Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.06.2009 at 19:44 #648634
Já þetta er einmitt staðurinn sem ég var að hugsa um, nafnið var bara gjörsamlega stolið úr mér. Mig minnti bara að sumarferiðn 2006 eða 7 hafi verið þarna. Nú eftir að nýa síðan kom upp þá eru allar gamlar fréttir farnar…
Ég prufaði að gúgla staðinn og fann heimasíðuna. http://www.thakgil.is Ég fer allavega þangað í næstu útilegu.
Takk fyrir þetta…
Mbk. Ingi Bjöss
08.06.2009 at 23:37 #204506Sælir félagar.
Hvað heitir aftur tjaldstæðið sem sumarhátíðin var fyrir nokkrum árum. Rétt við Mýrdalsjökul eða þar nálægt???
04.05.2009 at 12:42 #647104Ég myndi treista mér til að bakka svona dóti þó ég hafi aldrei prufað það áður. Bara snúa stýrinu lítið og fara hægt yfir. Þegar ég var í meiraprófinu á sínum tíma talaði kennarinn um það að snúa stýrinu ekki meir en 1/4 úr hring þegar bakkað sé með beislisvagn. Ég held að það sama eigi við hér.
Mbk. Ingi Bjöss.
26.04.2009 at 10:06 #646538Hann eyðir allavega minna en 2.8 patrol á fjöllum. En meira í venjulegum akstri.
15.03.2009 at 00:28 #643552Blessaður hættu þessu rugli og breyttu wrangler á 38". Það er verið að reyna að greyna vandann hjá ísl erfðagreiningu, það bara finnst ekki hvað það er sem er að hrjá Toyotu eigendur. Þeir eru bara geðveikir þegar það kemur að verðlagningu á notðuðm breyttum Toyotum.
07.03.2009 at 10:02 #6425801. ég keypti eldhúsvask í byko með hliðarborði á 16000 minnir mig. hann var mikið stærri og flottari en þessir vegghengdu stálvaskar. sem kosta frá 25þús…
2. Þú færð svona rúllur allt frá Europrice upp í landvélar og Skúlason&Jónsson. Allt eftir því hvað þú vilt borga…$$$ Minnir að 1/2" slanga í kefli frá S&J hafi kostað 40000.-kr. Talsvert ódýrara í byko minnir mig.
3. Farðu í Fálkann og talaðu við þá. Þeir eiga allar gerðir af svona blásurum. Þeir eiga líka blásra sem eru settir inn í loftræsti rör, minnir að fyrir 4" rör hafi blásarinn kostað 10-15 þús. Svo ferð þú í Hagblikk í smiðjuhverfinu í kóp og kaupir rör og beygjur tilbúið hjá þeim svona rör eru ekki dýr. Mikið betra kerfi heldur en að hafa blásra í glugganum.
4. Ég kaupi mína geyma í Rafgeymasölunni í hfj. Er samt ekkert viss um hvort þeir séu eithvað ódýrastir en þar færðu mjög góða þjónustu og mjög góða vöru.
5. Guðmund Ara. Málmtækni. Héðinn og sindra stál.
Vona að þetta komi að einhverjum notum. ég var að brasa í þessu nú um daginn. og þetta er allt saman fljótt að telja upp í hundraðþúsundkalla…$$$$ þannig að ég er bara að dóla í þessu í rólegheitum svona eins og maður á pening.
01.03.2009 at 21:43 #642208Nú hef ég ekki persónulega reynslu af þessu en það er rökréttara að meira gúmmý þýði meira flot. Þar að segja er baninn á 44" dekki fyrir 16.5" felgu minni en dekk sem er fyrir 15" felgu.
Þannig að ég myndi segja að 44" dekk fyrir 16.5" felgu fljóti minna en dekk fyrir 15" felgu.
Mbk. Ingi Bjöss.
21.02.2009 at 15:10 #641654Ég var með svona 37" undir grandinum sem ég átti. Það kom alveg ágætlega út. Dekkin voru Dick cepek FCII 37×13,5R15 minnir mig og stóðu vel 37" Þetta er sama uppbygging og í raun sama dekk og 35×12.5R15.
Ef ég væri að fara að græja svona í dag myndi ég sleppa 37" og fara bara í 35". Navaran sem ég átti og Chevrinn sem ég á núna eru einmitt á DC FCII 35×12,5R17 og þetta eru bestu 35" dekk sem ég hef keyrt á. Gamli grandinn minn er á 35" sumardekkjum í dag og ég hef séð hann þannig og kemur mjög flott út.Jeep kveður. Ingi Bjöss.
19.02.2009 at 00:41 #641396Er ekki bara bæði betra… drif og kubbur. ég myndi alltaf byrja á hlutföllum ef bíllinn á að draga eithvað.
18.02.2009 at 07:51 #641186Ertu búinn að athuga með hvað þetta kostar nýtt í brimborg. Það var nefnilega merkilega ódýrt var mér sagt. Einhver sem keypti sér s80 leigubíl. Skipti út áklæðinu á framsætunum fyrir minnir mig 60-100 þús
16.02.2009 at 13:59 #640968Mig langar nú bara að benda á að það þarf meirapróf á alla ameríska diesel pickupa og bíla með heildarþyngd upp á 3500kg, fyrir þá sem eru fæddir eftir 1.mai 1974 mig minnir að prófið breytist þá.
Mbk. Ingi Bjöss. sem er með meirapróf…
21.01.2009 at 13:54 #638570það er ekki endilega samasem merki að krókur jafngildi dana 44. gæti samt verið. Stór efast um að hann sé á dana 44 mjög líklega dana 35.
Þessir tow package eru svo skrítnir. ég er td með svleiðis í bílnum mínum en hann var samt ekki með 4.10 drifi. það kostaði nebblega extra 100$ eða eithvað þannig að kaninn sparaði… og ég þurfti að eyða samsvarandi 2000$ fyrir kreppu til að fá 4.10. þar að segja með því að redda því hérna heima.
06.01.2009 at 12:45 #636378Er ekki arctictrucks að selja framköggul sem boltast beint í með dana 50 drifi arb læsingu og hlutfalli á 300þús fyrir kreppu. í komið.
05.01.2009 at 23:44 #636272Og hvað á svo að drífa þetta bíl-apparat áfram?
04.01.2009 at 23:22 #636164Verður ekki haldin fundur og eithvað gaman og málið rætt til þrautar.
04.01.2009 at 20:47 #636254Þarf ekki bara 3 patrola til að komast af stað…
04.01.2009 at 17:21 #636152Ég er til skráðu mig.
Ingi Björnsson. R3073.
04.01.2009 at 16:23 #636222Efast nú um að það sé einhver einn aðilli yfir alla hafinn í þeim málum. En ég myndi benda þér á Arctic trucks. Þeir eru alla vega mjög góðir og vandaðir.
http://www.arctictrucks.isÞeir breyttu Navöru fyrir mig á 35" árið 2006 og kom mjög vel út.
03.01.2009 at 21:35 #636078Ég veit ekki af hverju en mig langar bara mikið meira í beinskiptan. Maður ætti sumsé að geta tekið gírkassa af 12ventla bíl og sett hann á 24 ventla.
03.01.2009 at 19:56 #636126Er þetta gert á dagvinnutíma á virkum dögum. Ég væri nú kanski til í að skoða þetta, þá Arnavatnsheiði eða Víðidalstunguheiði. . Ná Launin inn fyrir öllum kostnaði? fyrir utan bilanir sem gætu komið upp.
-
AuthorReplies