Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.11.2008 at 17:16 #632600
Það er allt hægt á Súkku.
BIO
10.11.2008 at 11:41 #632474Vitöru vél úr 96 bíl ætti að smellpassa, held að það sé ekkert vandamál með kúplingshús eða slíkt. Buick V6 er ágætis vél togar vel og allt það en þá eru kominn út í þó nokkrar breytingar og svo er hún þyngri en Súkku vélarnar svo þú ert að þyngja bílinn dálitið með henni
Það er alveg ómögulegt að gefast upp á þessu og ef þú ert að spá í hvað borgar sig eða ekki þá ertu
ekki á réttri hillu í þessum bransa. Það er nú bara þannig með þessa gömlu bíla að auðvitað borgar sig ekkert af því sem að maður er að gera við þá en þetta snýst líka ekkert um það, heldur að hafa GAMAN af því sem maður er að gera. Finndu þér bara aðra vél og skelltu oní og málið er dautt.Takk fyrir þetta með varahlutina, gott að vita af því en það er nú ekki mikið eftir af orginal Súkku hjá mér nema grind og yfirbygging og já millikassi.
Kv. BIO
09.11.2008 at 22:45 #632470Þetta breytir dálítið miklu, þú ert með TBI innspýtingi eða klósett eins og hún er stundum kölluð og þá vegna eyðslu (þótti eyða eins og sturtað væri niður) Þetta er frekar leiðinlegur búnaður sérstaklega þegar hann fer að eldast og ekki sá sparneytnasti. Það var svona í Vitöru sem ég átti og var ég alltaf í vandræðum með þetta dót, fékk hann aldrei til að ganga hægagang almennilega og hann haug eyddi. Ég var nefnilega ekki alveg að skilja þetta með EFI í Suzuki Samurai hélt að þeir væru ekki til með þeim búnaði þó það geti svo sem verið, hef bara ekki heyrt um það. Þessi þjöppun er frekar lág, en er hann að þjappa jafnt á öllum eða ekki? Það sem gæti verið að er að vélin sé einfaldlega svona slitin að hún haldi ekki þjöppun og blási bara niður en það sæist á óeðlilegri mikilli öndun. Hitt er brunnir ventlar en í því tilviki væri þjöppun kannski misjöfn milli sílendra.
Sennilega væri best fyrir þig að fá þér aðra vél og ef þú villt halda þig við Sukku vélar þá að ná í vél úr yngri Vitöru með EFI. Setja þá vél í með öllu rafmagnsdóti og tölvu, þú fengir með því meira afl og minni eyðslu.
Kv BIO
09.11.2008 at 12:37 #632466Það er spurning hvort innspýtingin af 1300 vélinni virki almennilega með 1600 vélinni þó svo að mekanikkið sé kannski það sama er ekki þar með sagt að vélartölvan passi. Það sem ég hefði gert var að setja Vitöru vélina með öllu yfir í hinn bílinn. Hefði kostað meiri rafmagnsvinnu en þá værir þú með rétta tölvu fyrir innspýtinguna. Hvað varðar borun og slaglengd er hún eftir því sem ég kemst næst ekki sú sama, 1300 vélin er með borun 74.0 mm og slaglengd 75.5 mm en 1600 með 75.0 mm x 90 mm. Miðað við að þetta sé rétt gengur það ekki upp að nota stimplana úr 1300 vélinni. Hvað var hún að þjappa? Þjöppun á að vera held ég 14.0 kg/á fersentimetra og helst ekki að fara niður fyrir 12.0
Kv. BIO H-1995
08.11.2008 at 20:19 #632462Ég held þú ættir að skipta um tímareim og stilla hana rétta á tíma og vita hvort vandamálið er ekki úr sögunni. Það passar alveg að ef vélin er vitlaus á tíma þá veður bæði blanda og bruni vitlaust og vélin haugeyðir og verður máttlaus. Í stuttu máli vitlaus tími kolómöguleg vél.
Kv BIO
08.11.2008 at 19:30 #632458Ég held ég fari rétt með að 1600 Suzuki vélinn slái ekki upp í ventlana en 1600 16v gerir það hinsvegar.
Súkkukveðjur BIO H-1995
08.11.2008 at 19:12 #632450Þetta er rafmagnsbjalla, í hvað hún er notuð veit ég ekki gæti verið viðvörunarbjalla, dyrabjalla,skólabjalla eða eitthvað annað.
Kv BIO
04.11.2008 at 23:10 #632162Stefán, Súkkan gæti orðið til sölu fljótlega en með semingi þó, efast um að ég fari eins mikið á 4Runner eins og á henni en þetta snýst um margt fleira og er spurning um að finna einhvern milliveg.
Atli, þetta eintak virðist ekki vera mjög mikið ryðgað miðað við aldur og nokkuð góður efniviður þar sem búið er að hásingarvæða að framan.
Snorri, draumurinn er að setja eitthvað annað í hesthúsið svona með tíð og tíma. En þetta eru nú svona pælingar og ekki sjálfgefið að eitthvað verði úr þessu hjá manni.Kv. BIO H-1995
04.11.2008 at 16:43 #632154Þetta líkar mér og takk fyrir. Þetta er eldra boddýið 1989 og það er búið að röra og slíkt en hann er enn á fjöðrum að aftan svo hásingarfærsla er bara partur af að setja hann á gorma.
BIO H-1995
04.11.2008 at 07:49 #632150Hvar eru allir Toyotu kallarnir? Ég hélt þeir myndu fagna hverjum villuráfandi sauð sem sæi ljósið og snér sér að "réttu merki" og mundu ausa úr viskubrunni sínum. Kannski er þetta bara svona slæm hugmynd að hörðust Toyotukallar þora ekki að tjá sig um málið.
Kv. BIO
03.11.2008 at 14:17 #203150Jæja félagar þá er maður alveg að missa sig, farinn að spá í Toyotu 4Runner. Átti nú síst von á því, en þó Súkka sé skemmtilegt leiktæki þá eru þetta ekki beint ferðavænstu bílar sem til eru og fyrir bragðið nennir maður lítið að fara í langferðir. Sem sagt er að spá í Toyotu 4Runner
1989 árg. 38″ búið að röra að framan, með v6, beinskiptur, lækkuð hlutföll en ólæstur(get fengið læsingar með) ekki mikið ryðgaður en þarf að eins að strjúka honum. Hver er reynsla manna af þessum bílum í gegnum tíðina og hvað þarf helst að varast (fyrir utan eyðslu)
Er þetta kannski algjört rugl og ætti ég að láta líta á toppstykkið á mér.kv. BIO H 1995
01.11.2008 at 21:59 #631992Lárus [url=http://www.jeepfan.com/tech/tech_driveangles.htm:1q3uvx4u][b:1q3uvx4u]hér[/b:1q3uvx4u][/url:1q3uvx4u] er ágætis útskýringar á þessu. Þið hinir takk fyrir upplýsingarna. Gaman væri að heira frá einhverjum sem hefði prófað að vera með svona uppsetningu
01.11.2008 at 17:30 #203138Hefur einhver reynslu af að vera með skakka afstöðu á drifskafti miðað við hásingu, þá á ég við til hliðar sem er ekki venjan. Hef upplýsingar um að þetta eigi að geta gengið ef línur í gegnum vél/gírkassa og hásingu eru samsíða þó að þær séu ekki línu við hvor aðra. Miða við að þetta sé rétt hvort er þá betra að vera með tvöfaldann lið á skaftinu eða ekki. Vonandi skilst þetta hjá mér.
Kv. BIO H-1995
29.10.2008 at 11:19 #631864Ég er sammála Agnari með að eftir að Veðurstofan fór að bjóða upp á veðurþáttaspár er ég nánast hættur að nota belging.is. Mér finnst þetta aðgengilegra hjá veðurstofunni og meira að marka að skoða spárnar með þessum hætti heldur en með spánni sem birtist á forsíðunni hjá þeim, enda eru 24 tímar þar á milli korta og hitt því nákvæmara.
Kv. BIO
26.10.2008 at 12:35 #631696Sæll. Það er hægt að fá lækkun í millikassann á þessum bílum og veit ég að K2Icehobby er að selja slíkar lækkanir. Þetta er bara dálítið dýrt en þrælvirkar örugglega.
Kv. Björn Ingi H-1995
[url=http://k2motorsport.is:8u1n0gcz][b:8u1n0gcz]K2Icehobby[/b:8u1n0gcz][/url:8u1n0gcz]
20.10.2008 at 23:01 #631386fyrir upplýsingarnar Haukur, þetta er góð byrjun.
Gott að vita hvað þarf helst að skoða.Kv. Björn Ingi
19.10.2008 at 22:48 #203086Nú reynir á þekkingu ykkar Toyotu sérfræðinga, kunningja minn vantar að vita hvort sjálfskipting af 4,5 bensín Toyota vél passi við 4,2 Toyota díselvél sem líka var með sjálfskiptingu, sem sagt er þetta sama skipting við báðar þessar vélar og passar allt dótið á milli véla.
Kv. Björn Ingi H1995
07.10.2008 at 14:42 #203027Jæja þá eru Rússar komnir í spilið, ætli maður fari þá að sjá
Rússneska bíla á vegum landsins eins og hér áður fyrr.
Til dæmis þennan hér
sem kemur kunnuglega fyrir sjónir og er en framleidur.
Þeir voru nú seigir þessir gömlu Rússajeppar og efast ég um að þessir nýju
standist þeim snúning. Sennileg eigum við þó ekki eftir að sjá þessa gripi hér vegna mengunarstaðla en hver veit.
07.10.2008 at 08:50 #630700Ef þú ert að spá í að kaupa eldri Pajero þarftu að athuga eitt. Grindina, þær eiga það til að ryðga illa í þessum bílum og veit ég um nokkuð mörg dæmi þess. Að öðru leiti eru þetta ekki svo vitlausir bílar, gott að keyra þá og ferðast í þeim en V6 er dálítið þyrst og hefur maður heyrt tölur upp í 20 á hundraðið en sel það ekki dýrara en ég keypti það hef sjálfur ekki átt svona bíl en þekki til þeirra.
02.10.2008 at 09:57 #630234Virka vel undir þungum bílum. Búnir að vera með svona dekk undir Ford Econoline björgunarsveitar bíl og hefur komið ágætlega út. Það er reyndar verið að skipta yfir í Mickey Thompson 46" og verður gaman að sjá hvað verður mikill munur á þeim.
kv BIO
-
AuthorReplies