Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.04.2008 at 20:36 #621272
er ekki bara málið að mæta með sungleraugu og hjálm í sumarlegum litum á næstu mótmæli hehe segi svona 😛
29.04.2008 at 13:48 #202366er það rétt að líterinn sé að fara yfir 200 kr. á næstunni hehe en ef svo er fer maður bara á fjöll á gönguskíðunum 😛
29.04.2008 at 11:53 #621608Áfram brunar bíllinn minn
brautin dunar undir.
Ég skal muna sérhvert sinn
svona unaðsstundir.Höfundur:
Andrés Hallgrímsson Valberg f.1919 – d.2002
27.04.2008 at 21:24 #621600hér er önnur,
Að þekkja ei sundur mann og mey
mundi flestum sárna.
Von að Gísla geðjist ei
glámskyggnin í Árna.Sár er Gísla sálarneyð
og sérhver von í banni,
af því sem hann ekki reið
enskum blaðamanni.
Höfundur:
Stefán Stefánsson frá Móskógum á Bökkum, Skag. f.1905 – d.1984
27.04.2008 at 20:26 #621596hér er ein
Deginum seinkar, myrkrið er meira en nægt
því morgunstjörnurnar lítilli birtu skila
Jesús minn góður hvað jörðin snýst orðið hægt.
Ég held að alheimsmótorinn sé að bila.
Höfundur:
Hjörleifur Kristinsson Gilsbakka, Skag. f.1918 – d.1992
27.04.2008 at 09:30 #202358Yfir fjöll og breiða byggð
bíllinn hraðann eykur.
Burtu víkur böl og hryggð.
Bros á vörum leikur.Benedikt Valdimarsson frá Þröm f.1920 – d.2003
05.04.2008 at 20:09 #619264það getur alveg verið en hann verslaði þetta frá usa en ég er nú ekki með það á hreinu frá hverjum
05.04.2008 at 19:08 #619260félagi minn setti svona mjög svipað undir wyllis hjá sér og þetta var ónýtt eftir fyrstu ferð þar sem þetta þoldi enga misfjöðrun, þetta vatt allt uppá sig þannig það var bara tímaspursmál hvenær þetta myndi brotna ef hann hefði ekki tekið þetta úr aftur en annars er þetta heldur ekki að virka einsog 4 link heldur frekar einsog roverstýfa sem væri með auga uppí grind (sem er ekki gott í misfjöðrun) í staðinn fyrir venjulega rover endann
31.03.2008 at 17:51 #618864þetta eru greinilega flott vinnubrögð en mér finnst þetta alveg hroðalega ljótt einsog caninn gerir þetta, hækkar þetta uppúr öllu valdi og svo er þetta oftast alveg grjóthast hehe ég var nú í canada í hálft ár og skoðaði ófáa svona breytta jeppa og þeir voru MJÖG fáir sem var eitthvað varið í hehe
27.03.2008 at 16:02 #618360veltiboginn eða stífurnar sem hölluðu á ská aftur með hliðunum var breytt þannig að þær voru látnar ná aftur með toppnum og bogna svo niður alveg aftast og þar niðrí golfið ef ég man rétt
27.03.2008 at 14:54 #618356hurðar opið lengdist þannig að boginn að aftanverðu opinu var tekinn og hurðin er semsagt stærri og betra að ganga um og svo lengdist skúffan eitthvað
27.03.2008 at 11:43 #202192hvað er þetta mikil vinna eða semsagt er þetta þá helst að skrúfa örlítið upp og setja kubba á gorma og lengri dempara? þarf ekkert endilega að lengja eða síkka stífurnar?
kv. Kristján
25.03.2008 at 22:20 #618502aldrei fær neitt að vera í friði!!!!!!!
en vonandi að hún finnist bara
25.03.2008 at 11:45 #202177man einhver hvað cj7 eða wrangler er original langur milli hásinga?
kv. Kristján
23.03.2008 at 23:18 #618340það er sennilegast rétt:)
23.03.2008 at 22:39 #202170það er kannski einhver annar búinn að nefna þetta áður en ef ekki þá geri ég það bara en ég var svona spá:)
væri ekki sniðugt að vera með sér þráð sem er með eingöngu mynbönd það eru örugglega margir sem væru til í það ef það er hægt:)
kv. Kristján
19.03.2008 at 21:19 #618144ég þakka fyrir þetta:)
kv Kristján
19.03.2008 at 12:32 #202138hvernig er það en nú er wyllisinn orðinn talsvert breyðari þar sem ég er kominn með dana 44 að framan/aftan og „38 dekk og er orðið yfir 50 cm frá ystu brún ljósa að ystu brún dekks en veit einhver hver mörkin eru á þessu ? verð ég ekki að setja einhver „ljót“ ljós á stuðarahornin?
kv. Kristján
12.03.2008 at 13:44 #617354hrikalega flott en ég er sammála með hljóðið;)
11.03.2008 at 08:55 #617282ef það er kerrutengi á honum þá sakar ekki að ath hvort það sé nokkuð fullt af snjó eða álíka drullu og hvort vírarnir þar séu nokkuð að slá saman eða í jörð
-
AuthorReplies