Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.11.2016 at 16:37 #941032
Sælir Félagar
Skálanefnd er að fara upp í Réttartorfu á næsta föstudag.
Það er brottför um kl.19.00 frá Skeljungi við Hörgárbraut
Það eru allir velkomnir með.Kv
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar.
23.09.2016 at 13:59 #940839Jæja það bætist í hópinn hjá okkur.
Nú hafa látið vita eftirtaldir:
Jói Hauks + 1
Raggi Jóns + 1
Eiður Jóns + 2
Bubbi + 1
Örlygur + ?
Sölvi Sveins +3
Kiddi í Höfða
Elli þorsteinsSkráning í síma.
8420005 Raggi
8615537 Eiður
8945307 Jói Hauks
22.09.2016 at 20:01 #940832Sælir félagar
Jæja núna væri flott að sjá einhverja láta vita hvort þeir ætli að koma á laugardaginn 01.okt
og halda upp á 25 ára afmæli Eyjafjarðardeildar. Það er hægt að skrá sig hér á f4x4.is
nú ef menn geta ekki skráð sig hér á síðuni þá má bara hafa samband við udirritaða í síma eða skrá sig á Facebooksíðu okkar. Síðan geta menn/konur líka skráð sig í vinnuferð.Nú hafa látið vita eftirtaldir:
Jói Hauks + 1
Raggi Jóns + 1
Eiður Jóns + 2
Bubbi + 1
Örlygur + ?Skráning í síma.
8420005 Raggi
8615537 Eiður
8945307 Jói Hauks
15.09.2016 at 16:30 #940806Sælir félagar
Föstudaginn 30. september verður farinn vinnu- og afmælisferð í Réttartorfu.
Þetta er,eins og nafnið segir,bæði vinnuferð og afmælishátíð Eyjafjarðardeildar sem varð
25 ára í apríl síðastliðnum.Það verður farið í vinnuferð á föstudaginn 30. sept.kl.19.00 en félagar líka komið á laugardeginum í vinnuferð.Það eru ýmis smáverk sem þarf að gera og við hvetjum alla til að mæta.Á laugardeginum verður haldið afmæliskaffi og hvetjum við alla félaga gamla sem nýja til að koma í dagsferð í Réttartorfu og halda upp á afmæli Eyjafjarðardeildar í okkar glæsilega skála ,það verða glæsilegar veitingar í boði.
Til að þetta gangi allt upp þurfa félagar að skrá sig eða láta vita hvort þeir ætla að koma eða gista,svo að ekki vanti kaffi og kökur.Við þurfum líka að fá að vita hverjir koma í vinnuferð.
Það er hægt að skrá sig hér á síðuni,á Facebook síðu Eyjafjarðardeildar 4×4 og hjá undirrituðum.
Nú er tími til að sýna það að félögum þykki vænt um Eyjafjarðardeild og nú mæta allir í afmælið.Kveðja
Stjórn og skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4×4Skráning í síma.
8420005 Raggi
8615537 Eiður
8945307 Jói Hauks
19.08.2016 at 12:19 #938432Sælir félagar
Auðvitað mæta allir á þessa hátíð.
25 ára afmæli er bara einu sinni og þetta verður svaka party.
Það væri skammarlegt ef það yrði að hætta við afmæli vegna þátttökuleysis,við myndum allavega ekki segja frá því.
Hvet alla félag til að skrá sig hvort sem það er í hér á síðunni á Facebook eða bara í síma.Við megum bara ekki klúðra þessu félagar.Kveðja
Jói Hauks
(Sem mætir öruglega ef Erdogan hleypir mér frá Tyrklandi)
16.06.2016 at 09:07 #938224Sælir
Sölvi Sveins mætir + 2 fullorðnir og eitt barn.
Kv.
Jói Hauks
Sem mætir auðvitað.
13.06.2016 at 14:19 #938203Skálanefnd Eyjafjarðardeildar boðar til vinnuferðar í Réttartorfu um næstu helgi.Það verða tveir brottfarartímar í boði, annars vegar kl.19.00 á fimmtudaginn 16.júní og hins vegar kl.09.00 á föstudaginn 17.júní.
Það eru mörg verk sem þarf að vinna í Réttartofu t.d. þarf að bera á palla,laga vantsleiðslu,þrífa skálan og ýmis önnur verk.
Það verður boðið uppá kvöldmat á laugardagskvöldið þannig að
félagar eru beðnir að skrá sig hér á síðuni eða hjá undirrituðum sem fyrst svo að við vitum hvað þarf að kaupa mörg læri..
Hvetjum alla félaga til að skrá sig og koma með í vinnuferð.Skránig er hér á síðunni eða í síma 8615537 Eiður eða 8945307 Jói Hauks
07.06.2016 at 10:37 #938181Sælir félagar
Minni alla á félagsfundinn í kvöld kl.20.00
Kv.
Stjórn Eyjafjarðardeildar.
05.06.2016 at 10:32 #938175Sælir fèlagar
Eyjafjarðardeild 4×4 heldur félagsfund þriðjudaginn 7.júní kl.20.00 í húsnæði Bsv.Súlna norðursal .Þetta er jafnframt síðasti fundur starfsársins 2015-2016
Það verða nokkur mál á dagskrá og ber þar hæst að nefna að Elli Þorsteins ættlar að sýna Patrolinn sinn eftir að hann var sprautaður og settur í hann BMW mótor.Elli fer yfir allt verkferlið og segir okkur ferðasöguna.
Ragnar formaður segir síðan frá formanna fundi sem haldinn var í Reykjavík nú í maí.
Skálanefnd fer yfir það sem gera þarf í vinnuferð sem farin verður núna í júní.
Ferðanefnd segir frá áætlaðri sumarferð en hún verður farin seinni partin í ágúst. Kaffiveitingar og önnur mál verða síðan á dagskrá.Hvetjum alla til að mæta á þennan síðasta fundi starfsársins.
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
12.05.2016 at 17:25 #938094Sælir
Skrái hér með Jón Gunnar + 1
Kv. Jói Hauks
11.05.2016 at 17:18 #938089Sælir félagar
Ég skrái hér með Hauks Stefáns. Félagar þurfa að vera svolítið röskir að skrá sig.
Nú eru eftirtaldir skráðir.Jói Hauks
Raggi Jóns Formaður
Eiður Jóns
Halli Gulli
Steini Vignis
Kiddi í Höfða
Jón í Lundi
Jói Pálma
Guðni Þórodds
Haukur Stefáns
Þorgils Guðmunds
Hilmar IngimundarDrífa sig í að skrá sig.
Kv.
Jói Hauks
09.05.2016 at 21:21 #938080Sælir fèlagar
Auðvitað mætir maður í óvissuferð ,þetta er „föstudaginn 13.“, þetta getur ekki klikkað.
Kv.
Jói Hauks
08.05.2016 at 09:19 #938076Sælir félagar
Nú er veðrið til að koma á Víkurskarð og skemmta sér með fjölskylduni.
Kv.
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
06.05.2016 at 16:38 #938064Sælir félagar
Það er smá breyting á tíma varðandi fjölskyldudaginn. Vegna þess hve veðurspá fyrir sunnudaginn er frábær þá verður hann
á sunnudaginn 8.maí á sama stað og sama tíma.
Allir að mæta.Kv. Stjórn Eyjafjarðardeildar
06.05.2016 at 11:18 #938063Sælir félagar
Eyjafjarðardeild 4×4 heldur sinn árlega fjölskyldudag laugardaginn 7.maí.
Við ætlum að hittast á Víkurskarði um kl.10.00 og skemmta okkur eitthvað fram eftir degi.
Það verður boðið upp á pylsur og meðlæti.Í fyrra mættu TVEIR, við látum það ekki koma fyrir aftur.
Hvetjum alla félaga til að mæta með fjölskylduna og skemmta sér.Kv.
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
02.05.2016 at 13:44 #938040Sælir Félagar
Eru ekki allir með það á hreinu hvar aðalfundurinn er haldin ?
Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn
þriðjudaginn 3.maí 2016 kl. 20.00.
Í GOLFSKÁLANUM AÐ JAÐRKveðja
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
25.04.2016 at 13:50 #937983Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn
þriðjudaginn 3.maí 2016 kl. 20.00.
Í GOLFSKÁLANUM AÐ JAÐRIDagskrá:
Setning fundar og dagskrá kynnt.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
Umræða um skýrslu stjórnar.
Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
Kjör Skoðunarmanna.
Önnur mál.
Fundarslit.Stjórn Eyjafjarðardeildar hvetur alla sem hafa áhuga á að taka þátt í starfi deildarinnar að hafa samband við stjórnar- og/eða nefndarmenn og bjóða sig fram.
Kjósa þarf formann, tvo stjórnarmenn og einn varamann í stjórn, einnig þarf að manna nefndir.Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
04.04.2016 at 10:33 #937578Sælir félagar
Við viljum hvetja alla félaga til að mæta á fundinn annað kvöld.Það er mikilvægt að ræða afstöðu okkar varðandi Hrafnarbjargarvirkjun (þó að hún hafi verið sett í vendarflokk).
Síðan er kynning á stórferð Eyjafjarðardeildar 8 – 10 apríl.
Elli Þorsteins að segja okkur frá breytingum á Patrol.Kv.
Stjórn Eyjafjarðardeildar 4×4
16.03.2016 at 19:38 #937019Sælir
Auðvitað mætir maður.Þetta er svæði sem er örugglega gaman að skoða.
Kv.Jòi Hauks
01.03.2016 at 17:53 #936701Sælir fèlagar
Við viljum minna á fèlagsfundinn ì kvöld kl.20.00
Stjòrn Eyjafjarðardeildar 4×4
-
AuthorReplies