Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.11.2003 at 14:49 #478522
LC120 er þyngri en Hilux, Wrangler og Land Rover og þar af leiðandi þarf meira vélar afl og sterkari (DÝRARI) drif til að koma honum upp brekku. Það tel ég vera algeran óþarfa og skil ekki hvað menn eru að gera á 8-10 milljón kr jeppum sem svo er ekki hægt að steypa í krapa pytt eða inn í skafl af ótta við skemmdir á rándýru, straumlínulöguðu boddíunum.
Ég held svei mér þá að gömlu hrísgrjónin (Hilux) séu mun betri í fjallaferðir, bæði eru þeir léttari en LC120 og mun ódýrara að finna sér nýtt boddý ef það er klettur inni í skaflinum sem maður er að dýfa sér í.
Svo eru það nú Land Rover bílarnir, öxlarnir kosta ekki nema 7.000 kall en öxlar í Land Cruiser kosta 70.000. Það munar um eitt núll.
Ég er ekki á móti Land Cruiser en þessir nýju eru alveg út í hött, of þungir, of dýrir og of dýrt að breyta þeim. Hvernig verður það ef allir jeppar verða svona, ég held að það myndu engir nema ríku kallarnir með verðbréfin sín sem myndu fara á fjöll og allir "fátæku" jeppakarlarnir myndu bara sætta sig við einhverja fólksbíla.
Haukur
05.11.2003 at 14:18 #479710Þessir hönnuðir hljóta að hafa verið á sýrutrippi þegar þeir hönnuðu þennan forljóta og asnalega Jeep. Ekki get ég séð fyrir mér að nokkur jeppamaður með snefil af sjálfvirðingu láti sjá sig á þessu leikfangi. Það er varla hægt að breyta þessu, lítið bara á fjöðrunina á þessu helvíti. Þetta er enginn jeppi, það er ekki hægt að koma göllum, skóm, mat, BJÓR, verkfærum og öðrum útbúnaði í þennan andskota. Ég dey glaður maður ef ég þarf aldrei að ýta svona drasli ofaní sprungu þegar ég mæti því á jökli.
Haukur
04.11.2003 at 12:32 #479656Til hamingju Sunnlendingar, ég vona að þetta haldi sér svona. Það er líka snjókoma hér og allt lofar góðu. Ég vona að allur þessi uppsafnaði vetur komi núna. Núna er búið að vera LANGT sumar og kominn tími á okkur vetrarmenn að fá okkar, hinir geta bara farið til Benidorm.
Haukur
03.11.2003 at 12:30 #479610Við hérna í Eyjafjarðardeild fórum í gær í smá leiktúr. Við ætluðum inn í Flateyjardal en vegna leiðinlegs snjó og nógu af honum fórum við ekki nema 6km af 30 km inn í dalinn. Einn Land Rover braut öxul og þeir sem voru með skriðgír notuðu hann eitthvað. Við fórum Vaðlaheiðina heim og þar var affelgað (Benni á Blazer).
Sem sagt nógur snjór hér fyrir norðan og allir velkomnir að sunnan.
Haukur
31.10.2003 at 12:28 #479452Ég átti við; erum við ekki að tala um jökla.
Haukur
31.10.2003 at 12:26 #479448Að fara rétt með örnefni er gott og blessað en ég hélt að við værum að tala um snjó. Eigum við ekki bara að byrja á öðru spjalli um örnefni í öðrum dálki en þessum.
Ekki það að ég sé að reyna að vera asni.
Haukur
29.10.2003 at 14:45 #479230Þið getið prófað að tala við Benedikt á Akureyri, hann er mikið í gps.
23.10.2003 at 12:59 #478342Þetta eru alveg hreint rosadekk, ég get ekki séð fyrir mér að þessi dekk verði mikið undir jeppum. Þessar blöðrur eru ábyggilega of þungar og stífar miðað við þyngd bílsins.
Hvað ætli einn gangur af svona dekkjum kosti? Ábyggilega svipað og sumarbíll fyrir venjulega jeppamenn.
Haukur
20.10.2003 at 09:52 #478268Þannig að ef ég set toyota hásingar undir hann er hann þá alveg að höndla flest dekk?
Ég er feginn að það er hægt að fá hann með 2.8l dísel vél, ég hafði nefninlega hugsað mér að setja 2.4l dísel úr hilux ef hann væri bara bensín bíll. Ég er að pæla hvort hægt sé að fá hærri topp á Rocky (ég er um það bil 2 metrar á hæð), og hvort það sé mikið mál að koma honum á.
Haukur
19.10.2003 at 01:11 #193041Veit einhver hvort hægt er að breyta Daihatsu Rocky með góðum árangri? Hvernig stendur hann sig við hlið öflugri og stærri bíla, t.d. Patrol og 4Runner?
Ég er búinn að velta fyrir mér ýmsum bílum og ætla að byrja á einhverju litlu og sparneytnu. Veit einhver til dæmis hvort Rocky er nógu sterkur fyrir 36″ eða 38″ dekk (með töluverðum stífum og bitum í grind að sjáfsögðu)?
Haukur
07.10.2003 at 12:41 #476746Hlíðafjall við Eyjafjörð er orðið hvítt og hefur verið síðan í gær eða fyrradag. Verðum við ekki að halda í vonina um snjó? Í gær var því nú spáð að það ætti að fara að snjóa í kvöld.
P.S. Smári á Skíðastöðum í Hlíðafjalli sagði mér að það hefði verið ökkladjúpur snjór á bílastæðinu þar í gærmorgun.
Haukur
06.10.2003 at 13:04 #477318Klukkan hvað eru þessir fundir? Hvað er talað um þar?
Haukur
02.10.2003 at 12:43 #192942Veit einhver hvort f4x4 er með einhverja vikulega/mánaðarlega fundi á Akureyri? Ef svo er hvar eru þeir haldnir?
Haukur
29.09.2003 at 09:56 #476914Ef ég skil ykkur rétt þá kemur Vitara ekki mað air condition og ætti þar afleiðandi að vera léttari. Ég held að ef ac og annar munaður er eini munurinn velji ég frekar Vitara.
P.s. er hægt að fá dísel í Vitara?
Haukur
26.09.2003 at 11:16 #476900Þakka þér fyrir VO767. ég var farinn að halda að munurinn á Sidekick og Vitara væri svipaður og munurinn á Hilux og Hilux SR5. Veistu hvort maður getur fengið Sidekick/Vitara með díselvél eða hvort þetta eru bara bensín jepplingar?
P.s. Það er náttúrulega ekki hægt að vera á litlum sparnaðarbíl og að vera svo með bensínvél.
Haukur
26.09.2003 at 09:17 #476966Það er náttúrulega ógeðslegur dónaskapur að skilja skálana eftir skítuga og að borga ekki einu sinni fyrir (sem er í sjálfu sér þjófnaður) og að sumir heimti svo aukabúnað við skálana. Það eru kannski ekki þeir sömu sem ganga um eins og svín og þeir sem vilja heita potta og þess háttar. En vitum við það fyrir víst? Hvernig ætli það sé fyrir t.d. útlendinga að koma að grútskítugum skála? Munu þeir þá ekki bara skilja við hann jafn skítugan? Mér finnst persónulega að allir þeir sem nota skálana utan gæslutíma ættu að taka ruslið sitt, ganga frá blöðum og bókum og öllu öðru sem þeir hafa notað í skálanum og að sópa eða skúra gólf. Það tekur nú ekki langan tíma að henda öllu á sinn stað meðan bíllinn hitnar fyrir utan.
Haukur
26.09.2003 at 08:57 #476894VO767 getur þú sagt mér hver munurinn á Sidekick og Vitara er eiginlega. Ég hef verið að skoða þessa bíla og þeir eru allir með eins bílstjóra og farþega hurðir, í sama stærðar flokki og á klöfum. Er einhver grindar eða véla munur? Ég spyr nú bara vegna þess að mig vantar léttan byrjendajeppa og hef verið að velta þessu fyrir mér.
Haukur
26.09.2003 at 08:41 #476892Ég vissi nú reyndar að ég þyrfti ekki jeppa til að ganga í f4x4, ég fer bara með bróður mínum í ferðir. En þarf ég ekki að vera félagi til að koma á mínum eigin jeppa í ferðir f4x4?
P.s Hversu mörg fyrirtæki veita afslátt til f4x4 meðlima?
Haukur
25.09.2003 at 12:48 #476882Það sem ég ætlaði að segja með vinnuferðinni var að ég hef tekið þátt í starfi klúbbsins og lagt mitt af mörkum, finnst þar af leiðandi að ég ætti að fá að skrifa.
Haukur
25.09.2003 at 12:44 #476880Þakka þér fyrir Valdimar. Ég hef tekið þátt í vinnuferðum (t.d. rafmagnsgirðingin uppi við Réttartorfu). Mér finnst að allir ættu að geta tekið þátt í spjalli.
Haukur
-
AuthorReplies