FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Ingi Óskarsson

Björn Ingi Óskarsson

Profile picture of Björn Ingi Óskarsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 226 total)
← 1 … 7 8 9 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 06.02.2009 at 10:32 #203752
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sælir félagar
    Nú er verið að pæla í Rocky mótor (2.8 turbo) í Súkkuna og setja þá allt draslið í, gírkassa og millikassa. Ég hef séð hér á gömlum þráðum að millikassinn í Rocky sé með 30% niðurgírun í háadrifinu en getur einhver sagt mér hver hlutföllin eru í kassanum, þá á ég við bæði í há og lágadrifinu. Ég er bara að spá í hvort ég geti notað þetta með hásingunum sem ætla að setja undir sem eru með 4:10 hlutföllum og myndi þá losna við að skipta um hlutföll. Ég vil endilega fá hugmyndir og komment hjá ykkur á þessar pælingar.

    Kv. BIO





    04.02.2009 at 17:39 #640066
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    En ég held að hér sé smá misskilningur á ferð. Mér sýnist að þetta sé aðeins til að testa fyrir efni sem heitir hydroperoxides og ég veit ekki hvað nákvæmlega er (er ekki efnafræðingur) en þetta hefur eitthvað með geymslu á olíu að gera og að að gæði hennar rýrna við langa geymslu. Kannski veit einhver hvaða efnasamband þetta er.

    Kv. BIO





    29.01.2009 at 13:07 #639230
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég verð nú að vera sammála Óla með að þetta eru svolítið skrýtnar þjöpputölur. Ég veit að þjöppun í 2,8 Terrano vélinni er gefinn upp 427 psi og lágmarkið er 356 psi. Held að sé vélin að mælast með svo lága þjöppu ætti hún að minnsta kosti að vera leiðinleg í gang ef hún þá færi yfir höfuð í gang.

    Kv. BIO





    25.01.2009 at 22:49 #638920
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það er nú ekki bara seinlegt að setja inn texta, það er nú ekkert sérlega fljótlegt að setja inn myndir heldur ef það er eitthvert magn af myndum sem setja á inn . Vonandi verður betra viðmót á nýja vefnum. Hvað er annars að frétta af nýju vefsíðunni, veit einhver hvenær hún verður tilbúin.

    BIO





    25.01.2009 at 19:53 #638932
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Bragi láttu mig endilega vita ef þú ferð út í þetta því ég get losað þig við gömlu hásingarnar :-)

    Kv. BIO





    25.01.2009 at 14:35 #638878
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Er búinn að vera að velta þessu fyrir mér við hvað er miðað við til að "jökull" teljist jökull en ekki skafl og væri gaman að vita þá skilgreiningu. Ég hélt að þar sem aldrei leysti snjó væri hægt að kalla jökull. En við förum nú ekki að stæla um það hér, jökull er jökull ef hann heitir það og ég hélt líka að allir þeir jöklar sem hér er búið að minnast á væru jöklar. Það greinilega borgar sig ekki að fletta upp á Vísindavefnum eða þannig.

    Kv BIO





    25.01.2009 at 12:51 #638868
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Samkvæmt heimildum [url=http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4181:uc3cktbi][b:uc3cktbi]Vísindavefur Háskóla Íslands[/b:uc3cktbi][/url:uc3cktbi] eru aðeins 9 taldir sem jöklar en nokkur svæði sem alltaf eru þakinn snjó ekki talin með og er t.d Ok þar á meðal sem að samkvæmt þessu telst því ekki jökull lengur. Við skulum vona að þeir viti hvað þeir eru að segja þarna á Vísindavefnum. Hvað varðar þá jökla sem ekið hefur verið á þá veit ég bara um þessa sem ég nefndi.

    Kv. BIO





    25.01.2009 at 09:33 #638860
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Jöklar eru 9 talsins og eru Vatnajökull, Langjökull, Hofsjökull, Snæfellsjökull, Drangajökull, Eiríksjökull, Eyjafjallajökull, Mýrdalsjökull og Tungnafellsjökull. Ekið hefur verið á Vatnajökull, Langjökull, Hofsjökull, Drangajökull og Snæfellsjökull.

    Kv. BIO H-1995





    20.01.2009 at 23:30 #638610
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    375 hestöfl eru 279,6 Kw (international) eða 275,8 (metric) og 415 ft lbf eru 562,6 Nm.

    Bio





    19.01.2009 at 10:59 #638126
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það eru ekki ósvipuð hlutföll í þessum bíl og Súkkuni hjá mér, nema að þessi er ábyggilega minnstakosti helmingi stærri og gæti næstum tekið hana á pallinn. Ég er ánægður með að menn prófi eitthvað nýtt og það hlýtur alltaf að verða einhver framþróun í þessu eins og öðru. En hvernig eru þessi tröll í hliðarhalla þegar þau eru orðinn svona mikið hækkuð.

    Kv. BIO





    19.01.2009 at 10:33 #638450
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Eiga menn alltaf að segja hug sinn en í svona málum ekki nema að vel athuguðu máli því það eru ætíð tvær hliðar og stundum fleiri á svona málum. Það eru til reglur um uppsagnir og ég efast um að fyrirtæki komist upp með að brjóta þær í kreppu frekar en aðra daga.
    Ég hef verslað við R. Sigmundsson og hef ekkert nema gott um þá að segja og held því sjálfsagt áfram þrátt fyrir þetta.

    Kv. BIO





    19.01.2009 at 10:19 #638392
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Hefur enginn neitt um þetta að segja, er þetta kannski svona vitlaust að það tekur því ekki að svara þessu. :-) Spyr sá er ekki veit.

    Kv. BIO





    18.01.2009 at 00:00 #203585
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er að spá í að setja í bílinn hjá mér auka rafgeymir og hleðslustýringu á hann (þessa sem Aukaraf er að selja) hefur einhver reynslu af þessum búnaði og er eitthvað sem ber að varast. Hugmyndin er að tengja aukarakerfið á seinni geyminn.

    Kv Björn Ingi





    17.01.2009 at 23:50 #638368
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Hafðu bara samband ef eitthvað er. Ég hef smá reynslu af að eiga við rafmagnsvesen í Terrano.

    Kv. BIO





    17.01.2009 at 23:30 #638364
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sennilega rétt hjá þér að einhverstaðar sé lélegt tengi að skemmdur kapall. Hvaða árgerð er bíllinn? Ég á til rafmagnsteikningar af 2000 árgerð ef það getur eitthvað hjálpað, allavega betra að vita hvar best er að byrja að leita. Reyndar á ég viðgerðarhandbókina fyrir Terrano II eins og hún leggur sig ef einhvern vantar.

    Kv. BIO H-1995





    16.01.2009 at 22:28 #638256
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég verslaði Gabriel dempara undir Súkku þar fyrir 2- 3 árum og ég held að þeir hljóti að vera með þá enn í dag.

    Kv. BIO H-1995





    13.01.2009 at 13:36 #637228
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Eða Gleðigöndull er notaður eins og þú sér til að tengja saman tvo bíla til að auka drifgetu í mjög erfiðu færi. Annar ýtir og hinn togar og þú ert í raun kominn með farartæki með drifi á átta hjólum.
    Hef ekki séð þetta virka í eigin persónu en las skemmtilega frásögn í bókinni hans Ofsa (Á fjöllum) um notkun á þessum grip og þar virtist þetta virka vel.

    Kv. BIO





    12.01.2009 at 17:56 #637126
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Myndir úr ferð í Laugafell komnar inn.

    BIO





    12.01.2009 at 11:13 #637124
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Að morgni laugardagsins 10. jan. var lagt af stað á fimm jeppum frá Skagaströnd og stefnan tekin yfir í Skagafjörð og þaðan upp Vesturdal og Skagafjarðarleið í átt að Laugafelli. Gekk ferðin vel í byrjun þó ekki væri mikið um snjó og ekki var heldur mikill krapi til að hefta för að neinu ráði. Sóttist ferðin því ágætlega eða allt þar til smávægileg vandræði eins og brotið framdrif og tvö rifinn dekk fóru að hrjá hópinn. Var ákveðið að skilja þessa tvo bíla eftir og huga að þeim í bakaleiðinni. Gekk ferðin eftir það tíðindalítið og þær ár og sprænur sem fara þurfti yfir voru ísilagðar og héldu og voru ekki fartálmi og var komið í Laugafell milli kl. 19:00 – 20:00 um kvöldið. Þar var slappað af og farið í laugina, grillað og fleira gert sér til dundurs. Lagt var af stað til baka daginn eftir um hádegisbilið. Bílarnir sem skildir voru eftir gerðir klárir til heimferðar og síðan haldið áleiðis heim. Gekk það vel en stoppa þurfti annað slagið til að bæta í dekkin sem rifnuðu því þau héldu illa lofti. Lauk þessari ágætis ferð með heimkomu um kl 21:00 að kvöldi sunnudags og voru menn bara sáttir og var strax byrjað að plana næstu ferð.

    BIO

    P.S. Eitthvað var tekið af myndum og verða þær settar inn við fyrsta tækifæri.





    08.01.2009 at 22:16 #636672
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þá er búið að kíkja á skynjarann ofan á afturdrifinu
    og var svo sem ekki mikið að sjá. Hann virðist vera alveg óskemmdur og ekkert sá á tannhjólinu heldur en það gæti nú hafa komist raki skynjarann sjálfan. Er eitthvað hægt að mæla þennan skynjara og veit einhver hvað hann ætti að mælast. Sá á netinu að þessi skynjari væri fyrir ABS og signalið væri líka notað fyrir hraðamælinn. En ekkert hefur orðið vart við vandamál tengt ABS svo vitað sé. Á sömu síðu sá ég líka að það var talað um Programmable Speedometer Odometer PSOM hraðamæliseiningu og að þar sé hægt að leiðrétta hraðamæli þegar skipt er um dekkjastærð og þetta system gæti líka klikkast og þá væri fjandinn laus. Spurning hvort einhver leiðrétting hafi verið gerð þar gegar bílnum var breytt.
    Þetta virtist samt ekki vera í öllum bílum með þessa skiptingu (E4OD) svo ég veit ekki hvort þetta er í þessum bíl.

    Kv. BIO





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 226 total)
← 1 … 7 8 9 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.