Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.05.2006 at 19:53 #552116
Eru menn með myndavélar í bílunum?
Á einhver myndir af þessu?
Ég er að deyja úr forvitni.
05.05.2006 at 13:45 #551990Þessi hlýtur að vera fínn, léttur, meðfærilegur og ódýr í rekstri.
[img:3ht1nrfq]http://www.funrise.com/images/prod/P06166_0Ra.jpg[/img:3ht1nrfq]
05.05.2006 at 11:26 #197907Þetta er framtíðin, nú fer dísel hilux að frussa fram úr þessum amerísku með litlu v8 vélarnar ;p
http://www.leftlanenews.com/2006/04/24/massive-yet-tiny-engine-promises-big-things/
21.04.2006 at 18:00 #550164Ég myndi nú segja að allt sem þú ferð með á fjöll og hefur bein áhrif á heilsu þína og öryggi ætti að vera vönduð og dýr merkjavara.
Það er oftast það sem þú ekki sérð sem skilur að ódýra dótið í Hagkaup og dýra dótið í 66°N/Útilíf/Skátabúðinni.
Trefjarnar í svefnpokanum, efnið í gleraugnalinsunum og filman innan í gallanum skipta máli, sama hvað einhver nískupúki segir.
Stóru nöfnin leggja mikla vinnu og ástríðu í að búa til afburða útivistarvörur sem að "SuperDuperMountainExpeditionExplorerExtravaganza" framleiðir síðan lélegar eftirlíkingar af og selur í stórmörkuðum og bensínstöðvum fyrir brot af því sem alvöru dótið kostar.
Þannig að þú ættir ekki að fara mikið niður fyrir 10 þús. kr þegar að jöklagleraugum kemur.
Haukur
16.04.2006 at 21:18 #549544Nýliðar í bjsv fara á 2-3 daga námskeið í fyrstuhjálp, skrefinu fyrir ofan skyndihjálp. Mér finnst ekki mikið mál að menn komi saman í skála um helgi og taki á því.
Kannski óþarfi að fella menn ef þeir ná ekki 70% eins og Landsbjörg gerir.
Þetta er að vísu það mikið nám að maður er allann daginn, snemma morguns til 23 á kvöldin, bóklegt og verklegt.
En þarna lærir maður mikið sem er ekki kennt á "hnoða, hringja, sitja á rassgatinu og bíða eftir sjúkrabílnum" námskeiðum.
Svo gæti verið flott fyrir þá sem hefðu áhuga á því að verða mjög góðir að fara í fyrstuhjálp 2 og fyrstuhjálp í óbyggðum. Gott dæmi um það hvað fyrstahjálp í óbyggðum er góð er að þú hefur rétt til að úrskurða manneskju látna ef þú er 2 eða 3 tímum frá næsta sjúkrahúsi. Þar lærir fólk líka að kippa í liði og margt annað nytsamlegt.
Kannski óþarfi að allir fari í svona mikið nám en ef f4x4 fara í samstarf við LB þá yrði þetta ábyggilega í boði.
Haukur
15.04.2006 at 17:46 #549496Það er eins og Ofsi sagði, mikið búið að vera að gera hjá okkur bjsv mönnum og konum. Þegar ég kom heim úr Langjökulsútkallinu þá var strax komið annað verkefni.
Tveir jeppar voru fastir við Laugafell, Cherokee á 38" og einhver annar fastir í krapa, farið að flæða inn í Cherokee. Það fóru þrír bílar frá okkur í það og svo kom annað útkall um korter í átta minnir mig.
Ætli að menn tími ekki að kaupa sér GPS á 10-15 þús og snjóflóðaýli á 30 þús, eða ætli menn viti bara ekki af mikilvægi þessara hluta?
Það eiga allir að geta verið skotheldir á fjöllum.
Ég man eftir nokkrum hlutum núna sem allir ættu að eiga:
GPS, þó ekki sé nema göngutæki á 10 þús kr.Áttaviti, hægt að fá mjög góða áttavita á ca 3000 kall.
Kort af svæðinu, 100.000/1 kort kosta held ég innan við 1000 kall og þá ertu með hæðarlínur og allt.
Góð nærföt, ull eða flís, helst ekki bómull, geta kostað skít og ekki neitt eða ef menn vilja dýrt, ca 20 þús.
Gott varmalag, flísbuxur og peysa, frá 5000 kr stk, eða gamla góða lopapeysan sem amma gamla prjónar á kostnaðarverði.
Hlífðarföt, vind- og vatnsheldur jakki og buxur, getur kostað eins mikið og menn vilja, 10- 30 þús stk.
Snjóflóðaýlir, 30-40 þús kr, en alveg þess virði ef maður er undir tugum cm af snjó.
Snjóflóðastöng, 10.000 kall.
Svefnpoki, 20 þús og þá ertu líka mjög góður í háttinn.
Góðir skór, 20-30 þús, ekki gaman að leita að leið gegnum torfærur eða finna vin sinn í snjóflóði á strigaskóm.
Fjarskipti, gamall NMT sími á spottprís eða glæný VHF stöð á 50 þús (handstöð eða í bílinn).
Svo náttúrulega húfa, hanskar og góðir sokkar.
Þetta er náttúrulega miðað við mínar kröfur til búnaðar og ekki víst að allir séu tílbúnir að borga 20-30 þús fyrir jakka.
Menn gera bara upp við sig hvað þeir vilja, en ég færi ekki á fjöll án þessara hluta og myndi ég bæta miklu við listann. Þessi listi er svona 130 -200 þús kr virði, eftir því hvað menn vilja leggja mikið traust á búnaðinn. Margborgar sig samt held ég.
Svo er náttúrulega ódýrast að skilja eftir ferðaáætlun.
Haukur
12.03.2006 at 17:14 #546236Á nú að fá sér hö í Willys?
03.03.2006 at 01:19 #545330Ok, takk fyrir það.
Hvað á að fara að dútla við núna uppi í "koti"?
Haukur
02.03.2006 at 17:49 #197456Við vorum að hugsa um að fara á 33″ Hilux upp í Réttartorfu um helgina. Vorum helst að hugsa um að fara hraunið. Veit einhver hvernig færið er þarna?
Haukur
28.02.2006 at 09:56 #509818FIA fer fram á það í sínum reglum að allir hlutar búrsins sem gætu komist í snertingu við höfuð ökumanns eða einhvers farþeganna sé hulið með púða.
Frauðpúðar sem eru þéttir í sér og leggjast ekki alveg saman eru bestir, þeir eru þarna til að verja fólk fyrir stálinu, ekki til að halda búrinu hreinu.
Mér finnst að menn mættu skoða þetta jafnvel þó að þeir ætli ekki í rallí. Það er varla gaman að reka hausinn í bera stálpípu ef maður lendir á ójöfnu.
Haukur
27.02.2006 at 10:52 #544650Ég samhryggist fjölskyldu hins látna og vona innilega að sá slasaði komist fljótt til góðrar heilsu og aftur á fjöll.
Ég var á snjóflóðaleitaræfingu með u.þ.b. 20 bjsv mönnum og konum þegar við fengum boðann, F1 rauður.
Mér þótti verst að geta ekki orðið að liði.Haukur Þór Smárason
25.01.2006 at 23:33 #540340Ef það er spennir þá er þetta kannski eitthvað af viti.
Ég er með fjórar svona H4 perur sem voru merktar "Xenon superlight" og voru í rosafínum öskjum með spegli og allt rosa nice, en fyrir 15.000 kall þá hefði ég búist við meiru. Þetta er aðeins sterkara en glæru halogen perurnar sem ég var með og svo er svona blárri geisli, annað er það nú ekki.
Haukur
25.01.2006 at 23:21 #540334Eru þetta ekki bara svona venjulegar perur með bláum lit?
Ég hef keypt svona og þeta er bara brella. Xenon ljós eru háspennuljós sem kosta tugi þúsunda og virka samkvæmt því.
Var ekki Elías í stappi vegna Xenon ljósa frá tryggingunum? Ég held að þau hafi kostað 64.000 kr eða 94.000 kr.
Haukur
30.12.2005 at 12:35 #537204Og endilega minna fólk á það að þetta sé ekki peninga
eyðsla og að ekki sé verið sé að brenna peninga.Sjálfur ætla ég ekki að kaupa flugelda, ég ætla bara að styrkja einn björgunarsveitarmann. Mig!
Haukur
bjsv Súlur
12.12.2005 at 20:28 #535770Ég vill benda yfirvöldum á að það má virkja lagnirnar hérna. Drenlagnir, þakrennur, niðurfallið, skólpið og þvagrásina á mér, bara svo að við missum ekki af einu einasta watti sem kreista má úr þessu skeri okkar.
Haukur Þór
18.11.2005 at 11:43 #196664Hvernig voru reglurnar um það hversu stór dekk mega fara undir bíla? Ég veit það tengdist eitthvað stærð dekkja og lengd bíls, en er ekki með þetta á hreinu.
Félagi minn er að skoða fjögurra dyra Vitara/Sidekick og vill vita hversu stóru gúmmíi hann getur troðið undir hana.
Haukur.
11.11.2005 at 00:07 #531872Þeir sem stýra málefnin.com hafa greinilega séð eða fengið veður af þessari umræðu, þeir hafa lokað þessum "brandara".
03.11.2005 at 15:47 #529324Neyðarlínan hefur keypt TETRA kerfið og hefur talað um að koma því í sömu dreifingu og NMT um svipað leiti og NMT dettur út.
Þó verða sömu vandamál með t.d. Vatnajökul en það reddast kannski seinna.Ég held að það væri fínt kerfi. Maður getur verið með grúppur í símanum og líka notað símann sem talstöð. Ég er bjartsýnn á að TETRA muni virka vel.
Haukur
02.11.2005 at 16:28 #530776Þetta virðist nú bara vera eins og snjóakkeri.
Björgunarsveitir hafa notað svona, ég veit til þess að Súlur eru með akkeri í allavega öðrum jeppanum hjá sér og HSSR eru með þetta líka.
Ef þetta er af réttri stærð og notað í réttu færi þá á þetta að svín virka
01.11.2005 at 15:27 #530468Ég hef heyrt að neyðarlínan hafi keypt TETRA kerfið og að þeir ætli að koma því í sömu dreifingu og NMT kerfið, þ.e. u.þ.b. 98% um svipað leyti og NMT dettur út, eða jan 2008.
Ég er mjög spenntur fyrir þessu, því ég hef heyrt að þeir ætli að hafa þetta hliðrænt frekar en stafrænt.
Ég tek þó enga ábyrgð á þessari frétt.
Haukur
-
AuthorReplies