FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Ingi Óskarsson

Björn Ingi Óskarsson

Profile picture of Björn Ingi Óskarsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 226 total)
← 1 … 8 9 10 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 08.01.2009 at 13:00 #636670
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þetta verður skoðað og takk fyrir upplýsingarnar.
    Læti ykkur vita hvað kemur út úr þessu.

    Kv. BIO





    08.01.2009 at 11:25 #636728
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er nokkuð viss um að skráningin fylgir grindinni
    þannig að hann yrði skráður samkvæmt nýju grindinni.Hitt er svo annað að það hefur verið leikið að setja grindarnúmerið af gömlu grindinni yfir á þá nýju en það er að sjálfsögðu ekki leyfilegt ef út í það er farið;-)

    Kv. BIO





    08.01.2009 at 10:02 #636666
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er ekki alveg viss með hvaða skipting er í honum gæti verið það sem SiggiHall nefnir eða þá 4R70W en þetta er allavega 7.3 Powerstroke vélin. Þetta með hraðamælinn gæti verið rétt því ég hef séð að nálin er stundum kyrr á hægum snúning og stekkur svo af stað þegar hraðinn eykst.
    Mér dettur í hug hvort að það geti haft áhrif að það er búið að skipta tvisvar um hlutföll í honum og virtist hann heldur versna nú í seinna skiptið. Ég þekki ekki hvernig leiðréttingu á hraðamælinum er háttað.

    Kv. BIO





    07.01.2009 at 20:45 #636658
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sælir strákar. Ég er ekki alveg klár á hvaða millikassi er í honum, þekki það ekki nógu vel þar sem ég á ekki bílinn. Þetta með rakan gæti verið hluti af þessu en þetta er búið að vera viðvarandi held ég frá því að bílnum var breytt en er heldur að versna. Það rifjaðist upp fyrir mér áðan að þegar hann fær þessi "köst" þá blikkar overdriveljósið á fullu þó að overdrive sé ekki á.
    Kannski segir það ykkur eitthvað. Held að það sé búið að prufa að aftengja geymana og núlla tölvuna.

    Kv. BIO





    07.01.2009 at 18:49 #203502
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Getur einhver sagt mér hvaða vandamál getur verið að hrjá skiptingu í Ford Econoline E350 7,3 dísil sem lýsir sé í því að hann er djöflast á milli gíra og er verstur í lágadrifinu en ber líka á þessu í hádrifinu og þá sérstaklega eftir mikla keyrslu í lágadrifi. Sem dæmi þá ertu kannski í öðrum (fastagírnum) og í lágadrifinu og þá er hann stanslaust að skipta sér á upp og niður. Í háadrifinu getur þetta lýst sér þannig að þú ert kannski á lítilli ferð og lágum snúning og þá er hann kannski að kvelja sig áfram í hæsta gír og svo kannski í eðlilegri þjóðvegakeyrslu neglir hann niður í fyrsta gír og allt á yfirsnúning. Þetta virðist vera verst eftir mikinn akstur í lágadrifi en virðist svo jafna sig og er ég ekki frá því að hann sé verri eftir dálítið vatnssull. Þegar þetta gerist þá virðist skiptingin höggva en ekki skipta sér eðlilega. Það er rofi við skiptinguna sem fer á þegar hann er í lágadrifinu og er held ég til að leiðrétta skiptitölvuna þegar hann er í lágadrifinu (til að hraðamælir sé réttur ef ég fer rétt með) og það er búið að prufa að aftengja hann og breytti það engu. Það er milligír í þessum bíl líka ef það gæti skipt einhverju máli. Það er hitamælir á skiptingunni og ekki er hægt að sjá að hún sé hitna óeðlilega svo það getur varla verið málið. Vantar endilega að heyra í einhverjum sem gæti sagt mér eitthvað um hvað gæti verið að.

    Kv. Björn Ingi H1995





    06.01.2009 at 15:03 #636454
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ágætis ábendingar hjá þér Bragi. Það sem ég hef verið að spá í er að fá mér snertiskjá og eBox smátölvu sem fást hjá Leiðum ehf og svo fær maður sér nettengingu í gegnum GSM kerfið og þá er maður klár í slaginn.
    Já og meðan ég man tenglarnir virka ekki, verður að sleppa http:// þegar þú setur inn tengla.

    Kv. BIO





    04.01.2009 at 21:57 #636266
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Virka þá engin ljós, útvarp, þurkur eða slíkt. Ertu búinn að athuga svissinn og að jarðsambönd séu í lagi. Einnig eru oft stór öryggi (Fusible Link) í boxi fram í húddi sem geta farið. Oft bölvuð leiðindi að fást við svona rafmagnsvesen. Best að nota útilokunaraðferðina og prufa sig áfram.

    Kv. BIO H1995





    23.12.2008 at 19:23 #635230
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég tel það nokkuð víst að slíkur búnaður sé í þessari árgerð, en þetta er nú bara hugmynd og ekkert víst að þetta tengist á nokkurn hátt þessu vandamáli.

    BIO





    23.12.2008 at 12:50 #635224
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    En þar sem þetta vandamál var ekki til staðar áður en kveikjan bilaði gæti þetta verið tengt kveikjunni sem þú settir í núna. Heyrði einhvertíma að stíflaður EGR ventil gæti valdið slíkum gangtruflunum en þekki það ekki af eigin reynslu.

    Kv. BIO





    21.12.2008 at 13:32 #635072
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Persónulega finnst mér 6000 kall ekki mikið fyrir slíkan félagsskap og
    það sem hann gerir fyrir okkur jeppamenn . Það er afstætt hvað mönnum þykir dýrt eða hafið þið spáð í hvað sumir eyða á ári í gos og sælgæti og þykkir ekki stór mál, bara svona sem dæmi. Ef ég þyrfti að velja þá væri það ekki spurning hverju maður mundi sleppa. Ég er nú að verða búinn að vera félagi í ár og er held ég langt í búinn að fá til baka félagsgjaldið í afsláttum og slíku þó ég búi út á landi þannig að það á ekki að vera vandamál.

    BIO H-1995





    18.12.2008 at 10:51 #634918
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Segi nú bara, hvað voru hönnuðir Nissan að hugsa. Þessi er eins og afkvæmi Pajero og Hyundai SantaFe, ekki góð blanda það.

    BIO





    17.12.2008 at 11:48 #633458
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Gæti verið raki í einhverju tengi eða relayi. Var að kljást við svipaðan draugagang í Terrano fyrir allnokkru og þá var það relayið fyrir ljósasprauturnar (pissið á aðalljósin) sem var fullt af vatni. Það orsakaði allskonar vandamál, rúðuþurkurnar fóru af stað í tíma og ótíma, dagljósabúnaðurinn ruglaðist og annað í þeim dúr. Það tók mig langan tíma að finna út úr þessu og var það ekki fyrr en ég fann orsök vatnslekans sem ég komst á sporið. Það sást ekkert á relayinu þangað til búið var að opna það og var það þá fullt af vatni. Það merkilega var að það gat liði þó nokkuð á milli kasta ef svo má segja og það fóru aldrei nein öryggi eða neitt slíkt.

    Kv. BIO





    15.12.2008 at 13:39 #634714
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Lenti í svipuðu á bíl sem ég átti fyrir nokkru. Varð alltaf rafmagnslaus þegar hann stóð í einhvern tíma og það var búið að gera ýmsar kúnstir til að finna hvað væri að en bilunin kom ekki í ljós fyrr en hann hætti alveg að hlaða og nýr alternator var settur í hann þá hvarf þetta vandamál. Var mér sagt að ef díóðubrettið í alternatornum væri að gefa sig gætti það of byrjað á að leiða til jarðar og þar með gert bílinn rafmagnslausan á stuttum tíma.
    Þú gætir prófað að aftengja alternatorinn og sjá hvað gerist. En þetta er nú bara ein hugmynd, það er bölvað vesen að finna út úr svona rafmagnsveseni. Gangi þér vel

    Kv. Björn Ingi H-1995





    06.12.2008 at 14:05 #203325
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég hef stundum velt því fyrir mér varðandi herslur á heddboltum, að í flestum tilfellum er gefinn upp ákveðin hersla t.d 65 Nm og síðan 90° í viðbót. Við þetta hlýtur herslan að enda í einhverri ákveðinni tölu sem maður í raun veit ekki hver er. Spurningin er þessi af hverju er þetta gert svona en ekki bara gefinn upp hersla í tveimur þrepum, kannski fyrst í 65 Nm og svo kannski í 75 Nm eða þar um bil. Sé ekki alveg muninn ef herslan endar í sömu tölu. Þessar tölur sem ég nota hér eru ekki neinar sérstakar herslutölur heldur bar eitthvað til að sýna fram á hvað ég er að fara. Ég veit að það er fullt af furðulegheitum í kringum herslur á heddboltum eins og herða fyrst og slaka svo og herða svo aftur í fulla herslu og stundum + 90° og svo gildir auðvitað ekki það sama um teygjubolta og ekki teygjubolta.
    Langar bara að vita hvort einhver veit þetta og væri til í að deila því með okkur hinum (kjánunum)

    Kv. BIO H-1995





    22.11.2008 at 18:47 #633234
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Á bágt með að trúa að það sé ekki skynjari fyrir loftflæðið inn á vélina (Mass Air Flow Sensor) það er á nánast öllum nýlegum dísilvélum. Sensorinn er yfirleitt staðsettur við lofthreinsarann á lögnini að vél. Ef þessi skynjari bilar fer vélin að ganga illa sérstaklega á lágum snúningi eða í hægangi og eyðslan ríkur upp. Þetta þarf ekki að vera neitt tengt þessu vandamáli hjá þér en væri rétt að athuga það. Er hann með olíuverk eða commonrail? EF hann er ekki með olíuverk getur þú allavega útilokaða það.

    Kv. BIO





    22.11.2008 at 15:05 #633228
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Er búið að tékka á öllum skynjurum og svoleiðis dóti, gæti t.d. verið loftflæðiskynjari eða jafnvel inngjafarsýstemið sjálft. Ef þetta er eitthvað svipað og í Terrano 2000 módelinu þá er inngjöfin rafstýrð og það gæti einmitt líst sér á þennan hátt. Þetta kerfi er í rauninni bara svona stilliviðnám (eins og styrkstillir á útvarpstæki) sem inngjafarpedalinn snýr og einhverskonar servomótor sem snýr inngjafarspjaldinu, ef óhreinindi eða annað komast í þetta er fjandinn laus. Lenti í því að það voru kominn óhreinindi í þetta á Nissan Terrano frúarbílnum og hann lét eins og ótemja á lítilli inngjöf en skánaði þegar meira var gefið inn. Ég gat hreinsað þetta og þá snarlagaðist hann, en guð hjálpi þér ef þú þarft að kaupa nýtt í þetta því mig minnir að þegar ég tékkað á verði á þessu, þá kostaði það 60 þúsund og það er meira en ár síðan.

    Kv. BIO H-1995





    19.11.2008 at 15:22 #623410
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    kann að vera rétt en þó að Toyota sé góðir bílar þá bila þeir því miður eins og aðrir en eitt mega þeir hjá Toyota eiga að óvíða er betri þjónustu að fá og það þekki ég af reynslu. EN hafa menn einhverjar haldbærar upplýsingar um þetta "kínadót" til að geta sagt til um hversu vont eða gott þetta er í rauninni.

    Kv. BIO





    19.11.2008 at 13:06 #623406
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    ekki setja bara alvöru Nissanvél eins og þessa hérna [url=http://www.youtube.com/watch?v=Yj5fvc1kY4w&feature=related:15s3hs49][b:15s3hs49]4.8[/b:15s3hs49][/url:15s3hs49] línu sexa með turbo og er greinilega að virka. Það er ekki allt ónýtt frá Nissan. 😉

    Kv. BIO





    14.11.2008 at 08:14 #632734
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Takk fyrir góð svör. Þetta staðfestir það sem ég hélt að þarna væru góðar vörur á góðu verði og góð þjónusta. Ekki veitir nú af að spá í hvar maður fær mest fyrir krónuræfilinn þessa dagana.

    Kv. BIO





    13.11.2008 at 17:13 #203197
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Hefur einhver reynslu af vörum frá Icefin. Ég sé að þeir eru komnir í hóp afsláttaraðila hér á síðunni hjá okkur og eftir að vera búinn að renna yfir síðuna hjá þeim sýnist mér að þar sé verið að bjóða góð verð. Þess vegna spyr ég hvort einhver þekki þessar vörur og hafi reynslu af þeim.

    Kv. BIO H-1995





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 226 total)
← 1 … 8 9 10 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.