Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.12.2005 at 23:51 #536726
Góðan daginn,
eru flestar vélar í dag þessar tölvuvæddu ekki þannig úr garði gerðar að þær fara ekki í gang nema fullum smurolíuþristíng sé náð og er ekki líka einstefnuloki á lögnum svo olía sé ekki öll í pönunni þegar menn hefja start.
Svo með túrbínuhita, er ekki til líka eitthvað sem drepur á vél annað hvort tímatengt eða háð hitastigi.
[b:c8b6dels]Svo er líka hin lausnin að vera með vandaða vél!!!!![/b:c8b6dels]
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
21.12.2005 at 00:19 #536694Góðan daginn,
verið þið nú alveg rólegir,
ég er sannfærður um það að stærsti hluti veltra jeppa í umferðinni eru bílaleigubílar og þá annsi oft um að ræða útlendinga sem verður á í messunni þegar malbikið er á enda.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
20.12.2005 at 00:24 #536632Góðan daginn,
mig vantar enn mynd af þessum búnaði.
Varðandi stóru barðana og allt það dæmi þá sofnaði það um tíma en er vonandi að vakna.
Annars er ég búinn að vera að kaupa hlutföll, loftlása, 35" yrtri öxla, lokur, legusett og eitthvað fleira er núna að bíða eftir framhásingu frá USA, þannig að það er flest að verða komið sem notast við smíðina.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
19.12.2005 at 21:59 #196889Góðan daginn,
ég finn ekki spjallið um úrhleypibúnaðinn sem var utanáliggjandi, það er að segja sá sem var festur utaná brettakant og þaðan niður í felgu enhvernveginn.
Var ekki mynd af búnaðinum með í spjallinu.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
17.12.2005 at 01:06 #531184Góðan daginn,
hvaða helv…. maður hlýtur að mega segja það sem manni finnst, ekki held ég að neinn hér á þræðinum myndi gera alvöru úr sínum skrifum.
Þetta kriddar tilveruna og er stundum bara stórskemtilegt.
Hvað er verið að blanda stjórn félagsins í þetta mál það finnst mér ekki ná neinni átt.
Andið bara með nefinu.
Hveðja Hjörtur og JAKINN.
14.12.2005 at 21:05 #531088Góðan daginn,
hvernig væri að setja manninn í netpoka sem síðan yrði settur á Arnarhól dagpart þar sem menn gætu gert sér ferð þar niður eftir til þess t.d að míga á viðkomandi.
Eða þá í Gapastokk þar sem þeir sem vildu gætu notfært sér stöðu mannsins eða réttara sagt misnotað sér stöðu hans.
Annars til hamingu með bílinn.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
12.12.2005 at 17:20 #535760Góðan daginn,
t.d Bílabúð Benna, svo held ég að þeir hjá Stál og Stönsum eigi einnig bretti og áreiðanlega fleiri breitingaverkstæði.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
09.12.2005 at 23:22 #535470Góðan daginn,
ég var með Scout Traveller. Fyrst setti ég 350 GM vél árgerð ´74 í Scoutinn og eftir fyrstu ferðina upp á Arnavatnsheiði og eknir voru 600 km þar af 400 km á malbiki þar sem hann fór með 300 lítra af bensíni þá fór ég strax að leita að dísel vél í Scoutinn og varð fljótt hugfanginn af GM 6,5 turbo og keypti ég af Vélalandi 2000 árgerð af GM 6,5 sem sett var í Travellerinn og var eyðslan þá 18 – 21 lítrar í blönduðum akstri, hann var að eyða meira á malbikinu heldur en utanvega eða innanbæjar vegna þess að þá var vélin á meiri snúning.
En um leið og 6,5 vélin var komin í þá fóru nöf og nástútar að hrynja trekk í trekk, þannig að eina leiðin að koma í veg fyrir það voru 60 hásingar sem þufti að stytta vegna þess að Scoutinn er það sporgrannur.
Þess má geta að ég var alltaf á 44" dekkjum.
Það er betra að vera vel giftur þegar maður stendur í svona framkvæmdum vegna þess að þær eru bæði kostnaðasamar og tímafrekar.
En ef þú ert að velta fyrir þér bensín vél þá myndi litla blokkin ábyggilega vera vænlegri vegna þyngdar fyrst og fremst, þá þarf sennilega ekki að hreifa við hásingum.
Ég á enn til 60 hásingarnar undan JAKANUM með pumpubúnaði og fleiru.
Kveðja Hjörtur og[b:8oscx05w] [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/993/6240:8oscx05w]JAKINN[/url:8oscx05w][/b:8oscx05w].
05.12.2005 at 00:14 #534990Góðan daginn,
sammála síðasta ræðumanni.
Já en maðurinn heitir Siguður og vann hjá Birni öll sín ár og keyfti svo reksturinn af Birni þegar Björn ákvað að hætta.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
05.12.2005 at 00:04 #535012Góðan daginn,
já já maður hefur svo sem lent í þessu oftar en einu sinni eða tvisvar, mjög hvimleitt og stundum orðið þess valdandi að maður hefur hætt við allt saman ekki nennt að skrifa textan aftur.
En margt vatnið er runnið til sjávar síðan, bæði hefur maður elfst á blessað verkfærið og skrifhraðinn hefur aukist.
En síðan þá hef ég lagt í vana minn að hægri klikka með músinni draga yfir textann og klikka á copy áður enn ég ýti á [b:1b6ohj3p]Í lagi[/b:1b6ohj3p] !! Þá getur maður auðveldlega endurtekið leikinn á skemri tíma og allt verið í lagi.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
02.12.2005 at 19:36 #534572Góðan daginn,
ég sá einu sinn mann taka skrúfjárn leggja járnið á viðkomandi hlut setja svo eirað á endan á skaptinu og nú veit ég að það virkar ágætlega.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
25.11.2005 at 17:54 #533932Góðan daginn,
talaðu við þá hjá breytingaverkstæðunum þeir liggja kannski með takka sem þeir hafa ekki notað.
Nú eða kannski bara Benni.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
03.11.2005 at 23:24 #531222Góðan daginn,
ef þú ert að leita að tæki sem þú getur gengið með, haft í bíl eða hvar sem er þá mundi ég mæla með Garmin GPS map 60CS. Það tæki keyfti ég mér um daginn og er það snild, minnið er það stórt að allt Íslandskortið kemst í tækið í einu, svo er hægt að fá leiðsögn á disk á Íslensku. Svo er hægt að nota tækið sem leiðsögutæki frá einum stað til annars og keyrir maður alveg eftir götum meira að segja hringtorg eru inn á og segir tækið manni hvort maður eigi að beyja út á fyrsta öðrum eða þriðja eða það sem á við hverju sinni og gerir tækið þetta með hljóðmerki og mynd. Einnig er hægt að tengja tækið við tölvu.
Ég myndi kynna mér þetta vel áður en tækið er keypt.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
08.08.2005 at 23:18 #525482Góðan daginn,
númerið var undir skiltinu sem bendir á Langasjó á nyrðri leiðinni.
Trúlega hefur einhver hent því þar til að láta okkur halda að Kia kæmist til fjalla.
Kveðja
Hjörtur og JAKINN.
07.08.2005 at 23:36 #196138Góðan daginn,
ég var á leið inn að Langasjó þegar ég rak augun í bílnúmer og það var sárt, ég er með glóðarauga.
En númerið er KP 764
Ef einhver á það eða veit hver eigandinn er þá er hægt að hringja í síma 8951961.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
07.08.2005 at 18:36 #525364Góðan daginn,
fórum Breiðbak, Langasjó, Sveinstind, Blautuver, Skælingja, Eldgjá og gistum við Hólaskjól, mjög skemtilegt mæli eindregið með því landssvæði.
Fór svo Fjallabak Nyrðra í svartaþoku og var það ekkert mál, þannig að það þarf einga rútu eða sérstakt kort af því svæði, ekkert mál heldur að fara með fellihýsi þá leið.
Við hættum við Krakatinda leið vegna veðurs en þar hefði ekki verið vit að fara með fellihýsi segja fróðir menn.
Kveðja
Hjörtur og JAKINN.
05.08.2005 at 18:42 #525358Góðan daginn,
Þakka ykkur fyrir.
Kveðja,
Hjörtur og JAKINN
03.08.2005 at 23:43 #196129Góðan daginn,
ég ætlaði með hóp manna vestur Fjallabak í Laugar Dómadalinn og svo suður Krakatindaleið niður í Fljótshlíð. Það sem ég var að spökulera var hvort þeir færu með óbreitt fellihýsi þennan veg, ég man það ekki nógu vel en held það samt ef rólega er farið.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
28.07.2005 at 01:37 #525130Góðan daginn,
ég heirði einu sinni sögu sem var á þessa leið !! Maður fékk sendar til sín bækur frá bóksölu og gíróseðil með en þetta voru bækur sem maðurinn hafði ekki pantað. Maðurinn hringir í félagið og segir sig ekki hafa pantað bækurnar en fær þau svör að hann geti komið og skilað bókunum aftur, en hann vill ekki una því segist ekki hafa pantað bækurnar og slíta þeir svo samtalinu. Líður og bíður maðurinn fær svo ítrekun og svo dráttarvexti og reynir margsinnis að hringja og leiðrétta sín mál en alltaf án árangurs. Bíðum svo við loks dettur manninum snallráð í hug. Hann hringir heim til forráðamans bóksölunnar og vill fá heimilisfang viðkomandi eða staðsetningu á vörubílshalssinu af SKÍT sem hann sé með "hvar hann eigi að sturta því ??"
Forráðamaður félagsins segist engan skít hafa pantað þetta hljóti að vera einhver misskilningur Já nei nei engan SKÍT !!
Maðurinn segir þetta vera þá alveg eins og með bækurnar hann hafi engar bækur pantað en samt átt að borga.
Hann heirði aldrei meir neitt í sambandi við bækurnar.
Mér datt þetta bara í hug þegar minst var á SKÍT !!
[b:2memwvx8]Nei er þetta bara ekki lausnin !! Að finna eitthvað sniðugt að gera !![/b:2memwvx8]
[b:2memwvx8][u:2memwvx8]Krókur á mót bragði.[/u:2memwvx8][/b:2memwvx8]Kveðja Hjörtur og JAKINN.
14.06.2005 at 19:08 #524128Góðan daginn,
jú þar er einn uppi á kjalarnesi og svo Bíla setrið í Flugumýri, Mosfellssveit.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
-
AuthorReplies