FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Ingi Óskarsson

Björn Ingi Óskarsson

Profile picture of Björn Ingi Óskarsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 226 total)
← 1 … 6 7 8 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 19.04.2009 at 21:58 #646032
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þú finnur t.d. Mapsource 6.13.7 á kortadisknum frá R. Sigmundssyni útgáfu 3,5. MapSource er ekki hægt að nota til að keyra eftir til þess er notað nRoute sem er einnig á sama diski. Jú það er til USB tengdur móttakari til að nota við tölvu og eru þá kortin á tölvunni og móttakarinn sér vélinni fyrir staðsetningargögnum. Þetta virkar svona sæmilega oftastnær en getur þó dottið út þegar verst stendur á, það er að segja í kolvitlausu veðri. Móttakarinn er viðkvæmur fyrir því að eitthvað skyggi á hann t.d. ef hann er ekki alveg fram í rúðu þar sem best er að hafa hann og ég hef séð hann hætta að virka ef bíllinn er farinn að halla það mikið fram að toppurinn er farinn að skyggja á hann. Sem sagt ekki skotheld græja en nokkuð ódýr lausn fyrir þá sem eiga tölvu og vilja nota þetta svona.

    BIO





    19.04.2009 at 18:02 #646026
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er sammála þér Sigurbjörn að ég sé ekki alveg að hvaða leiti BaseCamp á að vera betra en ég er nú ekki búinn að skoða það mjög mikið því þessi bjögun á kortinu fer í pirrurnar á mér og þá nenni ég ekkert að vera að pæla í þessu. Væri gaman að vita hvort þeir sem komnir eru með nýjustu útgáfuna af Íslandskortinu væru lausir við þessa aflögun á kortunum.

    BIO





    19.04.2009 at 16:13 #646022
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sæll Sigurbjörn, þessi villa kemur upp ef skráin er skemmd eða ekki fyrir þessa útgáfu af Windows, t.d. ef þú hefur óvart hlaðið niður Mac útgáfunni. Reyndu bara að sækja skránna aftur og prófaðu svo að setja þetta upp aftur. Því miður Andri þá er þetta eftir því sem ég veit best ekki stillingaratriði, veit ekki hvort nýjustu kortin eru að virka betur er ekki búinn að prófa það.

    Kv. BIO H1995





    18.04.2009 at 19:32 #646016
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það sem ég sé nú að þessu í fljótu bragði er sama vesenið og með nýjustu útgáfuna af MapSource, kortið allt teygt og togað en kannski það sé í lagi ef maður er með nýustu uppfærslu af íslandskortinu. Ætla annars ekki að tjá mig mikið um þetta þangað til maður er búinn að prófa þetta betur.





    01.04.2009 at 08:20 #644844
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Fínnt að hafa aðra alltaf á skanni og hina á þeirri rás sem verið er að nota og þú missir ekki af neinu sem fram fer í kringum þig. :-)

    BIO





    30.03.2009 at 00:06 #204136
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Hér er eitthvað fyrir Toyotu kallana að skoða, fanna þessa ágætu vefsíðu
    sem mér sýnist vera tileinkuð Land Cruiser allt frá gamla 40 upp í nýja Fj Cruiserinn. Í spjallþráðunum (Forum) er margt að finna til fróðleiks og skemmtunar. Þar á meðal þetta, er ekki allt í lagi með menn að gera svona lagað.





    27.03.2009 at 11:25 #644540
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Veit að björgunarsveitin Blanda var ásamt fleirum á ferð þar um síðustu helgi og þá var mjög blautt og kannski ekki svo mikill snjór. Það hefur öruggleg breyst eitthvað síðan eftir að fór að frysta aftur. Hér eru [url=http://bfblanda.is/index.php?option=com_content&task=view&id=187&Itemid=35:2rouq2e0][b:2rouq2e0]myndir[/b:2rouq2e0][/url:2rouq2e0] úr þeirri ferð.

    Kv. BIO





    27.03.2009 at 09:29 #644488
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sæll Guðni
    Eftir smá leit á netinu er ljóst að ekki virðist vera mikið úrval af blöndungs milliheddum fyrir þessar vélar. Fann þó þessa síðu [url=http://www.moranav6racing.com/category.html?CategoryID=32:yapciov2][b:yapciov2]síðu[/b:yapciov2][/url:yapciov2] þar sem mér sýnist að menn séu að smíða þetta sjálfir. Allt í lagi að skoða þetta. Fyrir svona miðri síðu er mynd af þessu dóti og eins og ég sagði er þetta örugglega smíðað upp úr öðru milliheddi. Þú færir nú örugglega létt með að smíða þetta sjálfur

    Kv BIO [img:yapciov2]http://www.moranav6racing.com/img/Products/pictures/view%20of%204L%20man%20on%20engine.jpg[/img:yapciov2]





    26.03.2009 at 17:55 #644528
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég segi nú sama og Rúnar, skipta bara um olíu á drifinu það getur tekið tvö til þrjú olíuskipti en ætti að jafna sig eftir það. Einhvertímann heyrði ég að til væri bætiefni til að setja samanvið venjulega gírolíu til að gera hana nothæfa á svona læsingar, sel það ekki dýrara en ég keypti.

    Kv. BIO





    26.03.2009 at 11:45 #644460
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Já Heiðmar það væri auðvitað í lagi að kíkja á þetta hjá þér, reikna með að vera heima um helgina svo að ef þú ert á ferðinni líttu þá bara við eða þá að ég kíki á þig. Grindin í Súkkunni er töluvert mjórri svo að sennilega lenda stífurnar undir grindinni, ég þarf bara mæla þetta nákvæmlega en hef ekki gert það en þar sem ég er ekki búinn að ná í hásingarnar svo að ég er ekkert farin að máta þetta saman.

    Kv. BIO





    25.03.2009 at 21:14 #644406
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Held það sé alveg þess virði að skoða þessar smátölvur sem [url=http://www.leidir.is/index.php/sida/217:35uv9u5z][b:35uv9u5z]Leiðir ehf[/b:35uv9u5z][/url:35uv9u5z] hafa verið með og eru án nokkurra hreyfanlegra hluta. Gögn eru geymd á hálfleiðaradiski en ekki venjulegum hörðum disk svo högg og titringur hafa engin áhrif. Skella svo með þessu 10" – 12" snertiskjá og fá sér svo gpspung og netpung og þú ert kominn í bæði netsamband og með gps tæki, hvað er hægt að hafa það flottara. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur að vera að spjalla á MSN eða vera á Facebook einhverstaðar upp á fjöllum. Tær snilld.

    Kv. BIO





    25.03.2009 at 20:54 #644454
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Takk fyrir góðar ábendingar. Ég hafði ekki hugsað mér heldur að færa festingarnar á hásingunni sjálfri heldur var ég að velta fyrir mér afstöðunni á stífunum. Þannig er að mér sýnist að orginal sé heldur lengra á milli stífanna á hásingunni heldur en upp við grind, þannig að stífurnar dragist inn að aftanverðu ef ég get komið þessu rétt frá mér. Er aðallega að velta þessari afstöðu fyrir mér og hvaða áhrif það hafi að minka eða auka þennan mun. Loftpúðarnir hafa vissulega sína kosti, eins og t.d. þegar maður er kominn með 150 lítra af eldsneyti þá bætir maður bara aðeins í og heldur sömu fjöðrun og áður. Málið er að ég þarf að breyta loftpúðunum að aftan þegar ég skipti um hásingu þar sem púðarnir eru nánast neðan á grindinni en ég vil færa þá utar til að fá hann stöðugri og betri í keyrslu. Kannski það plús bætt framfjöðrun geri mig sáttari við púðana. Já það er gott að heyra að einhverjum líst vel á þetta brölt hjá manni, það hefur stundum hvarflað að manni að hætta þessu og fá sér bara bíla eins og allir hinir eru á en það er bara gaman að vera svolítið öðruvísi.

    Kv. BIO





    25.03.2009 at 16:33 #204103
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Nú langar mig aðeins að forvitnast hjá þeim sem hafa verið að gormavæða og fá smá ráðleggingar. Þannig er að nú er svo komið að það eru Toyotu hásingar á leið undir Súkku því hitt dótið er allt að verða ónýtt og nú síðast braut ég framdrifið (Dana27) og nenni þessu ekki lengur og ætla í hásingar undan LC 70. Um leið ætla ég að gormavæða að frama en held ég haldi mig við loftpúðana að aftan en skoða kannski gormana þar líka. Nú langar mig að fá að vita hver er besta afstaðan á stífum og slíku og hvort betra sé að þær séu nær grind en utar á hásingunni sjálfri. Er að pæla í þessu vegna þess að grindin í Súkku er heldur mjórri en í Crusernum og hvort ég ætti þá að smíða festingarnar lengra út frá grindinni eða hafa þær eins nálægt og hægt er.Vonandi skilst hvað ég er að fara með þessu en kannski skiptir þetta engu máli, en líka ef það er eitthvað annað sem ber að varast í þessum efnum þá væri gott að vita það, leiðinlegt að vera að finna upp hjólið aftur ef þess þarf ekki. Einnig ætti ég eitthvað að spá í að setja gorma í staðinn fyrir loftpúðana, þeir hafa sína kosti og galla eins og annað og þarna skiptast menn sjálfsagt í tvo hópa eða fleiri.
    Ausið nú úr viskubrunni ykkar góðir félagar

    kv. BIO H-1995





    11.03.2009 at 22:58 #643284
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það er alveg greinilegt að þessir hafa ekki lesið "How To Pull A Truck Out Of Mud 101"

    BIO





    11.03.2009 at 11:11 #642944
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þar sem að ég er eins og margir aðrir líka félagi í björgunarsveit langar mig að tjá mig aðeins um þessi mál. Ég er að mörgu leiti sammála því að það þurfi fjölbreytni í bílaflóru björgunarsveitanna en það fer ekki alltaf saman það sem er hagkvæmt og svo það sem væri æskilegt. Það hlýtur alltaf að vera dýrara að reka marga bíla heldur en kannski tvo eða þrjá, plús það að húsnæði til geymslu þarf að vera miklu stærra auk þess sem meiri mannskap þarf til að manna allan þennan flota af bílum. Ég er félagi í lítilli sveit úti á landi og þetta gengi bara ekki upp hér hjá okkur, höfum ekki húsnæði undir fleiri bíla en við höfum í dag og það kostar alveg nóg að reka þessa tvo bíla sem við höfum yfir að ráða. Við reynum að fara þar bil beggja og erum með Toyotu LC 120 á 38" sem er tiltölulega léttur og svo Ford Econoline á 46" sem er svo í þungu deildinni. Toyotan er meira notuð í snattið og svoleiðis en hinn í fólksflutninga og stærri verk. Því miður verðum við að sníða okkur stakk eftir vexti í þessu sem svo mörgu öðru. Sá kostur sem notaður er þegar þarf að komast fljótt yfir eru snjósleðar og þó þeir geti kannski ekki borið mikinn búnað eru þær góðir undanfarar, ekki má gleyma að fjórhjól á beltum koma líka vel til greina og geta borið meira en sleðarnir. Gleymum því ekki að björgunarsveitir hafa ekki úr endalausu fjármagni að moða og þurfa að spá í hverja krónu og því eru stærri bíla oft valdir því að þó að þeir séu kannski eitthvað dýrari þá er þetta oft spurning um að kaupa einn sem hentar í sem flest en kannski ekki tvo með sitthvort notagildið.

    Kv BIO H-1995





    24.02.2009 at 16:28 #641926
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þetta bara hlýtur að vera GRÍN ég neita að trúa að nokkur sé svona vitlaus. Eða kannski gamli frasinn "Only In America" eigi þarna við.

    BIO





    19.02.2009 at 23:50 #641456
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er með heildarniðurgírun í Súkkuni hjá mér upp á 1:54,4 á 38" og virkar bara nokkuð vel í snjónum. En ég er með 5,38 hlutföll í drifum og kemur það ekki nógu vel út í akstri út á vegi og má segja að 85-90 sé algjör hámarkshraði nema að vera að snúa vélinni einhvern helling. Milligír og hærri hlutföll eru auðvitað málið.

    Kv BIO





    16.02.2009 at 23:23 #640992
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Hefur einhver virkilega kannað það hvort slíkar reglur séu í alvöru í bígerð.
    Ég kíkti aðeins á vef Samgönguráðuneytisins og gat ekki séð neitt um slíka reglugerð en hún gæti svo sem verið í bígerð hjá þeim því að á vefnum eru bara þær reglugerðir sem eru í gildi og þær sem eru til umsagnar. Ég er sammála Skúla þar sem hann segir að slík reglugerð hljóti að koma til umsagnar hjá klúbbnum áður en hún kæmi til framkvæmda. Hvað varðar breytta jeppa þá hef ég keyrt 38" breyttan jeppa sem var eiginlega betri en óbreyttur og eiginlega hættulega góður í akstri því maður gat hreinleg gleymt því að maður væri á breyttum bíl. Sé heldur ekki hvað meirapróf hefur með jeppa að gera það vær frekar að vera þá með sérstakt "jeppapróf" ef hugsunin er sú að menn þurfi sérstök réttindi til að aka breyttum jeppa.

    Kv. BIO





    06.02.2009 at 18:34 #640226
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Volvo rellan sem er í honum núna er nú ábyggilega ekki nein léttavara þannig að ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því. Ég er nú búinn að gera hann að tveggja manna bíl, þannig að hvað varðar heildarþyngd þá skráir maður bara niður út þremur farþegum í einn + ökumann og hvað varðar öxulþyngd þá verður það bara að koma í ljós. Já ég held að ef manni tekst að koma þessu í framkvæmd þá gæti þetta orðið nokkuð öflugt tæki og hann er það svo sem að mörgu leiti nú þegar í dag, en margt mætti bæta og það er hugmyndin með þessu.
    Kv. BIO





    06.02.2009 at 13:12 #640220
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er að spá í að nota hásingar unda Scout, bara af því að ég á þær til og það er jú kreppa og allt óþarfa bruðl er bannað. Þetta eru Dana 35 og 44 að aftan og þær eru töluvert breiðari en þær sem ég er með í dag en það eru gamlar Willys hásingar. Ætti að verða nokkuð góður við það að breikka svolítið, en það er alveg í lagi þar sem búið er að lengja á milli hjóla. Já maður hefur heyrt frekar vel látið af þessum Rocky vélum og bara það að menn hafa sett svona mótora ofan í Hilux segir allnokkuð.
    Miðað við það sem þú segir Árni þá er Súkkumillikassinn töluvert lægra gíraður eða 2.51:1 í lága þannig að heildargírun í 1. í lága með 5.38 í hásingum er 54.44:1 eins og þetta er hjá mér í dag. Ætli milligír sé þá ekki bara málið.
    Kv. BIO





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 226 total)
← 1 … 6 7 8 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.