FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Björn Ingi Óskarsson

Björn Ingi Óskarsson

Profile picture of Björn Ingi Óskarsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 226 total)
← 1 … 5 6 7 … 12 →
  • Author
    Replies
  • 20.07.2009 at 19:06 #205325
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sælir félagar. Nú vantar ráðleggingar frá Toyotusérfræðingum. Þannig er að ég er að forvitnast fyrir félaga minn sem er með Hilux með Turbo bensínvél (úr 4Runner) og hann langar að skipta yfir í díselvél. Það sem hann vantar að vita er hvað þarf að gera meira en bara að skipta út vélinni. Hvað með t.d. eldsneytiskerfi, gírkassa, vatnskassa og fleira í þeim dúr. Það væri mjög gott að heyra frá einhverjum sem er búinn að fara þessa leið og veit hvað þarf að gera svo ekki sé verið að finna upp hjólið aftur og aftur.

    Kv. BIO H1995





    10.06.2009 at 08:24 #648776
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Til hamingju með nýjan vef félagar.
    Alveg er þetta týpískt, vælt og vælt yfir gömlu síðunni og svo kemur loks ný síða eftir mikla vinnu og yfirlegu og áfram er vælt , hvað nákvæmlega er svona flókið við þessa nýju og útlitið er bara í lagi, frekar einfalt en skilar sínu og það er það sem skiptir máli. Mjög flóknar síður útlitslega verða oft þungar í vöfum og leiðinlegar til lengdar. Auðvitað vantar eitt og annað sem kemur með tímanum og hitt er að aldrei hef ég vitað til að vefsíða spretti fram algerlega fullmótuð á fyrsta degi heldur þróast síðan og vex og dafnar.

    Formið á spjallinu er orðið eins og á flestum öðrum alvöru spjallsíðum, með einkapósti og tilvitnunum og fleiru slíku sem að maður þekkir af öðrum slíkum spjallviðmótum, sama gildir um auglýsingarnar þar er nú loksins hægt að senda viðkomandi einkapóst til fyrirspurnar um það sem verið er að auglýsa sem er jú bara framför. Ég hlakka nú mest til að sjá nýja myndaalbúmið því það gamla var svo úr sér gengið að það hálfa væri nóg, það tók eins og flestir vita þvílíkan tíma að setja inn nokkrar myndir. Ég veit að þeir sem eru að gagnrýna þetta gera sér EKKI minnstu hugmynd um alla þá gríðarlegu vinnu sem í þetta fer og alla þá vinnu sem eftir er og allt unnið af okkar félögum í sjálfboðavinnu, þeir bara eiga þetta ekki skilið frá okkur hinum sem sitjum bara hér og kvörtum og kveinum. Slökum því aðeins á og gefum þeim tíma til að klára dæmið og sjálfum okkur tíma til að venjast nýjum vef, því að það er alveg sama hvað það er öllum breytingum þarf að venjast.

    Kv Björn Ingi





    09.06.2009 at 08:57 #648746
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Sammála síðasta ræðumanni, látum þetta venjast svolítið áður en við förum að kvarta.
    Þetta virkar allt mun hraða en á þeirri gömlu og formið á spjallinu er eins og maður á að venjast á svona spjallsíðum. Bara nokkuð gott.

    Kv. Björn Ingi





    24.05.2009 at 18:14 #647872
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það er örugglega auðveldara að finna þær heldur en Spuruvélina. Það var verið að auglýsa svona vél hér á vefnum fyrir nokkru síðan og svo er svona vélar að finna í Chevrolet Blazer, GMC Jimmy, Chevrolet Astro og Chevrolet S-10 þannig að það hlýtur að vera hægt að finna þetta einhverstaðar kannski bara spurning um verð. Þessar upplýsingar um V6 Toyotuvélina fann ég einhvertímann á netinu og sel þær því ekki dýrar en ég keypti.

    Kv. BIO





    24.05.2009 at 17:23 #639898
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ef ykkur Terranoeigendur vantar viðgerðarhandbók fyrir Terrano II þá á ég hana til í PDF formi. Þetta er full stórt til að senda í tölvupósti en ef einhvern vantar þá sendið mér bara póst á bingio@est.is og ég get skrifað þetta á disk og sent ykkur. Ég á líka til eitthvað fyrir Range Rover, Land Rover series 1-3, Musso, Suzuki Fox og Vitöru. Á einnig til viðgerðarhandbækur fyrir Pajeromótora 4D56, 4M40 og 4M41 og svo fyrir Land Cruiser 84-90. Þetta hefur svona safnast saman hjá manni í gegnum tíðina og mér datt svona í hug ef einhver gæti haft gagn af þessu líka þá væri það bara sjálfsagt.

    Kv BIO





    24.05.2009 at 16:03 #647868
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Af hverju að vera að pæla í turbovæðingu á Toyotuvélinni þegar einfaldara er að fá sér bara 4,3 V6 Vortec vél sem er einhver 180-200 hestöfl orginal og togar 332-353 Nm. Þessar vélar hafa verið settar í Toyotur og komið vel út. Ég bíst við að ekki sé verið að spá í eldsneytissparnað svo að því ekki að skoða þetta. V6 Toyotuvélin er að skila 159 hestöflum og togi uppá 173 Nm svo að það er töluverður ávinningur af því að skipta yfir í Vortecinn , sérstaklega hvað varðar tog en það er það sem skiptir mestu máli í jeppa eins og allir vita. Sé að bóndinn nefnir 7MGTE vélina og er hún ekki vitlaus kostur, aðeins hærri hestaflatala en svipað tog. Eini gallinn er sá að það er ekki auðvelt að nálgast þær hér heima, ég veit þetta af því að bróðir minn var að leita sér að svona vél í Supru hér um árið og gekk illa. Minnir að hann hafi endað með að kaupa vél úti og flytja inn sjálfur.
    [url=http://www.rockymountainxtremetoyz.50megs.com/photo.html:x21j7ozh][b:x21j7ozh]Hér[/b:x21j7ozh][/url:x21j7ozh] er slóð á síðu þar sem sjá má Vortec í ofan í 4Runner, virðist bara fara nokkuð vel þarna.

    Kv. BIO





    22.05.2009 at 11:51 #648054
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þetta er held ég tekið á leið upp á Skarðshyrnu og horft í suður að Miðfellsmúla og fjær hægrameginn er Akrafjall . Lengst í burtu er Esjan.

    BIO





    13.05.2009 at 12:48 #647526
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Hér er slóð á að minstakosti eina [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/6483:1y99jrma][b:1y99jrma]mynd[/b:1y99jrma][/url:1y99jrma] af raminum á þessum dekkjum.

    BIO





    13.05.2009 at 10:44 #647240
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Já þarna kom það, nú ferð þú Hörður og lærir hjá karlinum svo þessi kunnátta tapist ekki niður. Nú er kreppa og ekki hægt að vera að flytja inn boddývarahluti á uppsprengdu verði heldur versla innlenda framleiðslu. Verður ábyggilega brjálað að gera hjá þér í þessu. :-)

    Kv. BIO





    11.05.2009 at 14:12 #204365
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Langar að vita hvort einhver hefur reynslu af þessum læsingum eða þekkir eitthvað til þeirra, PowerTrax No-Slip Traction System.

    Kv. BIO Mynd





    08.05.2009 at 10:13 #647222
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Höskuldur Stefánsson varahlutavinnustofa
    Eiríksgötu 9 – 101 Reykjavík
    Sími: 552 0269
    Hef skipt við hann tvisvar og verið allt í lagi, það sem hann smíðar passar stundum ekki alveg án aðstoðar en ekkert til vandræða. Á að fara að gera við hurðir á Hilux :-)

    Kv. BIO





    07.05.2009 at 13:35 #646934
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Jú hér er ein saga af Lödu Sport. Fyrir nokkrum árum var ég að þvælast í veiði með mági mínum sem þá bjó á Þingeyri. Hann átti þá forláta laxableika Lödu sem gekk undir nafninu Ladi laximann. Fórum við til veiða á þessu ofurtæki og er skemmst frá því að segja að aðra eins keyrslu hef ég sjaldan eða aldrei upplifað, en eknar voru þröngar moldargötur og malarslóðar á milli 60 til 70 km hraða og að lokum endaði með því að Ladan tók svo harkalega niður á jarðföstum steini að hún drap á sér. Nú það var bara sett í gang aftur og haldið áfram, en ég spurði í sakleysi mínu hvort ekki ætti að kíkja á hvort eitthvað hefði skemmst við höggið sem var alveg gríðarlegt. Það var bara horft á mig eins og ég væri eitthvað verri , kíkja á þetta nei hann hélt nú ekki , fyrst hann fór í gang þá hlyti þetta að vera í lagi og svo er þetta nú BARA LADA. Er ég alveg viss um að allir aðrir bílar hefðu verið óökufærir eftir þetta feikna högg, ég stalst svo seinna til að líta undir bílinn og það var ekki að sjá að neitt væri alvarlega úr lagi gengið en greinilegt var að þetta var ekki í fyrsta skiptið sem hann hafði komist í kynni við fósturjörðina.

    BIO





    04.05.2009 at 11:05 #647068
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég er með eina svona(B230A) í Súkkunni hjá mér og er bara að virka þokkalega. Eina sem ég get sett út á er blöndungurinn en þessir SU blöndungar er frekar leiðinlegir sérstaklega þegar þeir fara að eldast. Það er ótrúlega gott tog í þessum mótor enda skilst mér að svinghjólið sé í þyngri kantinum. Maður búinn að vera að pæla í að skipta um vél en ekkert orðið úr því. Langar til að prófa að skipta um blöndung og jafnvel knastás og sjá hvað það gerir fyrir hana. Þarf hvort sem er að kíkja eitthvað á hana því að það er búið að vera eitthvert bank í henni síðan ég fékk bílinn, það er mikið búið að reyna að finn hvað það er en ekki tekist, þetta er ekki legubank og það lagast þegar hún hitnar. Út af þessu hélt maður að hún myndi nú ekki endast lengi, en hún gengur en og er ekkert lát á henni svo að það er kannski best að halda bara í hana. Eins og Elli segir þá er ekki mikið mál að ná hestöflum út úr þessum vélum og svo er þetta andskotanum sterkara.

    Kv. BIO





    03.05.2009 at 11:55 #646864
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Suzuki sem hefur nú staðið sig vel, oft lítið sem ekkert breyttur og oft gert lítið úr stærri og dýrari bílum. Það er nú fátt skemmtilegra en að fara hringi í kringum 10+ miljón króna eðalvagna á gamalli Súkku. Oft hefur verið hálfpartinn litið niður á Suzuki og Lada sagt að þetta væru varla bílar hvað þá jeppar en þeir standa sko vel fyrir sínu og ef ætti að bera saman verð og drifgetu þá er ekki spurning hvernig það færi.

    Súkkueigandi





    27.04.2009 at 22:55 #646628
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það er nú gott að sjá að menn eru með á nótunum í þessu máli en það er svo bara eitt í viðbót sem gæti læðst aftanað okkur jeppafólki, en það eru skattahækkanirnar, því að það verða örugglega hækkaðir skattar og alveg örugglega á öllu sem lítur að rekstri bifreiða því þar er alltaf hægt að taka meira. Einkabíllinn á Íslandi er án efa eitt það mest skattpínda fyrirbæri sem til er.

    Kv. BIO





    27.04.2009 at 09:16 #204318
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Í ljósi nýafstaðinna kosninga og hugsanlegrar aðildar að ESB í kjölfarið á þeim,
    verðum við jeppamenn og konur að passa okkur að sofna ekki á verðinum hvað varðar okkar hagsmunamál. Það hefur nú oft verið umræða hér á spjallinu um þetta og ýmislegt komið þar fram en það er ekki nóg ef við fylgjumst ekki vel með þessu ferli þegar það fer í gang. Við gætum setið uppi með sárt ennið svo að brýnum alla þá sem vinna á okkar vegum og þá sem hafa hag okkar félaga að leiðarljósi, EKKI SOFNA Á VERÐINUM.

    Kv. BIO





    21.04.2009 at 08:32 #646204
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Það fyrsta sem mér dettur í hug er hvort míkrofóninn í tólinu sé kannski bara bilaður eða ef hægt er að slökkva á honum að það sé bara slökkt, bara svona það fyrsta sem manni dettur í hug og mundi skoða ef ég væri að fást við svipað vandamál.

    BIO





    21.04.2009 at 08:18 #646160
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég tékka á þessu hjá BSA og þetta með Lödugormana það er alveg rétt, það gæti gengið.
    Maður var nú bara búinn að gleyma Lödunni enda sjást þær varla orðið.





    20.04.2009 at 11:34 #204276
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Þar sem ég er nú að setja aðrar hásingar undir Súkkuna hjá mér er ég að velta fyrir
    mér hvaða gormar gætu hentað best í þessa smíði hjá mér. Bíllinn vigtar 1380 kg og af því eru rétt tæp 700 að framan. Er með loftpúða að aftan og ætla ég að halda þeim. Það eru örugglega einhver 170+ af þyngdinni að framan hásing og dekk (38″ Mudder á stálfelgum+Dana27).
    Eru ekki einhverjir hér sem hafa staðið í svipuðu og geta gefið góð ráð varðandi val á gormum og eins þá úr hvaða bílum væri best að nota í þetta.

    Kv. BIO H-1995





    20.04.2009 at 08:50 #646036
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ég hef nú alltaf sett þetta upp þannig að ég set upp kortin og þá kemur MapSource með og svo þarf maður bara að opna kortin með lyklinum sem fylgir disknum. Þetta hefur alltaf virkað svona á þeim 3.5 útgáfum sem ég hef komist í færi við. Ég held að ef þú ætlar bara að setja upp MapSource stakt (ekki kortin) þá segi uppsetningin að þetta sé uppfærsla.
    Ef þú verður í einhverjum meiri vandræðum hafðu þá samband og ég get aðstoðað þig, er búinn að setja þetta upp fyrir nokkra og vesenast dálítið í þessu þannig að það ætti ekki að vera neitt mál.

    kv. BIO 8688774





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 226 total)
← 1 … 5 6 7 … 12 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.