Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.12.2007 at 14:48 #605454
Takk æðislega fyrir þessar upplýsingar Tryggvi, þær koma að miklum notum.
Kv, Ásta
05.12.2007 at 14:42 #604862Hverslags er þetta, þá verðið þið bara að hafa þetta bjór á næsta bjórkvöldi hjá ykkur eða allavegana smakka hann næst þegar þið fáið ykkur bjór því þið vitið ekki afhverju þið eruð að missa, hann er ekkert smá góður.
Í augnablikinu fæst hann bara í Heiðrúnu og örfáum hótelum, en mér finnst hann alveg þess verður að keyra þangað eftir honum.
Kv, Ásta
05.12.2007 at 14:35 #605450Hvernig er það ef að við ætlum að sækja um svona kort sem er ekki tengt við kredidkort heldur bara reikningur, sæki ég þá um það á síðunni þeirra eða með því að senda e-mail á f4x4? Og ef að það á að senda á ykkar, hvaða upplýsingar er það þá sem maður á að senda?
Kv, Ásta
05.12.2007 at 10:40 #604850Já ég veit að hann er góður, systir mömmu minnar er að brugga hann í Bayen, út í Þýskalandi og sendir hann hingað heim í sölu. Ég talaði við hana í gær og sagði henni frá því og hún var alveg í skýjunum um að það gengi svona vel að selja hann.
Mér finnst þessi bjór algjör snild og nú finnst mér ennþá meiri leiðindi að ég hefði ekki komist á bjórkvöldið með ykkur. Og fannst mér það nógu fúlt fyrir.
Kv, Ásta
04.12.2007 at 16:36 #604846Er það rétt sem ég heyrði að það hefði verið boðið upp á bjór sem að heitir Nordlicht Lager á bjórkvöldinu hjá ykkur?
Kv, Ásta
28.11.2007 at 14:16 #599414Vildi bara láta ykkur vita að ég var að setja inn [url=http://viewmorepics.myspace.com/Modules/PhotoAlbums/Pages/EditPhotos.aspx??fuseaction=user.editAlbumPhotos&albumID=1220453&MyToken=1d273b78-67c3-4007-a708-708d1e7adf40:2og8fif7][b:2og8fif7]myndir[/b:2og8fif7][/url:2og8fif7] úr ferðinni.
Kv, Ásta
27.11.2007 at 11:44 #604396Ég þakka fyrir þetta Maggi minn, en svona bara svo að þú vitir það í framtíðinni þá heiti ég Ásta.
Og takk fyrir frábæra ferð bara allir, þið voruð alveg meiriháttar. Og svona bara ef að ykkur langaði að skoða þá er ég búin að setja inn myndirnar sem ég tók í ferðinni í myndasafnið okkar. (Missti mig aðeins í gær þegar ég var að setja þær inn, þær eru svoltið margar) 😀
Kv, Ásta
27.11.2007 at 11:36 #599404Okkur lýst mjög vel á að fara aðra ferð, en þar sem strákarnir mínir eru hjá okkur aðra hvora helgi og þetta er ekki beint ferð sem að maður fer með unga krakka í þá kemur helgin 25. jan – 27. jan sér best fyrir okkur. En ástæðan fyrir að við værum til í að fara aðra ferð er ekki vegna þess að okkur finnst eins og við höfum verið svikin um eitt eða neitt eða sjáum eftir þeim peningum sem við settum í ferðina, heldur bara fegna þess að okkur fannst svo ógeðslega gaman með ykkur síðast að við getum valla beðið eftir að fara í næstu ferð.
Einnig vil ég bara benda á að það er náttúrulega ekki þeim að kenna sem sáu um ferðina hvernig fór, það er svoltið erfitt fyrir þá að reyna að stjórna veðrinu eða hvort að ljósavélin virki eða ekki. Þetta er líka bara eitthvað sem að maður verður bara að taka inn í reikninginn þegar maður fer á fjöll og reyna þá bara að gera það besta úr því en ekki hvarta yfir aðstæðunum. En mig langar líka bara til að þakka ykkur enn og aftur fyrir alveg frábæra ferð strákar og bara segja að þetta var alveg frábært hjá ykkur í alla staði svona miðað við aðstæður og get ég ekki beðið eftir að fara með ykkur í aðra ferð.
Kv. Ásta
26.11.2007 at 14:27 #604384Var þaðnú frekar tvísýnt hvort að við kæmumst með í ferðina eða ekki eftir að hafa brotið alveg helvítis helling í Gemlingaferðinni helginni áður, en vorum við að brasa við að koma bílnum í stand til að verða 2 á föstudagskvöldinu en vorum við samt ekki ennþá búin þannig að það var ekkert að gera annað en að vakna bara snemma á laugardeginum og klára Lilla svo við kæmumst með. Þar sem Lilli komst ekki alla leiðina í bæinn eftir Gemlingaferðina gistum við á Selfossi hjá múttu og koma Dóri á Hilux með stóðið sitt að hitta okkur þar. Lagt var af stað frá Selfossi um 9 leitið tilað hitta restina af fólkinu á Hvolsvelli. Það var kominn mikill spenningur í aftursætið en þar sátu tveir litlir tilvonandi jeppakallar og gátu valla beðið eftir að komast upp á jökul. Lögðum við af stað frá Hvolsvelli um 10 leitið. Leiðin gekk mjög vel alveg upp á jökul og var ekkert smá gaman að sprauta á ofsa hraða yfir í frábæru færi, einn peyi varð að vísu svoltið hvítur afturí þar sem glugginn var opinn og fauk allur snjórinn yfir hann, en honum fannst það alveg frábært og spurði bara hvort að ekki væri hægt að opna gluggan meira. Eftir að við komumst niður af jöklinum þurfti Lilli að þyggja spotta þar sem hann lagðist bara á kviðinn og komst hvoki aftur á bak né áfram. Kom Bessi þá til bjargar. Eftir það stóð Lilli sig með eindæmum vel alla leiðina upp í skála og þurfti nú ekki meira spotta þann daginn. Það varð nú samt aðeins að sjá hvað hann Lilli okkar gæti og fórum við yfir Brennivískvíslina á frekar skukkalegum stað þar sem við fengum ánna bara alla leið uppá húdd, en yfir fór hann að vísu með smá hjálp, en samt svona aðalega bara til að drekkja honum ekki þar sem þetta var frekar djúpt. Markir jepparnir þarna stóðu sem með eindæmum vel og má þar nefna Blá Skrímslið hans Dóra sem kom öllum á óvart. Einnig breytist á lit mitt á Rover all verulega eftir þessa ferð þar sem Breski heimsveldið hans Tryggva stóð sig alveg askottli vel verð ég að segja. Eftir alveg frábæran mat og smá blaður var lagst í koju og sofið vel. Morgunninn eftir flaug Lilli bara í gang því hann bara gat ekki beðið eftir ævintýrum dagsins. ‘ leiðinni til baka stóð hann Lilli okkar sig mjög vel og þurfti ekkert að þyggja spotta fyrr en hann var kominn fyrstur að þryðja leiðina fyrir restina af jeppunum eftir að færið var orðið aðeins of þungt og honum far farið að klæja í puttana við að sýna hvað í honum býr. Við vorum komin á Hvolsvöll um 20.30 og voru allir orðnir frekar þreyttir og svangir þannig að liðið var fóðrað og svo var bara haldið heim á leið.
Viljum við bara þakka öllum fyrir alveg frábæra ferð og þvílíka skemmtun. Sérstaklega viljum við þakka Einari og Bessa fyrir alveg frábæra farastjórn og mikla skemmtun.
Kv. Jenni og fjölsk.
26.11.2007 at 14:26 #604382a
19.11.2007 at 23:22 #599364Já við viljum líka þakka öllum öðrum sem áttu hlut að máli, ég held að það sé bara best að segja bara, þeir taka það bara til sín sem eiga það. 😀
19.11.2007 at 21:54 #599356Okkur langaði bara að þakka fyrir alveg frábæra helgi, það er alveg á hreinu að þessi helgi á eftir að lifa lengi í minningunni þrátt fyrir ýmis óhöpp og lítinn svefn.
Viljum við sérstaklega þakka Gemlingastóðinu sem eru alveg frábærir ferðafélagar fyrir frábæra skemmtun.
15.11.2007 at 20:11 #599318Við vorum bara svona að vellta fyrir okkur hvernig hljóðið er í mannskapnum svona rétt fyrir ferðina og hvort að það séu nokkuð einhver mótmæli fyrir 2 hundum með í för?
(Thjúi og Labbi)
08.11.2007 at 17:47 #599226Við erum ekki enn búin að fá svar um hvort að við getum nálgast einhverstaðar upplýsingarnar um ferðina sem vöru ræddar á hittingnum á mánudagskvöldið þar sem við komumst ekki vegna fluttninga tengdó. Okkur þætti voðalega gaman ef við kæmumst einhverstaðar yfir eins og t.d. ferðaáætlun og fleirra.
06.11.2007 at 09:36 #602058Það er Jenni og Ásta á GMC 44"
En við vorum að spá hvort hægt væri að bæta við tveimur litlum courum sem heita Adam og Rikki og eru 7 og 9 ára?
Þeim langar svo að fá að koma með í svona alvöru fjallaferð.
05.11.2007 at 23:28 #599204Hvernig er það, því miður komumst við ekki á hittinginn í kvöld vegna fluttninga og handleggsbrots hjá tengdapabba. Hvað gerum við þá? Er einhver önnur leið fyrir okkur að fá þær upplýsingar sem komu fram á hittingnum í kvöld?
30.10.2007 at 21:19 #601456Linkurinn virkar ekki.
30.10.2007 at 20:34 #599164Sorrry, smá óþolinmæði í gangi, langar bara svo mikið með í ferðina eða að það verði farin önnur ferð.
30.10.2007 at 20:30 #599162Mér finnst að þið ættuð að hafa 2 ferðir þar sem það eru svo margir búnir að skrá sig og vilja ólmir komast með. Hvernig lýst ykkur á það?
30.10.2007 at 20:30 #599160Mér finnst að þið ættuð að hafa 2 ferðir þar sem það eru svo margir búnir að skrá sig og vilja ólmir komast með. Hvernig lýst ykkur á það?
-
AuthorReplies