Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.11.2008 at 13:39 #633576
Góðan daginn,
eg átti Scout Traveller ’72 sem eg var búinn að dunda svolítið í. Fyrst var bodýið lagað svo var sett i hann 350 chevy og 4 gíra trukkakassi úr Ford. Þá var hann að eiða svo miklu að það var farið í 6,5 l Chevy diesel og 4L80-E skiptingu, þá vegna þess að vélin var orðin það þung fór hann að mylja nástúta og nöf. Var þa farið i dana 60 sem hann Ægir stytti fyrir mig til að sporbreiddin yrði sú sama og var. Scoutinn er með sömu sporbreidd og japönsku jepparnir. Hann var alla tíð hjá mér á 44" dekkjum. [img:17e3sd86]http://www.jakinn.is/skrar/Flottasti_Scout_jeppi_i_heimi_JAKINN_Vid_Breidamerkurlon_02.jpg[/img:17e3sd86] [img:17e3sd86]http://www.jakinn.is/skrar/Jakinn_flottasti___Scout_jeppi_i_heimi_vid_Breidamerkurlon_01.jpg[/img:17e3sd86]
Svo velti ég honum í des ’02 en óhappið með bíllinn hanns Ægis var eftir það, sennilega hefur það verið ’03.
En Scoutinn minn fór beinustu leið í hringrás eftir veltuna.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.is
05.11.2008 at 01:46 #632206Góðan daginn,
trefjaplast þarf ekkert öðruvísi meðferð heldur en ef þú værir að vinna hjá þér bretti, nema ef plastið er mjög gróft þá þarf kannski að bæta við umferð af fylligrunn. Sem reyndar allir sem selja bílalökk selja.
Ég myndi setja mjög þunnt plast límband á brettin undir kanntana líma þá svo á með límbyssu. Nóg að setja á tvo staði, setja svo trefjaplast í allar rifur milli kants og brettis, sem sagt fella þá betur á. Það er ekki alltaf sem kantarnir falla smurðir á frá framleiðendum. Reyndar er þetta svolítið smekksatriði, ég t.d vill ekki hafa neitt bil á milli, svo fúan verði mjög fín.
En rétt er þetta hér á undan hjá Kristjáni með Plastgrunnin á orginal hluti oft.
Kveðja Hjörtur og [url=http://www.jakinn.is/?album:uda3um4g]JAKINN[/url:uda3um4g]
24.10.2008 at 13:12 #631656Góðan daginn,
hefur þetta kannski eitthvað að gera með hvort þú sért að nota Mozilla Firefox, ég lenti í því þegar ég var að reyna að setja inn myndi á spjallið þá gekk ekkert fyrr en ég skipti yfir í Internet Explorer.
Vona að þetta sé ástæðan hjá þér.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.is
08.09.2008 at 00:29 #629068Illan daginn,
ég hata þessa andskota sem vaða yfir allt og alla!!!!!!!!!!
Það virðist ekki vera neinn vegur að stöðva þessa andskota, ég vona að mér fyrirgefist orðbragðið en ég get ekki setið á mér gagnvart þessum mönnum.
Landsvirkjun vill gera meir og meir eðlilega, Virkjanafyrirtæki í fullum blóma. Ég veit ekki hvað gera skal, en vissulega verður eitthvað að gerast.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
04.09.2008 at 22:44 #628770Góðan daginn,
ég tek undir með Matta með Bílasetrið í Mosó, ég hef oftar en einu sinni átt við þá og mæli hiklaust með þeim.
Sandgjarnir mjög og blása bæði með gleri og sandi.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
28.08.2008 at 00:15 #628318Góðan daginn,
ég hef ekki farið í svona ferð, en hef hug og er að spökulera hvort menn eru að taka konurnar sínar með í svona ferðir??
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
26.08.2008 at 12:20 #627912Góðan daginn,
Ég skoðaði mig um á Kárahnúka svæðinu sumarið (06) Kringilsárrana Töfrafoss og fleiri svæði þar í kring. Það sem kom mér mest á óvart var að það svæði sem átti að fara undir vatn VAR GRÆNT OG VEL GRÓIÐ. Virtist sem að sá þáttur hefði verið settur í neðstu skúffuna svo ekki yrði talað um hann.
Ég talaði um grænu svæðin við mann nákomin mér og rak hann upp svaka hlátur HA HA HA og spurði svo af hverju ég hefði farið að skoða þetta svæði. Ég sagði af því að það væri að hverfa. Hann sagði, ákkúrat þú hefðir aldrei farið annars, það fer enginn þarna uppeftir hvort eð er, þetta svæði skipti engu máli. Ég gafst upp finnst ekki vert að rökræða við svona menn.
Kveðja Hjörtur og JAKINN [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_Soley.jpg[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_06.jpg[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_04.jpg[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_03.jpg[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_01.jpg[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_02.jpg[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_07.gif[/img:1blk3wdz] [img:1blk3wdz]http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar_05.jpg[/img:1blk3wdz]
25.08.2008 at 22:39 #628086Góðan daginn,
já "EKKI GOTT" "EKKI GOTT"
En þeir eru ekki parhrifnir skotveiðimenn á HLAD.is segja að við jeppamenn séum að skella skuldinni á þá, taka ekki tillit til afsökunarbeiðnar Ofsans. En þar kom einn með góða lausn að ég tel og ekki mjög dýra en hún er eftirfarandi…………………………………………………….. http://www.cabelas.com/cabelas/en/templ … stid=83779Kveðja Hjörtur og JAKINN
25.08.2008 at 21:43 #627902Góðan daginn,
væri ekki sniðugt að útbúa spurningar af einhverjum undrum, fossum eða bara einhverju sem einu sinni var og leifa fólki ð spreita sig á því?
Kveðja Hjörtur og JAKINN.Get ekki sett inn mynd
En hér er slóðin á Fossinn ef einhver getur
http://www.jakinn.is/skrar/Karahnjukar.JPG
Skjótið nú hvað heitir Fossinn?????
28.07.2008 at 01:52 #626446Góðan daginn,
svo virðast aðrir ekki vita að Orka er á Stórhöfða 37.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
27.07.2008 at 12:26 #626442Góðan daginn,
vax er líklegast besta riðvarnar efnið, EN ég myndi ekki setja það á bert járnið (þó betra en ekki), ég myndi grunna undir með epoxý grunn. En þetta gerir maður ekki áður en maður lokar einhverju með suðu, það er ekkert mál að spreyja bæði grunn og vaxi inn í sílsinn þó búið sé að loka sílsinum. Það eru jú til grunnar undir suðu en suðugæðin rýrna, því stundum virkar hann eins og drulla og skemmir, mín reynsla er sú að best sé að sprauta inn í hluti eftirá.
Vaxið fæst í Bílanaust, Orku og þessháttar búðum.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
09.07.2008 at 00:27 #625546Góðan daginn,
felguboltar úr Econoline og jafnframt mörgum öðrum Amerískum trukkum eru oft 9/16" og er það ívið sverari sverleiki en 14mm.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
05.07.2008 at 00:32 #625340Góðan daginn,
það er nú alveg óhætt að treysta strákunum hjá N1, en þeir eru ágætir í hinum búðunum einnig.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
27.06.2008 at 08:58 #202599Góðan daginn,
hvar kaupi ég gott slökvitæki í bílinn hjá mér á hagstæðu verði?
Kveðja Hjörtur og JAKINN
23.05.2008 at 17:53 #623360Góðan daginn,
ég heyrði einu sinni að gúmí nærðist á talkúmi þann að það er örugglega gott að setja það á dekkin og svo myndi ég halda að það væri nóg að vernda þau fyrir sólinni, því blessuð sólin hún skemmir allt!!
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
14.05.2008 at 00:03 #622928Góðan daginn,
þetta er í raun ekki flókið, þú skerð ca 2" fyrir ofan rennu og lætur svo nýja toppinn koma utan yfir og hnoðar svo. Það er gott að skilja orginal toppinn eftir fyrir ofan framstólana, bæði er meiri styrkur í kringum ökumann og farþega og einnig myndast hilla sem hægt er að loka fyrir og setja lítið op eða hurð og er þetta þá eins og skápur.
Þegar þú setur toppinn yfir þá er gott að vera búinn að sulla nóg af kítti undir (Sikaflex 11 FC eða Límkítti frá Whürt) og kítta svo einnig í rennuna og putta það svo, setja svo lellu á hnoðin áður en þeim er stungið í götin og einnig yfir þau á eftir. Það eru til lokuð hnoð sem eru góð í svona lagað þau leka síður.
Toppanir eru úr trefjaplasti og fást hjá Bílabúð Benna en það er möguleika á að ég geti reddað topp, ég veit það ekki nú.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
29.04.2008 at 00:10 #621768Góðan daginn,
þetta er bara tær snild svonalagað á heima undir linknum Fróðleikur.
Allavega að setja þetta þar sem auðvelt er að fynna það.
Kveðja Hjörtur og JAKINN.
27.04.2008 at 12:21 #621554Góðan daginn,
á bloggi mbl.is var eftirfarandi og er ég svo innilega sammála því að ég verð að láta það koma hér en færslan er eftir Bjarna Harðarson.Aðgerðir vörubílstjóra gegn háu olíuverði eru meira en skiljanlegar. Þær eru barátta manna sem hafa margir hverjir engu að tapa. Það er aftur á móti raunalegt að sjá mótmælin snúast upp skrílslæti með eggjakasti ungmenna og almennri vitleysu. Lögreglan lendir hér í raunalegu og leiðinlegu hlutverki sem laganna verðir reyna að gera gott úr. Allt vegna óskiljanlegrar þrákelkni ríkisstjórnarinnar.
Þrákelkni vegna þess að með því að koma til móts við bílstjórana og lækka álögur á bensíni og olíu geta stjórnvöld um leið unnið mikilvægan varnarleik á móti verðbólgunni.
Ábyrgð ráðherra á að aðgerðirnar eru vikum saman í farvegi sem þessum er mikil. Það eitt að kalla bílstjóra að raunverulegu samningaborði væri leið til að binda enda á aðgerðirnar.
Hluti af vanda vörubílstjóra er einmitt algert aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.En málið er nú komið í þann hnút að ríkisstjórnarmeirihlutinn sterki setur kapp sitt á að láta ekki undan þrýstihópi, jafnvel þó tillaga hans sé bæði réttmæt og skynsamleg. Það er mjög miður að svo barnaleg sjónarmið ráði hjá æðstu valdamönnum þjóðarinnar.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
02.04.2008 at 09:29 #618824Góðan daginn,
þú sem keyrðir við hliðina á mér á brúnum Villis á miklubraut vilt þú hafa samband við mig en netfangið mitt er hjortur(hjá)jakinn.is.
Ég er á giltum Silverrado með hvítu pallhúsi og sérnúmerið JAKINN.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
02.04.2008 at 09:27 #618934Góðan daginn,
þú sem keyrðir við hliðina á mér á brúnum Villis á miklubraut vilt þú hafa samband við mig en netfangið mitt er hjortur(hjá)jakinn.is.
Ég er á giltum Silverrado með hvítu pallhúsi og sérnúmerið JAKINN.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
-
AuthorReplies