Forum Replies Created
AuthorReplies
08.09.2016 at 00:29 #940767
Ef veður verður skaplegt !!!
31.08.2016 at 09:08 #94033813.06.2016 at 00:37 #938202Góðan daginn,
ég vil þakka kærlega þeim góða hóp sem kom að þessari Landgræðsluferð. Veðrið lék aldeilis við okkur og var þetta hin ánægjulegasta ferð. Dreifðum við 1200 kg af áburði og settum niður um 250 plöntur. Fórum svo í sund og svo var grillað læri og með því ýmislegt meðlætið mjög gott.
Kveðja Hjörtur SS
13.06.2016 at 00:37 #938201Góðan daginn,
ég vil þakka kærlega þeim góða hóp sem kom að þessari Landgræðsluferð. Veðrið lék aldeilis við okkur og var þetta hin ánægjulegasta ferð. Dreifðum við 1200 kg af áburði og settum niður um 250 stykki plantna. Fórum svo í sund og svo var grillað læri og með því ýmislegt meðlætið mjög gott.
Kveðja Hjörtur SS
10.06.2016 at 19:14 #938195Hér eru nýjustu tölur á fjölda manna…
Jón Guðmundsson og frúÁrni Bergs og frú
Þórarinn Garðarsson
Viggó og frú í Húsbílunum
Hjörtur S Steinason
Samtals 8 mans
10.06.2016 at 00:00 #938192Góðan daginn,
Hér eru orð Hreins í Hekluskógum en ég var að fá frá honum tölvubréf …….
Sæll Hjörtur Jú endilega reyna að ná sæmilegum hóp uppúr. Við verðum líklega með tvo stórsekki af áburði. Það er orðið heldur þurrt í dalnum svo við gróðursetjum minna og berum heldur meira á. Spáin er ágæt og væri gott ef fólk hefði flugnanet með sér en mývargurinn er mættur á svæðið.
Ívar Örn Þrastarson verður á staðnum, með verkfæri og skjólur og getur hitt ykkur t.d. 11:00 á laugardag við tjaldsvæðið í Sandártungu. Jóhannes aðstoðarskógarvörður í Þjórsárdal verður búinn að koma sekkjunum á staðinn.
Hekluskógar greiða fyrir tjaldsvæðin eins og undanfarin ár fyrir 4×4 hópinn.
Bestu kveðjur HreinnSjáumst uppfrá kveðja Hjörtur SS
09.06.2016 at 23:55 #938188Góðan daginn,
hér eru orð Hreins í hekluskógum en ég var að fá frá honum tölvubréf …….
Hreinn
Sjáumst uppfrá kveðja Hjörtur SS
09.06.2016 at 01:50 #938184Góðan daginn,
spáin er eins og ég skipulagði sólrík og fín með SA golu til að halda flugunni í skefjun. En þeir sem eru búnir að Melda sig eru
Jón Guðmunds og frú
Bergur Pálsson og félagi
Árni Bergs og frú
Þórarinn Garðars
Viggó og frú í Húsbílunum
Hjörtur
Samtals 10 stk
Gott væri áður en ég fer í lærin að vita hversu marga munna þarf að metta, og gefum við okkur því fimmtudaginn sem loka dag.
Kveðja Hjörtur SS Umhverfisnefnd
29.05.2016 at 22:13 #93812629.05.2016 at 22:13 #938123Góðan daginn,
Helgin 10 – 12 júní var valin til að fara Landgræðsluferðina. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið á síðasta ári og farið sunnar á holtið. Vonandi mun fríður hópur manna taka vasklega til hendinni í príðilegu veðri á laugardeginum og ekki líta upp frá störfum fyrr en allur áburður er dreifður og allar trjáplöntur eru gróðursettar. Í framhaldinu verður svo grillað á tjaldstæðinu í Þjórsárdal og átt góða stund fram eftir kvöldi. Þess má geta að frítt er fyrir hópinn á tjaldstæðinu alla helgina.
Svæðið við Núpsskóg og Þórðarhöfða getur í framtíðinni ef vel tekst til orðið að yndislegri vin með góðri aðstöðu fyrir félagsmenn til útiveru og samveru. Það veltur fyrst og fremst á okkur sjálfum að láta það verða að veruleika.
Sjá má umfjöllun og myndir af störfum okkar hér…. http://www.jakinn.is/?album=landgraedsluferd-2013Gott væri ef félagsmenn tilkyntu hér í þennan þráð með þátttöku svo auðveldar verður að haga innkaupum á mat…………..
16.03.2016 at 00:18 #937010Gaman af þessu !!!
Kveðja JAKINN
18.01.2016 at 01:09 #936126Góðan daginn,
ég finn hvergi dagsetningu á þessari ferð !!!
Ef að einhver sé að spökulera þá er gott að hún það er að segja DAGSETNINGIN sé einhvers staðar !! Er það ekki ???Kveðja Hjörtur og JAKINN
17.12.2015 at 01:08 #935367Góðan daginn,
vill nú bara nefna ef þið skoðið tímasetningar að Ragnar Freyr Magnússon er sennilega að skrifa sitt innlegg þegar Hafliði Sigtryggur Magnússon setur inn sitt innlegg. Alveg er ég viss um að Ragnar vissi ekki og jafnvel veit ekki enn af innleggi Hafliða.
Kveðja Hjörtur og JAKINN
04.12.2015 at 14:54 #935066Góðan daginn,
þegar pabbi var að keyra leigubíl hér á árum áður þá voru þeir meira og minna allan veturinn á Steinolíu blöndu allt að 60% Steinolía þegar kaldast var. En áður en Steinolían hækkaði þá voru menn að aka um á Steinolíu eingöngu að meinlausu !!
Kveðja Hjörtur og JAKINN
24.11.2015 at 01:43 #934821Góðan daginn,
já virkur var Ómar mjög og skemtilegur með eindæmum. Alltaf grunnt á gleðinni, brosið og hláturinn alltaf mjög stutt í það. Jeppaferðir, veiðiferðir hringja í Ómar þegar maður var kannski tilbúinn og kominn með allt sitt drasl í bílinn og einhverra hluta vegna var hringt of seint í Ómar. Ekkert mál sagði hann gefðu mér 20 mín og þá verð ég klár. Ég dáðist af þessum eiginleika Ómars og reyndar svo margra annara hans fádæma eiginleikum. Ómar fylgdist mjög vel með og var með skoðanir á mörgu, maður kom ekki að tómum kofanum þar.
Úr Breiðholtinu liggja hlýir straumar til aðstandenda sem fá samúð okkar alla
04.09.2015 at 18:26 #926246Bergur þþú ert með rangar tölur það eru 15 sem fara í ferðina
K Hjörtur SS
04.09.2015 at 10:25 #92619104.09.2015 at 01:03 #92609903.09.2015 at 12:54 #92603003.09.2015 at 12:31 #926025Góðan daginn,
sýnist mér að eftirfarandi fjöldi muni vera í þessari stikuferð…
14 mans og 6 bílar
Hjörtur og JAKINN
Sverrir Kr Bjarnason og Magnús Guðmundsson + bíll
Jón Guðmundsson + bíll
Bergur Pálsson + bíll
Jakob Á Jóhannsson og 2 farþegar + bíll
Gunnar Sigurfinnsson + bíll
Þorvaldur Örn Árnason + 4 mans
Þorvaldur hjá Sjálfboðaðliðasamtökunum um náttúruvernd og hans fólk, ja við ákváðum að þau myndu deila sér í bíla hjá okkur.
Við ætlum að stika sunnanmegin við Valafell og keyra í átt að Bjallarvaði, smá krókur er inn í Valagja sem við kíkjum á. Frá Bjallavaðs afleggjaranum keyrum við inn Áfangagil og alveg að Laufdalsvatni eða afleggjaranum inn að Ljótapolli. Þessi leið er kölluð Valagja – Dyngjuleið. Þessi leið er ca 24 km.
Síðan ætlum við að taka línuleiðina inn að Ljótapolli sem viðbót ef hitt gengur vel þessi leið er ca 7 – 8 km.
Nú við fáum inni í Landmanna helli hjá henni Snæu tvö 8 manna hús. Hann Engilbert Olgeirsson í Nefsholti sem sér um skálana býður okkur gistinguna endurgjaldslaust. Hafi hann bestu þakkir fyrir. Við bjóðum upp á lambalæri og með því á laugardags kvöldið. Annað matarkyns sér hver um sig.
Við verðum með Stikur, glitmerki, og hamra nema Jakob hann með sinn bita. Gott er ef einhver á heftibyssu sem sá hinn sami myndi koma með því við erum ekki með nema 3 byssur. Vetlinga er einnig nauðsynlegt að hafa með í för og góðan og hlýjan skjólfatnað því eitthvað kemur til með að rigna á okkur.
Brottför er frá Síðumúlanum kl 19:00 föstudagskveldið 4 sept
Kveðja Hjörtur SS
AuthorReplies