FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Haukur Þór Smárason

Haukur Þór Smárason

Profile picture of Haukur Þór Smárason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 375 total)
← 1 … 6 7 8 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 09.01.2007 at 17:56 #574714
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Afslættirnir sem ég hef fengið hjá Toyota, Bílanaust og hjá fleiri öðrum hafa margborgað félagsgjöldin.

    Hvað varðar klíkur þá hef ég ALDREI lent í því að menn hafi verið með einhver leiðindi við mann.

    Klúbburinn í heild sinni er mjög góður. Það eru aðeins örfáir menn sem ég hef séð sem ég myndi ekki vilja ferðast með, engann þeirra ætla ég að nafngreina, mér finnst menn eiga að mynda sér sína eigin skoðun á þeim.





    05.12.2006 at 09:41 #570214
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég hef prófað að fara með gamla Hilux lykla og það virkaði ekki.
    Toyota eru ekki með kóðann í tölvunni hjá sér, reyndi það.
    Löggan opnar ekki lengur bíla, prófaði það í fyrra.

    Núna er helst að opna bílinn með einhverju öðru en lykli, rífa hægri cylinderinn úr og láta smíða lykil eftir honum eða einfaldlega að selja hann eins og hann stendur;)

    Kannski vill Valur kaupa hann, hann ætti að geta opnað hann.

    Ég verð líklega bara að halda áfram að djöflast á stöngunum inni í hurðinni.

    Haukur





    03.12.2006 at 21:37 #199090
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Er einhver á Akureyri flinkur við að brjótast inn í Hilux?

    Málið er að ég þarf að komast inn í bílinn minn og fara með lásacylinder til Toyota til að fá lykla.

    Fór áðan og reyndi eitthvað að pikka í stangirnar inni í hurðinni en það gerðist rosalega lítið. Held að ég hafi ekki verið með nógu sver verkfæri, bognuðu bara.

    Getur einhver reddað mér?

    Haukur





    27.11.2006 at 10:57 #569570
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég prófaði 89´ lykil og annan sem ég held að sé 91´ og ekkert gerðist. Þetta var það fyrsta sem ég gerði.

    Núna er ég búinn að hringja í Toyota AK, lyklarnir koma líklega á morgun og kosta ca 700-800 kr. stk.
    Þetta er nánast gefins, gott að maður er ekki lengur á Hondu, það er ekkert gefins þar;)





    26.11.2006 at 19:22 #569566
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Það er nú gott að vita þetta, þetta reddast þá.

    Svo fer ég í það núna að fela lykil utan á bílnum, í kastara eða eitthvað.

    Það var ekki laust við að maður fengi smá sting í hjartað þegar maður fann ekki lykilinn.

    Svo er algjör snilld hvað menn eru fljótir að koma með svör við svona spurningum.





    26.11.2006 at 18:06 #199053
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Nú er ég búinn að týna lyklinum að jeppanum og nú er úr vöndu að ráða.

    Er toyota nokkuð með einhvern masterlykil?

    Er toyota kannski með einhvern lyklakóða sem hægt er að smíða eftir, svona eins og litakóða og verksmiðjunúmer?

    Eða ætti ég bara að bora sílinderinn út og setja skrárnar og svissinn úr gamla Hiluxinum.

    Þetta er 90´ módel dísel ef það skiptir einhverju máli.

    Haukur.





    28.10.2006 at 18:11 #198832
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Þetta eru alvöru bílar hvort sem þeir eru 1:1 eða 1:10.

    Þeir hafa meira að segja gert sína bíla hasta til að halda þeim sem raunverulegustum;)





    05.09.2006 at 19:14 #542608
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég vil hrósa Kiichiro Toyoda fyrir magnað framtak í sögu jeppanna.

    Svo fær hann Benni okkar norðanmanna hrós fyrir tilraun sína til að prufa allar jeppa tegundirnar á markaðinum.

    Svo vill ég hrósa skálanefnd Eyjafjarðardeildar fyrir skálann á Réttartorfu.

    Haukur





    05.09.2006 at 18:56 #559358
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum ef að Hrælux stenst gæðakröfur.

    Við tölum bara saman á fundinum í kvöld.





    18.08.2006 at 09:34 #558100
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég var að kaupa dynex á Warn 9000i spil um daginn. Ég tók 8 mm svert, það á að þola 4,5-5 tonn minnir mig.

    Til gamans má geta að það sem var notað til að draga Baldvin úr strandinu var Dynex með svipaðan sverleika og sver karlmannsúlnliður, eða svo sagði sölumaðurinn mér;)





    15.08.2006 at 15:16 #198376
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Nú er þannig mál með vexti að Hrælux er farinn að sprengja öryggið fyrir vélaraðvörunarljósin (smur-, tímareimar- og hleðsluljós) frekar reglulega.

    Gangurinn er eðlilegur og annað rafmagn í lagi.

    Kannast einhver trúbróðir minn við þennan vanda?Er þetta ekki bara eitthvert sambandsleysi?

    Haukur

    P.s. Ef allt fer á versta veg þá má alltaf bara hafa hann á bílastæðinu og breyta honum upp á lúkkið;)





    09.08.2006 at 15:32 #557568
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég mun vera þessi maður sem hefur ekki meiri trú á aksturhæfni sinni en það að vilja veltibúr í bílinn.

    Er í lagi að ég bjalli í þig og spyrji þig spjörunum úr?





    09.08.2006 at 09:51 #557474
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Það var alltaf planið að vera með svona frauðtúbur utan um rörin kringum höfuðið á manni og við hné.

    Svo að mála þetta líka og koma fyrir nylon slingum sem handföngum.

    Ég fékk líka sms í gær og var bent á Stálnaust (544-8333). Ég vill bara þakka þeim sem sendi það.
    Fer í það í dag að hringja í þá og kíki líka á rallíspjallið.





    08.08.2006 at 17:53 #557468
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég hafði einmitt hugsað mér að hafa tvo heildregna boga, einn fyrir aftan framsætin og hinn bakvið aftursæti. Síðan að hafa slá á milli boga fyrir ofan hurðir og leiða síðan fram að mælaborði.

    Ég sá fyrir mér að sjóða plötur í gólfið ca 30×30 cm og grindina á þær.

    Svo þarf ég að skipta um sæti, þyrfti ég þá ekki að tengja þau einhvern veginn við búrið með nýjum sætisfestingum?

    En það er líklega best að tala við rallí sérfræðingana.





    08.08.2006 at 12:56 #198334
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Hafa menn verið að fá sér veltibúr nýlega?

    Málið er það að ég er með Hilux og ætlaði bara að byrja á þessu strax.

    En hver er í því að beygja rör í boga? Nú vill ég hafa þetta almennilegt en ekki illa beygt og jafnvel sprungið og ætla því ekki að beygja það sjálfur.

    Arctic Trucks sögðust ekki treysta sér í þetta og KE Málmsmíði vill ekki kannast við að þeir hafi smíðað búr og ég næ ekki í Prófílstál.

    Vitiði um einhverja fleiri sem ég gæti prófað að herja á með þetta?





    06.08.2006 at 23:17 #557364
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Þyngd 1 líters af díselolíu er 0,830 kg en sama magn af bensíni vegur 0,730 kg.





    31.07.2006 at 22:12 #557136
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég fór þessa leið í síðustu viku og mætti óbreyttum Hilux með camper sem ætlaði niður á Flæður. Við heyrðum síðar að hann hefði komist klakklaust í gegn.





    27.06.2006 at 18:50 #555172
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ég held að þú hafir átt við blowoff. Það er ventill sem framleiðir hljóðið sem alla FM-hnakka dreymir um, pffsshh pffsshh.

    Sá loki hleypir þjöppuðu lofti frá túrbínunni út þegar að slegið er af eða skipt um gír, þ.e. þegar hægri löppin lyftist. Þetta minnkar túrbínuhik þar sem að túrbínan fær að blása óhindrað gegnum þennan loka.

    Ég veit ekki með eldhættuna af því.

    Ef eldhætta er af því er þá ekki bara þjóðráð að leggja rör frá þeim loka og styðstu leið undan bíl?

    Haukur





    22.06.2006 at 01:28 #555052
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Ekki veit ég hvernig ég á að bregðast við þessum ásökunum. Nema að hér sé einhver annar Haukur Þór á ferð.

    Ég fékk smá kökk í hálsinn og fyrir hjartað þegar ég las þetta því að mörgæsirnar hafa náð af mér nægum pening fyrir að fylgja ekki alltaf "ráðlögðum meðalhraða";)

    Kv. HÞS aka Haukur Þór Smárason.





    16.06.2006 at 16:12 #554660
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Rétt það runar, vinyll alla leið;)





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 375 total)
← 1 … 6 7 8 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.