Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.10.2006 at 18:19 #563264
Lúddi ef þú ert ekki með Hugtakið að konur séu Grasekkjur á hreinu, þá myndu konurnar okkar líklegast flokkast undir það. Við aldrei heima og þær alltaf heima með börnin…
13.10.2006 at 18:13 #563262Svoleiðis takk. Maður á það til að sleppa að lesa smáaletrið…
12.10.2006 at 21:22 #563258Af hverju sé ég ekki myndirnar hér að ofan.
12.10.2006 at 21:17 #563254Ætli Gísli Þór (gþþ) eigi ekki skuldlaust óhepni Ársins. [img:3tltzd5h]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4219/28542.jpg[/img:3tltzd5h]
04.10.2006 at 22:59 #562200Þú getur líka lært að prjóna…
04.10.2006 at 22:56 #562250Á gamla bílnum mínum var skipt um liðhús hægramegin að framan, sem er fyrir sér togstöng og sér millibilsstöng, Það var aðallega gert til að fá sama halla á togstöngina og skástýfuna í hásingunni. Einnig kemur þá heil millibilsstöng. einnig settum við annan sektor-arm og gátum því stækkað allla stýrisenda nema einn. Kjartan í mosó pantaði liðhúsið frá ammeríku og minnir að Það hafi kostað um 30 þús.
Ég mæli samt með því að skipta bara um allt klabbið að framan og fara í dana 44.
15.09.2006 at 23:31 #560324Er nú nokkuð sama um nærbuxurnar hans Bjarna, enda síðasti staðurinn sem maður vildi lenda "í". En pæling með liti, hef farið framm úr flestum bílum upp kambana í svörtum bílum, camaro og F250 óbreyttum bílum. Samt ekki bestu bílarnir í torfærur þó camaroinn sé skuggalega nálægt F250 í drifgetu svona í afturdrifinu…
En áfram svart… Cherokee og Wrangler hef ég átt báðir svartir og hafa drifið mest í hóp svipað breyttra bíla, þannig að Svart er málið…Sér ekki á svörtu…
12.09.2006 at 23:16 #560026Það er samt sem áður sama gatadeiling. Þó það sé kanski ekki sama off-set/backspace, svo getur munað líka felgubreidd. Ég var alltaf með 13.5" breiðar felgur á cherokeeinum til að dekkin væru slétt við kantinn, meðan að flestar toy eru settar upp fyrir 12"
27.08.2006 at 23:31 #558756Hlutföll eru aldrei óþörf. Ef þú vilt halda sama afli út í hjól og eyðslunni niðri skaltu setja 1;4,56 hlutfall. Talaðu við Kjartan uppí mosó með kanta, hann er búinn að breyta svona bíl.
Þessir bílar eru mjög svalir á 35".
23.08.2006 at 00:04 #558442Ég ætti nú varla að viðurkenna það í þessum klúbb að vera kominn á Nissan Navara. En ef þú ert að pæla í nýum dísel bíl Þá er navaran málið tel ég.
Mig vantaði bíl sem sameinaði vinnu og áhugamál, og extreame jeppaferðir farnar úr topp 5 áhugamálunum. Nissan hefur kraftmestu dísilvélina og er þokkalega mjúkur á 35 tommuni og eyðslan er 10-14 Lítrar á 100km. Hann er eithvað þyngri en Hiluxinn en töluvert kraftmeiri. Ekkert vandmál að fá leður og ercon ssk og allt sem Landcrusier býður uppá plús það að vera jafn kraftmikill og krúser.Bara að bæta inn að Navara er með: 9" afturdrif 7,5" framdrif, raflás að aftan, 1;265 niðurgírun í kassa, 6gíra kassa eða 5gíra ssk.
14.06.2006 at 19:07 #554494Eina sem þarf er skortur á skynsemi, logsuðu og Stóran hamar…
14.06.2006 at 19:02 #554542Ef þetta væri í bremsudiskunum væri það aðeins þegar þú bremsar ekki í stöðugum akstri.
Hljómar bara eins og illa balanserað. Stundum þarf að para dekk og felgur sérstaklega saman. Með spes balanseringargræju. Talaðu við Sigga Ævars í Pitstopp eða strákana í GVS þeir gætu vitað um þetta.
08.06.2006 at 23:23 #554160Blessaður fá þú þér 37"*13.5" dekk miklu frekar.
Mikið stöðugri þar að segja vibra ekki neitt og töluvert hljóðlátari. Ég var með Dick Cepeck 37" mjög góð malbiksdekk. Eyðslan niður og þú heyrir nöldrið í konuni… má deila hvort sé kostur.
06.06.2006 at 23:14 #553954Var hún kanski utan vegar eða á lokuðum fjallvegi sem er jafn mikið utan vegar eins og traktor á túni. Bara pæling þar sem birt var mynd af toyotu yaris á kjalvegi sem var lokaður og ökumaður kærður fyrir utanvega akstur.
Bara pæling…
sjá hér: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/fr … id=1205695
05.06.2006 at 23:07 #553726Langar bara að benda á að hestamenn voru að fá 270.000.000.-kr. í styrk til að byggja reiðhallir víðsvegar um land. og skiptist niður í 5 mill í litla reiðskemmu. 15 mill í milli reiðskemmu og svo 30 mills í reiðhöll. Þessu er svo dreift á milli hestafélaga eftir höfðatölu félaga og fleiri leiðum.
Bara ef að brot af svona styrkjum segjum 10% færu til vík erum við að tala um 27.000.000.-kr. og það er gott start á uppbyggingu á þessu sporti.
05.06.2006 at 19:54 #553706Þessi umræða á málefnin.com er svolítið umdeilanleg. Þessi gaur Spanni á bara við einhver vandamál að stríða. Það er allt í lagi að vera umhverfissinni sem ég er nú sjálfur og ég á mótocross hjól, en að vera einblíndur í að skaða og meiða annað fólk er náttúrulega lögrbrot á verra og æðra stigi í réttarkerfinu en að keyra utan vega.
Það sem hann segist vera að gera er út í hött. Setja upp vörður og grjóthnullunga í för eftir mótorkrosshjól gagngert til að skaða og meiða jafnvel drepa, getur allt eins leitt til manndráps með yfirlögðu ráði og 15 ára fangelsi, ef næst að sanna þetta á hann. Hvað þó að vera með þetta á samviskunni að hafa stórslasað jafnvel örkumlað annan mann/konu. Ekki væri ég til í það. Það eru aðrar betri leiðir heldur en að setja stein við næstu blindhæð þar sem maður á hjóli kemur á siglingunni.
Langar líka að benda á það að Spanni talar undir huldu höfði og fynst mér það vera lákúrulegt. Að bauna út skoðunum sínum og úthýða alla sem tala gegn honum sýnir aðeins minnimáttarkend.
04.06.2006 at 23:31 #553674Ég er sammála síðasta ræðumanni. Allir sem taka eldsneyti eru í leið að borga HESTASTÍGA meðfram öllum þjóðvegum. Einhver prósenta af álagningu eldsneytis rennur til vegagerðarinnar sem leggur þessa stíga. Í henni blessuðu ameríku eru þessir stígar samnýttir fyrir fjórhjóla, mótorhjóla, hesta og gangandi vegfarendur. Þannig ætti það lika að vera hér.
Jeppamenn eru svo til svipaðir sóðar. Það þarf nú ekki nema keyra mýrdalssand til að sjá hryllileg vegsummerki eftir breytta jeppa í sandhólunum þar. Rámar í að það hafi náðst myndir af íslendingum pikkföstum í drullu utanvegar við kleifarvatn.
Svo segið þið að ríkið eigi ekki að standa í að borga undir aðstöðu handa hjólamönnum sem spóla út landið. Á þá ríkið að hætta að leggja vegi fyrir bíla um allt land. Eða hætta við að veita 200 miljóna styrk til að byggja reiðhallir víðsvegar um allt land. Ef vík fengi 200 milljónir einusinni væri líklega hægt að sjá fyrir aðstöðuleysi soldið framm í tíman.
Ingi
01.02.2006 at 21:37 #541012Er þetta bara ekki venjulegur kveikjulögur á kol. Ég er viss um að það sé hægt að finna sambærilega mynd af sjálfum mér vera að bæta vökva á grillið með charbroil kveikjulög, sem btw lýtur nákvæmlega út og þessi mynd á linknum.
24.01.2006 at 21:19 #540146bara hringja inn í Ingvar Helgasson… sem selja nissan með pallhúsi
25.09.2005 at 20:00 #196315Veit einhver hver á wyllisinn sem er á skrá hjá Bílamarlaðnum 83′ model með 360 motor???
Bílasalinn nær ekki í eigandann. Búið að vera á tali hjá honum í meira en viku.http://www.bilamarkadurinn.is/
Væri geggjað ef einhver myndi pikka í gæja og láta hann vita…
-
AuthorReplies