Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.01.2004 at 10:11 #485484
Sorry OHR ég var að lesa yfir þetta aftur og skil nú hvað þú átt við, greinilega ekkert diss í gangi. Sorry enn og aftur.
Haukur
22.01.2004 at 14:47 #485478Hvað áttu við með "það hlaut að vera Haukur"? Er þetta eithvað diss í minn garð eða hvað?
Auðvitað Haukur
22.01.2004 at 14:45 #478736Hér sannast það að hásing er mjög góð.
[img:ef0rpcb6]http://www.hugi.is/jeppar/image.php?mynd_id=18293[/img:ef0rpcb6]=
22.01.2004 at 14:26 #485474Það er rétt hjá þér SkuliH. Ég ætla að setja umrædda mynd á vefspjallið.
Haukur
22.01.2004 at 13:40 #193546Veit einhver hvernig maður setur inn myndir. Ég reyndi copy/paste en það virkaði ekki.
Haukur
22.01.2004 at 09:59 #485398Gaman að lesa svona pósta frá Toyota og Patrol eigendum. Sækjast sér um líkir, þrátt fyrir mikinn meting á milli þessara tveggja þjóðflokka. Ætli það væri ekki hægt að lækna þessa Patrol spúara með því að finna sér 4.2L díselvél í þá? Er ekki séns að fá þær frá Ástralíu?
Haukur
20.01.2004 at 12:15 #485128Hvernig súkku ert þú að tala um?
Haukur
20.01.2004 at 09:52 #484874Jepptroll heitir þú nokkuð Jakob? Ég veit að minnsta kosti um einn Jakob sem lætur svona á Huga.
Haukur
20.01.2004 at 08:14 #484986Er hitaelementið í lagi? Það gæti náttúrulega verið málið.
Haukur
18.01.2004 at 02:27 #484588Auðvitað eru Amerískir jeppar sendir til Mars. Veit einhver hvenær við megum búast við því að losna við þá alla þangað upp eftir?
Gott hjá þeim, þeir komast ekkert í snjó svo þeir fara alla leið á Mars til þess að vera vissir um að lenda ekki í einu einasta snjókorni. 😉
En það er allt í lagi með það því að Toyota voru á undan á Suðurpólinn!!!
Japanskar kamikaze kveðjur, Haukur
13.01.2004 at 09:55 #484082Já, við þvælumst þó nokkuð á þessari síðu. Ég er á málmiðnum, er einmitt í tímum með Izeman.
Ætli þetta sé nógu mikill fjöldi til að stofna klíku? Svona eins og Groddarnir, Flugsveitin, Rottugengið og Ungir (Þungir eins og Jón Björgvin kom inn á);)
Það er bara gott að vita af ykkur hérna þó maður þekki fæsta ykkar í sjón.
Haukur
13.01.2004 at 09:46 #484084Ég er nú enginn sérfræðingur í rafgeymum en ég held að þú ættir að fá þér þurrgeymi. Það var grein um þá í Setrinu fyrir þó nokkru síðan og mér skildist á þeirri grein að þeir hefðu meira kaldræsiþol og misstu minni hleðslu en hefðbundnir geymar þegar þeir eru ekki í notkun (ef þeir
eru út í bílskúr þá tæmast þeir smátt og smátt). Ætli þeir hafi þá ekki meiri hleðslu líka?Nú vil ég að mér reyndari menn leiðrétti mig ef ég er með einhverjar villur.
P.S. Ertu með pláss fyrir annan rafgeymi?
Haukur
12.01.2004 at 12:48 #483436Eftir því sem ég best veit er Benni enn með LC bílinn. Ég sat nú í honum á leiðinni heim af síðasta fundi, og það var
6. jan síðast liðinn.Haukur
09.01.2004 at 23:17 #483784Þakka þér fyrir. Við sjáumst þá bara við Leiru.
Haukur
09.01.2004 at 23:04 #193420Ég er hérna á Akureyri og er ekki alveg viss varðandi ferðina á morgun. Á síðasta fundi var ég að bíða eftir því að listi fyrir ferðina myndi ganga og tók ekki eftir honum. Skráðu menn sig snemma á fundinum (ég mætti seint)?
Haukur
03.12.2003 at 14:01 #481896Ekki taka mark á hásingar áliti Benna, hann er enn í smá fýlu við hásingar eftir ævintýrið sem hann lenti í.
Voru ekki Toyota jeppar með hásingum sendir á stærsta jökulinn, Suðurskautslandið? Hásingar virka mun betur en þetta klafadót, aðeins fólksbílar og fjarstýrðirbílar eiga að vera á klöfum.
Haukur
03.12.2003 at 13:50 #481842Það er til svo mikið af ódýrum varahlutum í Toyota vegna þess að þeir eru sjaldan bilaðir og því offramboð af varahlutum, þeir eru nánast gefins miðað við þetta ameríska dót. Þetta ameríska kostar svona mikið vegna þess að það eru alltaf bilaðir kanakrúserar út um allar jarðir og því hægt að verðleggja þessa varahluti eins og maður vill.
Viva la Toyota!
Haukur
02.12.2003 at 11:12 #481868Verið ekkrt að svara ég var að sjá á Hugi að Turbo ehf er enn í gangi.
Haukur
02.12.2003 at 11:10 #193263Veit einhver hvort Turbo ehf er enn starfrækt?
Haukur
02.12.2003 at 10:37 #481820Fáðu þér Hilux, getur allt og gerir allt. Léttur, auðvelt að breyta, nóg til af hræjum til að fá varahluti úr og síðast en ekki síst, flottastur. Hilux er líka ódýrari en margur annar t.d. Patrol, Land Cruiser og Pajero.
Haukur
-
AuthorReplies