Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.01.2009 at 20:25 #637244
Sælir, ég var í ferð með tveim 80 Cruiserum sem talað var um í bókinni hans Ofsa, það virkaði vel að tengja bílana saman með gleðigöndlinum þegar færið var farið að þyngjast en svo á endanum fórum við varla áfram vegna snjóþunga, ss komum okkur í sjálfheldu.. En mjög góð ferð samt sem áður
56 klst ferð, frá skála í hús, án þess að stoppa!!Marteinn
R-2444
13.11.2008 at 00:04 #632674Einhver sérstök árgerð? Eða er eitthvað sem ég þarf að vita þegar ég fer að leita af L-300? Einhver spes vélarstærð?
12.11.2008 at 21:32 #632670Ég veit vel að loftlás er betri kostur, en ódýrari kostur eins og staðan er í dag er tregðulás, þannig að spurningin er, úr hverju kemur þessi tregðulás??
Marteinn R-2444
11.11.2008 at 23:45 #203190Getur einhver frætt mig um það úr hvaða bíl ég get fengið tregðulás að framan í Pajero 1998 2,8 TDI? Ég hef heyrt að því að menn séu með lása í svona bílum úr öðrum bíltegundum.. Hvaða bíltegund væri það þá!?
Takk fyrir
Marteinn R-2444
17.10.2008 at 21:31 #203079Sælir félagar.
Ég hef verið að spá í því hvort að menn viti hvort 36×14,5×15 Ground hawg eða 37×12,5×15 Good year M/T virki betur undir stuttum Pajero 98 árg með 2,8 tdi..Bílinn er með 35″ kannta en er breyttur fyrir 36″ ég get ekki sett 38″ undir hann því að það eru ekki til kanntar fyrir það stór dekk. Og já 36″ og 37″ þyrfti að vera á 10″ breiðum felgum.
Það væri gaman að heyra pælingar frá ykkur.
Marteinn
R-2444
05.05.2007 at 14:41 #590472Heimasíða ferðarinnar er arctictrails.is og þar er allt um herlegheitin
kveðja Matti
05.05.2007 at 12:21 #200269Sælir félagar, þá er ég kominn aftur eftir 2 ára leiðindar dvala!! (jeppaleysi) og hlakka mikið til að byrja að blaðra hér og ferðast aftur!!
Kveðja Matti
R2444
05.05.2007 at 10:52 #590412Sæll, við ætlum að fara á Mýrdals eða Langjökul í fyrramálið, fer eftir fregnum þessa dags.
Matti
04.05.2007 at 11:31 #200261Veit einhver hvernig færið er á langjökli þessa dagana og hvar er best að fara upp á hann
27.02.2006 at 16:22 #544656Ég vill votta aðstandendum hins látna mínar innilegustu samúðarkveðjur og ég vona svo sannarlega að þeyr sem slöðust um helgina hressist sem allra fyrst.
Marteinn R-2444
09.02.2005 at 14:40 #195450ef að einhver þarna úti kannast við að hafa séð til manna á aðfaranótt þriðjudags á intersport planinu að vesenast í kringum 4-runner þá eru allar uppl. vel þegnar, líka ef að ykkur er boðið garmin 120 gps tæki og/eða pioneer geislaspilara. takk fyrir 692-9181
18.01.2005 at 22:49 #513738Tuddinn?? hver er það? þekkjumst við? en allavegana þá er búið að setja skinnur undir hjá túrbínunni minni og ég er lika búinn að taka einn turbo afblástursventilinn burt og setja pípulagningatappa í gatið og er bara með mæli inni í bíl. það eru tveir svona afblástursventlar á túrbínunni og þessi var alltaf að blása af sér of fljótt, en ég er líka með hi-clone og tók eftir því að turbínan kemur fyrr inn og ég þarf síður að gíra bílinn niður í brekkum sem er mjög gott, og ég er líka með k&n síu og 3" púst. vélin er 2,5 TDI og þetta er bara allt að virka fínt saman. Og já ég mæli eindregið með því að mitsubishi eigendur (og aðrir) versli við hann Aron í jeppaþjónustinni Breyti hann er búinn að gera ýmislegt gott fyrir mig og minn bíl, fín og góð þjónusta hjá þeim mönnum þar.
Marteinn R-2444
17.01.2005 at 22:00 #513730Sæll ég á eitt stykki L-200 árg 1997 á 38" dekkjum, það er víst mjög einfalt að breyta þessum bílum allavegana þegar að ég keypti minn fyrir 3 árum þá var hann á 38" og ekkert búið að hækka hann upp, bara klipt úr skrúfað upp og settir kantar, en það er ekkert sniðug breyting, allavegana braut ég stýrisenda og hann fjaðraði ekkert að framan, en éftir fyrstu ferðina á honum þá lét ég hækka hann um 2 1/2" á boddý og slaka honum niður að framan, og í dag er hann mjög fínn. ég er reyndar búinn að setja í hann lægri hlutföll og framlás, 3" púst og k&n loftsíu enda finnst mér hann virka mjög vel núna, allavegana fer ég mjög víða á honum. en ef að þú vilt kíkja eitthvað undir minn bíl þá getur þú bara slegið á þráðinn og kíkt á hann.
Mitsu kveðja Marteinn
869-1618
17.01.2005 at 10:04 #513690ef það er einhver hér sem að á svona bíl óbreittan eða lítið breyttan þá á ég 4,636 hlutföll í hann sem að ég er búinn að taka úr mínum bíl L-200 97árg á 38" og ég myndi vilja skipta ef að einhverjum finnst hann vera of lágt gíraður, 5,285 eru orginal hlutföll í pajero 2,5 tdi en 4,636 og 4,875 í L-200, og þetta passar á milli (ég er með úr pajero í mínum)
Marteinn 869-1618
17.01.2005 at 00:23 #513678hvernig eru þessir bílar að virka hjá ykkur? er ekki stutt á milli gíra og hámarkshraðinn lár. þegar þið eruð á þjóðvegarhraða er bíllinn ekki í kvínandi botni?
Marteinn
25.12.2004 at 22:04 #511646við ætlum víst að hittast á esso í mosó 9 30 "ekki" á shell, þeir sem að vilja koma með…
kveðja Matti
25.12.2004 at 17:57 #511642við erum að fara upp að skjaldbreið og jafnvel uppá jökul, við ætlum að mæta á shell kl 9 30
matti 869-1618
25.12.2004 at 01:11 #511608nei nei ég er ekkert að tala um að mismuna neinum, ef að menn treysta sér til að fara upp á jökul eða eitthvað svoleiðis þá treysti ég þeim allveg sjálfur (alls ekkert stórudekkjamikilmennskubrjálæði hjá mér eins og hjá mörgum) endilega að spjalla saman um þetta við Jóa og heklumenn
kveðja Matti
23.12.2004 at 23:45 #195096Er ekki mál komið að Mitsubishi menn hópi sig nú aðeins saman og skreppi saman í dagsferð eða meir? þá er ég að tala um 36″ bíla og yfir, bæði Pajero og L-200, það er hægt að hafa þetta undir nafni Pajero klúbbsins þar sem að við erum eflaust flestir í honum! ég meina þessir patrol kallar og toyotu menn hafa eflaust gert þetta nokkuð oft, og við erum jú demantarnir í umferðinni.
jólakveðja Marteinn L-200
28.11.2004 at 21:38 #509734Ég vil votta fjölskyldu og samferðafólki hins látna mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Marteinn R-2444
-
AuthorReplies