Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.01.2005 at 21:43 #513450
Jú það er mikill ferða hugur í mér en ég var að missa farið mitt. Erlingur sagði mér það að skiptingin hjá sér færi ekki upp fyrir annan gír og því drægi hann sig í hlé.
Haukur
14.01.2005 at 21:29 #513442Fyrst það er laus staða hjá þér Erlingur þá hringi ég bara.
14.01.2005 at 14:03 #513426Mig langar að vita hvort einhvern vantar kóara.
Haukur
11.01.2005 at 09:06 #511282Sýndist það vera gamall F250.
Heldur þú Izeman að þú farir að henda litlu bensínvélinni fyrir alvöru mótor?
Það er allavega ekki þörf á GPS til að tracka ef maður er með þessa vél, maður eltir bara svörtu slóðina;) Jafnvel Patrol hefur ekkert að segja í hana þessa þegar það kemur því að mökka.
Haukur
11.01.2005 at 08:54 #513164Þegar ég skoðaði þetta nánar þá virðist þetta vera fyrirtæki sem selur mót fyrir málma.
Ég get ekki fundið þetta.
11.01.2005 at 08:49 #513162Það er ekki umboðsaðili fyrir þessar stöðvar á Íslandi.
Hér er listi yfir umboð.
http://www.neutec.com/dealers.htm
03.01.2005 at 18:00 #512264Therney, hvert er félagsnúmerið þitt? Ég sá það ekki í upplýsingunum um þig.
16.12.2004 at 21:07 #51126616.12.2004 at 21:06 #195065Það væri nú gaman að sjá hann þennann á leiðinni í vinnuna.
05.12.2004 at 22:03 #194998Ég hef verið að skoða þetta aðeins og hef fundið nokkra „Mogga“ á góðu verði.
Hvað hafið þið um þá að segja?
Rusl?
Í lagi?
Snilld?Mér sýnist á þessum bílum að þeir séu mjög vel fallnir til breytinga og vélaskipta.
HÞS A-848
05.12.2004 at 21:47 #510370Ég veit ekki hvernig vél er í honum en mér dettur helst í hug 4.0+ V8, með þónokkurri eyðslu.
25.10.2004 at 20:57 #507030Þú græðir það td að þú getur slökkt á viftunni þegar þú ferð yfir á.Þá lendir þú ekki í því að spaðarnir skrúfi sig í gegnum vatnið og lendi á kassanum með tilheyrandi tjóni.
Haukur A-848
17.10.2004 at 15:46 #506278Þú getur fundið nokkur svör við þessu í korknum "Þetta V.S. hitt". Þú kemst inn á þennann kork með þvi að klikka á HÞS og skoða skrifaðar greinar.
25.07.2004 at 21:31 #194573Ég var í langann tíma í dag að leita mér að kertaþræði fyrir A20A2 vél (bara ósköp venjulegann þráð). Ég fann hvergi þráðinn þrátt fyrir að hafa þrætt allar bensínstöðvar á Akureyri, en Bílanaust og Höldur var lokað.
Afgreiðslumaður í einni sjoppunni sagði mér að þeir seldu hvorki kertaþræði né kerti, að þetta væri nær því að vera matvörubúð heldur en bílaþjónusta.
Mér finnst helvíti skítt að geta ekki fengið kertaþráð þótt það sé sunnudagur.
Eftir kvöldmat fóru mamma og pabba í bíltúr og koma með heim nema hvað, kertaþráð. Ég fór beint út og skellti honum á vélina og hún gekk fínt. Keyrði niður í bæ og viti menn, hún brenndi bara á þremur strokkum. Þá virðist þráðurinn ekki passa.
Hvaða andskotans rugl er það að geta ekki boðið upp á kertaþræði?
Ég veit ekki hvort það var mikið vit í þessum skrifum en ég bara varð að nöldra.
Haukur A-848 illa pirraður!
22.07.2004 at 20:37 #504962Prófaðu kók eða annan gosdrykk með mikilli sýru. Heltu honum yfir pödduna og láttu hann virka í smástund og þurrkaðu af. þú getur líka prófað hársprey (það losar allavega merkingar eftir tússpenna).
Haukur A-848
21.07.2004 at 21:39 #504950Stillanlega Koni.
15.06.2004 at 17:35 #503892Ég skráði mig um áramótin og fékk gíróseðilinn í apríl.
14.06.2004 at 23:29 #194463Ég borgaði félagsgjöldin mín 7. maí og hef ekkert Setur fengið. Hafa aðrir lent í þessu og hversu lengi hafið þið þá þurft að bíða?
Haukur
30.04.2004 at 14:38 #500695Þessir Kanar eru alveg óborganlegir. Tókuð þið eftir línunni "BIG 4X4 35" tires"? Og náttúrulega það að honum hefur verið hrósað fyrir þetta hræ. Snilld!
Haukur
28.04.2004 at 09:55 #500441Ég er sammála Icemoto. Þessir menn sem eru að gagnrýna jeppa- og torfærutækjamenn vita voðalega lítið um þessi mál.
Það er svo sem ekkert mál fyrir mig að segja að það ætti að banna þessa skrifstofukalla, þeir nota pappír, það þarf nú að höggva niður regnskóga til að fá hann. Hvað með gullsmiði, þarf ekki að grafa jörðina í sundur til að ná í dýrmálma og steina?
Ég er sammála því sem kom fram hér á öðrum þræði, Ferðaklúbburinn ætti að búa til myndband sem sýnir hvernig á að aka á Íslandi og hvernig á alls ekki að aka hér.
Ég vona að það verði aðrir sem hafi eitthvað að segja um þetta heldur en tveir 17 ára strákar.
Bauksi
-
AuthorReplies