Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.01.2009 at 19:44 #636070
Rúnar, Það væri kanski auðveldara að kíkja bara í kaffi til þín bara ef þú værir ekki hinumegin á landinu
Ég hef einmitt líka verið að heyra þetta með að 12 ventla vélin sé duglegri niðri meðan 24v væri kraftmeiri þegar hún sé komin á snúning. Hvaða dekk eru radial fyrir ofan 37" og er jafn gott að aka á þeim.
03.01.2009 at 19:29 #636172Er það samt ekki svo lítið 2007…
03.01.2009 at 19:13 #636122Hvernig er þessu háttað ofsi. Hvenar á þetta að framkvæmast ofl. Komdu með smá upplýsingar um þetta.
02.01.2009 at 20:26 #636062En gengur td. gírkassi af 12v beint aftan á 24v.
Gengur millikassi af 12v beinskiptum kassa á 24v kassa.
Gengur millikassinn beint af gírkassanum á skiptinguna. Er bara aðallega að pæla í varahlutabissnesnum. Ef eithvað myndi nú eyðileggjast, hvort það væri bara hægt að skrúfa það sem næst er bara beint undir.
Annað ef maður væri með bílinn breyttan f.44" með milligír. Eru þið þá yfirleitt á 4.88 drifi. ef svo er, hvernig er þá að keyrann á 37" sumardekkjum?
Mig langar nú mest í svona bíl beinskiptan. Þetta er eina toyotan sem ég gæti hugsanlega hugsað um að hugsa út í að eiga…
02.01.2009 at 15:04 #636056Hvenar kemur krúserinn með 24 ventla og breytist eithvað meira en bara mótorinn? Þar að segja Kassi og millikassi, útlit, innrétting ofl…
02.01.2009 at 01:13 #636050Það fer bara eftir ýmsu Heiðar minn. Hvort bíllinn þinn sé nokkuð ekinn til tunglsins ofl…
Það eru 384,403 km til tunglsins, Frá miðju til miðju.samkvæmt Wikipedia.com
01.01.2009 at 20:22 #203454Sælir félagar. Ég er að pæla í vélunum í Crúser 80.
Hvort viljið þið frekar 24ventla frekar en 12 og af hverju. Hver er munurinn á aflinu, olíuverki ofl…Mbk. Ingi Bjöss, sem veit ekkert hvernig bíl hann lagar í næst…
01.01.2009 at 19:06 #635958Þetta er eins og allflestir vita Seljalandsfoss. Ég setti bara þessa mynd vegna þess að þetta er foss af náttúrunar hendi og mun fallegri að mínu mati.
01.01.2009 at 16:53 #635954Ekki veit ég fallhæðina. En mér fynnst hálf kjánalegt að nota manngerðann foss sem einhverja táknmynd fyrir íslenska þjóð. Við eigum þúsund fossa af náttúrunar hendi og margir hverjir mun fallegri.
Þetta er bara mín skoðun…
[img:2lo7wag6]http://static.flickr.com/27/63804066_f079e645a6.jpg?v=0[/img:2lo7wag6]
29.12.2008 at 01:54 #635670Það kom flott út hjá mér að aftan þegar ég gerði þetta á sínum tíma. Þá notaði ég framm gorma úr Cherokee XJ 2,5 L 4 cyl. Gefa talsvert lift og góða mýkt. Ætti að ganga fyrir 38" var allavega rýflega á 35". Svo stýfubrakket fyrir 4link úr héðinn sem var hannað á sínum tíma fyrir hilux. Færð svo Stýfufóðringar og renda hólka fyrir þær í ET verslun og stýfurörin í sindra. kostaði undir 50.000 kr.- fyrir nokkrum árum og svín virkaði. Á bara engar myndir á tölvutæku af þessu, því miður.
26.12.2008 at 21:41 #635520Hér í hafnarfirði getur maður bæði styrkt íþróttafélögin og björgunarsveitina. Ég veit að td get ég keypt gjafamiða í hestamannafélaginu Sörla upp á td 1000 kr og rennur einhver prósenta af því til hestamannafélagsins og restin fær Björgunarsveitin. Held að FH og haukar séu með sama firikomulag.
En ég versla samt beint af björgunarsveitinni. og hvet alla til þess sama.
25.12.2008 at 20:51 #635408Langar bara að deila með ykkur úr reynlu á Bak flip lokum. http://www.bakliner.com/g2.htm
Þau eru ekki að gera sig á íslandi. Ef þú lendir í meira en 20 metrum á sek á geturu nánast kysst þau bless. Pabbi var með svona árið 2005 á 05′ F250 og það fauk af á holtavörðuheiði í svona ca 18-23 msek. Ég pantaði samt svona lok á minn þegar ég keypti hann í fyrra. Aðallega vegna þess að strákarnir sögðu að framleiðandinn væri búinn að breyta festingunum og þær væru pottþéttar. Þetta eru að mínu mati sniðug lok því það er auðvelt að kippa því af. Ég fer með bílinn austur á selfoss, og þeir setja lokið á og svo er bíllinn sóttur næsta dag og viti menn. Við vorum ekki komin í Hveragerði þegar það kemur vindhviða og kippir lokinu af og skutlar því út í móa.
24.12.2008 at 01:00 #635336Sem og hún gerði mér til mikillar ánægju. Svona lagað á ekki að líðast hér á þessum vef né hvergi annarstaðar.
21.12.2008 at 22:32 #635084Hvað á það að þíða að senda mér nafnlaust sms í gegnum ja.is með eithvað rugl !!!
Ef menn hafa eithvað athugandi við skrif mín hér á vefnum og þora ekki að annað hvort svara mér á netinu eða hringt í mig geta þeir étið það sem úti frýs.
Kveðja Ingi pirraði.
21.12.2008 at 18:51 #635080Ég var að skoða reikninginn frá skeljung og þar er sundurliðað hvar og hvað var keypt. Þar er samtals afsláttur uppá 4032 kr (sem er heildar afsláttur frá verðlistaverði með þjónustu). og svo neðst er raun afsláttur á nótunni uppá 537 kr það er innan við 1% af heildar upphæðinni, 52931 kr. Þetta er allt tekið á orkunni hjá kænunni. Ætli það sé þá bara 1% ódýrara að versla þar. Svo gæti maður fengið 2 kr af með lykli hjá atlansolíu og þá er orðið ódýrara að versla við þá.
Leiðréttið mig ef ég er að fara með rangt mál.Annars fynst mér bara eðlilegt klúbba verð á félagsgjöldum hjá F4x4. Ég er einnig að borga svipað í Hestamannafélagið Sörli og AÍH. Græt það ekki.
21.12.2008 at 11:02 #635140Þér hefur yfirsést að það er líka verið að lýsa eftir vélsleða:
Skidoo mxz 800 sleða og kerra var stolið frá smiðshöfða 14 frá H Jónsson Réttingar og Sprautun milli klukkan kl 4 og 7 í morgun (19.12.08)Var í viðgerð og er tjónaður , stífurnar að framan og eitthvað undir honum
https://old.f4x4.is/new/files/photoalbums/6411/54767.jpg
https://old.f4x4.is/new/files/photoalbums/6411/54768.jpg
Þetta er sleðinn og kerran ef þið verðið varir við sleðann og kerruna einhverstaðar þá vinsamlegast látið vita í síma
6632664 Sturla
8989667 Hilmar
5872286 H Jónsson Réttingar og Sprautun
Endilega hafið augun opin svo þessir aumingjar komist ekki á sleða yfir jólin
19.12.2008 at 23:22 #634936Ætli Pat-rollan muni þá koma með að kosta 19,8 mill. með diesel. Bara pæling, ég myndi td ekki kaupa patroll á íbúðarverði eins og LC 200.
19.12.2008 at 09:02 #634958Það er reyndar eitt. Að langstærsti notendahóurinn af NMT er að detta út. Skipaflotinn okkar er orðinn netvæddur gegnum gervihnött þannig að notkun á NMT hjá þeim hríðfellur. Ég hef alltaf haft NMT í bílnum hjá mér og finnst það góður öryggisbúnaður og vill alls ekki að þetta hætti.
19.12.2008 at 09:01 #634956Það er reyndar eitt. Að langstærsti notendahóurinn af NMT er að detta út. Skipaflotinn okkar er orðinn netvæddur gegnum gervihnött þannig að notkun á NMT hjá þeim hríðfellur. Ég hef alltaf haft NMT í bílnum hjá mér og finnst það góður öryggisbúnaður og vill alls ekki að þetta hætti.
18.12.2008 at 00:09 #634916Þarf þá kanski að skifta um bón líka…
-
AuthorReplies