Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.12.2009 at 09:41 #664678
Tetrakerfið er fyrst og síðast hugsað fyrir viðbragðsaðila og mun held ég aldrei koma til með að koma í staðinn fyrir VHF kerfi björgunarsveitanna og F4x4 sem er mjög öflugt kerfi með góða útbreiðslu. Það sem Tetra hefur upp á að bjóða fyrir viðbragðsaðila er að þetta er lokað kerfi sem ekki er hægt að hlera og bíður þar af leiðandi uppá meira öryggi í fjarskiptum og stór hluti þessara fjarskipta er kannski ekki endilega á hálendinu heldur í byggð, lögregla,slökkvilið og sjúkraflutningar eru gott dæmi um það. Þess vegna munu björgunarsveitirnar halda sínu VHF kerfi í fullum gangi og verður Tetra bara hrein viðbót við það góða kerfi. Tetra hefur margt að bjóða sem nýtist kannski ekki hinum almenna notanda eins og t.d. gáttunn, það er að segja samtengingu VHF og Tetra og þar liggur einmitt stór kostur að hægt er að tengja þessi tvö kerfi saman á stöðum þar sem annaðhvort kerfið er ekki að virka eitt og sér og búa þar með til öflugt fjarskiptanet. Tetrakerfið verður aldrei til almennra nota enda í raun ekki hugsað sem slíkt en ég held að á tímabili hafi margir haldið að þarna væri kominn arftaki NMT og jafnvel söluaðilar og aðrir reynt að markaðssetja það sem slíkt en eins og örugglega oft hefur komið fram þá er Tetra talstöðvakerfi með síma fídus og ekki ætlað sem símkerfi enda dregur það mikið úr getu kerfisins ef það er notað sem slíkt. Það er ekki hægt að bera saman útbreiðsluna nú í dag við það sem hún var t.d. fyrir ári síðan og veit ég að hún á enn eftir að batna en í eðli hlutarins liggur að okkar fjöllótta landslag er erfitt fyrir flest fjarskipti en með því að halda úti tveimur ólíkum en öflugum kerfum sem hægt er að tengja saman í eitt landsdekkandi fjarskiptakerfi þá erum við í góðum málum. Ég tel að við hjá Ferðaklúbbnum 4×4 eigum að halda okkar stryki með okkar góða VHF kerfi og láta þá um að nota Tetra sem það er hugsað fyrir.
Sá sem þetta ritar er bæði félagi í F4x4 og björgunarsveit og situr þar sem svæðisstjórnarmaður.
17.12.2009 at 14:15 #671256Já Guðni sennilega hefur verið farið eftir því hvernig þetta er gert á þessari mynd.
[img:1b2ghz7n]http://4.bp.blogspot.com/_dsuvwqZD4rk/SaWL6X8PvSI/AAAAAAAAA3g/XMyhgV4-4vc/s400/Welded-Differential.jpg[/img:1b2ghz7n]
15.12.2009 at 13:46 #671572Hann var auðvitað of lágt gíraður á 5,38 þannig séð þó að það kæmi sér vel stundum en ekki alltaf, því eins og ég sagði þá var vélin komin á vel á 4000sn ef maður ætlaði að halda um og yfir 90 km , það er nefnilega lækkun í hádrifinu líka á þessum 410 Súkkumillikössum. Þannig að kannski þetta sé bara óþarfa pælingar, bara prófa þetta svona og það versta sem getur skeð er að maður steiki kúplinguna. Ef þetta er ekki að gera sig svona þá fer maður bara út í milligír og málið vonandi leyst.
14.12.2009 at 23:50 #671530Sammála síðasta ræðumanni, held að okkar sporti stafi meiri hætta af misvitrum stjórnmálamönnum hér heima hvað þetta varðar. Það er svo aftur möguleiki að tilvonandi innganga yrði notuð til að gera einhverjar slíkar breytingar í þeirra skjóli og það þurfum við að passa okkur á.
14.12.2009 at 23:37 #671568Takk, mikið af góðum upplýsingum og skiptar skoðanir eins og við er að búast. Ég er nú farinn að hallast á það að best væri fyrir mig að fara bara út í 5 gíra kassann úr Vitöru og millikassann með og breyta honum í milligír setja svo millikassann sem er núna í bílnum aftaná þetta. Þessi uppsetning er sáralítið lengri en það sem ég er með núna. Þetta hefur verið gert í Súkkum með orginal vélinni en það er örugglega ekkert stórmál að mixa þetta við Volvokúplingshúsið.
[img:1gh31hoh]http://i520.photobucket.com/albums/w327/bjorningi/014tcasesmated2-1.jpg[/img:1gh31hoh]
14.12.2009 at 18:29 #671518Það verður gaman að sjá upplitið á þeim þarna að sjá jeppa á 44" sérstaklega Dönunum, því að nóg var glápt á okkur á tveim lítið breyttum jeppum (33" og 31") þegar við vorum á ferð um norðurlöndin í fyrrasumar. Þeir ætluðu sumir alveg úr hálsliðnum.
14.12.2009 at 15:21 #671558Já Volvo B230, hún er ekkert að standa sig illa helst til þyrst stundum en ég ætla að skipta út þessu SU blöndungsdóti fyrir venjulegan tveggjahólfa af hinni Vovlovélinni sem ég á og þá lagast eyðslan eitthvað. Togar reyndar ótrúlega vel af bensínvél að vera og virkar vel í svo léttum bíl (1300-1400Kg)
14.12.2009 at 14:55 #671552Það er orginal Súkkumillikassi og hann er með 2,51 í lága. Það kæmi sem sagt mikið betur út fyrir mig að útbúa mér bara milligír í hann eins og hann er í dag. Þá þarf maður bara að finna Vitöru gírkassa og millikassa og breyta Vitörumillikassanum í lógír og skella því í.
14.12.2009 at 14:37 #671548Sæll Óli, viltu þá meina að með 1.gír upp á 1:4,03 þá muni ég ekki finna mikinn mun á 4,56 og 5,38. Það væri þá kannski hægt að fara að keyra kvikindið hraðar en 85-90 sem á 5,38 var algjört hámark.
14.12.2009 at 14:18 #671544Takk fyrir strákar, ég vissi að það gætu orðið fjörugar umræður um svona hluti, þetta er eins og að spyrja hvort sé betri Toyota eða Patrol, það hefur hver sína skoðun á málinu enda eðlilegt, það væri nú ekki mikið gaman ef allir væru alltaf sammála. En svona aftur að alvörunni ég hef hugsað mér að setja góða kælingu á skiptinguna og hef verið að spá í útbúnað úr Terrano (má vera að þetta sé í Patrol líka) þar sem er rafmagnsvifta líka til að auka kælingu og þá sérstaklega þegar vél er á lágum snúningi í mikklu átaki og kæling í lágmarki. Þetta er skipting úr 740 Volvo sem mér skilst að séu nokkuð góðar og eru held ég notaðar í marga bíla þar á meðal Toyota, Cherokee og fl.
14.12.2009 at 12:46 #671534Sæll Ingi
Fer það nú ekki eftir hvað há þau eru og hvað bíllinn er þungur. Í mínu tilfelli þá eru hlutföllin 4.56 og mjög léttur bíll.
Ætlaði að reyna að spara mér að kaupa önnur hlutföll að svo stöddu. Á nefnilega aðra vél með skiptingu sem passar komplet ofaní hjá mér og þessvegna eru nú þessar pælingar.
14.12.2009 at 12:17 #209121Sælir félagar, langar að fá ykkar álit á sjálfskiptingu versus beinskiptingu í jeppum og hvort það sé rétt að maður „komist upp með“ að vera með heldur hærri drifhlutföll með sjálfskiptingunni.
Kv. BIO
25.11.2009 at 17:40 #668286[quote:2dvlpfw7]Sælir félagar. Hefur aldrei komið til tals að útbúa svona númeralimmiða í afturrúðu svipað og FR var með á árum áður. Það gæti stundum verið gott að geta kallað í þann sem er á ferðinni á undan ,mann vantar aðstoð eða bara hvað sem er. Endilega segið ykkar álit á þessu. Kv. Olgeir FR 1364[/quote:2dvlpfw7]
Já af hverju ekki, gæti verið sniðugt og jafnvel gagnlegt líka.
Björn H-1995
04.11.2009 at 13:15 #664900Það er örugglega ekki hægt að setja raflás í reverse köggulinn, er að rembast þetta því ég get fengið raflæstan köggul með smíðuðu stykki fyrir lofttjakk, er sem sagt orðinn loftlæsanleg. Ætlaði að reyna að nota þetta að framan og NoSpin að aftan nema maður snúi þessu bara við setji NoSpinið að framan sem mér hugnast svo sem ekkert sérlega.
Kv. BIO
04.11.2009 at 09:17 #664896Sælir strákar og takk fyrir góð viðbrögð, kominn með fullt til að moða úr. Sá að nokkrir voru að velta fyrir sér af hverju ég væri að skipta úr reverse kögglinum og er það einföld ástæða, hann er ólæstur og ég get fengi læstan "venjulegan köggul" það er nú ástæðan, ef hins vegar einhver á læsingu í reverse og væri til með að láta hana þá þyrfti ég ekki að vera að pæla þetta. Maður er að reyna að sleppa eins ódýrt og hægt er út úr þessu svo maður hafi nú efni á að reyna að ferðast eitthvað á þessu þegar maður er búinn. Hlakka nefnilega mikið til að prófa Súkku á þessum hásingum þar sem hún breikkar heilan helling við þetta (rúma 17cm) og verður kominn á gorma að framan en ekki á gömlum flatjárnum.
[img:2fkxnenh]http://i520.photobucket.com/albums/w327/bjorningi/DSC00245-1.jpg[/img:2fkxnenh]
Hér sést vel hvað bíllinn breikkar við þetta. Innribrún á felgu er rétt innanvið brún á orginal brettinu
Kv Björn Ingi
02.11.2009 at 23:08 #664868Sæll Addi
Ég hefði átta hringja bara beint í þig, mundi ekki eftir að þú varst búinn að vera í hásingavæðingu hjá þér. Þetta er 8“ drif úr líklega V6 bíl og mér er sagt að þetta eigi að passa í 70 Crusier hásinguna. Hugmyndin hjá mér var einmitt að víxla hægri og vinstri armi út af hallanum á spindlinum. Þetta er í hásinguna sem ég er að setja undir Súkkuna hjá mér.Kv. Björn Ingi
02.11.2009 at 19:03 #207929Ég er að skipta út reverse kögglinum fyrir venjulegan í 70 Cruiser framhásingu og þarf að færa millibilsstöngina framfyrir. Get ég notað armana á liðhúsunum með því að víxla þeim og snú þeim fram í staðinn fyrir aftur, spyr sá sem ekki veit. Það hlýtur einhver góður Toyotamaður að geta leiðbeint manni með þetta.
Kv. Björn Ingi
02.11.2009 at 19:01 #664670Tetra virkar fínt ef þú ert með bílstöð og þá meina ég bílstöð ekki handstöð í vöggu. Erum með eina svona bílstöð í björgunarsveitarbíl hérna hjá okkur og virkar bara vel og má segja að með slíkri stöð standist útbreiðslukortið fullkomlega, en svona venjulegur jeppakall á ekki eftir að fá sér slíka græju því þetta kostar einfaldlega of mikið. Motorola MTM800 kostar um 140 þús í dag. Held að við ættum bara að halda okkur við VHF og betrumbæta það ef þurfa þykir.
Kv. Björn Ingi
31.10.2009 at 13:11 #664336Sæll Súkku félagi Birgir
Ég er nú með Volvo B230 eins og þú kannski veist, dálítið þung sleggja en togar alveg ótrúlega, er með Volvo 5 gíra kassann og er hann með frekar lágum 1. gír og er bara að virka vel. Það eru tveir ókostir við þessa vél, hún er frekar þung eitthvað í kringum 160 kg. Og svo hitt að vera með frekar leiðinlegt blöndungsdót (SU, Stromberg) sem gerir það að verkum að það er voða lítil snerpa í þessu. Ég er búinn að pæla mikið í þessu og það kemur svo sem ekki voðalega mikið til greina því einfaldar blöndungsvélar eru ekki að verða auðfundnar.Toyota R20 og R22 vélarnar eru frekar léttar eða um 145 kg. R20 vélin er rétt kringum 95 hestöflin og tog ca. 160 N-m R22 er svipuð í hestöflum eða rétt um 100 en togar meira eða 170 – 190 eftir útfærslum (innspýting,túrbo) þessar véla henta vel í svona létta bíla en liggja kannski ekki á lausu. Ég skoðaði einnig dálítið Buick V6 225 (gömlu odd-fire eða Dauntless vélina) en hún er frekar þung eða 180-190 kg. og ekki auðvelt að finna þær og svo þóttu þær hálfgerðir vandræðagripir vegna kveikjukerfisins. Það koma svo sem fleiri V6 vélar til greina t.d. V6 Vortex 4,3 frekar þung en aflmikil, Ford 2,3 -2,9 eru aðeins léttari og aflminni, 2,3 er um það bil 108 hestöfl en 2,9 ca. 140. Flestar þessara véla eru innspýtingarvélar sem er í sjálfu sér gott en geri það að verkum að það er mun meira mál að setja þær ofaní . Það sem ég er kannski mest búinn að skoða er 3,5 V8 Rover, ekki mjög þung af V8 véla að vera ca. 150-160 kg og 160 hestöfl, togið er 280 N-m við 2600 sn. Tiltölulega lítið mál að fá meira afl út úr þeim, annað millihedd og blöndungur+flækjur og þú ert farinn að nálgast 200 hestana.
Það er endalaust hægt að velta sér upp úr þessu en maður verður bara að taka ákvörðun og halda sig svo við hana sama hvað á gengur.
Súkkukveðjur BIO
13.08.2009 at 19:42 #652058Takk fyrir þetta Stefán. Hann er kominn með fullt af slátri, er með vél og annan bíl með vatnskassa og öllu dótinu þannig að nú er bara að púsla saman. Ætlar held ég meira að segja að taka tankinn úr díselbílnum og nota hann bara af því að það er þægilegra en að vesenast í bensíndótinu.
Kv. BIO
-
AuthorReplies