You are here: Home / Jens Lindal Sigurðsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Er eitthvað að frétta af stelpunum?
Ég held að traktorinn heiti Belarus sem þessar hásingar koma undan.
Blikksmiðja Gylfa. Þeir hafa eitthvað með þennan bíl að gera, , eða vita á hvers vegum hann er. Ég á stundum þangað erindi og spurði um bílinn og mig minnir að mér hafi boðist bara að takann sem fyrst. En man ekki hvort það var gjaldfrjálst eða gegn einhverri smávægilegri þóknun. Ég held að það sé í honum upprunalegt kram.
Sæll. Ég er með Ram 2500 "98 með Cummins og sjálfskiftingu. Ég þurfti að skifta út rofa í skiftingunni um daginn og kynnti mér lítillega með skiftinarnar. Það eru víst 3 gerðir. Sverasta og sterkasta skiftingin er 47RE og er þannig í mínum og ég man ekki alveg númerin á hinum. Ég er búinn að kynna mér örlítið með gírkassa og er NV4500 gírkassi sem er td original í mörgum Dodge V10 og Cummins Og einnig fynnst hann í mörgum Gm bílum. Þetta er víst mjög sterkur kassi sem þolir ansi mikla misnotkun og afl miðað við það sem ég hef lesið.
Og Googlaðu þetta bara. Það er endalaust hægt að fynna upplýsingar á google:)
Mig langar að prófa að leita í viskubrunnana hér á vefnum sem mér skilst að séu allnokkrir. Ég er með L200 96 árgerð semsagt eldri týpuna. Hann er 2.5 tdi 5 gíra bsk á 38″. Málið er að eftir sona klukkustundar þjóðvega akstur þá detta út helmingurinn af gírunum eða 2,4 og bakk. Það eru engin hljóð í kassanum samanber söngur eða skrölt af neinu tagi og virðist hann nokkuð góður nema gírstöngin er heldur ónákvæm og komið i hana smá slit. og þetta með að gírarnir detta út. Ég held að þetta sé að gerast út af hita því hann dettur í samt lag aftur eftir 1-2 tíma stöðu. Ég hef oft heyrt að kassar í mmc (a.m.k eldri bílum) séu frekar lélegir. Kannast einhver hér við svona vandamál. Getur þetta verið skiftibúnaðurinn eða innvols í kassa. Er einhver smuga að gera við þetta með kassan í bílnum.
Kv Jens gírlausi.
Rúðuþurkur eru nauðsinlegar og þarf að endurnyja reglulega.