottfarar um kl.10.00 og síðast þegar heyrðist í heimildarmanni okkar þá var allt í góðu og engin teljandi vandræði í gangi ,smá krapi hér og þar, veðrið er ágætt og gleði mikil hjá okkar mönnum.

    Við fáum örugglega fleirri fréttir þegar líða fer á daginn og getum sagt frá festum og öðrum ævintýrum enda verður bara sannleikurinn sagður í þessum pistlum og ekkert dregið undan.

     

    Kv.

    Ritari Eyafjarðardeildar 4×4





    19.03.2015 at 21:20 #777664
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir félagar

    Hér í þessum þræði verða sagðar fréttir af Stórferð Eyjafjarðardeildar um Austurland.

    Nú það er helst að frétta að flestir þeir sem ætluðu að koma í Möðrudal í kvöld voru mættir þar,
    það voru allir í góðum gír og gleðin var mikil hjá flestum.
    Einhverjir voru þó að kvarta yfir því að maturinn var ekki kominn á borðið og töldu að um væri að
    svik af hálfu ferðanefndar (enda er hún skipuð þannig mönnum).

    Nú ferðalagið frá Akureyri gekk vel hjá flestum en þó er undantekning þar á þar sem að 54″ Ram náði að festa sig á leiðinni í Möðruda (ekið var um þjóðveg no.1).
    Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um hvernig þetta gat skeð en heimildarmaður
    ritara sagði að um væri að ræða byrjenda mistök.

    Nú ef að frekari fréttir berast þá verða þær birtar um leið.

    kv.
    ritari Eyjafjarðardeildar 4×4
    Jóhann Hauksson





    15.03.2015 at 22:06 #777487
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Ferðatilhögun manna sem skráðir eru í Stórferð 4×4 Eyjafjarðardeildar
    Brottför fimmtudag 19.03.2015 stefnt í Möðrudal, matur frá kl.20:00 til 22:00
    Gunni Rúnars + 1
    Már Dalvík
    Ragnar
    Víðir og Eiður
    Halli Gulli + 1
    Davíð + 1
    Haddi + 1 verður seint á fimmtudag
    Gunni Kredd ( + 1 )
    Hóla Palli
    Eysteinn + 1

    Lagt af stað á föstudagsmorgun 20.03.2015 og hitta hópinn í Möðrudal brottför þaðan kl.09:00
    Elmar + 1
    Sindri
    Egill + 1
    Samtals 13 bílar skráðir í þessa ferð og 20 ( 22 ) aðilar.
    Fundur verður með þeim sem skráðir eru í þessa ferð í húsnæði Súlna nk. þriðjudagskvöld 17.03.2015 kl.20:30 , þar fá menn leiðarlýsingu inn í GPS inn hjá sér.

    Kveðja fyrir hönd ferðanefndar,
    Gunnar Rúnarsson A-979





    06.03.2015 at 11:02 #777169
    Profile photo of Jóhann G. Hauksson
    Jóhann G. Hauksson
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 549

    Sælir

    Félagar í Eyjafjarðardeild eru núna í Réttatorfu og bjóða uppá nýbakaðar kleinur og kaffi handa þeim sem það vilja.Þeir hafa ekki orðið varir við neina sunnanmenn en halda í vonina um að einhverjir komi við í dag.

    Kv.

    Eyjafjarðardeild 4×4





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 412 total)
← 1 … 3 4 5 … 21 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.